Morgunblaðið - 15.01.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.01.2019, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 ✝ Sigurður Dav-íðsson fæddist 5. ágúst 1947 í Keflavík. Hann lést á líknardeild Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja 4. janúar 2019. Foreldrar hans voru Ólöf Lilja Sigurðardóttir, húsmóðir og verkakona, ættuð úr Keflavík, f. 14. júlí 1921, d. 26. maí 2007, og Ásmundur Davíð Gíslason, sjómaður og verkamaður, ættaður frá Hafn- arfirði, f. 14. september 1923, d. 28. nóvember 1978. Eftir fæðingu Sigurðar hófu þau bú- skap á Öldugötu 22 í Hafnar- firði, hjá Kristínu móður Dav- íðs. Þau fluttu síðan til Keflavíkur og bjuggu þar æ síðan. Systkini Sigurðar eru: a) Kristín Ása Davíðsdóttir, f. 14. maí 1957, eiginmaður Stefán Atli Þorsteinsson, búsett í Innri-Njarðvík. Þau eiga þrjú börn, Birgittu Ösp, Lilju Björk og Davíð Frey. Barnabörnin eru þrjú, Oliver Líndal, Jana Líndal og Edda Kristný. b) ember 2009. Þau eru búsett í Innri-Njarðvík. Sigurður bjó nær alla sína tíð í Keflavík og gekk þar í barna- og gagnfræðaskóla. Hann var í sveit nokkur sumur og undi þar hag sínum vel. Á unglingsárunum vann hann í frystihúsum og við önnur til- fallandi störf. Sigurður var síð- an lengst af sínum starfsferli sjómaður og hóf sjómannsfer- ilinn í skiprúmi með föður sín- um. Hann var síðan háseti og stýrimaður á ýmsum bátum og skipum í mörg ár. Sigurður lenti í alvarlegu bílslysi árið 1988 og varð þá að hætta sjó- mennsku að mestu. Eftir það varð hann sér úti um öfluga brýningarvél og stundaði hnífabrýningar. Í tómstundum stundaði Sig- urður lax- og silungsveiðar frá unga aldri og var eldklár og góður veiðmaður. Var meðal annars leiðsögumaður laxveiði- manna nokkur sumur í hinni rómuðu Grímsá í Borgarfirði. Þá var hvers konar spila- mennska í miklum hávegum höfð, sérstaklega brids og var hann gildur félagi í Bridge- félagi Suðurnesja í áratugi. Einnig mikið spilað heima, með tryggum hópi spilafélaga og á netinu. Útför Sigurðar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 15. jan- úar 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Gísli Davíðsson, f. 17. nóvember 1953, ókvæntur og barnlaus, búsettur í Keflavík. c) Þórð- ur Kristjánsson, f. 30. desember 1942, eiginkona Unnur Þorsteinsdóttir, búsett í Keflavík. Þau eiga dótturina Lovísu og tvær dótturdætur, Unni Láru og Hjördísi Lilju. Sigurður var ókvæntur, en á einn son Jóhannes Þór, f. 6. október 1968. Barnsmóðir Sig- urðar er Ingibjörg Jóhannes- dóttir frá Sólvöllum í Skaga- firði, f. 19. september 1948. Jóhannes Þór ólst að mestu upp í góðu yfirlæti hjá móður- ömmu sinni og -afa á bænum Sólvöllum við Varmahlíð í Skagafirði. Jóhannes er sjó- maður og hefur mest stundað fiskveiðar á skipum og þá ým- ist sem háseti, stýrimaður eða skipstjóri. Eiginkona Jóhann- esar er Hulda Ólafsdóttir kennari, f. 7. júlí. 1967, ættuð úr Hafnarfirði. Synir þeirra eru: Davíð Már, f. 20. maí 1999, og Dagur Fannar, f. 30. nóv- Nú hefur Sigurður bróðir minn lokið lífsgöngu sinni. Hann hvarf inn í Sumarlandið á sinn hljóðlega hátt eftir erfiða baráttu við krabbamein í nokk- ur ár. Án efa hefur hann fengið góðar móttökur foreldra okkar og annarra ættingja og er nú laus allra þrauta. Siggi fæddist í húsi móður- ömmu okkar og -afa á Austur- götunni í Keflavík. Hann fékk gott uppeldi, fyrstu fimm árin í Hafnarfirði og síðan í Keflavík, þar sem hann átti heima nær alla tíð. Siggi var líflegur og uppátækjasamur á uppvaxtar- árunum og þótti