Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Lang-
vinsælastur
hollusta í hverjum bita
Góðar minningar
koma gjarnan upp í
hugann í aðdraganda
jóla og þorra sem oft-
ar varðandi hið stór-
brotna svæði um-
hverfis Þingvallavatn
og hið merka og mik-
ilvæga mannlíf við
vatnið fyrr og nú.
Þingvallavatn lagði
gjarnan um og eftir
áramót og ísa leysti oftast ekki fyrr
en í lok apríl eða maí og var veiði-
von talin góð að vori og sumri ef
vatnið var lengi á ís.
Hin síðari ár hefur vatnið ekki
lagt traustum ís, ástæðan hnattræn
hlýnun, að sögn vatnasérfræðinga.
Ísbrestir sem heyrðust þarna
gjarnan á vetrum á kyrrum vetrar-
kvöldum svo buldi í fjallasal Þing-
valla- og Grafningsfjalla heyrast
ekki lengur.
Síðast þegar vatnið lagið þykkum
ís varð hann víða að þunnu ísskæni
á skömmum tíma, eitthvað sem
heimamenn höfðu ekki séð gerast
áður við vatnið um miðjan vetur
sem og ýmsar aðrar breytingar síð-
ar varðandi ísinn.
Í nefnt skipti nefndi þekktur
flugmaður í gamni að jafnvel væri
hægt að lenda breiðþotu á ísnum
þar sem vatnið er hvað dýpst, ís-
breiða sem síðan var orðin að stórri
vök og það í frosti nokkrum dögum
síðar.
Fyrrum var iðulega farið á skaut-
um um ísilagt vatnið í leik og til að
heimsækja nágranna og síðan var
skautað heim að kvöldi í birtu him-
intunglanna og margbreytilegra
norðurljósa sem iðuðu um himin-
hvolfið.
Einnig var ekið eftir ísnum eftir
afmörkuðum leiðum af staðkunn-
ugum heimamönnum.
Hættulegar vakir og sprungur
gátu þó verið í ísbreiðunni og
stundum var komið að grængolandi
opi þar sem ísrastir höfðu skarast
vegna þenslu og misgengi á ísnum.
Þetta gátu því verið hættulegar
ferðir og því þurfti að hafa mikla
aðgát í þeim.
Vegna mikilla snjóalaga á Hellis-
heiði veturinn 1936 þ.e. frá því í
mars og fram í apríl var ísinn á
Þingvallavatni notaður sem þjóð-
braut í sex vikur vegna vöruflutn-
inga frá MF Selfossi til Reykjavík-
ur.
Ekið var upp Grímsnes og síðan
eftir afmarkaðri ísleið frá Kaldár-
höfða að Heiðarbæ og þaðan yfir
Mosfellsheiði sem var sæmilega
greiðfær eftir nýuppbyggðum vegi,
en Almannagjá var ófær með öllu.
Samhliða var mjólk frá MF flutt
til Reykjavíkur yfir Hellisheiði á
sleðum sem snjóbílar drógu. Mjólk-
in var flutt á vörubílum að Kömb-
um og þaðan með snjóbílum að
Sandskeiði þar sem aðrir tóku við
mjólkinni og fluttu til Reykjavíkur.
Á sama tíma var tveggja hæða
hús dregið á ís með tveimur vöru-
bílum yfir vatnið þ.e. frá Mjóanesi
að Heiðarbæjarlandi. Slíkir flutn-
ingar á ís kæmu ekki til greina
þarna í dag né nefndar ferðir.
Ýmsar aðrar hættur geta skapast
á Þingvallavatni með skömmum
fyrirvara, t.d. komust
bændur oft í hann
krappan við murtuveið-
ar á haustin þegar mik-
ið kapp var lagt á að
ná netunum upp áður
en murtan dræpist í
þeim.
Tveir menn fórust
við murtuveiðar í
Hagavík haustið 1919,
þeir voru á seglum
stutt frá landi þegar
bátnum hvolfdi.
Vatnið er jökulkalt þrátt fyrir
nefnda hlýnun og fljótt að breytast
úr lygnu í krappa öldu og einnig
eru ýmsar hættur með bökkum
þess og víðar.
Bændur á svæðinu veiddu gjarn-
ar fyrrum nýmeti til heimilisbrúks í
net niðrum ís og þá helst bleikju, en
fyrr á öldum urriða á svokallaðan
hoppung.
