Morgunblaðið - 14.01.2019, Side 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019
» Sýning á verkum sexútskriftarnema Ljós-
myndaskólans var opn-
uð á Hólmaslóð 6 á
Granda föstudaginn 11.
janúar. Sýnendur eru
Ásgeir Pétursson,
Helga Laufey Ásgeirs-
dóttir, Hjördís Jóns-
dóttir, Kamil Grygo,
Sonja Margrét Ólafs-
dóttir og Þórsteinn Sig-
urðsson.
Ljósmyndaskólans
Sýning Gunnar Svanberg og Sissa, skólastjóri Ljósmyndaskólans.
Opnun Kamil Grygo, Saga og Spessi, einn kennara Ljósmyndaskólans, við opnun sýningarinnar á Hólmaslóð 6.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s
Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s
Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s
Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s
Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s
Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s
Allra síðasta sýning 1. febrúar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s
Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s
Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s
Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Sun 20/1 kl. 17:00 5. s Mið 23/1 kl. 20:00 6. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s
Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Athugið. Aðeins verða átta sýningar.
Ég dey (Nýja sviðið)
Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s
Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn
Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn
Insomnia (Kassinn)
Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 17/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 20:00
Fös 18/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 22:30
Fös 18/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 20:00
Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 22:30
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
óræðu rými
„Ég hef reynt að leggja sterkari
innihaldslegar línur og vil nota
rýmin hér á annan hátt en gert hef-
ur verið. Norræna húsið býður upp
á einstaka möguleika og það er
ferskur andi í húsinu,“ segir Arn-
björg en bendir um leið á að Nor-
ræna húsið sé meira en bara bygg-
ing: „Það er t.d. áhugavert að vinna
með hús sem er óháð sjálfstæð
menningarstofnun, en þó tengt
rekstrarlega öllum norrænum
stjórnvöldum, og hvað það þýðir
fyrir listirnar að þrífast innan nor-
ræns stofnanaumhverfis. Þetta ger-
um við t.d. í febrúar með kvik-
myndahátið sem helguð er sænska
leikstjóranum Roy Anderson, sem
einmitt þótti sjá bæði glettnu og
harmrænu hliðarnar á skandinav-
íska velferðarsamfélaginu.“
Áfram heldur skandinavíska
sjálfskoðunin með sýningum eins og
þeirri sem sett verður upp í maí: „Á
viðburðinum, sem ber vinnutitilinn
Gender Utopias, skoðum við í gegn-
um linsu listamannanna undiröldu í
hinu normatífa norræna samfélagi.
Við erum svo afskaplega normalís-
eruð á Norðurlöndunum, opin og
frjálslynd, og vert að spyrja hvað
listafólk getur þá gert í sinni sköp-
un til að vera framúrstefnulegt eða
storka ríkjandi ástandi. Kemur þá
kannski í ljós að undir yfirborðinu,
þar sem við erum öll góð hvert við
annað og höfum mjög skýr gildi,
leynist undiralda og tvískinn-
ungur.“
Kannski er ferill Arnbjargar til
marks um ákveðna breytingu sem
er að verða á högum og starfs-
aðstæðum íslenskra listamanna.
Hún segir sjálf að mikið hafi breyst
frá því hún flutti frá Íslandi fyrir
tæpum tveimur áratugum og mörg
tækifæri fyrir skapandi fólk að ým-
ist láta að sér kveða á íslensku sen-
unni eða nota Ísland sem bækistöð
á besta stað; mitt á milli Evrópu og
Bandaríkjanna og með beint flug í
allar áttir.
Arnbjörg viðurkennir að hún hafi
kviðið örlítið fyrir því að flytja til Ís-
lands, ef það myndi verða til þess
að rjúfa tengslin við blómlega lista-
senu Evrópu. „En það kom á daginn
að ég, eins og svo margir íslenskir
kollegar mínir, get haldið áfram að
gera hluti erlendis þótt ég sé kom-
in aftur til Íslands. Að vera lista-
maður á Íslandi bindur mann ekki í
einhvers konar átthagafjötra,“ seg-
ir hún. „Auðvitað er afskaplega
gaman að búa í Berlín, alltaf eitt-
hvað um að vera og eitthvað til að
gera í miðju hringiðunnar, en að
búa á Íslandi þýðir ekki að slíta
þurfi þessi tengsl. Það er hægt að
njóta þeirra lífsgæða sem fylgja því
að búa á Íslandi en samt vinna að
skapandi verkefnum um allan
heim.“
Arnbjörg leggur á það áherslu að
það sé öllu listafólki hollt að prófa
að lifa og starfa erlendis, sér-
staklega á mótunarárum sínum.
„Þar geta þau kynnst því að vera
n.k. „nobody“, laus við allt listrænt
bakland og tengslanet, og þannig
kannski fundið út nákvæmlega
hvað þau langar sjálf að gera – og
búið til sinn eigin stað. En síðan er
bara geggjað að koma aftur heim
til Íslands og gefa af sér á heima-
slóðum.“
Þar með er ekki sagt að ekki
megi bæta æði margt í íslensku
listalífi. Er Arnbjörgu t.d. mjög í
mun að stuðningur hins opinbera
við listafólk ýti ekki undir eins-
leitni. „Undanfarin ár hef mikið ver-
ið að spá í stéttaskiptingu menn-
ingarheimsins, jafnt erlendis sem á
Íslandi, og hvort of lítil fjölbreytni
sé í þeim hópi fólks sem fær að
rækta hæfileika sína og kynnast
listunum,“ segir Arnbjörg og bætir
við að sér þyki mikilvægt að menn-
ingarlífið sé lýðræðislegt á þann
hátt að allir hafi að því aðgang.
„Það má t.d. ekki gerast að flóknari
listform mæti afgangi heldur verð-
ur líka að hampa krefjandi efni sem
jafnvel byggist á fagurfræði sem
fellur ekki innan meginstraumsins.
Þessi flóknu listform geta nefni-
lega haft umbreytandi áhrif á mjög
ófyrirsjáanlegan hátt.“
Kveið því að snúa til baka
ÍSLAND TILVALIÐ SEM BÆKISTÖÐ LISTAMANNA