Morgunblaðið - 15.01.2019, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
og glaðværðin. Hann var alltaf
hrókur alls fagnaðar, alltaf tilbú-
inn með glens og gaman, brand-
ararnir komu á færibandi og
hann var sérfræðingur í því að
sjá skoplegu hliðarnar á tilver-
unni.
Ég hef stundum hugsað um að
hann hafi kannski ekki valið sér
rétta fagið þegar hann gerðist
svæfingalæknir! Það var alla-
vega engin hætta á að menn
sofnuðu þegar hann var nálægur
nema hann væri vopnaður
svefnsprautu! Hann var líka
mjög virkur í tímum í MR, skaut
jafnan inn athugasemdum þar
sem gamansemin var aldrei
langt undan.
Því var alla jafna nokkuð vel
tekið af kennurum nema einu
sinni. Það var þegar við vorum í
tíma hjá Guðna, sem varð síðar
rektor MR, líklega betur þekkt-
ur undir viðurnefninu Guðni
kjaftur! Jonni hafði verið með
einhver komment sem Guðna
mislíkaði og sagði Jonna að halda
kjafti. Þessu reiddist Jonni og
fannst kannski þetta koma úr
hörðustu átt og ég held að við
þetta hafi Guðni fallið aðeins nið-
ur vinsældalistann hjá Jonna.
Það gekk samt yfir og við átt-
um seinna eftir að eiga góða
stund með Guðna nokkrum árum
síðar á einum af okkar árlegu
gamlársdagshittingum.
Árin í MR voru eftirminnileg,
sérstaklega í hinum sögufræga
R-bekk. Þar myndaðist mjög
sterkur kjarni 23 bekkjarfélaga
sem hafa haldið hópinn allar göt-
ur síðan og tengst mjög nánum
vinaböndum í bekkjarfélaginu
Bergelmi sem við stofnuðum á
gamlársdag 1967. Við höfum hist
reglulega að lágmarki tvisvar á
ári, og nú síðustu ár næstum
mánaðarlega í hádeginu, auk
vor- og gamlársdagshittinga.
Ég held að það sé ekki á neinn
hallað að segja að Jonni hafi ver-
ið hryggjarstykkið í okkar
bekkjarfélagi öll þessi ár. Hann
var kjörinn fyrsti forseti félags-
ins og hefur gegnt því embætti
lengur en nokkur annar bekkjar-
félaganna, og hafði verið í því
embætti í mörg ár þegar hann
lést. Þau Ásdís bjuggu í Garða-
bæ og hann var því lengi vel eini
forsetinn þar. Það voru óneitan-
lega nokkur viðbrigði þegar
Garðabær og Álftanes voru sam-
einuð í eitt sveitarfélag þar sem
þá fjölgaði forsetunum í bænum
um helming. Jonni var þó lengst-
um alveg þokkalega sáttur við
kollega sína á Bessastöðum enda
voru þeir ekkert að amast við
embættisfærslum hans nema síð-
ur sé og þá bara í hófi (þetta síð-
asta er orðaleikur sem bara Ber-
gelmisbræður þekkja)!
Mig langar að lokum að minn-
ast á Ásdísi, eiginkonu Jonna og
hans styrku stoð og styttu, sem
náði hámarki eftir hið hörmulega
bílslys sem Jonni lenti í fyrir 20
árum þar sem hann lamaðist.
Þótt hann hafi í krafti síns mikla
viljastyrks náð ótrúlegum bata
var hann bundinn við hjólastól
allar götur síðan. Það hefur verið
aðdáunarvert að fylgjast með
hvernig Ásdís hefur annast
Jonna þennan tíma.
Við Hrefna sendum Ásdísi og
börnum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur um leið og við
kveðjum góðan vin og frábæra
manneskju.
Bolli Þór Bollason.
Látinn er kær vinur og koll-
ega, Jón Sigurðsson svæfinga-
og gjörgæslulæknir. Honum
kynntist ég árið 1993, þá að stíga
mín fyrstu skref sem ungur
læknir í sérnámi í svæfinga- og
gjörgæslulækningum. Það gust-
aði af Jóni þar sem hann fór um
ganga Landspítalans. Hann var
alltaf á spani og fylgdist með öllu
sem fram fór, sérstaklega hvern-
ig okkur ungu læknunum gekk,
leiðbeindi og gaf ráð. Hann var
frábær svæfingalæknir, vinsæll
samstarfsmaður og framúrskar-
andi kennari; vel lesinn, handlag-
inn, natinn, opinn fyrir nýjung-
um, léttur í lund og spaugsamur.
