Morgunblaðið - 15.01.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblásarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ekki bjartsýni á upphafskvóta
Loðnuleiðangur Hafrannsókna-
stofnunar í samstarfi við útgerðir
uppsjávarskipa er langt kominn og
er búist við niðurstöðum undir lok
vikunnar. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins gefa mælingar í
leiðangrinum fram til þessa ekki
tilefni til að upphafskvóti verði
gefinn út.
Í leiðangri í haust fannst ekki
nægilegt magn til að gefa út upp-
hafskvóta og sama var upp á ten-
ingnum í leiðangri Heimaeyjar VE
skömmu fyrir jól. Útgerðarmaður
sem rætt var við í gær sagði að ef
þetta yrði einnig niðurstaðan í
yfirstandandi leiðangri væri ekki
annað í stöðunni en að halda áfram
og fara fljótlega aftur til leitar.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son var um miðjan dag í gær úti af
Vestfjörðum á leið til Reykjavíkur.
Börkur NK og Aðalsteinn Jónsson
SU voru norður af Kolbeinsey og
könnuðu hvort eitthvað hefði bæst
við frá því að skipin fóru yfir
svæðið á vesturleið. Ráðgert var
að þau kæmu til hafnar í Neskaup-
stað og á Eskifirði á morgun.
aij@mbl.is
Loðnunót Óvissa er um vertíð í vetur, en loðnuleiðangur er langt kominn.
Niðurstöður loðnuleiðangurs liggja fyrir í vikulok
Morgunblaðið/Hanna
Hverfi höfuðborgarsvæðisins fengu í gær hvítan
lit þegar snjór lét loks sjá sig á suðvesturhorni
landsins, en lítið hefur verið um snjó þar það sem
af er vetri. Um tíma var kafaldsbylur í borginni
og fór umferð því hægar yfir en vanalega. Snjó-
ruðningstæki voru þó snögg að ausa salti yfir
helstu umferðargötur og yfirleitt fer óþrifnaður-
inn sem því fylgir meira fyrir brjóstið á mörgum
ökumönnum en þæfingur eða þung færð.
Morgunblaðið/Hari
Snjór og saltaustur á
höfuðborgarsvæðinu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Í gærkvöld hafði borist 821 um-
sögn á samráðsgátt stjórnvalda
(samrad.is) um hvort færa eigi
klukkuna á Íslandi nær sólartíma
miðað við hnattræna legu landsins.
Það er hvort henni eigi að seinka
um klukkustund eða hún að vera
óbreytt frá því sem nú er. Þegar
umsagnir eru skoðaðar virðist
seinkun klukkunnar njóta stuðn-
ings flestra sem hafa veitt umsögn.
Í greinargerð sem unnin var í
forsætisráðuneytinu kemur m.a.
fram að rannsóknir sýni að næt-
ursvefn Íslendinga sé almennt of
stuttur. Slíkt geti verið heilsuspill-
andi og haft áhrif á námsárangur
og framleiðni í atvinnulífinu. „Sér-
staklega er þetta áhyggjuefni
vegna barna og ungmenna. Ein lík-
leg skýring er að klukkan sé ekki í
samræmi við hnattræna legu
landsins.“
Umsagnarfrestur um málið hófst
10. janúar sl. og stendur til 10.
mars. Umsagnir eru birtar jafn-
óðum og þær berast. Niðurstöður
samráðsins verða birtar þegar
unnið hefur verið úr þeim ábend-
ingum og athugasemdum sem ber-
ast.
Fjölbreyttar umsagnir
Hér eru birtar fáeinar umsagnir
sem valdar voru af handahófi:
„Rannsóknir sýna að núverandi
ástand raskar lífklukkunni okkar.
Það er því ekki spurning að seinka
klukkunni um eina stund. Stilla
okkur rétt.“ „A eða C, því ég tel að
vetrarbirtan nýtist betur að vinnu-
degi loknum. Hvort fyrirtæki,
stofnanir eða skólar breyta starfs-
tíma sínum ætti að vera lýðræð-
isleg ákvörðun viðkomandi stofn-
unar.“ „Breyta þarf klukkunni til
samræmis við hnattstöðu. Við eig-
um að kappkosta að hafa hlutina
sem réttasta. Að ekki sé talað um
ávinninginn lýðheilsulega séð.“
„A. Óbreytt staða, klukkan er
áfram 1 klst. fljótari en ef miðað
væri við hnattstöðu, en með
fræðslu er fólk hvatt til að ganga
fyrr til náða.“ „Best væri að klukk-
an fylgdi líkamsklukku, sem sagt,
að 12 á hádegi væri sem næst
hæstu stöðu sólar.“
Stuðningur er við seinkun klukku
Yfir 800 umsagnir eru þegar komnar um við hvað á að miða klukkuna á Íslandi
Umsagnarfrestur hófst 10. janúar og stendur til 10. mars Rök með og á móti
Getty Images/iStockphoto
Tími Margir hafa skoðun á því
hvernig á að stilla klukkuna.
Engar breytingar verða gerðar á út-
hlutun úr launasjóði listamanna.
Þetta er niðurstaða fundar sem
haldinn var í gær, en þar var fjallað
um mál rithöf-
undarins Einars
Kárasonar.
Að sögn Hlyns
Helgasonar, sem
er í stjórn launa-
sjóðs listamanna,
var fundað til að
fara yfir stöðuna
og sjá hvort ein-
hverjar misfellur
hefðu átt sér stað
við úthlutunina
og svo reyndist ekki vera. Þá segist
Hlynur ekki geta tjáð sig um ein-
staka mál.
Einar staðfesti á föstudag við fjöl-
miðla að hann hefði ekki fengið út-
hlutun úr launasjóði rithöfunda í ár
og sagðist þurfa að finna sér eitt-
hvað annað að gera. Í fyrradag sagði
hann svo á facebooksíðu sinni að út-
hlutunarnefnd listamannalauna
hefði ekki fengið umsókn frá honum.
Þrátt fyrir það fullyrti hann að hann
hefði fyllt út umsókn 24. september í
fyrra. Alls var úthlutað 555 mán-
aðarlaunum úr launasjóði rithöfunda
og bárust 253 umsóknir um 2.745
mánuði í launasjóðinn.
Engar
breytingar
á úthlutun
Einar verður ekki
á listamannalaunum
Einar
Kárason
A. Óbreytt staða, klukkan er
áfram 1 klst. fljótari en ef miðað
væri við hnattstöðu, en með
fræðslu er fólk hvatt til að
ganga fyrr til náða.
B. Klukkunni seinkað um 1 klst.
frá því sem nú er, í samræmi við
hnattstöðu landsins (dæmi: kl.
11:00 nú verður kl. 10:00 eftir
breytingu).
C. Klukkan áfram óbreytt en
skólar og jafnvel fyrirtæki og
stofnanir hefja starfsemi
seinna á morgnana.
Þrír kostir
kynntir
SAMRÁÐS ÓSKAÐ