Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 21
lífinu. Strax á fyrsta fundi átt-
aði hún sig á því að þau systk-
inin hefðu búið í sama húsi og
amma mín þegar þau voru öll
litlir krakkar. Stundum er ótrú-
legt hvað heimurinn getur verið
lítill.
Næst þegar við hittumst
kom hún með kort sem
langamma mín sendi mömmu
Jonnu árið 1930. Jonna hafði
haldið upp á kortið öll þessi ár,
jafnvel þótt hún hefði flutt
heimshorna á milli! Myndin á
kortinu var af langömmu, lang-
afa og börnum þeirra en enginn
í stórfjölskyldunni kannaðist
við myndina og því mikill feng-
ur að fá hana. Jonna sagði mér
líka að hún hefði „gifst“ ömmu-
bróður mínum þegar þau voru
bæði fjögurra ára, hvorugt
þeirra giftist og þau því bæði
virt heitin. Það var alltaf stutt í
glettnina hjá Jonnu. Fljótlega
Þegar ég flutti
til Santa Barbara í Kaliforníu
haustið 2005 vissi ég að fram
undan væru spennandi en al-
gjörlega ófyrirsjáanlegir tímar.
Ekki vissi ég að eitt af því væri
Árdís Jóna
Freymóðsdóttir
✝ Árdís JónaFreymóðs-
dóttir fæddist 25.
júlí 1922. Hún lést
27. september
2018.
Bálför Árdísar
hefur farið fram í
Kaliforníu og jarð-
arför á Íslandi fór
fram í kyrrþey.
að ég myndi kynn-
ast systkinunum
Jonnu og Braga og
að við yrðum góðir
vinir. Ég man ekki
nákvæmlega á
hvaða Íslendinga-
samkomu við hitt-
umst en við náðum
frá upphafi afar vel
saman. Jonna var
alltaf ótrúlega já-
kvæð og talaði allt-
af vel um alla. Hún hafði ein-
stakt lag á að finna og benda á
jákvæðar hliðar fólks. Jonna
var ótrúlega skörp og virtist
muna allt sem hana hafði hent í
fórum við Jonna og Bragi að
hittast oftar en á Íslendinga-
samkomunum og buðu þau mér
margoft út að borða eða heim
til sín í kaffi. Mér var alltaf
mjög vel fagnað með alls kyns
kræsingum og sama átti við
þegar fjölskylda mín heimsótti
mig. Við höfðum alltaf nóg um
að tala og sátum oft klukku-
stundum saman og töluðum um
allt milli himins og jarðar.
Skipti þá engu að 60 ár að-
skildu okkur í aldri.
Það var ákaflega erfitt að
kveðja þau systkinin þegar ég
flutti aftur til Íslands árið 2012.
En það var afskaplega gaman
að geta hitt Jonnu og gist hjá
henni þegar ég heimsótti Santa
Barbara aftur vorið 2014. Ég
hugsa oft til Jonnu og sakna
skemmtilegu og hjartahlýju
vinkonunnar minnar.
Ásdís Helgadóttir.
✝ Kristín Ingv-eldur Ingólfs-
dóttir, Kiddý,
fæddist 7. febrúar
1938. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 17.
desember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurjóna
Anna Sófusdóttir,
f. 26. janúar 1916,
d. 16. febrúar
1984, og Ingólfur Eyjólfsson,
f. 3. apríl 1916, d. 30. júlí
1952. Þau skildu.
Bræður Kristínar voru Már
Ingólfur Ingólfsson, f. 30. maí
1942, d. 24. mars 2002, og
Magnús Nordgulen, f. 14. nóv-
ember 1949, sem Sigurjóna
eignaðist með seinni eigin-
manni sínum Alfred Nordgu-
len.
Eiginmaður Kristínar var
Ásgeir Andri, f. 3. janúar
1986, Sigþór Ingi, f. 30. nóv-
ember 1989, Kristín Sóley, f.
22. maí 1993, og Arnór Valur,
f. 22. janúar 1998. 3) Kristrún,
f. 10. október 1970. Eigin-
maður hennar er Sigurður
Bjarnason. Börn Kristrúnar
eru Svanur Þór, f. 11. júlí
1991, og Ásta Berglind, f. 26.
mars 1997. Sonur Ástu er
Gabríel Dagur, f. 22 október
2018.
