Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 síðutogara. Hárlubbinn er þykk- ur og úfinn, granstæðið grósku- mikið og þétt. Maðurinn fer oft- ast mikinn. Tungutakið er kraftmikið og frjótt. Allt þarf að kryfja til mergjar. Engin hálf- velgja. Vinmargur. Póstkort, bréf, símtöl, blóm, lítil mynd eða heimsókn. Þetta skrifaði ég um vin minn þegar við opnuðum safnið fyrir austan. Hann er horf- inn en minningarnar hvolfast yf- ir. Við ræktuðum sambandið lungann úr ævinni þótt oft væri langt á milli. En ég fékk ævinlega að vera vinur hans. Það var gaman að fara inn í Fannardal, setjast á móabarð og skrafa um allt milli himins og jarðar. Það var líka gaman að fara út í Urðir og horfa á Rauðu- björgin. Þér fannst Hellisfjarðar- nesið og Múlinn hreinir gimstein- ar séð úr Víkinni. Ívið lakari séð úr Urðunum, en samt flott. Við fórum í Mjóafjörð, þar var nú margt að sjá. Anna á Hesteyri fékk aðstoð við að bera fram símanúmerið hjá vinkonu sinni í Danmörku. Við hjálpuðum til við að gera húsið í Firði flott og fínt. Þar eldaðir þú fuglakjötssúpu. Við keyrðum stundum upp í Hjaltastaðaþinghá. Stoppuðum hjá kofanum hans Kjarvals. Þú varðst kátur þegar þú sást að teikningin innan á kamarshurð- inni var óskemmd. Við komum að Hallfreðarstöðum í Tungunni og stoppuðum við minningarstein- inn um Pál Ólafsson. Þú fórst gjarna með ástarljóð eða vísu- korn eftir skáldið ljúfa og síðan var steinninn laugaður koníaki. Það mátti nú ekki minna vera. Tryggva langaði út í Papey. Dag einn í suðvestanblíðunni hugðum við á Papeyjarferð og keyrðum suður firði. Þegar við komum í Berufjörðinn komstu með góða hugmynd: Við ættum að kíkja aðeins inn í Fossár- dalinn, faðir minn átti ættir að rekja þangað. Við fórum í Foss- árdal og áttum þar tímalaust kvöld í sumarblíðunni. Um kvöld- ið fengum við að halla okkur í gamla húsinu. Þú varst kominn inn í söguna og nóttin fór vel með okkur. Eftir hádegi lögðum við af stað með ferjubátnum yfir Pap- eyjarálana og báturinn tók land í Selavoginum og þú varst fljótur að stökkva frá borði. Það var eins og þú værir kominn til fyrir- heitna landsins. Við þvældumst vítt um eyjuna, skoðuðum kirkj- una og dáðumst að fuglalífinu. Áttahringsvogurinn var fullur af æðarfugli. Já, það var gaman. Daginn eftir ætluðum við að vakna af þessum draumi og fara í land. Það er gaman að hugsa til jóla- föstunnar árið 2000. Þá höfðu bréf gengið á milli okkar og við vorum í símasambandi. Við ætl- uðum að setja upp málverkasafn. Það stóð mikið til. Já, við spáðum og spekúleruð- um og þegar þetta var farið að gera sig fékk ég stundum símtal: „Já, er þetta skipstjórinn sjálf- ur? Þetta er í Köben, kunstmaler Olafsson. – Magni, ég var að gramsa úti í skúr og ég fann eina eða tvær rúsínur sem ég held að gætu gengið ef ég ynni svolítið meira í þeim.“ Síðan fundum við víða „rúsín- ur“. Þetta voru gleðitímar. Mér er minnisstætt þegar þú bauðst skólanum að koma á sýningu í safninu. Þú skyldir sýna og út- skýra, þú lagðir þig allan fram og fékkst ólíklegustu spurningar. „Er erfitt að vera málari?