sumum stund- um nóg um, en allt var þetta nú meinlaust og hlaut enginn skaða af svo ég viti. Mestur tími fór í fótbolta, bryggjuveið- ar og aðra leiki. Siggi hafði yndi af dýrum og var í sveit nokkur sumur, fyrst á Skíð- bakka í Landeyjum og síðar á Selá á Skaga. Á Selá komst hann í kynni við stangveiðar og varð þá ekki aftur snúið. Stang- veiði í ám og vötnum var upp frá því hans mesta yndi og dvaldi hann löngum stundum við stangveiðar á hverju ári. Siggi hélt alla tíð góðu sam- bandi við fólkið á Selá og fór stundum oft á sumri þangað norður til veiða. Hann var fisk- inn og laginn veiðimaður. Færi maður með honum í veiði var hann oftar en ekki með mestan afla. Siggi fór ungur til sjós og eftir nokkurn tíma á sjónum fór hann í Stýrimannaskólann og aflaði sér réttinda. Upp frá því varð sjómennska hans aðal- starf, eða til ársins 1988 er hann lenti í alvarlegu bílslysi, sem gerði það að verkum að hann hætti að mestu til sjós. Hann bróðir minn batt þó ekki alltaf bagga sína sömu hnútum og aðrir. Lífsgæða- kapphlaupið og peningasöfnun var ekkert fyrir hann. Hann vann til að lifa, en lifði ekki til að vinna. Hann vann oft í skorpum og tók sér svo löng frí á milli. Fór þá gjarnan í veiði eða gerði bara það sem hann langaði til í það og það skiptið. Siggi var samt bæði duglegur og vel liðinn í vinnu. Hann var líka barngóður og klikkaði aldrei á því að færa afastrákunum sínum og systk- inabörnum afmælis- og jóla- gjafir og þá oftast í félagi við Gísla bróður. Síðastliðna tvo vetur undi hann sér vel í hit- anum á Kanarí þar sem vetr- arveðráttan hér heima fór illa í hann. Fyrir allmörgum árum greindist Siggi með lifrarsjúk- dóm, sem með tímanum varð að krabbameini. Sumarið 2013 fór hann fór til Svíþjóðar í lifrarígræðslu, en það dugði ekki til og með tím- anum dreifðist meinið og tók að lokum yfirhöndina. Siggi var samt ótrúlega harður af sér, kvartaði aldrei, var oftast með grín á takteinum og kvaddi jarðlífið með reisn. Að leiðarlokum þökkum við Unnur, eiginkona mín, elsku Sigga samfylgdina og biðjum Hinn hæsta höfuðsmið himins og jarðar að gæta hans. Blessuð sé minning þín. Þinn bróðir, Þórður Kristjánsson. Þegar ég frétti af andláti vinar míns, Sigga Davíðs, komu upp í hugann minningar frá Smáratúninu í Keflavík, frá þeim tíma þegar við vorum litl- ir pollar að leika okkur ásamt öðrum börnum í götunni. Húsin nr. 14, 13 og 7 voru eins og eitt heimili. Siggi átti heima á nr. 14, ég á 7 og Halli (Hallmann) á nr. 13. Í þá daga léku börn sér langt fram á kvöld. Ég get sagt margar sögur frá æskuárum okkar í Keflavík. Leiksvæðin voru heiðin, fjaran og ekki síst bryggjan í Básnum þar sem við stunduðum veiðiskap á sumrin. Strákarnir voru oft svangir eft- ir langan dag og komu þá við á Austurgötunni hjá afa og ömmu Sigga til þess að fá mjólk og kex. Við vorum oftast í sama bekk í barna- og gagnfræða- skóla. Siggi var vel gefinn, góð- ur í lestri og reikningi, hand- laginn og ekki síst góður liðsmaður í handboltanum og fótboltanum hjá Sigga Stein- dórs í KFK. Þar vorum við saman strákarnir frá Túnunum ásamt mörgum öðrum. Siggi Steindórs var okkar íþróttaforingi þegar við vorum að alast upp. Oft lékum við okkur á Jónstúnunum og á túninu hjá Sigga svína, fórum upp að Vötnum, út á Berg og í kríueggjaleit uppi í heiði á vor- in. Að ógleymdum Slippnum í Keflavík og eltingaleiknum við sprettfiskinn í fjörunni. Svona var lífið hjá okkur sem fæddumst árið 1947 í Keflavík. Það var frjálst og spennandi og í leikjum okkar lærðum við að lífið er dásam- legt og þess vert að því sé lifað til fulls. Við áttum samleið til 15 til 16 ára aldurs en þá fórst þú, Siggi, þína leið og ég mína. Okkar gamli vinskapur lifði samt alla tíð og þegar við hitt- umst byrjuðum við strax að rifja upp gömlu og góðu árin. Þú varst tvö sumur á bænum Selá í Skagafirði. Jón á Selá var bóndi þar og þar lærðir þú margt um lífið og tilveruna, allt um lax- og silungsveiði og um búskaparhætti í sveitinni. Þeim tíma gleymdir þú aldrei og tal- aðir oft um dvölina á Selá. Ég nefndi húsin á Smáratúni nr. 7, 13 og 14, húsin sem voru heimili okkar allra og þar sem við fengum alltaf eitthvað gott í gogginn hjá mömmunum sem allar voru heimavinnandi en pabbarnir úti að starfa á sjó eða í landi. Við áttum allir vinirnir far- sæl æsku- og uppvaxtarár og nutum góðs atlætis í foreldra- húsum. Góði vinur, nú hefur tíma- glasið þitt tæmst, en minning um góðan dreng gleymist ekki. Kveðja, Sævar Halldórsson. Sigurður Davíðsson ✝ Helga SigríðurGíslason Ing- ólfsdóttir fæddist í Winnipeg í Mani- toba í Kanada 19. mars 1931. Hún lést á hjartadeild Landspítalans 7. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Helgi Ingólfur Gíslason, f. 1899, d. 1968, og Fanney Gísladóttir, f. 1912, d. 2004. Systkini Helgu eru Erna (Edda), f. 1928, d. ardóttir, f. 1889, d. 1955. Börn Helgu og Hermanns eru: 1) Rannveig Helga, f. 20.7. 1956, gift Ómari G. Jónssyni. Synir þeirra eru Magnús Dan, f. 14.10. 1988, og Helgi Hrafn, f. 17.9. 1994. 2) Jón Ingólfur, f. 28.12. 1961. Helga var á fjórða ári þegar fjölskyldan flutti heim til Ís- lands. Hún hafði frá barnsaldri mikinn áhuga á hestum og var sem unglingur knapi á mörg- um kappreiðum. Helga og Her- mann bjuggu í Reykjavík fyrir utan ellefu ár sem þau dvöld- ust í Kaliforníu sér til heilsu- bótar. Minningarathöfn um Helgu fer fram í ríkissal Votta Je- hóva í Reykjavík í dag, 15. jan- úar 2019, klukkan 14. 2001, Hörður, f. 1930, d. 1996, Ing- ólfur Gísli, f. 1941, d. 1996, Lára Sig- rún, f. 1943, Ólaf- ur, f. 1945, d. 2016, og Sigurður Valur, f. 1948. Helga giftist 15. september 1955 Hermanni Hall- grímssyni, f. 15.9. 1928, d. 27.4. 2001. Foreldrar hans voru hjónin Hallgrímur Jónsson, f. 1890, d. 1973, og Rannveig Sigurð- Upp úr áramótum bárust mér fréttir til Kaliforníu að Helga móðursystir mín hefði veikst alvarlega og væri á spít- ala. Í fyrstu var ekki hægt að trúa öðru en að þessi fínlega, sterka kona, sem sigrast hafði á svo miklu áður, myndi gera það líka nú. Því miður reyndist tímaglas hennar runnið út og hún kvaddi okkur 7. janúar. Systurnar, Edda móðir mín og Helga, giftu sig með stuttu millibili á 6. áratugnum og eignuðust börnin á árunum eft- ir það. Það var því eðlilega mikill samgangur á milli heim- ilanna. Við Jón Ingólfur vorum miklir félagar á æskuárum og erum enn. Ég var oft í fóstri eða í heimsókn hjá þeim og á góðar minningar frá þeim ár- um. Sumar af stærstu stundum æsku minnar tengjast Helgu og fjölskyldu. Ég var hjá þeim vorið ’67 þegar mamma lá á sæng þegar Helga kallaði á mig til að segja mér að ég væri búin að eignast lítinn bróður. Tæp- um fjórum árum seinna var ég líka hjá þeim fyrstu dagana eft- ir að við misstum bæði hann og heimilið. Þá var gott að eiga þau að. Helga gerði það sem hún gat til að hugga og styrkja unga systurdóttur sína í mikilli sorg og áfalli. Ég var því ekkert sérlega spennt þegar ævintýramennsk- an greip þau og þau fluttu öll út til Kaliforníu á áttunda ára- tugnum. En Helgu leið vel í veðráttunni