Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
Baldvin Ómar Magnússon
Lögg. Fasteignasali
Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177
baldvin@huseign.is
Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is
Við getum boðið margar gerðir stálgrindarhúsa
með fullmáluðum einangruðum samlokueining-
um, gluggum, glerveggjum og fleira en þetta er
líklegasti ódýrasti byggingarmátinn í dag.
Nú getum við boðið stálgrindarhús frá ýmsum
fyrirtækjum í Evrópu og Asíu á mjög hagstæðu
verði sem uppfylla öll
evrópsk skilyrði.
Við vinnum með kaupanda/arkitekti eða yfir-
verktaka frá fyrstu hugmynd til verkloka. Þannig
verður ódýrasti byggingarmátinn staðreynd.
Hugmyndir af stálgrindarhúsum:
Íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, knattspyrnuhús,
skrifstofubyggingar, verksmiðjuhús, gripahús,
íþróttastúkur, brýr og ýmislegt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Snorrason
í síma 615 2426.
Stálgrindarhús
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gær að leiðtog-
ar Evrópusambandsins hefðu sent
bréf til sín, þar sem veittar voru
frekari skýringar á því hvernig
„þrautavarinn“ varðandi landamæri
Írlands og Norður-Írlands væri ein-
ungis tímabundin og óhentug ráð-
stöfun, en fyrirhugað er að Bretland
yfirgefi Evrópusambandið 29. mars.
Í bréfinu, sem undirritað var af
Donald Tusk, forseta Evrópusam-
bandsins, og Jean-Claude Juncker,
forseta framkvæmdastjórnar þess,
var áréttað að ekki yrði hægt að
semja upp á nýtt um viðskiptasam-
komulagið sem undirritað var á síð-
asta ári, en að hægt væri að veita
skýringar „með lagalegt gildi“ um
ákvæðin er snerta Írland. Þeir vildu
hins vegar ekki veita skýran tíma-
ramma varðandi endalok þrautavar-
ans.
May greindi frá þessu í ræðu sem
hún flutti í Stoke, en þar tók hún
fram að hún skildi vel að þær skýr-
ingar sem Tusk og Juncker hefðu
veitt myndu líklega ekki ganga eins
langt og sumir þingmanna vildu, en
að hún væri sannfærð um að þing-
heimi hefði nú verið gert ljóst að
þetta samkomulag væri það besta
sem væri í boði, og að það verðskuld-
aði stuðning þeirra. Stefnt er að því
að neðri deild þingsins greiði at-
kvæði um samkomulagið síðdegis í
dag.
Óvíst er hvort að það muni fá
brautargengi, en margir af þing-
mönnum Íhaldsflokksins hafa lýst
sig andvíga samkomulaginu. Þá hef-
ur norðurírski DUP-flokkurinn
einnig lýst sig andvígan því en þing-
menn flokksins hafa varið stjórn
May vantrausti síðustu misserin.
Reyna að róa þingmenn
Tusk og Juncker senda bréf um þrautavarann til May Atkvæðagreiðsla í dag
AFP
Brexit Stuðningsmenn útgöng-
unnar eru margir hverjir ósáttir við
samkomulagið við ESB.
Óeirðalögregla í Aþenu beitti táragasi til þess að leysa
upp mótmæli á götum borgarinnar, en kennarar og
nemendur í Grikklandi höfðu boðað til þeirra.
Fyrir gríska þinginu liggur nú frumvarp til laga, sem
myndi breyta því hvernig kennarar í ríkisskólum lands-
ins yrðu skipaðir, en breytingarnar eru umdeildar.
AFP
Táragasi beitt í mótmælum í Grikklandi
Mótmæla breytingum á menntakerfinu
Sergei Lavrov,
utanríkisráð-
herra Rússlands,
sagði í gær að
stjórnvöld í Jap-
an yrðu að viður-
kenna yfirráð
Rússa yfir Kúríl-
eyjaklasanum ef
friðarviðræður
ríkjanna ættu að
halda áfram.
Lavrov fundaði í gær með Taro
Kono, utanríkisráðherra Japana í
Moskvu, en tilgangur viðræðnanna
er að binda formlegan enda á seinni
heimsstyrjöldina.
Sovéski herinn hertók eyjarnar á
síðustu dögum styrjaldarinnar, og
hafa Japanar gert kröfu um að fá
þær til baka allar götur síðan. Lavr-
ov ítrekaði í gær hins vegar að
Rússar litu á eyjarnar sem rúss-
neskt landsvæði, og að þeim yrði
ekki skilað. Þá hafa íbúar á Sakhal-
ín-skaga lýst sig mótfallna því að
láta eyjarnar af hendi.
