Morgunblaðið - 15.01.2019, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
SKATTADAGUR FLE
Ráðstefna um skattamál
Föstudag 18. janúar 2019,
Gullteigur á Grand Hóteli Reykjavík
Ráðstefnustjóri: Hildur Jónsdóttir, endurskoðandi
Kl. 8:00-8:30 Skráning og kaffisopi
Kl. 8:30 Setning ráðstefnu
H. Ágúst Jóhannesson, formaður FLE
Skattalagabreytingar – af nægu er að taka
Bjarni Þór Bjarnason, lögfræðingur og
sviðs stjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte
Vandi skattrannsókna
Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður LOGOS
fjallar um heildarmálsmeðferð í skatta
rannsóknum og úrbætur til að færa mál til
betri vegar.
Kl. 9:55-10:15 Kaffihlé
Nýlegir úrskurðir og dómar
Kristján Gunnar Valdimarsson, lektor í
skatta rétti við HÍ fer yfir nýlega úrskurði og
dóma.
Af borði Ríkisskattstjóra
Snorri Olsen, ríkisskattstjóri fer yfir stöðu
mála hjá Ríkisskattstjóra, verkefni fram
undan, frestmál og fleira.
Framtalsfrestir – er komið að
þolmörkum?
Alexander Eðvardsson, endurskoðandi hjá
KPMG fer yfir stöðu mála og hugsanlegar
lausnir á vandanum.
Kl. 12:30 Ráðstefnulok
Þátttökugjald: kr. 26.000 fyrir félagsmenn FLE og starfsfólk,
en kr. 38.000 fyrir aðra. Ráðstefnan gefur 4 einingar í
skatta- og félagarétti.
Ráðstefnan er opin öllum þeim sem áhuga hafa. Vinsam-
legast skráið þátttöku á www.fle.is eigi síðar en á hádegi
17. janúar 2019.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stólajóga kl. 9.30. Göngu-
ferð kl. 10.15. Zúmba Gold 60+, byrjendur, kl. 10.30. Tálgað í tré kl. 13.
Postulínsmálun kl. 13. Bíó í miðrými kl. 13.20. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu kl. 11. Brids kl.
13. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar kl.
20. Allir velkomnir, Safnaðarfélag kirkjunnar
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingarjóga kl. 9-9.50, allir velksmnir. Opin hand-
verksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-11.20.
Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30.
Qigong kl. 17.30-18.30.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina. Félagsstarf eldri
borgara kl. 13. Gestir koma frá SOS Barnahjálp og kynna starfið.
Hefðbundið starf að öðruleyti. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30. Velkomin!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Kl. 9-12 bútasaumshópur, kl. 9-13 gler-
list, kl. 10.30 hópþjálfun með sjúkraþjálfara, kl. 13-17 bókband, kl. 13-
16.30 frjáls spilamennska, kl. 13-16 opin handverkstofa. Hádegis-
verður frá kl. 11.30-12.30, kaffisala frá kl. 14.30-15.30. Verið velkomin til
okkar á Vitatorg, Lindargötu 59, síminn er 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.
9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar.
Grensaskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Verið velkomin.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9, botsía kl. 9.30, málm-/silfursmíði,
kanasta og tréskurður kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl. 13, allir
velkomnir. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, söngstund
með Márton kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður Hefjum daginn við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á
kaffi. Thai chi kl. 9-10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Z. kl. 9-12,
leikfimi kl. 10-10.45, hádegismatur kl. 11.30. Spekingar og spaugarar
kl. 10.30-11.30, Listasmiðjan er opin frá kl. 12.30, Kríur myndlistarhóp-
ur kl. 13, brids kl. 13-16, leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10, enska I kl. 13,
kaffi kl. 14.30, enska ll kl. 15. U3A kl. 17. Uppl. s. 411-2790.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum og botsía kl. 10 og kl. 16 í Borg-
um. Helgistund í Borgum kl. 10.30 og leikfimishópur Korpúlfa kl. 11 í
Egilshöll. Sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug og heimanáms-
kennsla í Borgum kl. 16.30 í dag.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið úr blöðum kl. 10.15,
tréútskurður kl. 13-16, opin listasmiðja kl. 9-12 og 13-16, upplestur kl.