“ Þú svaraðir öllu glaður í bragði. Nú er mál að hætta að tína upp úr minningaskjóðunni. Hún er samt ennþá full. Gerði, afkomendum og öðru venslafólki vottum við dýpstu samúð. Magni og Sigríður (Sidda). Gerði og niðjum og fjölskyld- um þeirra Tryggva flyt ég sam- úðarkveðjur okkar og þakkir með þessum línum. Þegar Tryggvi og Gerður fluttu heim til Íslands voru þau kvödd með viðhöfn í sundlaug- inni. Þar voru fremstu djassleik- arar Danmerkur undir forystu Hugo Rasmussens. Þau hjón, heiðursgestirnir, gistu að sjálf- sögðu á Hótel D’Angleterre í þjóðhöfðingjasvítunni. Minna mátti það ekki vera. „Those were the days“; einn góður útrásarvík- ingur hafði keypt hótelið nýlega og var aldeilis til í að hleypa þeim Tryggva þar inn. Þetta var 27. september 2008; stutt í hrun sem var þó ekki alveg komið. Svo fóru þau Gerður heim. Bjuggu vestur í bæ í verkamannabústaðnum, reyndar í eina húsinu sem ég tók að skóflustungu á átta ára ráð- herraferli. Ég var á móti skóflu- stungum, sá seinna að auðvitað hlaut ég að taka skóflustungu fyrir húsi þar sem Tryggvi og Gerður bjuggu. Örlögin? Heimkominn fékk Tryggvi við- urkenningu kennda við Jón Sig- urðsson fyrir það sem hann hafði lagt til samskipta Íslands og Danmerkur. Það átti hann skilið; og svo kom selveste Dannebrog. Góðan daginn! Tryggvi varð aldr- ei Dani þó að hann byggi þar í fjóra áratugi rúma. Hann var að- allega Norðfirðingur. Þá opnuð- ust sögugáttirnar hjá mínum manni þegar það var talað um Neskaupstað; Bjarna, Lúðvík og Jóhannes. Og ekki síður Óla Magg föður Tryggva, sem var einn af leiðtogum Alþýðuflokks- ins eystra. Þær sögur dugðu í nætur og daga, til dæmis heila nótt í örherbergi á Hótel Absalon að vísu með þriggja pela flösku af koníaki sem lá dauð um morgun- inn. Íslendingar fara flestir í Tívolí fyrst þegar þeir koma til Hafnar. Ég fór til þeirra í Stampesgade. Eftir það var farið að skoða um- hverfið. Hvað er að frétta, Svavar minn? spurningin opin og bjart- sýn, andlitið oft með kankvíslegu brosi. Þá töluðum við um pólitík. Það sem ekki kláraðist í samtöl- um birtist mér stundum á póst- kortum ákaflega þéttskrifuðum. Tryggvi var sósíalisti. Hann var feikivel að sér um margt og margt eins og til dæmis djass- músík sem hann reyndi að miðla tregum eins og hann gat. Þá var setið á djassstöðum fram undir morgun þegar menn fengu sér brauðsneið á næturstað áður en haldið var til funda klukkan átta eða að mála. Tryggvi var myndlistarmaður númer eitt og hann tók hlutverk sitt alvarlega. Hann lét aldrei setja sig út af sporinu; fór á vinnustofuna í Studiestræde eða hvar það annars var sem hann hafði trönur sínar og myndir, hvað sem öðru leið. Tryggvi Ólafsson varð einn fremsti myndlistarmaður Ís- lands. Myndirnar hans eru um allt; höfðingi var hann alltaf, ekki síst þegar myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar var opnað í Neskaupstað. Á heimilum okkar og krakkanna eru margar mynda hans. Þær eru fallegar, bjartar og glaðlegar, forvitnislegar. Um ævi Tryggva er góð bók eftir Helga Guðmundsson. Við komum síðast til hans rétt fyrir jólin. Hann lá fyrir með súr- efnisgrímu. Samt blik í auga og við hvísluðumst á kveðjuorðum. Minningarnar kveðjum við aldrei og myndirnar lifa okkur öll. Svavar Gestsson. Norðfirðingurinn Tryggvi Ólafsson skildi eftir sig mikinn arf með list sinni sem halda mun nafni hans lengi á lofti. Hann var við nám í Kaupmannahöfn þegar við komum til Neskaupstaðar haustið 1963 og í Khöfn bjó hann lengst af ævinnar með fjölskyldu sinni. Menningarlíf af margvís- legum toga blómstraði í Nes- kaupstað