Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 30

Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 Guðrún Heiður Ísaksdóttir, myndlistarkona, sviðslistarkona,skáld og plötusnúður, á 30 ára á afmæli í dag. „Þessa daganaer ég að vinna mikið með hljómsveitinni minni the Post Per- formance Blues Band sem er líka gjörningalistahópur. Við spiluðum með FM Belfast núna í desember og erum að fara í æfingahelgi út á land að æfa gott sjóv, en hljómsveitin heldur tónleika í London síðar á árinu.“ Guðrún sér meðal annars um taktana í hljómsveitinni en hún er einnig plötusnúður og gengur undir nafninu Byssukisi. „Ég spila alls konar tónlist, hef verið að rifja upp pönkið sem mér hefur fundist vanta í bænum en svo fer það eftir því hvar ég er að spila.“ Árið 2017 kom út fyrsta ljóðabók Guðrúnar, Mörufeldur, móður- hamur og er sú bók hluti af Meðgönguljóðum hjá útgáfunni Partus. Ljóð Guðrúnar hafa einnig birst á öðrum vettvangi, m.a. í bókinni Inn- vols og tímaritinu Neptún. Eiginmaður Guðrúnar er Sveinn Steinar Benediktsson, listamaður og plötusnúður, og dóttir þeirra heitir Dýrfinna og er 4 ára. Guðrún var ekki alveg búin að ákveða hvað hún ætlaði að gera í til- efni dagsins þegar blaðamaður ræddi við hana fyrir helgi. „Ég var bú- in að hugsa mikið hvað ég ætlaði að gera, en dóttir mín er með streptókokkasýkingu svo ætli ég verði ekki bara heima með henni að byggja virki. En það er aldrei að vita hvað gerist.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Afmælisbarnið Guðrún er plötusnúður og er einnig í hljómsveitinni Post Performance Blues Band sem er ekki blúshljómsveit. Í æfingabúðir með gjörningalistahópi Guðrún Heiður Ísaksdóttir er þrítug í dag H elgi Magnússon fædd- ist í Reykjavík 14. janúar 1949. Fjöl- skyldan bjó þá á Grenimel en flutti á Einimel um miðjan sjöunda áratug- inn. Helgi bjó í Reykjavík fyrstu árin eftir að hann flutti að heiman en hefur búið á Seltjarnarnesi síðustu 40 árin. Hann gekk í Melaskóla og Haga- skóla, brautskráðist frá Verslunar- skóla Íslands 1970 og lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1974. Helgi varð löggiltur endur- skoðandi í apríl 1975. Hann hefur verið Valsari alla ævi þrátt fyrir að vera fæddur og upp- alinn í miðju KR-hverfi. Helgi er beðinn um skýringu á þessu: „Ég tók þetta upp eftir pabba, sem var einlægur Valsari. Og vegna þess hve einn ég var með þessa hugsjón á mínum æskuslóð- um varð ég bara enn meiri Vals- maður en ella. Á því er ekkert lát.“ Helgi er spurður um önnur áhugamál en Val. „Ég hef alltaf les- ið mikið. Mér líður vel ef ég les mér til gagns 30-40 bækur á ári. Ég er mjög forvitinn og fylgist vel með fjölmiðlum, einkum stjórnmálum og viðskiptalífinu. Ég stundaði lengi vel laxveiðar mér til ánægju með skemmtilegum félögum, en áhuginn hefur dvínað eftir því sem meiri áhersla hefur verið lögð á að „veiða og sleppa“. Þess í stað hef ég valið „að sleppa því að veiða“. Á seinni árum höfum við hjónin snúið okkur að golfinu í vaxandi mæli. Þar fer engum sögum af mínum afrekum! Þegar ég var ungur þótti mér sjötugt fólk gamalt. Mér finnst það ekki lengur. Alla vega ekki hvað sjálfan mig varðar. Ég er á fullri ferð enda nýt ég þess að vinna og hafa nóg fyrir stafni. Þannig sækist ég eftir að hafa það sem lengst.“ Helgi starfaði við endurskoðun hjá öðrum og í eigin rekstri til árs- ins 1986. Eftir það var hann for- stjóri ferðaskrifstofunnar Útsýnar, ritstjóri Frjálsrar verslunar og tók árið 1992 við starfi framkvæmda- stjóra Hörpu hf. Hann stýrði því fyrirtæki og síðar Hörpu Sjöfn hf. þar til snemma árs 2005. Frá þeim tíma hefur Helgi sinnt fjárfestingum og átt sæti í ýmsum stjórnum. Hann var í bankaráði Ís- landsbanka 1997-2005, sat í stjórn Samtaka iðnaðarins í tólf ár, þar af sem formaður 2006-2012 og þá samtímis í stjórn og framkvæmda- Helgi Magnússon framkvæmdastjóri – 70 ára Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir Framkvæmdastjórinn Helgi nýtur þess að vinna og hafa nóg fyrir stafni og vill hafa það þannig sem lengst. Valsari úr Vesturbænum Hjónin Arna og Helgi í Kaupmanna- höfn síðastliðið sumar. Reykjavík Agnes Elva Ingadóttir fæddist 25. júlí 2018 kl. 17.08. Hún vó 3.090 g og var 48 cm löng. For- eldrar hennar eru Sandra Dögg Jónsdóttir og Ingi Þór Jónsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.