Jón lenti í alvarlegu umferða-
slysi árið 1998 og við tók margra
vikna gjörgæslulega. Löng gjör-
gæslulega er öllum erfið en
aukaverkanir eins og óráð
(delirium) og ýmsar óþægilegar
upplifanir geta fylgt. Síðar hélt
Jón margoft vandaða fyrirlestra
um upplifanir sínar sem hann
setti í fræðilegt samhengi. Þeir
fyrirlestrar létu engan ósnortinn
og lagði Jón þannig sitt af mörk-
um til að gjörgæslulæknar og
-hjúkrunarfræðingar öðluðust
betri og dýpri skilning á vanda-
málum og upplifunum sjúklinga
við slíkar aðstæður.
Jón var bundinn við hjólastól
eftir slysið og varð að láta af
starfi svæfingalæknis. Hann lét
þó ekki deigan síga og tókst á við
hlutskipti sitt af einstöku æðru-
leysi og reisn. Jón hóf störf hjá
Tryggingastofnun ríkisins og
hélt áfram kennslu læknanema.
Hann tók virkan þátt í starfi
Svæfingalæknafélagsins, var
duglegur að sækja fundi og við-
burði á vegum þess. Þar kynnt-
umst við svæfingalæknar sam-
spili þeirra hjóna, Jóns og
Ásdísar, sem annaðist mann sinn
af sérstakri natni og var lykillinn
að lífsgæðum hans. Eins naut
hann dyggs stuðning barna sinna
sem og kollega.
Jón vann afrek er hann lauk
við og gaf út bók, Svæfingar á Ís-
landi í 150 ár. Það er merk saga,
frá fyrstu svæfingunni á Akur-
eyri árið 1856 fram til ársins
2006 en bókin er jafnframt góð
heimild um sögu heilbrigðisþjón-
ustu í landinu. Að baki lá um-
fangsmikil gagnasöfnun og mikið
grúsk. Bókin ber vitni um ná-
kvæmni Jóns og vandvirkni en
einnig spaugsemi því á forsíða er
mynd á honum við svæfingarvél
og með fylgir athugasemd höf-
undar: „Glöggir lesendur sjá að á
forsíðumyndinni eru augu bókar-
höfundar lokuð. Svæfingalæknir
má þó alls ekki sofna á verðinum
en verður þvert á móti að hafa
vakandi auga á öllu sem fram
fer.“ Og þannig var Jón svo
sannarlega.
Ég þakka Jóni velvild og vin-
semd alla tíð og votta honum
mína dýpstu virðingu. Ásdísi og
öðrum ástvinum sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Jóns Sigurðssonar.
Þú veist það nú
að vafi er ei um það
og verður þráfalt
vissu þeirri feginn:
Sú eina trú
er færir fjöll úr stað
er ávallt –
á eigin mátt og megin.
Þú lærir samt
er lokin nálgast fer,
og leggur skafl
á lífið, daginn, veginn:
að dauðinn jafnt
að dyrum allra ber:
– Þar brestur afl
þín eigin.
(Erlingur Sigurðarson
frá Grænavatni)
Alma D. Möller.
„Dáinn, horfinn!“ Harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfir!
En ég veit að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
(Jónas Hallgrímsson.)
Góður vinur og spilafélagi til
margra tuga ára, Jón Sigurðsson
(Jonni) svæfingalæknir, er allur.
Hann andaðist á Landspítalan-
um 29. desember sl. Nú eru um
20 ár síðan Jonni slasaðist illa í
bílslysi þannig að hann lamaðist
frá hálsi. Við vorum fimm sem
stofnuðum briddsspilaklúbb 1964
í 4. bekk í Menntaskólanum í
Reykjavík. Nú eru tveir látnir en
Gísli Benediktsson lést í júlí
2016. Það ár gekk Benedikt í
spilaklúbbinn. Hann var
bekkjarfélagi okkar í MR. Við
fimm, sem stofnuðum spila-
klúbbinn, áttum allir heima í
Smáíbúðahverfinu þegar við
kynntumst. Við gengum í Háa-
gerðis-, Breiðagerðis- og Réttar-
holtsskóla. Að loknu landsprófi lá
leiðin í MR. Þaðan útskrifuðumst
við stúdentar úr 6. bekk R vorið
1967. Síðan lá leið okkar í há-
skóla. Jonni fór í læknisfræði og
lauk framhaldsnámi í svæfinga-
lækningum í Gautaborg.