og það var því að vonum að menn fylgdust af áhuga með þessum unga og frumlega lista- manni sem féll vel inn í andrúms- loft sjöunda áratugarins. Ekki kann ég að ársetja sýningar hans í heimabyggð, en þær urðu marg- ar og fjölsóttar áður lauk. Drýgstan þátt í að styðja við listamanninn Tryggva á heima- slóð átti æskuvinur hans Magni Kristjánsson skipstjóri og at- hafnamaður. Magni safnaði verk- um hans og lagði haustið 2001 til stofninn að Málverkasafni Tryggva Ólafssonar sem nú fyllir sali á jarðhæð Safnahússins í Neskaupstað. Önnur eins lita- dýrð og þar blasir við er fágæt og það var ógleymanleg stund þegar safnið var opnað að viðstöddum listamanninum. Litir og líf voru samvaxnir ævistarfi Tryggva og slokknuðu aldrei í ásýnd hans þrátt fyrir erfið veikindi síðasta spölinn. Við Kristín og niðjar okkar er- um svo heppin að hafa eignast myndir eftir hann og njótum þeirra daglega. Ég kynntist hon- um fyrst og fremst í tengslum við sýningarnar sem hann hélt syðra og eystra. Tryggvi var einkar glaðvær og viðfelldinn einstak- lingur og mér hefur alltaf fundist hann bera með sér það besta úr andblæ Kaupmannahafnar. Að leiðarlokum þökkum við Kristín samfylgdina og hugsum til fjölskyldu Tryggva á kveðju- stund. Hjörleifur Guttormsson. Lengi hef ég vænst þess að hrafninn, þessi náttsvarti vinur þinn að austan kæmi og bæri þig á fornar heimaslóðir að þú mættir kveðja öldur bernsku þinnar í síkviku fjöruborðinu. En það var nokkuð seigt í þér, Norðfjarðarstráknum, þú áttir ólokið stöku mynd. Og þegar ég las þér ástarljóð úr nýútkominni ljóðabók Skagafjarðarskáldsins á Álftanesi kom glampi í augu þín; rómantískt, fallegt, sagðir þú og lygndir brosandi aftur augunum. Það leyndi sér ekki hverri hjarta þitt sló. Fáeinum dögum síðar settist þú á bak hrafnsins sem bar þig styrkum vængjum austur, mót rísandi sól. Pjetur Hafstein Lárusson. Hinn mikli sagnameistari hef- ur kvatt. Kær vinur í marga ára- tugi, þrátt fyrir langar fjarvistir. Norðfjarðar-sósíalisti, atorku- samur, stundum ögn hrjúfur en umfram allt hlýr og trölltryggur. Listmálarinn Tryggvi varð til strax í bernsku þegar hann byrj- aði að mála fjöllin, bátana og him- ininn. Hann birtist sem gestur á Kleifarvegi 3 fyrir tæpum sextíu árum, þá sem vonbiðill elstu dótt- ur hússins, og vann umsvifalaust hug og hjarta alls heimilisfólks. Þótt ekki yrði um formlegar mægðir að ræða og Tryggvi héldi síðar til Kaupmannahafnar, sem varð heimili hans og Gerðar eig- inkonu hans næstu fjörutíu árin, var hann alltaf eins og einn af fjölskyldunni. Það var alltaf til- hlökkunarefni þegar von var á Tryggva til landsins. Hann birtist þá ævinlega með fangið fullt af hvítum liljum til handa húsmóð- urinni og í staðinn fékk hann samkvæmt eigin ósk steiktan steinbít en að hans sögn var „steiktur steinbítur að hætti Guð- rúnar Bjarnadóttur heimsins besti matur“. Hjá Tryggva kom aldrei annað til greina en myndlistarnám og -störf. Hans staðfasti ásetningur og einbeittur vilji skiluðu honum á skömmum tíma til þeirrar stofnunar sem lengi var drjúgur aflvaki íslenskrar myndlistar, Listaháskólans í Kaupmanna- höfn. Þar hitti hann fyrir þann mann sem máske hafði mest áhrif á hinn unga nemanda: prófessor Søren Hjorth Nielsen. Tilvitnan- ir og speki úr munni Hjorth Niel- sen voru honum tiltækar til enda- dags. Ef