Morgunblaðið - 15.01.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 15.01.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsmenn RR-ráðgjafar eru nú að hefja greiningu á kostum og göllum sameiningar fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi í eitt. Bæjar- og sveitar- stjórnir á Fljótsdalshéraði, í Borgar- fjarðarhreppi, Seyðisfjarðarkaupstað og Djúpavogshreppi ákváðu í fyrra- haust að hefja formlegar viðræður um sameiningu en bollaleggingar um slíkt hafa lengi átt sér stað. Ráðgjaf- arfyrirtækið er tekið við stjórn verk- efnisins og mun á næstunni safna upplýsingum um fjárhagsstöðu hvers sveitarfélags um sig. Jafnframt á að kanna afstöðu íbúanna til þess hvern- ig þeir vilji sjá þjónustu og starfsemi háttað ef íbúar samþykkja tillögu um sameiningu sveitarfélaganna. Raunhæfar tillögur mótist „Okkur finnst sjálfsagt að taka þátt í þessum viðræðum, þar sem vanda þarf til verka. Áformað er að kjósa um sameiningartillöguna í lok þessa árs, en aðalatriðið er að vanda til verka í upplýsingaöflun og stefnu- mótun sem þarf að eiga sér stað ásamt víðtæku samtali við íbúa. Þannig mótast raunhæfar tillögur um hvernig málum skuli háttað í samein- uðu sveitarfélagi,“ segir Hildur Þóris- dóttir, forseti bæjarstjórnar Seyðis- fjarðar. „Tryggja þarf að mikilvæg nærþjónusta á hverjum stað fái að halda sér þrátt fyrir að sveitarfélög verði sameinuð. Þar nefni ég til dæm- is grunnskólann hér á Seyðisfirði, þar sem unnið er framsækið og gott starf.“ Spurt um jarðgöng Af hálfu ríksins hefur verið þrýst á um sameiningu sveitarfélaga enda séu þau í dag of fámenn til að geta mætt auknum verkefnum og nýjum kröfum. Hildur segir að sameining- arstarfið eystra taki vissulega mið af þessu viðhorfi – en ríkið verði líka að leggja sitt af mörkum. Þannig hafi Seyðfirðingar og raunar fleiri lengi þrýst á um gerð jarðganga undir Fjarðarheiði og mikilvægt sé nú að fá svör samgönguráðherra um hvort eða hvenær farið verði í þá fram- kvæmd svo og gerð heilsársvegar um Öxi. „Bæjarstjórnin hér á Seyðisfirði er að móta sér sameiginlega sýn um hvað við viljum og viljum ekki fá út úr sameiningu. Þar er horft til stórra hagsmunamála eins og til að mynda Fjarðarheiðarganga,“ segir Hildur. Sameinað sveitarfélag, sem hefur vinnuheitið Austurland, myndi spanna víðfeðmt svæði; frá Möðru- dalsöræfum og Jökulsárhlíð suður að Vatnajökli, yfir Borgarfjörð eystri, Loðmundarfjörð, Seyðisfjörð, allt Fljótsdalshérað og svo Djúpavogs- hrepp, það er Berufjörð og nærliggj- andi svæði. Íbúar á þessu svæði eru í dag um 4.800 talsins. Fljótsdals- hreppur, sem landfræðilega þó til- heyrir þessu svæði, stendur utan við viðræður þessar. Tryggja stöðu hverrar byggðar „Ef verður af sameiningu sveitar- félaga á því víðfeðma svæði sem hér er undir er mikilvægt að tryggja stöðu hverrar byggðar um sig. Slíkt gæti gerst með hverfisráðum sem hefðu í vissum málum ákvörðunar- vald og úr fjárheimildum að spila,“ segir Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir ljóst að núverandi sveitarfélagaskip- an standist ekki til lengdar og eining- arnar þurfi að verða burðugri og fjöl- mennari. Komi til þvingaðrar sameiningar á næstu árum sé kostur að vera fyrri til og vinna málið á eigin forsendum líkt og nú sé ætlunin á Austurlandi. Kosið um sameiningu fyrir lok árs  Sveitarfélagið Austurland er á teikniborðinu  Fjögur sveitarfélög eystra eru í viðræðum um sameiningu  Ráðgjafar greina kosti og galla  Víðfeðmt svæði  Einingar þurfa að vera burðugri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Seyðisfjörður Rætt er um hverfisráð með takmarkað ákvörðunarvald og fjárráð verði af þeirri sameiningu austanlands sem nú er í undirbúningi. Íbúafjöldi í dag Seyðisfjarðarkaupstaður 679 Fljótsdalshérað 