Morgunblaðið - 15.01.2019, Page 26

Morgunblaðið - 15.01.2019, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2019 Ragnar Ingi Aðalsteinsson, kennari og skáld, á 75 ára afmæli ídag. Í tilefni dagsins sendir hann frá sér ljóðabókina Bragar-blóm en í henni eru 75 limrur. „Þemað er ekkert sérstakt og limrurnar eru um allt mögulegt. Ég valdi að hafa þær 75 bókinni í til- efni 75 áranna, en það varð töluverður afgangur. Það er fljótlegt að búa til limrur þegar maður er kominn í gírinn.“ Sóley Nótt Jerzysdóttir myndskreytti bókina, en hún er nemandi í 10. bekk í Foldaskóla. Bragarblóm er 12. ljóðabók Ragnars Inga en fyrsta bókin eingöngu með limrum. „Ég þóttist vera skáld en ákvað að skipta yfir og verða hagyrðingur því mér fannst það skemmtilegra.“ Auk þess að vera duglegur að yrkja hefur hann verið að vinna hjá Námsgagnastofnun við að setja Íslendingasögurnar í handhægt form fyrir unglinga. „Það er mjög gaman, ég byrjaði að kenna unglingunum árið 1968 og hef kennt þeim Íslendingarsögurnar lengi og hef ákveðnar skoðanir á því hvernig eigi að gera það.“ Ragnar Ingi er ekki alveg hættur að kenna því hann verður nokkrar vikur að kenna unglingum í Foldaskóla í veikindaforföllum. „Það er ágætt að halda sér aðeins á tánum.“ Aðspurður segir Ragnar Ingi meiri breidd vera meðal unglinga í dag en var áður. „Það virðist vera meiri munur meðal unglinga í dag en var áður. Ég hitti mjög margt ábyrgt og þroskað fólk í unglingadeildunum í dag.“ Í tilefni afmælisins og útgáfu limrubókarinnar verður Ragnar Ingi með hóf heima hjá sér. Þar verður ýmislegt til skemmtunar. Jóhann Björn Ævarsson og Guðný Charlotta Harðardóttir flytja Nocturne eftir Franz Strauss og við Þráinn Árni Baldursson úr Skálmöld munum flytja frumsagið lag. Við ákváðum að hafa hlutverkaskipti, ég samdi lagið og hann samdi textann. Þetta er mitt fyrsta lag og fyrsti textinn hans.“ Eiginkona Ragnars Inga er Sigurlína Davíðsdóttir prófessor emerita við HÍ. Börn þeirra samtals eru fimm. Morgunblaðið/Kristinn Skáldið Ragnar Ingi yrkir enn og er ekki hættur að kenna. Ný ljóðabók og frumsamið lag Ragnar Ingi Aðalsteinsson er 75 ára H elgi Seljan er fæddur á Eskifirði 15. janúar 1934. „Fjögurra mán- aða var ég tekinn í fóstur af Jóhönnu Helgu Benediktsdóttur og Jóhanni Björnssyni bændum í Seljateigi á Reyðarfirði og ólst ég þar upp ásamt Guðrúnu Ásu systur minni við atlæti einstaklega gott. Seljansnafnið varð til á göngu minni úr barnaskóla heima og af því ýmsar sögur.“ Helgi tók landspróf frá Alþýðu- skólanum á Eiðum vorið 1950 og kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands vorið 1953. „Ég kenndi tvo vetur á Búðum í Fáskrúðsfirði, en einmitt þar var jafnaldra mín, Jóhanna ( Hanna) Þóroddsdóttir sem heillaði mig svo að við urðum hjón, trúlofuðumst 6. janúar 1955, giftum okkur 15. júní sama ár og höfum því verið samferða í lífinu í 64 ár. Við fluttum svo í Selja- teig, ég fékk kennarastöðu á Reyð- arfirði og svo sinntum við talsverðum búskap með foreldrum mínum allt til 1973. Hlutskipti Hönnu minnar var ekki gott í rafmagnslausum bæ, en 1962 varð ég skólastjóri á Reyðarfirði og við fluttum þá með börnin í þorpið. Foreldrar mínir komu svo og bjuggu með okkur allt til ársins 1985, voru börnum okkar gæfuvaldar á margan veg. Samhliða heimilisstörfum sinnti Hanna síldarsöltun, vinnu í frystihúsi og fleiru, en börnin voru þá fimm og oft 10 manna heimili að sjá um.“ Helgi var virkur í félagsmálum heima, sat í hreppsnefnd, lék burðar- hlutverk í nokkrum leikritum og sinnti fleiri félagsmálum. „Í skóla- starfinu reyndi ég að vera réttsýnn og fitjaði upp á nýjungum. Alveg óvænt var ég svo kosinn á þing fyrir Alþýðubandalagið 1971 og sat þar til 1987, flutti fjölda þingmála sem sum náðu í gegn. Ég var forseti Efri deild- ar í fjögur ár og önnur fjögur fyrsti varaforseti Sameinaðs Alþingis. Ég sat í fjölda nefnda og ráða. Alþingi er hinn bezti lærdómsskóli og á ég góðar minningar þaðan.“ Helgi var í bankaráði Búnaðarbankans 14 ár og varð svo félagsmálafulltrúi og rit- stjóri Öryrkjabandalags Íslands 1988 til 2001. „Þar átti ég gjöful samskipti við fjölmargt fólk sem var þar að störfum. Ótalin eru ókjör félags- starfa annarra að ógleymdum öllum gamanstundunum sem við áttum, Karvel Pálmason alþingismaður og Sigurður Jónsson tannlæknir og pí- anóleikari. Ég tók svo þátt í félags- starfi Félags eldri borgara og var varaformaður þess um skeið. Ég barðist fyrir bindindi, aðalefni fjöl- margra greina enda hugsjón númer eitt. Ég var í Alþýðubandalaginu lífs- tíð þess og síðan félagi Vinstri grænna.“ Ógrynni kvæða hefur Helgi samið af ýmsu tagi, allt frá gamanvísum til afmæliskveðja og allt þar á milli, nokkrar smásögur og frásagnir og greinar svo skiptir tugum. „Ræð- urnar eru líka óteljandi en af því er sagt að menn í okkar ætt megi ekki sjá þúfu svo menn stilli sér ekki þar upp og haldi ræðu. Hvers konar skrif hafa verið mér gleðigjafi og síðan veitt mér samlíðan með öðru fólki í nokkrum hundraða minningar- greina.“ Fjölskyldan Eiginkona Helga er Jóhanna Þór- oddsdóttir, f. 11.1. 1934 í Víkurgerði í Fáskrúðsfirði. Foreldrar hennar voru Anna Hildur Runólfsdóttir og Þóroddur Magnússon útvegsbóndi. Börn Helga og Jöhönnu eru 1) Helga Björk, f. 11.9. 1955, sjúkraliði, bús. í Reykjavík. Synir tveir með Herbert Harðarsyni (þau skildu): Hörður Seljan tölvunarfræðingur og Hannes Rúnar rafmagnsverkfræð- ingur kvæntur Bertu Þórhalladóttur viðskiptafræðingi og sonur þeirra er Þórhalli Leó. 2) Þóroddur, f. 8.9. 1956, fræðslustjóri Fjarðabyggðar. Kona hans er Hildur Magnúsdóttir deildarstjóri sérkennslu, bús. á Reyðarfirði. Börn: Jóhanna Seljan leikskólakennari, (móðir: Inga Mar- grét Árnadóttir). Jóhanna er í sam- Helgi Seljan, fyrrverandi skólastjóri og alþingismaður – 85 ára Fjölskyldan Samankomin á áttræðisafmæli hjónanna fyrir fimm árum en aðeins munar fjórum dögum á þeim, Jóhanna varð 85 ára 11. janúar sl. Skrifin hafa veitt gleði og samlíðan með öðrum Reykjavík Arlet Saga Guðmundsdóttir Marcó fæddist 8. júlí 2018. Hún vó 3.410 g og var 49 cm að lengd. Foreldrar henn- ar eru Guðmundur Rafn Arngrímsson og Victoria Marcó Soler. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.