til vill kemur frá þessum tíma hin mikla hrifning og að- dáun sem Tryggvi hafði á meist- urum endurreisnarinnar ítölsku með fánaberann Piero della Francesca fremstan, sem Ítalir kalla jafnan Grande Piero og Tryggvi taldi besta málara veraldarsögunnar. Tryggvi var víðförull og víðles- inn, afburða fróður en einnig svo stálminnugur að sumum vinum hans þótti nóg um. Heimili hans og Gerðar í Kaupmannahöfn var opið öllum með látlausri rausn og hjartahlýju. Sagnalist Tryggva var með þeim hætti að aldrei mun gleym- ast. Fáeinum dögum fyrir andlát hans hittum við hann á Droplaug- arstöðum. Þótt röddin væri veik var hugurinn skýr og hann töfr- aði fram enn eitt snilldarverkið úr minningasafni sínu, í þetta skiptið af sér og Alfreð Flóka í Kaupmannahöfn. Ennþá fékk hann þennan glampa í augun sem ævinlega fylgdi frásögnum hans. Hlátrasköllin urðu svo hávær að halla þurfti aftur hurðinni á sjúkrastofunni. Tryggvi sagði eitt sinn, þá ný- kominn úr Ítalíuferð, að helst vildi hann enda sína daga á ítölsku „endurreisnartorgi“. Það varð ekki. Í þess stað andaðist hann umkringdur Gerði, börnum sínum og öðrum ástvinum sem við sendum innilegar samúðar- kveðjur. Helga Hauksdóttir, Kristján Jónsson. Tryggvi Ólafsson er látinn og hans verður sárt saknað. Það er ekki einungis söknuður að list- sköpun hans heldur hljóta allir sem þekktu hann að sakna sam- skiptanna við hann, þau voru ætíð hressileg og eftirminnileg. Tryggvi talaði ávallt skýrt og það fór aldrei á milli mála hver skoð- un hans var. Venjulega gengu menn bæði brosandi og hugsandi af fundi með Tryggva Ólafssyni. Tryggvi var Norðfirðingur, fæddur í Neskaupstað og ólst þar upp til sextán ára aldurs. Honum voru ávallt heimahagarnir afar kærir og hann hélt góðum tengslum við fólk eystra. Tryggvi dvaldi í Reykjavík og síðar í Kaupmannahöfn drýgstan hluta ævinnar en þegar hann kom á gömlu heimaslóðirnar á Norðfirði var hann í essinu sínu. Hann átti ótrúlega auðvelt með að ræða við fólk og í hverri heim- sókn endurnýjaði hann kynni sín við gamla sveitunga. Í hvert sinn sem Tryggvi tók á móti viðurkenningum fyrir lífs- starf sitt, hvort sem það var fálkaorða, Dannebrogsorða eða verðlaun af einhverju tagi, lét hann vita af því að hann væri nú bara strákur austan af Norðfirði. Norðfirðingar voru stoltir af Tryggva og þeim árangri sem hann náði á listasviðinu. Efnt var til sýninga á verkum Tryggva í gamla heimabænum auk þess sem hann var fenginn til að skreyta þar byggingar. Margir Norðfirðingar eignuðust verk eftir listamanninn og eins festi bæjarfélagið kaup á verkum eftir hann. Árið 2000 vaknaði sú hugmynd hjá Magna Kristjánssyni að koma á fót safni með verkum eft- ir Tryggva í Neskaupstað. Magni þekkti Tryggva frá æskuárum þeirra en á fullorðinsaldri endur- nýjuðu þeir kynnin og tókst með þeim hinn besti vinskapur. Tryggvi tók hugmyndinni að safninu afar vel og þótti vænt um að Norðfirðingar kynnu að meta list sína. Það voru merk tímamót þegar Málverkasafn Tryggva Ólafssonar var opnað með form- legum hætti í Neskaupstað hinn 29. september 2001 einungis rúmlega einu og hálfu ári eftir að hugmyndin um stofnun safnsins hafði litið dagsins ljós. Á opnun- arsýningunni voru níutíu og níu málverk og klippimyndir og voru þrjátíu verkanna í eigu hins nýja safns. Tryggvasafn í Neskaupstað hefur eflst og dafnað frá þessum tíma. Sjálfseignarstofnun um safnið var komið á fót árið 2007 en þá voru myndverkin í eigu safnsins á þriðja hundrað. Nú á safnið á fjórða hundrað verk eftir listamanninn og má segja að myndaeignin gefi góða innsýn í sögu listsköpunar Tryggva Ólafs- sonar. Á hverju ári efnir safnið í Neskaupstað til nýrrar sýningar á verkum Tryggva í Safnahúsi bæjarins og er það svo sannar- lega menningarauki fyrir bæjar- félagið að geta boðið upp á slíkar sýningar. Að leiðarlokum vill undirritað- ur fyrir hönd stjórnar Tryggva- safns þakka Tryggva öll sam- skiptin á liðnum árum. Einnig vill stjórnin votta Gerði, eftirlifandi eiginkonu Tryggva, og öllum öðr- um aðstandendum innilega sam- úð vegna fráfalls hans. Minningin um Tryggva mun lengi lifa og listsköpun hans verða fólki til ánægju og yndisauka um ókomna tíð. Smári Geirsson. Þau voru spurul augun hans Tryggva en úr andlitsdráttum hans mátti vel greina ákveðni, glettni og hlýju þegar ég hitti hann fyrst á vinnustofu hans við Valkendorfsgade hér í Kaup- mannahöfn fyrir hartnær 35 ár- um. Kannski fannst honum þá að áhugi embættismannsins á hon- um listamanninum og verkum hans væri óráðin gáta en brátt las hann hana rétt og urðu þau hin fyrstu kynni fljótlega að traustri vináttu sem ég fæ aldrei þakkað nógsamlega fyrir. Á þeim fyrsta fundi heillaðist ég líka af leiftrandi frásagnar- gáfu listamannsins. Tryggvi var annálaður sagnameistari, sög- urnar voru oft mergjaðar en ein- att stórskemmtilegar. Í þeim eins og í verkunum hans endurspegl- uðust lífsreynsla hans og skoðan- ir, rótgróin réttætiskennd, auð- mýkt, umhyggja og virðing fyrir umhverfi sínu. Skynja mátti að uppruni þess umhverfis var bundið við heimahagana, sjávar- plássið við hinn fagra austfirska fjörð, en síðar urðu hinn stóri heimur og erlendir menningar- straumar áhrifa- og þroskavaldar í lífi hans og starfi. Tryggvi Ólafsson steig á skips- fjöl 21 árs gamall og hélt til Kaupmannahafnar til náms við Konunglegu listaakademíuna. Áætluð nokkurra ára dvöl í hinni gömlu höfuðborg Íslands varð 47 ára löng. Á þeim tíma markaði Tryggvi djúp spor með list sinni og mannkostum. Enginn íslenskur listamaður skilur eftir sig jafnmörg verk og Tryggvi í opinberum söfnum og einkasöfnum í Danmörku og eng- inn íslenskur listamaður hefur haldið þar jafnmargar sýningar. Þá stóð sannkallað íslenskt menningarheimili hans og Gerð- ar eiginkonu hans í Kaupmanna- höfn opið, gestir kvöddu inn- blásnir af sögum húsbóndans og þakklátir fyrir gestrisni þeirra hjóna. Vegna veikinda Tryggva fluttu þau hjón til Íslands 2007. Þrátt fyrir þverrandi styrk til handa vann hann áfram að list sinni og beitti til þess eðlislægu æðru- leysi, góðum styrk í huga, njót- andi mikillar umhyggju Gerðar og barna sinna. Þessa varð ég áskynja í reglulegum heimsókn- um til þeirra hjóna á Öldugrand- anum í Íslandsferðum á síðari ár- um og sem fyrr kvaddi ég þakklátur fyrir endalausar sögur, sterkt og gott kaffi og grafík- myndir. Tryggva Ólafssyni hefur hlotnast margvíslegur og verð- skuldaður heiður fyrir störf sín. Heiður minn og þakklæti er að hafa eignast Tryggva að vini. Þakklæti fyrir að hann gaf óspart úr gnægtabrunni mannkosta sinna, hvert samneyti við hann sem reyndist mér dýrmætur lær- dómur og veganesti, örlætið með myndum sínum og sögum. Þegar