Þingvallaprestur séra, Jóhann
Hannesson lagði eitt sinn netstúf
niðrum ís og fékk stórurriða í netið.
Stækka varð vökina til að ná fisk-
inum upp og þegar prestsfrúin vigt-
aði fiskinn vó hann 36-37 pund.
Stærri urriði hafði þó veiðst í
Þingvallavatni þ.e. við Arnarfelli
skömmu eftir aldamótin 1900 sem
var mun stærri en stærstu laxar
sem þá höfðu veiðst í Soginu og víð-
ar, sennilega vel yfir 40 pund.
Þekktir laxveiðibændur gerðu sér
langa ferð að Arnarfelli til að berja
fiskinn augum og þótti mikið til
koma.
Veiðifrændurnir orðvöru, Axel
Jónsson frá Nesjavöllum og stór-
skáldið Ólafur Jóhann, fengu eitt
sinn ofururriða á stöng í Þingvalla-
vatni sem slapp af agninu eftir
langa viðureign úti á bládýpi vatns-
ins. Þeir minntust oft þessarar við-
ureignar í vöku og draumi, en voru
þó fyrir vanir að handfjatla stóru-
rriða við vatnið og stórlaxa í Sog-
inu, en þennan fisk sögðu þeir hafa
verið mun stærri.
Útilegukellurnar sem voru forð-
um á Þingvallasvæðinu hafa hugs-
anlega notað ísinn til veiða. Sagt er
að sést hafi til þeirra á vetrum við
vakir á vatninu og þær haft hátt í
rökkrinu ef fiskur húkkaðist á
hoppunginn. Einnig kom fyrir að
þær fóru í net bænda og skildu illa
við báta í vör, jafnvel þannig að
skaði hlaust af. Hugsanlega hafa
þær komið um borð í ævaforna bát-
inn sem fannst neðansjávar í Vatns-
vikinu í haust?
Kringum 1819 og 1920 komu
vinnukonur á Nesjavallabæ að úti-
legukarli í fjósinu sem dvaldi um
tíma í Nesjahrauni, þar áður í Þing-
vallahrauni. Þegar þær sóttu að
kalli með mjólkurskjólunum forðaði
hann sér með miklum bægslagangi
og hávaða út úr fjósinu og hvarf á
brott í átt til Dyrfjalla og fór hratt
yfir. Sagt er að hin víðfræga refa-
skytta á Nesjavöllum, Grímur Þor-
leifsson hafi eftir þennan atburð á
síðkvöldum í skammdeginu gjarnan
sett eitt og eitt kröftugt púðurskot
upp í loftið úr framhlaðningi sínum
sem var hávær mjög, til að stugga
við hugsanlegum útilegumönnum af
svæðinu, en bærinn var þá við
hraunjaðarinn nyrst á völlunum.
Ekki bar á útilegufólki á Þingvalla-
svæðinu svo vitað sé eftir 1820.
Eftir Ómar G.
Jónsson
Ómar G. Jónsson
» Ísbrestir sem heyrð-
ust þarna gjarnan á
vetrum á kyrrum vetr-
arkvöldum svo buldi í
fjallasal Þingvalla- og
Grafningsfjalla heyrast
ekki lengur.
Höfundur fulltrúi.
Ísinn á Þingvalla-
vatni og atburðir
honum tengdir
Fasteignir
Við uppsetningu þessa pistil sl.
laugardag var stöðumyndum víxlað
þannig að textinn passaði ekki við
þær. Er pistillinn því birtur aftur og
beðist er velvirðingar á mistökunum.
Sigurbjörn Björnsson er efst-ur með fullt hús vinningaeftir fjórar umferðir á Skák-þingi Reykjavíkur. Hann
vann Lenku Ptacnikovu sl. mið-
vikudagskvöld. Í 2.-5. sæti koma
Hjörvar Steinn Grétarsson, Jóhann
Ingvason, Davíð Kjartansson og
Vignir Vatnar Stefánsson, allir með
3½ vinning.
Í annarri umferð MótX-mótsins í
Stúkunni bar helst til tíðinda að Guð-
mundur Kjartansson vann Jóhann
Hjartarson og er efstur ásamt Hjörv-
ari Steini Grétarssyni og Jóni L.
Árnasyni. Þeir eru með tvo vinninga.
Hjörvar og Jón L. tefla saman í 3.
umferð og Guðmundur mætir Braga
Þorfinnssyni.
Jóhanni Hjartarsyni hefur gengið
illa í viðureignum sínum við Guð-
mund Kjarrtansson undanfarið en í
skákum þeirra fer oft af stað sama at-
burðarásin, þ.e.a.s. Guðmundur situr
í viðsjárverðri stöðu í miðtafli en
tekst einhverveginn að klóra sig fram
úr erfðleikunum. Dæmi um þetta
kom fram á þriðjudagskvöldið:
Jóhann – Guðmundur
Hvítur er skiptamun og peði yfir
en þyrfti að bæta kóngsstöðu sína.
Lítill tími var aflögu en vinningsleiðin
sem „vélarnar“ bentu á er: 34. Kf1!
b4 35. Ba1! Rxa5 36. Db2! f6 37.
Be6+ – og síðan – Kg2 og vinnur. En
Jóhann lék ...
34. Bf1? b4 35. Bb2
Hann varð að reyna 35. Bxg7 Kxg7
36. Dg5+ Dxg5 37. hxg5 þó svartur
eigi betri færi eftir 37. ... Rxa5.
35. ... Re5!
Ótrúlegt en satt, svarta staðan er
unnin!
36. Bxe5 dxe5 37. Db4 Dxg3+ 38.
Kd1 Dxf3+ 39. Kd2 Be3+
– og hvítur gafst upp.
20 jafntefli – 20 sigrar
Jafnteflisdauðinn virtist hafa hel-
tekið Magnús Carlsen í kappskákum
hans með venjulegum umhugsunar-
tíma. Í 4. umferð stórmótsins í Wijk
aan Zee gerði hann sitt fjórða jafn-
tefli þegar hann tefldi við Vladimir
Kramnik sl. þriðjudag og jafnaði þá
met Hollendingsins Giri sem fyrir
einhverjum misserum síðan gerði 20
jafntefli í röð. Þess metjöfnun Magn-
úsar er rakin til síðustu fjögurra
jafntefla á EM taflfélaga í Porto Car-
ras sl. haust, 12 jafntefla í heims-
meistaraeinvíginu í London, að við-
bættum þessum skákum í „Víkinni“.
Gamlir aðdáendur Bobby Fischer
gátu rifjað upp annað met – 20 sigur-
skákir í röð! Á tíu mánaða tímabili
1970 –́71 vann Bobby sjö sinnum á
lokaspretti millisvæðamótsins í
Palma á Mallorca og þar á eftir 13
skákir í röð í einvígjunum við Tai-
manov, Larsen og Petrosjan.
En Magnús lauk runu jafntefla
með því að sigra heimamanninn Jor-
den Van Foreest í fimmtu umferð og
er ½ vinningi á eftir Liren Ding og
Jan Nepomniachtchi þegar átta um-
ferðir eru eftir:
Wijk aan Zee 2019; 5. umferð:
Jorden Van Foreest – Magnús
Carlsen
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Rd5
Rxd5 8. exd5 Re7 9. c4 Rg6 10. Da4
Bd7 11. Db4 Db8 12. h4 h5 13. Be3
a6 14. Rc3 f5
Hann lék 14. ... a5 í at-skák nr. 2
gegn Caruana – og vann!
15. O-O-O Be7 16. g3 O-O 17. Be2
e4 18. Bd4?
Hann hefði átt að taka peðið, 18.
bxh5 Re5 19. Be2 b5 gefur svartur
vissulega bætur en hugsanlega ekki
nægjanlegar.
18. ... Bf6 19. Bxf6 Hxf6 20. Db6
Re5 21. Kb1 Be8 22. Hd2 Rd7 23.
Dd4 Dc7 24. Rd1 Re5 25. Re3 f4 26.
gxf4 Hxf4 27. Hg1 Bg6!
Eftir þennan leik teflir svarta stað-
an sig sjálf. Hvítur getur ekki varið
peðin á f2 og h4.
28. Ka1 Haf8 29. c5 Hxf2 30. Dc3
Dxc5 31. Dxc5 dxc5 32. d6 Kh7 33.
d7 Rf3
– og hvítur gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Pálmi Pétursson
Kóngspeðið komið af stað Jón L. Árnason og Kristján Eðvarðsson við
taflið í Stúkunni á Kópavogsvelli.
Situr í viðsjárverðri stöðu