Kristín fæddist í Hafnarfirði
og gekk í Flensborgarskóla.
Kristín og Ásgeir hófu sinn
búskap í Reykjavík en árið
1957 fluttu þau til Selfoss. Þau
bjuggu þar í sambýli með
Ólöfu systur Ásgeirs og Hirti
Þórarinssyni eiginmanni henn-
ar á Tryggvagötu 5. Árið 1961
hófu þau byggingu íbúðarhúss
á Engjavegi 30 sem þau flutt-
ust í árið 1963 og bjuggu þar
allar götur síðan.
Kristín starfaði lengst af við
verslunarstörf hjá Kaupfélagi
Árnesinga og síðustu árin með
eigin verslunarrekstur.
Útför Kristínar fór fram frá
Selfosskirkju 7. janúar 2019.
Ásgeir Sigurðsson,
f. 11. nóvember
1933, og gengu
þau í hjónaband
11. nóvember
1956.
Börn Kristínar
og Ásgeirs eru: 1)
Anna, f. 15. apríl
1956. Eiginmaður
hennar er Christ-
opher John New-
man, f. 25. apríl
1955. Börn Önnu eru Daði
Hrafn, f. 11. ágúst 1977.
Eiginkona hans er Sigurlaug
Jóhannesdóttir. Börn Daða
eru Lilja Bríet, f. 31. mars
2005, og Kristófer f. 15. apríl
2009. Hannah Ýr, f. 4. febrúar
1994, og Orlando Thor, f. 26.
október 1997. 2) Sigurður
Ingi, f. 13. mars 1959. Eigin-
kona hans er Guðrún Sigurð-
ardóttir. Börn Sigurðar eru
Elsku mágkona mín, við er-
um búnar að vera samferða í
gegnum lífið í 54 ár og margs er
minnast frá þeim tíma. Ég var
lánsöm að eignast svo trausta,
góða og hlýja mág/vinkonu eins
og þig. Þú tókst mér opnum
örmum og þrátt fyrir níu ára
aldursbil varst þú alltaf svo ung
í anda og léttlynd að við smull-
um saman. Ég man fyrsta
skiptið sem við hittumst, það
var veturinn 1965. Við Már
heitinn vorum nýtrúlofuð og
hann fór með mig að heimsækja
systur sína austur á Selfoss. Þú
ætlaðir svo aldeilis að hafa allt
fínt þegar tilvonandi mágkona
þín kæmi í heimsókn. Þvoðir
allt hátt og lágt, skúffur og
skápa en eitthvað gekk illa með
hnífaparaskúffuna. Skúffan stóð
á sér þegar átti að leggja á borð
og endaði Geiri á því að fara yf-
ir í næsta hús og fá lánuð hnífa-
pör til að borða með. Eftir
þennan kvöldverð urðum við
vinkonur og höfum oft hlegið að
hnífaparaskúffunni. Fjölskyldan
var þér mikilvæg og eru þið
Geiri rík af börnum, tengda-
börnum, barnabörnum og
barnabarnabörnum. Þú varst
mikil barnagæla og í hvert
skipti sem þú hélst á litlu barni
sem fæddist í fjölskyldunni
sástu Brúsastaðasvipinn á því.
Þegar Anna og Siggi voru ung-
lingar og áður en Kristrún
fæddist komst þú oft í Hafn-
arfjörðinn til okkar Más til að
fá Þorstein og Sveinbjörn lán-
aða í helgarheimsóknir. Eftir að
við Már fluttum á Selfoss var
alltaf mikill samgangur á milli
okkar og ýmislegt brallað. Ekki
var nú minni spenningurinn hjá
þér en mér þegar ég gekk með
tvíburana. Þið Geiri pössuðuð
tvíburana reglulega og tala þau
enn um ristaða brauðið í gull-
grindinni og kakómaltið hjá
frænku og Geira. Í rúmlega 30
ár skiptumst við á að halda veg-
leg jólaboð fyrir stórfjölskyld-
una, þar til hópurinn varð
hreinlega of stór. Frænkubúð-
ingur hefur alltaf verið eftir-
rétturinn og kemur til með að
verða það um ókomna tíð.
Árið 1983 eignuðumst við
saman sumarparadísina okkar
Árdal. Þröngt mega sáttir sitja
og átti það svo sannarlega við
um okkur. Við eyddum helgum
þar saman í sátt og samlyndi.