ég kvaddi Tryggva á Droplaugarstöðum í október síð- astliðnum fannst mér lífsblóm hans fölnandi, líkt og blómin að hausti, þannig var það líka í rödd hans í símtali í desember, en hef- ur nú líkt og gróðurinn lagst í dvala og kvatt þessa jarðvist. Þar með hefst nýtt upphaf fyrir hon- um og blómið hans vaknar til annars lífs. Minningarnar um góðan dreng og vin ylja mér og fjölskyldu minni sem og myndirnar sem við höfum fyrir augum á hverjum degi, sögurnar hans gleymast ekki. Gerði og börnunum vottum við dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorg sinni og varðveita minningu Tryggva Ólafssonar. Benedikt Jónsson. Á degi sem þessum, þegar kvaddur er kær vinur, er það hugsvölun að horfa á myndirnar hans og láta þær vekja minning- ar. Sú elsta er frá sumrinu 1959, ári áður en við útskrifuðumst stúdentar saman, máluð með þekjulitum og sýnir söluskála við þjóðveginn austur af Írafoss- virkjun. Pensilförin eru express- jónísk, forgrunnurinn mógulur og himinninn fagurblár með hvít- um skýjaslæðum, Búrfellið dimmblátt og húsþökin rauð. Kominn á miðjan aldur virti hann myndina fyrir sér að nýju, í senn íbygginn og ánægður, og trúði mér fyrir því að þetta sumar hefði hann verið hugfanginn af „stelpunni sem afgreiddi í sjopp- unni“. Önnur er frá námsárum okkar í Kaupmannahöfn, hluti af sýn- ingunni Jern og tusch, biksvört olíumynd með einni ljósgrárri pensilstroku, láréttri. Hann nefndi hana gjarnan felumyndina og aftók með öllu að hún ætti rætur í tilvistarstefnu Sartres en lét gott heita, væri þess getið til að í henni mætti skynja sterka hrynjandi djassins, sem vitað var að hann unni. Frá svipuðum tíma, um það leyti er Gígja fæddist, er lítil tússmynd sem sýnir á hrífandi hátt samspil ljóss og skugga. Of- ar á veggnum trónir svarthvít mynd af Ólafi Jóhanni Sigurðs- syni rithöfundi sem við félagarnir kunnum báðir vel að meta, drög að olíumálverki. Og loks myndin Vaka, máluð 1983, þegar hann hafði náð há- punkti þroskaferils síns. Fyrir miðju er umkomulaust korna- barn í óvirkum lit, umlukt marg- víslegum hlutum, lifandi og dauð- um, sem dregnir eru fínlegum dráttum á skærbláan grunn, og eldrauð paprika neðst í öðru horninu. Tryggvi Ólafsson var alla tíð vinnuhestur, þekkti ungur brauð- strit og sjósókn, og undi sér hvergi betur en framan við trön- urnar. Það aftraði honum samt ekki frá því að gleðjast með glöð- um og var þá jafnan hrókur alls fagnaðar. „Það þykir mér verst, Steini, að geta ekki unnið leng- ur,“ sagði hann við mig síðast þegar ég sá hann núna á nýliðinni aðventu, þá farinn að kröftum. Og að skilnaði þetta: „Kysstu kærustuna þína!“ Sárt er að vita hann horfinn, hann sem í huga vina sinna var salt jarðar. Megi það vera hugg- un Gerði, Stíg, Gígju og Þrándi. Farðu í friði, vinur. Þorsteinn Gunnarsson og Valgerður Dan Jónsdóttir. Fallinn er frá góður vinur og félagi eftir erfið veikindi. Ég kynntist Tryggva og Gerði hinn 1. september 1968 sem leigjandi í Stampesgade. Að kynnast Tryggva, Gerði og börnum þeirra, sem þá voru Stígur og Gígja, er eftirminnilegt. Tryggvi bjó yfir ótrúlegum frásagnar- hæfileikum og sagði skemmtilega frá hvort sem það var málaralist sem var hans svið, djass sem var hans áhugamál eða kvikmyndir þar sem ákveðnir leikstjórar voru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.