Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 25

Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Skilaboð sem þér berast kunna að reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eftir þeim. Láttu það eftir þér að kaupa eitthvað handa sjálfri/sjálfum þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Hjálpsemi þín í garð vinnufélaganna mun fyrr en varir koma þér vel í starfi. Þú ert stoð og stytta foreldra þinna. Einhver hefur þig fyrir rangri sök. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt hlutirnir gangi ekki alveg eins hratt fyrir sig og þú vilt er engin ástæða til að skeyta skapi sínu á öðrum. Reiknaðu út hvað þú átt og hvað þú skuld- ar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Því afslappaðri sem maður er, því meiru kemur maður í verk. Gættu þess að fara ekki yfir strikið í vinnuseminni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þig langar til að taka þátt í heillandi og ástríðufullu ævintýri, en veist að maður leikur sér ekki að eldi. Einhver ágreiningur gæti komið upp varðandi heimilisþrifin. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Deilur innan fjölskyldunnar halda fyrir þér vöku. Þótt einhver lofi þér gulli og grænum skógum er lítið að marka það. Mundu að hugsa þig tvisvar um áður en þú lofar einhverjum einhverju. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er mikið að gerast í ástamálum. Vinátta gæti staðið eða fallið með ein- hverju sem vinur lætur út úr sér. Hlustaðu vandlega á þau ráð sem þér eru gefin. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert með ýmsar vangaveltur í sambandi við ákveðna samstarfsmenn þína. Ekki hika við að bera þig eftir því sem þú vilt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú þegar þú hefur fengið fólk til liðs við þig þarftu að gæta þess að vera ekki of stjórnsamur/söm. Þú ert með hjartað á réttum stað. 22. des. - 19. janúar Steingeit Staldraðu við og þakkaðu fyrir hvað það er mikil ást í lífi þínu. Orka þín er mikil þessa dagana og þú færð útrás fyrir hana í göngum, hlaupum eða jóga. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér hættir til að taka sjálfa/n þig of hátíðlega. Fólk þarfnast þeirrar hjálpar sem þú getur veitt og er til í að borga vel fyrir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú vilt taka stórt stökk fram á við en eitthvað heldur aftur af þér. Gullhamrar gleðja þig og þér finnst þér allir vegir fær- ir. Sigurlín Hermannsdóttir segirsvo frá á Leir á fimmtudaginn: „Ég fór í bráðskemmtilegt 75 ára afmæli Ragnars Inga og varð mér úti um nýju limrubókina hans. Frá- bær bók og nú hugsa ég bara í limr- um. – Út á stoppustöð:“ Á regnköldum mánudagsmorgni er maður í keng úti á horni. Við stóreflis poll tók strætó sinn toll. Hann biður að buxur hans þorni. Í þriðjudagsþræsing og kulda eftir þristinum ennþá beið Hulda sem vildi að hún gæti nú valið sér sæti hjá Kidda með kynþokkann dulda. Í mæðu á miðvikudegi væntir Mangi að Costco brátt eygi en vaknar upp síðan (hann sofnar svo tíðan) í myrkri á Vesturlandsvegi. Í Kringlu á fimmtudagskveldi við kostakjör trúi ég hún dveldi af vagninum missti með varninginn gisti sem förðunarfræðingur seldi. Í föstudagsfíling ei svíkið að fara með strætó í ríkið þar hálfpott að kaupa á heimleið sig staupa. Undir sæti svo losna við líkið. Þetta er frábærlega vel ort og skemmtilegt. Og sem ég skrifa þessar línur er ég nýbúinn að fá í