Verða að viðurkenna
yfirráð Rússa
Sergei
Lavrov
RÚSSLAND
David Ducken-
field, lögreglu-
foringinn sem
stýrði aðgerðum
á bikarleik Liv-
erpool og Nott-
ingham Forest í
Hillsborough-
slysinu lýsti í
gær yfir sakleysi
sínu, en réttar-
höld yfir
Duckenfield hófust í gær. 96 stuðn-
ingsmenn Liverpool krömdust til
bana þegar áhorfendasvæði á Hills-
borough-leikvanginum í Sheffield
yfirfylltust hinn 15. apríl 1989.
Þetta er versta slys sinnar teg-
undar í sögu Bretlands.
Duckenfield er ákærður fyrir að
hafa valdið andláti 95 hinna látnu
með gáleysi sínu. Graham Mackrell,
fyrrverandi ritari Sheffield Wed-
nesday, sem á Hillsborough-
leikvanginn, er einnig fyrir rétti,
grunaður um brot á öryggisreglum.
Réttarhöld hafin
vegna Hillsborough
David
Duckenfield
STÓRA-BRETLAND
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að
viðræður væru hafnar um stofnun
„öruggs svæðis“ við landamæri
Tyrklands og Sýrlands. „Við viljum
tryggja að þeir sem börðust með
okkur gegn [Ríki íslams] séu öruggir
… og um leið að hryðjuverkamenn í
Sýrlandi geti ekki ráðist á Tyrk-
land,“ sagði Pompeo, en hann var
staddur í Sádí-Arabíu á ferðalagi
sínu um Mið-Austurlönd.
Ummæli Pompeo féllu eftir að Do-
nald Trump Bandaríkjaforseti hafði
hvatt til þess á samskiptasíðunni
Twitter á sunnudaginn að 30 kíló-
metra breitt „öruggt svæði“ yrði bú-
ið til á landamærunum, án þess að
taka fram hverjir myndu sjá til þess
að því yrði framfylgt. Varaði Trump
jafnframt við því að hann myndi
eyðileggja efnahag Tyrkja ef þeir
réðust á Kúrda í Sýrlandi. Mæltust
þau orð mjög illa fyrir hjá tyrknesk-
um stjórnvöldum.
Mevlut Cavusoglu, utanríkisráð-
herra Tyrklands, sagði í gær að
Tyrkir væru ekki mótfallnir því að
setja upp „öryggissvæði“, en nokkur
spenna hefur ríkt í samskiptum
Tyrklands og Bandaríkjanna að
undanförnu, þar sem Tyrkir hafa
hótað aðgerðum gegn Kúrdum í Sýr-
landi á næstunni.
Slíkar aðgerðir myndu einkum
beinast gegn YPG-hópnum, en sá
tók virkan þátt með stuðningi
Bandaríkjamanna í baráttunni gegn
vígamönnum Ríkis íslams.
Tyrkir segjast hins vegar líta á
YPG sem hryðjuverkasamtök sem
tengjast PKK-samtökunum, sem
bönnuð hafa verið í Tyrklandi, en
þau voru í fararbroddi vopnaðrar
andspyrnu Kúrda gegn Tyrkjum
sem hófst árið 1984. sgs@mbl.is
Vilja stofna
„öruggt svæði“
Viðræður hafn-
ar um framtíð
Kúrda í Sýrlandi
AFP
Kúrdar Tyrkneskar hersveitir við
landamæri Sýrlands og Tyrklands.
Kanadamaðurinn Robert Lloyd
Schellenberg var í gær dæmdur til
dauða af kínverskum dómstól fyrir
stórfellt fíkniefnasmygl, en hann
hafði áður verið dæmdur í fimmtán
ára fangelsi. Við áfrýjun komst æðri
dómstóll hins vegar að þeirri niður-
stöðu að dómurinn væri of vægur, og
var honum því breytt sem fyrr segir.
Málið er í kanadískum fjölmiðlum
sett í samhengi við reiði kínverskra
stjórnvalda eftir að stjórnarmaður í
fjarskiptarisanum Huawei var hand-
tekinn í Kanada í desember síðast-
liðnum vegna framsalsbeiðni frá
Bandaríkjastjórn.
Schellenberg neitar enn að hann
sé fíkniefnasmyglari, en kínverskir
dómstólar segja staðreyndirnar tala
sínu máli. Justin Trudeau, forsætis-
ráðherra Kanada, sagði við fjölmiðla
í gær að hann hefði miklar áhyggjur
af því að Kínverjar hefðu tekið „geð-
þóttaákvörðun“ um líf Schellen-
bergs.
Dæmdur til
dauða fyrir
smygl
Trudeau lýsir
yfir áhyggjum