11-11.30, kaffihúsaferð kl. 14, botsía, spil kl. 16, tölvu og snjalltækja-
kennsla kl. 17.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 12.
Í dag koma nemendur 5. bekkjar Mýrarhúsaskóla í heimsókn á Skóla-
brautina og spila með okkur bingó milli kl. 13 og 14. Fólk hvatt til að
fjölmenna. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimil-
inu kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30-15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir. Söngfélag FEB kóræfing
miðvikudag 16. janúar kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Íslendingasögu-/ fornsagnanámskeiðið hefst föstudaginn 18. janúar
kl. 13 og verður á hverjum föstudegi í tíu vikur (kl. 13-15 með kaffi-
hléi). Opið öllum. Verð kr. 16.500. Góð samvera í góðum hópi. Kennari
sem fyrr Baldur Hafstað. Skráning á feb@feb.is - sími 5882111.
Félagslíf
EDDA 6019011519 I
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
BátarBílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
Útsala er að byrja !
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL,
Glæsibær
Sími 7730273
Til sölu
200 mílur
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Helgi Ólafssonfæddist 25. des-
ember 1926 í
Reykjavík. Hann
lést á Landspít-
alanum, Vífils-
stöðum, 6. janúar
2019.
Foreldrar hans
eru Ólafur Auð-
unsson, trésmiður í
Reykjavík, f. 6.
mars 1882, d. 31.
desember 1969, og Lára Guð-
mundsdóttir, húsfreyja í
Reykjavík, f. 6. júlí 1896, d. 12.
ágúst 1930. Systkini Helga eru
1) Kristín, f. 5. júlí 1923, d. 5.
október 1924, 2) Magnús Krist-
inn, f. 7. ágúst 1924, d. 23. des-
ember 1924.
Helgi kvæntist Mundu Krist-
björgu Guðmundsdóttur f. 27.
september 1926, d. 4. janúar
2009, 23. júlí 1949. Börn Helga
og Mundu Kristbjargar eru 1)
Guðmundur Óli, f. 24. febrúar
1949, og er sonur hans Krist-
björn Orri, f. 18. nóvember
1970, kvæntur Björgu Guð-
mundsdóttur, f. 29. júlí 1966.
Þeirra börn eru a) Edda Lind, f.
25. ágúst 1989, b) Karen Ösp, f.
2. júní 1992, c) Regína Eik, f. 20.
nóvember 2002, 2) Guðrún Lára,
f. 25. mars 1955, gift Christer
Bo Allanson, f. 29. júlí 1953.
Þeirra börn eru a) Fredrik Bald-
ur, f. 15. júní 2002, b) Júlía
Sunneva, f. 29. desember 2004,
3) Þórólfur Örn, f. 31. ágúst
1959, 4) Hulda Hrönn M., f. 6.
júní 1961, 5) Kjartan Orri, f. 19.
nóvember 1967, kvæntur Guð-
laugu Erlu Hall-
dórsdóttur, f. 7.
október 1975.
Þeirra börn eru a)
Helga Karen, f. 8.
febrúar 1991, sam-
býlismaður hennar
er Hilmar Vignir
Birkisson, f. 6. júní
1988. Þeirra börn
eru 1) Áshildur
Emý, f. 7. ágúst
2013, 2) Ólavía
Embla, f. 24. júlí 2016, b) Kári
Fannar, f. 28. október 2006, c)
Auður Lára, f. 9. febrúar 2011.
Helgi lauk prófi frá Verzl-
unarskóla Íslands í Reykjavík
árið 1949 og M.A. (ord.) í hag-
fræði og stjórnmálafræði frá St.
Andrew‘s University í Skotlandi
1954. Helgi var starfsmaður
Fiskifélags Íslands 1950-1951,
aðstoðarmaður innkaupastjóra
Aðalverktaka á Keflavíkur-
flugvelli 1955, sérfræðingur í
hagdeild Framkvæmdabanka Ís-
lands 1955-1958, skrifstofustjóri
Félags íslenskra iðnrekenda
1959-1961, skrifstofustjóri og
síðar framkvæmdastjóri Rönn-
ing hf., síðar Ljósvirkis hf. 1962-
1970, deildarstjóri áætlana-
deildar Efnahagsstofnunar
1971, sérfræðingur og síðar
framkvæmdastjóri áætlana-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins 1972-1983. Eftir það
starfaði Helgi fyrir Seðlabanka
Íslands og fleiri aðila.
Útför Helga fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 15. jan-
úar 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Nú hefur hann elsku afi minn
og nafni kvatt þennan heim.
Ég þakka Guði löngu liðinn dag
sem lét mig eignast þig að ævivin.
Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið
með ilm og fegurð hresstu og glöddu
mig.
Og birtan sem þú breiddir yfir allt
sló bjarma á lífið allt í kringum þig.
Svo líða dagar, ár og ævitíð
og ýmsum blikum slær á loftin blá.
Í sorg og gleði alltaf varstu eins
og enginn skuggi féll á þína brá.
Svo brast á élið, langt og kólgukalt
og krafan mikla um allt sem gjalda
má.
Og fljótið niðar enn sem áður fyrr
og ennþá flúðin strýkur næman
streng.
Við blæþýtt ljóð, um blóm og
sumaryl
og bjarta kyrrð – í minningu um þig.
(Oddný Kristjánsdóttir.)
Helga Karen Kjartansdóttir.
Helgi Ólafsson
Einu sinni sem
oftar sátum við
Ingibjörg í stof-
unni í Ásklifinu í
Stykkishólmi og skemmtum
hvor annarri með lestri. Við
biðum eftir að fara að sækja
Gunnar Dofra af leikskólanum
sem þá var í klaustri og spítala
St-Franziskussystra. Að þessu
sinni lásum við úr minningar-
greinum Morgunblaðsins og af
nógu var að taka. Gert var við
bílvélar, skyrtur straujaðar,
barna gætt og mikið bakað af
pönnukökum, jafnvel súkku-
laðikökum sem þóttu svo góðar
að höfundar létu uppskriftir
fylgja.
„Ég treysti því, Ragnheiður
mín,“ sagði hún þá og hló við,
„að þú skrifir um mig minning-
argrein þar sem ekki verður
minnst á bakstur eða húsverk.“
Og að sjálfsögðu lofaði ég því,
hugsaði ekki út í það þá að
þetta loforð yrði að efna eins og
önnur loforð. Og núna þegar að
því er komið dytti mér síst af
öllu í hug að tengja minningu
hennar við hið forboðna efni,
Ingibjörg
Þorvaldsdóttir
✝ Ingibjörg Þor-valdsdóttir
fæddist 25. júní
1925. Hún lést 18.
nóvember 2018.
Útför hennar fór
fram 6. desember
2018.
bakstur og hús-
verk, þótt þau verk
hafi hún unnið vel.
Um leið og hún
kom inn fann mað-
ur fyrir nærveru
hennar, smitandi
lífsgleði, öryggi og
hlýju. Henni fylgdi
andi menningar og
menntunar þess
sem er sigldur en
ber um leið meiri
virðingu fyrir því sem íslenskt
er, fólki, störfum þess og hand-
verki. Mesta virðingu held ég
þó að hún hafi borið fyrir börn-
um. Hún taldi þau búa yfir
meiri visku en flest fullorðið
fólk og kenndi mér að leyfa
sonum mínum að ala mig jafn-
mikið upp og ég þá. Þar voru
ráðin hennar ómetanleg. Að
vita af henni í húsinu þegar ég
kom heim með sonarson hennar
Sverri Inga af fæðingardeild-
inni var besta gjöf sem hægt
var að færa móður og nýfæddu
barni. Og svo þegar Kjartan
kom þakkaði hún mér þolin-
mæðina og æðruleysið sem hún
fann að fæðing og umönnun
hans krafðist.
Það eru forréttindi að hafa
verið tengdadóttir hennar og
notið vináttu hennar í jafnrík-
um mæli og ég fékk. Löngu og
farsælu dagsverki er lokið, hvíl
í friði.
Ragnheiður.