Jonni var ljúfur, geðfelldur,
viðræðugóður og gamansamur.
Hann var frábær vinur og félagi.
Þrátt fyrir að hann væri bundinn
við hjólastól síðustu 20 ár ævinn-
ar þá aftraði það honum ekki frá
að taka þátt í ýmsum viðburðum.
Hann hélt góðu sambandi við
kollega sína á Íslandi og á
Norðurlöndum.
Hann samdi rit um svæfingar
á Íslandi í 150 ár, frá 1856 til
2006. Það kom út í mars 2010 og
var mikið þrekvirki. Hann ferð-
aðist um landið og til útlanda í
fylgd Ásdísar konu sinnar sem
var alltaf hans stoð og stytta.
Hún annaðist hann af æðruleysi
og á mjög stóran þátt í því hvað
Jonni var brattur þrátt fyrir fötl-
unina. Umhyggju og ást hennar
virðast engin takmörk sett.
Henni verður seint fullþakkað.
Eftir stúdentspróf stofnuðum
við R-bekkingar félag sem kennt
var við hrímþursinn Bergelmi.
Þar var Jonni í fararbroddi. Í
spilaklúbbnum var hann hrókur
alls fagnaðar, léttur og kátur.
Þeir voru ófáir brandararnir sem
féllu stundum þeir sömu aftur og
aftur þegar við spilafélagarnir
hittumst. Var þá oft hlegið hátt
og mikið. Bornar voru fram veit-
ingar og fréttir sagðar af fjöl-
skyldum spilafélaga. Alltaf hafði
Jonni frá mörgu áhugaverðu að
segja.
Fyrstu árin var oft spilað frá
kvöldmat fram á rauða nótt.
Smám saman dró úr þessu
næturbrölti og síðustu árin spil-
uðum við síðdegis. Öll árin spil-
uðum við Vínarkerfið sem við
höfum endurbætt eftir okkar
höfði. Síðasti spiladagur okkar í
klúbbnum var 8. nóvember sl. Í
síðasta spilinu sagði Jonni al-
slemmu, 7 tígla, sem hann stóð
með glans. Var hann mjög
ánægður með það spil og hafði
orð á því nokkrum dögum síðar
hvað þetta hefði verið skemmti-
legt spil. Nú er Jonni allur, hans
verður sárt saknað. Hann spilar
ekki fleiri alslemmur hér á jörðu
en hver veit nema þeir Gísli æfi
sig hinum megin og bíði eftir
okkur þar.
Við spilafélagar og konur
okkar sendum Ásdísi, börnum,
tengdabörnum og öðrum að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur. Megi góður guð styrkja
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Benedikt Steinar
Steingrímsson,
Guðmundur Pálmi
Kristinsson,
Hilmar Þórisson,
Ómar Kristinsson.
Það er á unglingsárum að vin-
áttubönd verða til sem endast til
æviloka ef þau eru ræktuð. Við
vorum 23 R-bekkingar sem út-
skrifuðumst stúdentar úr
Menntaskólanum í Reykjavík í
júní 1967.
Við höfðum farið í gegnum
súrt og sætt árin á undan í námi,
prófum og frístundum. Við
ákváðum að halda saman þótt
hver færi í sína átt, höfðum það
formlegt og stofnuðum reglu
sem við nefndum Bergelmi. Fyr-
irmynd sóttum við í Snorra-
Eddu og höfðum mikla skemmt-
un af að semja lög byggð á
Snorra og nýyrðum sem við
fundum upp. Í hádeginu á gaml-
ársdag höfum við hist í 52 skipti,
– á Hámessu. Nú síðast minnt-
umst við Jóns Sigurðssonar,
Jonna, en á undan honum voru
fimm bræður farnir.
Nokkrir okkar náðu að kveðja
Jonna á sjúkrahúsinu áður en
hann skildi við. Við erum sann-
færðir um að þá stóð Jonni upp
og losaði sig úr því hafti sem
hann var bundinn í fyrir tuttugu
árum.
Jonni hefur verið foringi okk-
ar, forseti, eins lengi og elstu
menn muna. Fyrir nokkru vorum
við að gantast með af hverju
menn tækju svona til orða og
fundum út að það væri vegna
þess að elstu menn væru farnir
að gleyma öllu. Það var Jonna
líkt því alla tíð hélt hann sínum
gamla léttleika.