hér og lofaði hana mikið. Það vildi maður ekkert endilega heyra, bara fá þau heim. Síðar æxlaðist það þann- ig, eftir að þau voru öll, nema Jón Ingólfur, flutt aftur heim, að ég kom hingað út og ílentist, sem upphaflega stóð ekkert til. Hef oft hugsað til frænku með kímni þegar ég hljóma alveg eins og hún og dásama veðrið í Kaliforníu. Þau hjónin komu lengi árlega hingað í heimsókn til Jóns Ingólfs, þá áttum við oft góðar stundir saman. Helga og Hermann voru ein- staklega samhent hjón og nán- ast háð hvort öðru að manni fannst. Við höfðum því í fyrstu svolitlar áhyggjur af Helgu er hann féll skyndilega frá hér í Kaliforníu vorið 2001, tveimur vikum á undan mömmu. Ég man að ég flýtti mér áhyggju- full til frænda þar sem þau voru í heimsókn og hálfbjóst við að finna Helgu þar niður- brotna. Ég kom að bílskúrnum opnum og þar sem ég gekk inn í hús sá ég að þvottavélin var í gangi. Þá vissi ég að við þyrft- um ekki að hafa áhyggjur af Helgu. Á meðan við vorum öll eins og hún, í áfalli yfir fráfalli Mannsa, var hún að þvo þvott og sinna gestum. Jú, því lífið verður að halda áfram og hún sýndi sannarlega styrk sinn vikurnar þar á eftir við tvöfalt áfallið. Við áttum margar góðar stundir í Kaliforníu og heima á Íslandi, mikið spjallað og hleg- ið. Við vorum ólíkar en Helga var alltaf svo falleg, kát, með hlýja og góða viðveru. Alltaf svo fín, vel tilhöfð og virtist lít- ið eldast. Eitt sem einkenndi hana alla tíð, og við áttum sameiginlegt, var ást hennar á hestum og dýrum yfirleitt. Hún var mikil hestakona og knapi á yngri ár- um og keppti sem slík á mót- um. Hlaut þá marga byltuna sem síðar áttu eftir að segja til sín vegna bakmeiðsla. Fólk sem er gott við dýrin er gott fólk að mínu mati og það var Helga. Takk fyrir allt elsku frænka, innilegar samúðarkveðjur til Rannveigar og fjölskyldu og Jóns Ingólfs. Kristrún Þórdís Stardal. Helga Sigríður Gíslason Ingólfsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR E. GUÐMUNDSSON, M.A., fv. framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, Raufarseli 11, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. janúar, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 16. janúar klukkan 13. Guðrún Helga Sigurðard. Friðrik Friðriksson Benedikt Sigurðsson Kjartan Emil Sigurðsson Aldís Eva Friðriksdóttir Dagur Páll Friðriksson Emelía Rut Viðarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, EMILÍA GUÐRÚN SVAVARSDÓTTIR, Baughóli 4, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Skógarbrekku, laugardaginn 12. janúar. Hún verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 19. janúar klukkan 14. Steingrímur Hallgrímsson Guðný Steingrímsdóttir Björn Rúnar Agnarsson Bylgja Steingrímsdóttir Kristján Hjaltalín Harpa Steingrímsdóttir Svava Steingrímsdóttir Brynjar Baldursson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sonur okkar og bróðir, ÓTTAR ARNARSON, Víðihlíð 29, Reykjavík, sem lést á Landspítala, Fossvogi, fimmtudaginn 3. janúar, verður jarðsunginn í Háteigskirkju hinn 16. janúar klukkan 15. Örn Logason, Sigríður Birna Kristinsdóttir Birkir Arnarson Hekla Arnardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langlangamma, RÁÐHILDUR INGVARSDÓTTIR, Sléttuvegi 11, áður Álftamýri 2, Reykjavík, sem lést 27. desember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 17. janúar klukkan 15. Einar Magnússon Sigmundur H. Valdimarsson Sigurjón H. Valdimarsson Guðlaug Elíasdóttir ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.