Við héldum árlega fjölskylduhá-
tíð þar sem við klæddum fjöl-
skyldurnar upp eins og Ewing-
fjölskylduna úr Dallas. Fórum í
veiðiferðir upp í Apaá um mið-
næturbil og áttum góðar stund-
ir.
Við rákum saman tískuvöru-
verslun í 18 ár og aldrei slettist
upp á vinskap okkar. Margar
ferðir fórum við saman í Bella
Center og Turnana í Amster-
dam til að versla fyrir búðina
okkar. Þar var mikið hlegið og
minningarnar sem við eigum
þar frá eru svo margar og
nokkrar sem ekki er hægt að
rita á blað.
Síðastliðinn 20 ár höfum við
einnig starfað saman í Oddfel-
low-reglunni okkur til gleði og
ánægju.
Elsku Kiddý mín, gegnum öll
árin höfum við eignast okkar
einkahúmor. Það eru atvik, sög-
ur og viðburðir sem við höfum
upplifað saman og búið til minn-
ingar sem eru mér afar kærar.
Ég verð þér ævinlega þakklát
fyrir að vera börnunum mínum
heimsins besta frænka. Skál í
Grand Maríner, elsku mágkona,
ég á eftir að sakna þín.
Elsku Geiri, Anna, Siggi,
Kristrún og fjölskyldur, mínar
innilegustu samúðarkveðjur til
ykkar.
Bryndís mágkona.
Kristín var rösk, glöð og
hressileg manneskja. Fyrstu
búskaparárin okkar Ólafar á
Selfossi vorum við í sama hús-
inu, Ásgeir mágur minn og
Kristín kona hans. Systkinin
Ólöf og Ásgeir voru mjög sam-
rýnd og var samvera okkar
allra eins og um eina fjölskyldu
væri að ræða.
Anna, litli engillinn þeirra,
fékk að fljúga á milli heimilanna
og varð hún að hluta til í þykj-
ustunni dóttir okkar. Hún tók
svo skemmtilegan þátt í þessu
hlutverki, að þegar hún kom til
okkar að hitta Ólöfu frænku
sína þá hét hún Sigga.
Þetta er svipmynd og upphaf
af því innilega sambandi sem
ríkt hefur meðal okkar. Heimili
þeirra Kristínar og Ásgeirs var
alla tíð staður gleði og næm-
leika fyrir vellíðan heimafólks
og gesta. Við sem nánastir vor-
um nutum að sjálfsögðu mest
þessara kosta heimilisins.
Kristín fagnaði gestum sínum
og hélt uppi glaðværð og hisp-
ursleysi sem gerði umræðuefni
dagsins skemmtileg og áhuga-
verð. Þessir eiginleikar voru
henni svo eðlilegir að það kom
ekki á óvart hvernig kunningjar
og starfsfélagar tengdust
henni.
Hún hélt mikilli tryggð og
stöðugu sambandi við vinkonur
sínar frá æskudögunum í Hafn-
arfirði. Þá er ómetanlegt fram-
lag hennar í vinnuhópi Rauða
krossins á Selfossi. Hún var í
Félagi eldri borgara á Selfossi
og það var oft glatt á hjalla hjá
félögum hennar í glerlistahópn-
um og mikið unnið þar. Lista-
verk þeirra prýða mörg heimili
á Selfossi. Hún var félagi í Odd-
fellow-stúkunni. Þar naut hún
ómetanlegrar og gagnkvæmrar
systravináttu.
Kristín og Bryndís mágkona
hennar ráku tískuvöruverslun í
nokkur ár á Selfossi. Þar kom
fram smekkvísi hennar og
næmleiki sem hentaði vel í þeim
viðkvæma og samkeppnisharða
rekstri sem þar var og er við-
varandi.
En framar öllu öðru var það
húsmóðirin sem hugsaði um vel-
ferð og framtíð barna sinna og
bjó manni sínum yndislegt og
aðlaðandi heimili. Þegar gestir
kvöddu fóru þeir glaðari en
þegar þeir komu.
Veikindum sínum tók hún af
mikilli ró og yfirvegun. Hún
kvartaði ekki en tók þessari
óhjákvæmilegu umbreytingu af
miklu æðruleysi
Við kveðjum Kristínu með
söknuði og innilegum þökkum
fyrir samfylgdina og það sem
hún gaf sínum nánustu og sam-
ferðafólki sínu.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar.