3.548 Borgarfjarðarhreppur 108 Djúpavogshreppur 461 Hildur Þórisdóttir Stefán Bogi Sveinsson ryksugur 20% afsláttur Gerið góð kaup! 15-50% afsláttur af gæðavörum ORMSSON janúar dagar lágmúla 8 SÍmI 530 2800 FYRIR HEIMILIN Í LANDINU Pottar og pönnur 30% afsláttur 40% afsláttur Þótt örplastsmengun í kræklingi og plast í maga fýla reynist minni hér við land en í ýmsum öðrum löndum breytir það ekki því að Ísland er ekki laust við plastmengun í hafi, segir á heimasíðu Umhverfisstofn- unar. Til að afla upplýsinga um þessa mengun gerði stofnunin tvo samninga í fyrra; við Rannsóknaset- ur Háskóla Íslands á Suðurnesjum um rannsókn á örplasti í kræklingi á völdum stöðum við Ísland og við Náttúrustofu Norðausturlands um rannsókn á plasti í maga fýla. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar segir að plast hafi fundist í um 70% fýla og um 16% þeirra verið með meira en 0,1 gramm af plasti. Meðalfjöldi plastagna í meltingar- vegi hafi verið 3,65 og meðalþyngdin 0,0486 grömm. Meðalþyngd plasts í fýlum frá Norðausturlandi hafi verið 0,0518 g, aðeins meiri en frá Vest- fjörðum, 0,0452 g. Marktækt meira plast hafi verið í kvenfuglum bæði hvað varðar fjölda agna og þyngd. Minna en í fyrri rannsóknum Á heimasíðu NNA segir að alls hafi 43 fýlum verið safnað á línubát- um út af Vestfjörðum og Norðaust- urlandi. Lítill munur var á plasti eft- ir svæðum. Minna af plasti hafi fundist í fýlunum en komið hafi fram í fyrri rannsóknum á plasti í fýlum við landið. Hins vegar hafi magnið verið yfir þeim mörkum sem OSP- AR stefni að og feli í sér að innan við 10% fýla hafi yfir 0,1 gramm af plast í meltingarvegi. Miðað við fýla á öðrum svæðum við N-Atlantshaf sé lítið plast í íslenskum fýlum. Al- mennt sé minna plast í þeim eftir því sem norðar dregur og fjær þétt- býli. 77 agnir í 120 kræklingum Á heimasíðu Ust. kemur fram að örplast hafi fundist í fjörukræklingi á öllum stöðum sem voru kannaðir. Kræklingi á stærðarbilinu 4 til 5 sentimetrar var safnað neðarlega í fjöru á sex stöðvum við Faxaflóa, Snæfellsnes og Vestfirði. Fjöldi örplastagna var á bilinu 0 til 4 í hverjum kræklingi og fundust plastagnir í 40-55% kræklings á hverri stöð. Alls fundust 77 örplast- agnir í 120 kræklingum sem voru skoðaðir frá öllum stöðum. Meðal- fjöldi örplastagna í heild var 1,27 á krækling og 0,35 á gramm krækl- ings (votvigt). Plastagnirnar voru aðallega þræðir og voru af ýmsum gerðum og litum. Ekki reyndist marktækur munur á fjölda örplast- agna í kræklingi á milli stöðva. aij@mbl.is Plast fannst í um 70% fýla  Meira plast reyndist vera í kvenfuglum  Í meirihluta kræklinga á sex stöðum Ljósmynd/Náttúrustofa Norðausturlands Plast Alls voru 43 fýlar krufðir í rannsókninni. Fýll sem var veiddur í ná- grenni Bolungarvíkur 14. maí í fyrra átti met í fjölda plastagna í maga. Leikarinn Atli Rafn Sigurðarson hefur stefnt Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eyþórsdóttur leikhús- stjóra vegna uppsagnar hans í Borgarleikhúsinu í desember 2017. Hann fer fram á 10 milljóna króna skaðabætur og þrjár milljónir í miskabætur. Málið verður þingfest í héraðsdómi í dag. Atli var rekinn frá leikfélaginu eftir að ásakanir um kynferðislega áreitni voru settar fram gegn hon- um. Hann sendi frá sér tilkynningu í kjölfarið þar sem sagði að sér hefði ekki verið greint frá því hvers eðlis ásakanirnar væru. Í tilkynningu frá Leikfélagi Reykjavíkur segir að það vilji fara varlega í að tjá sig um einkamálefni fyrrverandi starfsmanns en að það virði rétt hans til að setja málið í farveg dómstóla. Tekið hafi verið á málinu á þann hátt sem stjórnendur leikfélagsins töldu og telji enn hafa verið það eina rétta í stöðunni. Atli krefst 13 milljóna frá LR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.