Eftir Hámessur tókum við
hópmynd. Þegar við skoðum
þessar 52 myndir sjáum við
hvernig lífið breytir okkur, við
þroskumst, eldumst og svo fara
menn að tínast úr hópnum.
Í menntaskóla átti Jonni góða
myndavél og tók myndir af
bekkjarlífinu og laumaðist líka til
að taka myndir af kennurunum.
Þessum gömlu fauskum sem á
myndunum eru ungir og ferskir
enda kenndu þeir okkur margt
sem við höfum haft gagn af. Og
þeim farnaðist líka vel eftir sam-
skiptin við okkur, urðu skóla-
meistarar úti um allt land, pró-
fessorar og forseti lýðveldisins.
Frá bróður sínum átti Jonni líka
litlar myndir m.a. af latneskum
stílum sem gott var að hafa í lóf-
anum í prófum hjá verðandi
rektor.
Við vorum í stærðfræðideild
en kunnum setningar eins og
cave canem og pax vobiscum.
Þegar við hugsum til baka er
það allt það góðlátlega sprell
sem Jonni stóð fyrir sem fyrst
kemur upp í hugann. Aldrei lagði
hann illt til nokkurs manns. Við
fylgdumst með honum kvænast,
eignast börn, fara í framhalds-
nám til Svíþjóðar, koma heim
aftur og taka til hendinni. Og við
nutum nákvæmni hans þegar
Hámessur og Stórmessur með
mökum/skessum voru skipulagð-
ar að vori. Jonni hafði vakandi
auga á framgangi okkar og sendi
okkur hvatningu og uppörvun
þegar við átti.
Síðustu árin höfum við að
vetrarlagi hist einu sinni í mán-
uði, borðað saman í hádeginu og
haft unun af samskiptum hver
við annan. Nú verður skarð fyrir
skildi en þá er að taka því og
kyrja eins og svo oft áður:
Ek mynda nú andask,
ungr vask harðr í tungu,
senn, ef sálu minni,
sorglaust, vissak borgit;
veitk, at vætki of sýtik,
valdi guð hvar aldri,
dauðr verðr hverr, nema hræðumk
helvíti, skal slíta.
Við höfum dáðst að styrkleika
þínum, Ásdís. Við flytjum þér og
öllum ástvinum innilegustu sam-
úðarkveðjur frá bræðrum í Ber-
gelmi og skessum.
Í huganum geymum við minn-
ingu um góðan dreng og tryggan
vin.
Jón Hálfdanarson,
Sveinn Rúnar Hauksson.
Á lífsleiðinni verða á vegi
manns margir einstaklingar sem
hafa áhrif á lífshlaupið. Jón Sig-
urðsson svæfingalæknir var einn
þeirra sem höfðu hvað mest áhrif
á mig á þeim árum sem ég var að
taka mína stefnu í lífinu og
ákveða hvað mig langaði að
vinna við eftir nám í læknadeild.
Fyrst hitti ég Jón á Sjúkra-
húsinu á Selfossi í ágústmánuði
árið 1981. Ég var þá læknanemi
að taka mín fyrstu spor í lækn-
isstarfinu í afleysingastöðu að-
stoðarlæknis Daníels Daníels-
sonar yfirlæknis. Jón var þá
nýkominn heim til Íslands eftir
sérnám í svæfingum og gjör-
gæslulækningum í Gautaborg.
Hann kom austur til að svæfa
nokkra sjúklinga á aðgerðardegi.
Mér varð þar ljóst að Jón var
mikill fagmaður og vakti það hjá
mér frekari löngun til að feta í
fótspor hans.
Nokkrum árum síðar falaðist
ég eftir vinnu á svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítalans og
kynntist þar Jóni vel. Við urðum
mestu mátar. Hann lagði sig all-
an fram við að kenna mér tökin á
svæfingum, deyfingum og gjör-
gæslu og að útsetja mig fyrir
sem flestu til undirbúnings undir
frekara sérnám erlendis. Vakti
einnig áhuga minn á rannsókn-
arvinnu sem við unnum að saman
þrátt fyrir litla aðstöðu, sem
engu að síður var gerð af metn-
aði.
Jón var vitur, vel lesinn, skyn-
samur, úrræðagóður, fyndinn og
skemmtilegur. Við eyddum
löngum stundum í umræður og
rökræður um úrlausnir hinna
ýmsu mála innan fagsins og utan.