hendur „Bragarblóm“, hina nýju limrubók Ragnars Inga, sem inni- heldur 75 limrur, eina fyrir hvert ár sem hann hefur lifað. Aftan á bókarkápu er þessi limra: Mitt egó í braglínum ber ég, á bragarins reiðgötum fer ég um heiðlöndin hljóð með mín hástemmdu ljóð. Ég yrki og þess vegna er ég. Ég hlakka til að lesa bókina og mun gera henni nánari skil í Vísna- horni á morgun, en skýt inn til gamans gamalli limru eftir Ragnar Inga og er mér að skapi: „Heims- endaspá, jákvæðar hliðar“: Þegar jörðin í sæinn er sokkin og sólin af standinum hrokkin – það er þó leið þungbær en greið til að losna við Framsóknarflokkinn. Og nú er best að gefa öðrum limruskáldum orðið. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir: Smjörið er kolgrænt í kúpunni og kasúldin bringan á rjúpunni á veitingastað en verst er þó að kokkurinn situr í súpunni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af limrugaldri „ÉG VIL FÁ KÖRFUNA MÍNA TIL BAKA. OG ÞÚ MÁTT EKKI MÆTA OFTAR Í GRILLVEISLUR FYRIRTÆKISINS.” „VIÐ HEFÐUM GETAÐ FLETT FJÖLSKYLDUALBÚMUNUM ÞÍNUM OG SPARAÐ OKKUR TVÖÞÚSUNDKALL.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... samhæfing! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TAKK FYRIR SAMFYLGDINA AF HVERJU ER HANN Í NÁTTFÖTUM? GÓÐA NÓTT ÉG ER BARA TRJÁSNYRTIR ÞORPSINS, EN ÉG VIL GJARNAN GANGA TIL LIÐS VIÐ HÓPINN! HVENÆR GETURÐU BYRJAÐ? HÖGG Margt forvitnilegt var að finna íMorgunblaði helgarinnar. Áhugaverð var frásögn af breyt- ingum sem spáð er að verði á lífs- háttum Vesturlandabúa. Hafra- grautur í morgunmat, hrísgrjón í hádeginu og baunir í kvöldmat. Kjöt aðeins til spari. Svona gæti matseðill- inn orðið árið 2050, ráði sérfræðingar í heilbrigðis- og umhverfismálum för. Þetta er áhugavert. Í ljósi fyrr- greindrar frásagnar er því áhugavert að velta fyrir sér hver framtíð ís- lensks landbúnaðar sé. Hvað segir Guðni Ágústsson? x x x Vert er að gef gaum hugmyndumum vernd víðerna við Dranga- jökul, sem sagt var frá. Eftir ferðalög um landið er Víkverja ljóst að ósnort- in svæði eru fágæti. Að því leyti eru til dæmis Eyjabakkar og Þjórsárver gullkistu líkust. Einnig Horn- strandafriðlandið þar sem Dranga- jökull er nærri. Áhugi Vestfirðinga fyrir aflstöð við Hvalá í Árneshreppi er skiljanlegur enda eru fáir orku- kostir aðrir í boði vestra. Því er spurning hvort hægt sé að fara milli- leið, það er að bæði vernda og virkja. Reynir þar á list hins mögulega. x x x Í kaupbæti með Mogga helgarinnarvar aukakálfurinn Sigraðu sykur- inn. Þar var ýmis fróðleikur um for- varnir og líf með áunna sykursýki. Sjálfur er Víkverji að kljást við þenn- an kvilla og hefur verið að reyna að breyta lífsstíl sínum. Að hreyfa sig, borða mátulega mikið, sleppa aug- ljósri óhollustu og haga lífi sínu sam- kvæmt heilbrigðri skynsemi. Það eru mikilvæg tök á sjúkdóminum og blaðið góða skerpti á þeim skila- boðum. x x x Í dagblöðum og á netinu voru umhelgina eftirhreytur af gagnrýni á unga konu sem hvatti fólk í sjálfs- vígshættu eða glímir við almenna vanlíðan að vera sjálfu sér nægt og standa með sjálfu sér þegar á móti blæs. „Þú ert nóg“ voru skilaboðin. Undir þessi saklausu orð ættu allir að geta tekið. Já, verum bara sátt við sjálf okkur og lífið, nú þegar daginn er farið að lengja. vikverji@mbl.is Víkverji Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til. (Síðara Korintubréf 5.17)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.