Hjörtur Þórarinsson.
Kristín Ingveldur
Ingólfsdóttir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Óska eftir að annast bókhaldsvinnu
og fleira þess háttar.
Upplýsingar í síma 831-8682.
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12:30-16. Félagsvist
með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Félagsvist kl. 13.00. Myndlist kl. 12.30.
Vatnsleikfimi´kl. 14.30. Spjallhópur kl. 15.00.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.10. Opin handverk-
stofa kl.13.00. Boccia kl.13.30. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir!
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:30 /8:15 /15:00. Kvennaleikf. Sjál. kl.
9:30. Liðstyrkur . Sjál kl. 10:15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11:15. Stólajóga kl.
11:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl.
13:00. Zumba í Kirkjuhv kl. 16:15
Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Leikfimi maríu kl. 10:00-10:45. Leikfimi Helgu
Ben 11:00-11:30.. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.00 Boccia, kl. 9.30 Post-
ulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Gullsmári Postulínshópur kl 9.00 Jóga kl 9.30 Handavinna/Bridge kl
13.00 Jóga kl 17.00 Félagsvist kl 20.00 Þórrablót laugardaginn 26.jan
haldið í Gullsmára félagsmiðstöð kl 18.00 Miðasala Gullsmára /
Gjálbakki /Boðinn
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30.
Sögustund kl 13-14. Jóga kl. 14.15 – 15.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í
Listasmiðju kl. 9-12, byrjendanámskeið í línudansi kl. 10,
létt ganga kl. 10:15, hádegismatur kl. 11.30, myndlistarnámskeið hjá
Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30, Handavinnuhornið kl. 13-15,
félagsvist kl. 13.00, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir,
óháð aldri. Nánari upp. í síma 411-2790.
Korpúlfar Gönguhópar Korpúlfa ganga frá Grafarvogskirkju og
Borgum kl. 10 í dag og á sama tíma inni í Egilshöll. Skartgripagerð kl.
13 i Borgum. Félagsvist kl. 13 í Borgum Tréútskurður á
Korpúlfsstöðum kl. 13 undir leiðsögn Gylfa. Kóræfing Korpusystkina
með Kristínu kórstjóra kl. 16:00 í dag í Borgum. Minnum á fyrirlestur
Steinunnar 23. jan og Kanadaginn 24. jan. 2019 í Borgum.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð félagsheimilisins Suðurströnd kl.9. og
13. Leir Skólabraut kl.9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í
króknum. Jóga salnum kl.11. Handavinna Skólabraut kl.13. Vatnsleik-
fimi í sundlauginni kl.18.40. Á morgun þriðjudag kl. 9.45 vísiterar bil-
kup Íslands félagsaðstöðuna á Skólabraut. Biskup skoðar aðstöðuna
og kíkir inn í eina íbúð Kaffi í króknum. Allir velkomnir.a
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er
félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
– 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, Zumba-byrjendur kl. 9.30 - Zumba gold framhald kl.
10.20 -Sterk og liðug leikfimi kl. 11.30 Tanya leiðir alla hópanna.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Eftir ævintýra-
legt líf í Afríku
ákváðu Fjóla og
Vladimir að njóta
síðustu áranna á Íslandi. Árin
hans urðu ekki mörg en Fjóla
bjó í Skálagerði meðan hún gat.
Þangað var notalegt að koma,
sitja við eldhúsborðið og
spjalla. Hún sagði mér svo
margt um lífið í Afríku. Stund-
Fjóla Steinsdóttir
Mileris
✝ Fjóla Steins-dóttir Mileris
fæddist 27. maí
1923. Hún lést 25.
desember 2018.
Útför Fjólu fór
fram 11. janúar
2018.
um barst talið að
fyrstu árunum í
Reykjavík. Þangað
flutti hún með
pabba sínum og
litla bróður –
pabba mínum. Hún
átti engar vinkonur
frá þessum tíma
því hún, litla stelp-
an, var að sjálf-
sögðu með ábyrgð
á húshaldi og
barni.
Við systkinin eigum Fjólu
frænku mikið að þakka. Nú er
þessi elska í Sumarlandinu með
pabba sínum, mömmu og systk-
inunum tólf.
Bryndís Skúladóttir.