Finna sem flesta fleti og komast
að sem réttastri niðurstöðu. Jón
hafði sterkar skoðanir á mönnum
og málefnum og studdi þær með
haldgóðum rökum.
Það var mikið áfall þegar Jón
slasaðist alvarlega í umferðar-
slysi fyrir tuttugu árum og gat
ekki lengur sinnt starfi sínu á
Landspítalanum. Hann var einn
af máttarstólpum svæfinga- og
gjörgæsludeildarinnar og varð
þar skarð fyrir skildi.
Ég á margar góðar minningar
um Jón sem hafa yljað mér um
hjartrætur í gegn um tíðina og
mun halda svo áfram um ókomin
ár.
Góður vinur og leiðbeinandi er
genginn. Mestur er missir fjöl-
skyldunnar. Við Dóra sendum
Ásdísi, Sigga, Tobbu, Hemma og
fjölskyldum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Bjarni Valtýsson.
Kveðja frá Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélagi
Íslands
Við sjáum að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær,
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp var þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
Í dag er borinn til hinstu hvílu
Jón Sigurðsson, einn af heiðurs-
félögum Svæfinga- og gjör-
gæslulæknafélags Íslands.
Jón var einn af máttarstólpum
Svæfinga- og gjörgæsludeildar
Landspítalans um árabil. Hann
starfaði á Svæfinga- og gjör-
gæsludeild Landspítalans við
Hringbraut frá því að hann kom
heim frá sérnámi í Gautaborg ár-
ið 1981 og þar til hann lét af
störfum eftir umferðarslys í lok
árs 1998.
Hann hélt áfram kennslu
læknanema við Háskóla Íslands
eftir að hann lét af störfum á
Landspítala og starfaði einnig
um árabil fyrir Tryggingastofn-
un ríkisins.
Jón tók alla tíð virkan þátt í
starfi Svæfinga- og gjörgæslu-
læknafélags Íslands. Hann sat í
stjórn félagsins samfleytt frá
árinu 1981 til 1989 og var for-
maður félagsins 1984 og 1985.
Hann var einnig stjórnarmaður í
norrænum samtökum svæfinga-
og gjörgæslulækna (Scandinavi-
an Society of Anaesthesiology
and Intensive Care Medicine) í
nokkur ár.
Hann sat einnig í stjórn Fé-
lags ungra lækna og í stjórn Fé-
lags íslenskra lækna í Svíþjóð.
Eftir að Jón slasaðist skrifaði
hann bókina Svæfingar á Íslandi
í 150 ár, 1856 til 2006. Bókin var
gefin út á 50 ára afmæli Svæf-
ingalæknafélagsins árið 2010.
Ritun þessarar veglegu bókar
var ekkert annað en þrekvirki.
Það var unnið af Jóni, Ásdísi
konu hans og fjölskyldu þeirra.
Jón pikkaði bókina á tölvu, bók-
staflega staf fyrir staf með strok-
leðursenda blýants í greip sinni.
Það lýsir eldmóði hans og áhuga
á sögunni. Bókin er fjársjóður
Svæfinga- og gjörgæslulækna-
félags Íslands en saga félagsins
er listilega samofin sögu svæf-
inga á Íslandi og ómetanleg
heimild um framþróun þessarar
mikilvægu sérgreinar á Íslandi.
Það tókst ágætur vinskapur
með okkur Jóni þegar ég var að-
stoðarlæknir á Svæfinga- og
gjörgæsludeildinni við upphaf
sérnáms míns. Jón var traustur
og skemmtilegur vinnufélagi, at-
hugull og nákvæmur í allri sinni
vinnu.
Hann var duglegur að kenna
okkur yngri læknunum og fórst
það frábærlega vel úr hendi. Jón
hafði síðan í tímans rás forgöngu
um það að útvega mér námsdvöl
á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í
Gautaborg og fyrir það er ég
honum þakklátur.
Við vottum Ásdísi, börnum
þeirra og fjölskyldum og öllum
öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð við fráfall hans og
á þeim erfiðu tímum sem fram-
undan eru.
Við varðveitum minninguna
um góðan vin og vinnufélaga í
hugum okkar um ókomin ár.
Kári Hreinsson,
formaður Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélags
Íslands.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningar-
grein,“ valinn úr felliglugganum.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinar