Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Góð heyrn glæðir samskipti Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfi mikilvægra innviða tryggir ekki aðgengi netöryggissveit- ar að nauðsynlegum upplýsingum með ótvíræðum hætti þannig sveitin geti uppfyllt hlutverk sitt samkvæmt frumvarpinu. Þetta kemur fram í athugasemdum Póst- og fjar- skiptastofnunar um frumvarpið. Telur stofnunin núgildandi lög ekki hafa virkað sem skyldi hvað þetta varðar og að með frumvarpinu sé í raun viðhaldið óbreyttu ástandi. Í frumvarpinu er fjallað um upplýs- ingaöryggi mikilvægra innviða og meðal annars er svokallað netumdæmi netöryggissveitarinnar útvíkkað þann- ig það nái yfir sjö geira hér á landi, þ.m.t. rekstraraðila bankastarfsemi, heilbrigðisþjónustu, orku-, hita- og vatnsveitna og stafrænna grunnvirkja. Í athugasemdunum kemur fram að samhliða þessu þurfi að tryggja net- öryggissveitinni fjármagn og viðeig- andi heimildir svo hún geti sinnt hin- um nýju lögbundnu verkefnum. Upplýsingagjöf ekki skylda Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að íslenskt samfélag sé sífellt háðara umræddum innviðum. Hann segir lykilatriði að hægt sé að draga fram svokallaða ógnarmynd, þannig að strax megi koma upplýsingum á framfæri um veikleika eða aðferðir við netógnir sem þekkt eru hverju sinni. Þetta geti breyst daglega, jafn- vel nokkrum sinnum á dag. „Margra ára reynsla hérlendis og erlendis sýnir að ef það er þekktur veikleiki á einum stað, þá er nánast öruggt að það verður reynt að nota hann annars staðar. Til að fyrir- byggja þetta er mikilvægt að það sé upplýst um veikleika strax þannig það sé hægt að vara alla hina við. Það er kjarni málsins; að búa til nægilega góða yfirsýn yfir það sem er að gerast af því að það er aldrei hægt að fyr- irbyggja þannig að það gerist aldrei neitt. Þó að einn lendi í netárás er enn verra ef aðrir sex eða sjö lenda í henni líka,“ segir hann. Tryggi upplýsingar í rauntíma Rauntímaupplýsingar úr kerfum viðkomandi aðila eru nauðsynlegar til að heildarmynd mótist að mati Hrafn- kels. „Ef það gerist ekki með sæmi- lega liðugum og sjálfvirkum hætti, þá teljum við að það verði ekki hægt að fá almennilega ástandsmynd af þess- um hlutum þannig hægt sé að vara við ógnum fyrirfram. Þá er bara hægt að vara við eftir á,“ segir hann. „Þetta er auðvitað ákvörðun þings- ins, en þetta er spurning um hvort þessir sjö geirar upplýsi okkur eftir atvikum, eða hvort þeir leggi allir í púkkið til að hægt sé að búa til ein- hverja ógnarmynd. Eins og staðan er í dag, þá er þeim þetta heimilt en ekki skylt. Samkvæmt okkar tillögu þá getum við mælt fyrir um að þessir að- ilar miðli til okkar upplýsingum. Það þarf að skoða fyrir hvern geira hvað er eðlilegt að gera og þeir geta verið gerólíkir,“ segir Hrafnkell og bendir á að í orkugeiranum sé t.d. mest um iðn- aðarstýritölvur sem ekki eru tengdar internetinu, en í bankastarfsemi séu kerfi í meiri mæli í tengslum við netið. Engir samningar verið gerðir Samkvæmt núgildandi lögum geta netöryggissveitin og rekstraraðilar ómissandi upplýsingainnviða gert með sér þjónustusamning þar sem fjallað er um samstarf, upplýsinga- flæði o.fl., en slíkir samningar hafa ekki verið gerðir til þessa. „Meginástæðan fyrir því að ekki var gengið til samninga við þessi fyr- irtæki held ég að sé sú að menn vildu sjá hvað kæmi út úr þessu regluverki. Nú liggur það fyrir. Hins vegar hefur verið lenska á Íslandi að halda þess- um spilum þétt upp að brjóstinu. Á Ís- landi erum við með örsmátt samfélag og ég held að erlendis, þar sem þús- undir aðilar eru t.d. að bankakerfun- um, standi slíkar einingar svo vel út úr hnefa að þær geti starfað sjálf- stæðar að þessu leyti,“ segir Hrafn- kell. Ónógar upplýsingar um netógn  Nýtt frumvarp tryggir netöryggissveit ekki nægar upplýsingar  Lykilatriði að móta ógnarmynd  Engir samningar verið gerðir um upplýsingaflæði  Netárásir og nýjar aðferðir jafnvel oft á dag Morgunblaðið/Brynjar Gauti Raforka Undir svokallað netumdæmi netöryggissveitar munu samkvæmt frumvarpinu falla rekstraraðilar nauð- synlegrar þjónustu hér á landi, t.d. á sviði bankastarfsemi, flutninga, orkuveitu og heilbrigðisþjónustu. Hrafnkell V. Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.