Morgunblaðið - 21.01.2019, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Að aka til vinnu á Þingvöllum héðan úr Hveragerði á morgnanaer gæðastund dagsins. Veður, birta og útsýni breytast sífelltsvo mér finnst ég stundum stödd í lifandi málverki,“ segir
Guðjóna Björk Sigurðardóttir, rekstrarstjóri Þjóðgarðsins á Þingvöll-
um, en hún er 48 ára í dag. „Starfið er fjölbreytt og líflegt, þó ekki sé
nema að á Hakið koma um tvær milljónir ferðamanna á ári og því er í
mörg horn að líta. Bæði þarf að sinna umhverfinu með allskonar
framkvæmdum og svo kallar gestafjöldinn líka á margvíslega þjón-
ustu sem við veitum. Nýlega opnuðum við til dæmis stafræna sýningu
um náttúru og sögu staðarins sem vakið hefur mikla athygli.“
Guðjóna á sínar rætur í Hveragerði. Eftir stúdentspróf frá Mennta-
skólanum að Laugarvatni fór hún í Háskólann á Bifröst í Borgarfirði
og nam þar viðskiptafræði með áherslu á stjórnun. Að því loknu var
hún í nokkur ár skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg og hafði þar um-
sjón með rekstri og umhirðu borgarlandsins. „Ég kom til starfa á
Þingvöllum fyrir tæpum þremur árum og finnst munur að þurfa ekki
að fara í Reykjavíkurstressið á degi hverjum,“ segir Guðjóna sem á
fjölmörg áhugamál. Fyrir nokkrum árum tók hún sér tak og byrjaði
að æfa crossfit. Finnst það vera einkar fjölbreytt þjálfun sem geri
henni gott. Hefur einnig áhuga á óhefðbundnum lækningum og líf-
rænni ræktun enda er hún breskmenntuð í hómópatíu.
„Krökkunum mínum finnst ekkert sjálfsagðara þegar þau fá pest
en ég kokki einhverja mixtúru í þau,“ segir Guðjóna sem er gift Ár-
manni Jón Garðarssyni, verkstjóra hjá Ístaki. Börnin eru tvö: Ester
Helgu sem er 18 ára og Árni Geir átta ára.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvergerðingur Guðjóna Björk æfir crossfit og er hómópati að mennt.
Í lifandi málverki
Guðjóna Björk Sigurðardóttir 48 ára í dag
Á
rni Reynir Óskarsson og
Ástdís Lilja Óskars-
dóttir fæddust 21. janúar
1934 á Sjúkrahúsinu á
Akureyri en ólust upp á
Kóngsstöðum í Skíðadal. Haustið 1949
fluttu tvíburarnir og foreldrar frá
Kóngsstöðum til Dalvíkur.
Æviferill Árna
Árni gekk í farskóla á Þverá í Skíða-
dal, síðan í unglingaskóla á Dalvík.
Hann tók gagnfræðapróf frá Lauga-
skóla í Reykjadal 1952 og tók nokkur
námskeið í Fiskvinnsluskólanum í
Hafnarfirði.
Árni var á fimm vertíðum í Sand-
gerði og var á sjó á Björgúlfi EA 312.
En lengst vann hann hjá útibúi KEA á
Dalvík í flestum deildum en lengst á
Frystihúsinu sem verkstjóri og sem
frystihússtjóri 1974-1979. Hann vann
líka í fiskeftirliti Sambandsins nokkur
sumur.
Árið 1980 keypti hann hlut í útgerð-
arfyrirtækinu Stefáni Rögnvaldssyni
ehf. á Dalvík og sá um landvinnslu fé-
lagsins þar til það var selt 2007.
Árni hefur alltaf starfað mikið við
félagsstörf, t.d. í Ungmennafélagi
Svarfdæla. Hann er í Lionsklúbbi Dal-
víkur og er Melvin Jones-félagi. Einn-
ig í Félagi eldri borgara á Dalvík.
Hann söng í Karlakór Dalvíkur,
kirkjukór Dalvíkurkirkju og kór eldri
borgara. Í nokkur ár dansaði hann í
þjóðdansahóp eldri borgara.
Æviferill Ástdísar
Ástdís fór í farskóla á Þverá í
Skíðadal frá 10 ára aldri en þá hófst
skólaskylda, síðan tvo vetur í ungl-
ingaskóla Dalvíkur og síðan lá leiðin í
Gagnfræðaskólann á Akureyri þar
sem hún var í tvo vetur, hún útskrif-
aðist gagnfræðingur vorið 1953. Ást-
dís vann sem kaupakona á nokkrum
bæjum á sumrin á skólaárunum. Ár-
in 1953 til 2007 var hún bóndi og hús-
freyja í Syðra-Holti í Svarfaðardal
þar sem hún gekk í öll störf bæði úti
og inni. Einnig fóstraði hún mörg
börn sem komu til hennar í sveit á
sumrin og sóttu mörg þeirra í að fá
að koma aftur og jafnvel í heimsóknir
í páska- og jólafríum sínum.
Ástdís gekk í Kvenfélagið Tilraun
Árni Reynir og Ástdís Lilja Óskarsbörn – 85 ára
Tvennir tvíburar Árni og Ástdís ásamt hinum tvíburunum í fjölskyldunni, Elvu Ragnheiði og Arnóri Inga.
Tvíburarnir frá Kóngsstöðum
Fjölskyldan á Kóngsstöðum Ástdís og Árni ásamt systkinum og foreldrum.
Ólafsfjörður Natalía Fönn
Jónsdóttir fæddist 16. maí
2018 kl. 17.21. Hún vó
2.896 g og var 47 cm löng.
Foreldrar hennar eru Alda
Hrönn Magnúsdóttir og
Jón Bjarni Sigurjónsson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU