Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 23
1965 og var m.a. formaður þess fé- lags í þrjú ár. Einnig gekk hún í Hestamannafélagið Hring vegna mikils áhuga þeirra hjóna á hrossum og var hún virkur félagi og um tíma í fjáröflunarnefnd. Nú er hún félagi í Félagi eldri borgara í Dalvíkurbyggð og hefur verið virk í því félagsstarfi, m.a. verið fjögur ár í stjórn þess og starfað í kór eldri borgara. Helstu áhugamál eru hannyrðir en hún hef- ur bæði stundað útsaum og prjóna- skap og einnig fengist við að mála myndir. Fjölskylda Árna Árni giftist 28. desember 1957 Ingi- björgu Jónínu Björnsdóttur, f. 24.3. 1939, húsmóður. Foreldrar hennar: Hjónin Björn Jónsson, f. 7.12. 1903, d. 8.3. 1977, bóndi í Ölduhrygg í Svarf- aðardal, og Þorbjörg Vilhjálmsdóttir, f. 17.1. 1908, d. 27.1. 1968, húsfreyja. Börn: 1) Björn Þór, f. 29.9. 1958, d. 31.10. 1989, skipstjóri á Dalvík. Dóttir: Sigrún Birna Björnsdóttir, maki: Jó- hann Eðvald Benediktsson og eiga þau þrjá syni; 2) Helga Kristín, f. 26.1. 1960, fjármálastjóri á Dalvík. Maki: Guðmundur Guðlaugsson smiður. Sonur : Björn Þór Guðmundsson; 3) Óskar Reynir, f. 29.4. 1964, hjúkr- unarfræðingur í Kaupmannahöfn. Sonur: Árni Reynir Óskarsson, sam- býliskona: Helga Guðrún Lárusdóttir og eiga þau tvö börn: 4) Víkingur Arn- ar, f. 21.4. 1966, verslunarmaður á Dal- vík. Maki: Kolbrún Gunnarsdóttir. Börn: Dagmar Fríða Halldórsdóttir, maki: Jóhann Torfi Hafsteinsson og eiga þau tvö börn; Hilmir Freyr Hall- dórsson; Ingibjörg Ósk Víkingsdóttir, maki: Árni Brynjólfsson og eiga þau tvær dætur; Birna Rún Víkingsdóttir, sambýlismaður: Vignir Logi Ár- mannsson; 5) Þorbjörg Ásdís, f. 15.3. 1971, hjúkrunarfræðingur á Akureyri. Maki: Baldur Stefánsson rafvirki. Börn: Stefán Þór Baldursson, Karen Dögg Baldursdóttir, Elva Ragnheiður Baldursdóttir og Arnór Ingi Bald- ursson; 6) Snjólaug Elín, f. 21.5. 1972, kennari í Vestmannaeyjum. Maki: Ingólfur Ingvarsson. Börn: Ingvar, Þorbjörg Júlía og Árni Þór. Fjölskylda Ástdísar Ástdís giftist 10. mars 1956 Sigurði Ólafssyni sem starfaði sem kennari, organisti og bóndi, f. 29.7. 1916, d. 5.10. 2005. Foreldrar hans: Hjónin Ólafur Tryggvi Sigurðsson, f. 2.3. 1891, d. 2.10. 1952, bóndi á Krosshóli í Skíðadal og síðar í Syðra-Holti, og Kristjana Jónsdóttir, f. 1.7. 1882, d. 16.1. 1970. Fóstursonur: Jósef Hrafn Þrastar- son, f. 31.5. 1958, lærður málmsmiður og vann við það í mörg ár, starfar nú hjá Sjúkratryggingum Íslands. Sam- býliskona hans er Margrét Jónsdóttir. Þau eru bús. í Reykjavík. Systkini og foreldrar Árna og Ástdísar Systkini: Aðalsteinn, f. 16.8. 1916, d. 13.2. 1999, skrifstofumaður á Dalvík og Akureyri, Kristín, f. 16.9. 1920, d. 22.8. 2015, bóndakona í Dæli í Skíða- dal, Valdimar, f. 25.10. 1922, d. 1.6. 2003, fyrsti sveitarstjóri Dalvíkur- byggðar, Friðrikka Elísabet, f. 25.6. 1925, d. 13.3. 2017, formaður Félags eldri borgara á Dalvík og rak handa- vinnubúð. Foreldrar: Hjónin Óskar Kristinn Júlíusson, f. 8.5. 1892, d.14.1. 1993, bóndi á Kóngsstöðum og vegaverk- stjóri og Snjólaug Aðalsteinsdóttir, f. 30.10. 1893, d. 27.3., 1980, bóndi á Kóngsstöðum. Úr frændgarði Árna Reynis og Ástdísar Lilju Árni Reynir Óskarsson og Ástdís Lilja Óskarsdóttir Sigurlaug Steinsdóttir húsfreyja á Berghyl Friðrik Jónsson bóndi á Berghyl í Fljótum Friðrika Elísabet Friðriksdóttir húsfreyja á Syðri-Másstöðum Snjólaug Aðalsteinsdóttir húsfreyja á Kóngsstöðum Aðalsteinn Runólfsson bóndi á Syðri-Másstöðum í Skíðadal Margrét Jónsdóttir húsfreyja á Hreiðarstöðum Runólfur Ísaksson bóndi á Hreiðarstöðum í Svarfaðardal Valgerður Júlíusdóttir bóndakona á Ingvörum í Svarfaðardal Júlíus Eiðsson verkamaður á Dalvík Júlíus Júlíusson frkvstj. Fiski- dagsins mikla á Dalvík Aðalsteinn Óskarsson skrifstofu- maður á Dalvík Snjólaug Aðalsteinsdóttir kvenfélagskona á Akureyri Karlotta Aðalsteinsdóttir endurskoðandi í Reykjavík riðrikka Elísabet Óskarsdóttir ormaður Félags ldraðra á Dalvík F f a Þuríður Jóhanns- dóttir dósent við HÍ Anna Jónsdóttirhúsfreyja á Klængshóli Rögnvaldur Tímotheus Rögnvaldsson bóndi á Klængshóli í Skíðadal Kristín Ágústína Rögnvaldsdóttir húsfreyja á Hverhóli Júlíus Hallsson bóndi á Hverhóli í Skíðadal Valgerður Jónasdóttir húsfreyja á Krosshóli, Hverhóli og Kóngsstöðum Hallur Gíslason b. á Krosshóli, Hverhóli og Kóngsstöðum Óskar Kristinn Júlíusson b. á Kóngsstöðum í Skíðadal Aðalsteinn Vestmann listmálari á Akureyri Margrét Vestmann húsfreyja á Akureyri Adam Óskarsson kennari við VMA Elías Örn Óskarsson pípu- lagningameistari á Akureyri og kennir við VMA Hörður Óskarsson kennari við VMA Bryndís Óskarsdóttir eigandi ferðaþjónust- unnar Skjaldarvík Sigurlína Aðalsteins- dóttir húsfreyja á Akureyri Lily Adams- dóttir kennari á Akur- eyri ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 Björn Hannes Ragnar OddssonBjörnsson fæddist í Kaup-mannahöfn 21. janúar 1895. Foreldrar hans voru hjónin Oddur Björnsson, f. 1865, d. 1945, prent- meistari og prentsmiðjustjóri á Akureyri, og Ingibjörg Benjamíns- dóttir, f. 1861, d. 1945, húsfreyja. Björn varð stúdent frá MR 1913 og lagði stund á náttúrufræði og landafræði við Kaupmannahafnar- háskóla og lauk þar fyrrihlutaprófi 1917, en settist þá í guðfræðideild Háskóla Íslands og brautskráðist þaðan 1921. Hann vígðist til Þykkvabæjar- klaustursprestakalls 1922 og varð þar prestur til 1933, á Brjánslæk á Barðaströnd 1933-1935, á Höskulds- stöðum á Skagaströnd 1935-1941 og á Hálsi í Fnjóskadal 1945-1955. Hann sinnti ritstörfum og ritstjórn 1941-1945, þar á meðal á tímaritinu Jörð. Frá 1955 átti Björn lengstum heima í Reykjavík og frá 1965 óslitið til æviloka. Þrátt fyrir að hafa fengið lausn frá embætti 1955 gegndi hann prestþjónustu í forföllum víða. Auk prestskapar stundaði Björn kennslu og margháttuð ritstörf og eftir hann liggur m.a. fjöldi þýddra og frumsaminna bóka, en strax á Hafnarárum sínum hóf hann útgáfu á Bókasafni alþýðu. Meðal rita sem hann gaf út var Vestur-Skaftafells- sýsla og íbúar hennar, útg. 1930, sem var brautryðjandaverk, og með- al þýðinga hans má nefna Gamli maðurinn og hafið eftir Hemingway. Björn var kvæntur Guðríði Vigfúsdóttur, f. 2.6. 1901, d. 12.4. 1973, húsfreyju frá Flögu í Skaftár- tungu. Börn þeirra: Ingibjörg Ragn- heiður, fv. yfirpóstafgreiðslumaður, bús. í Rvík, Vigfús, bókbandsmeist- ari og rithöfundur á Akureyri, d. 2010, Sigríður Sveinbjörg Pálína myndlistarmaður, bús. í Rvík, Odd- ur, rithöfundur og leikstjóri í Reykjavík, d. 2011, og Sigrún, leik- ari, leiklistarkennari og fyrrverandi skólastjóri Nýja tónlistarskólans í Reykjavík, bús. í Rvík. Björn lést 29. september 1975. Merkir Íslendingar Björn O. Björnsson 95 ára Erna Kristjánsdóttir 90 ára Svanhildur L. Aðalsteinsdóttir 85 ára Alda Sófusdóttir Árni Reynir Óskarsson Ástdís Lilja Óskarsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Ragnar Birkir Jónsson 80 ára Guðmundur Sigurjónsson Gunnar J. Magnússon 75 ára Aðalheiður Sigurðardóttir Skúli M. Gestsson Sólrún Jósefína Valsdóttir 70 ára Auður Sigurdís Þorvaldsd. Eyþór Örn Óskarsson Halldóra Ólafsdóttir Helga Þórunn Bjarnadóttir Hilmar Hansson Jóakim Tryggvi Andrésson Karen B. Valdimarsson Ragnheiður G. Sigurjónsdóttir Valdís Oddgeirsdóttir 60 ára Aldís Schram Ásgeir Jónsson Baldvin R. Baldvinsson Bjarki Pétursson Danuta Jadwiga Zawalska Gunnar Kjartansson Hanna Jóna Ástvaldsdóttir Ingi Þór Skúlason Jóhanna Guðmundsdóttir Magnús Ingi Ásgeirsson Marinó Már Marinósson Ósk Sigurjónsdóttir Ryszard Szurgot Sigurður Ingi Ingimarsson Sigurður Jón Ragnarsson Skúli Lárus Skúlason Stefán Garðar Óskarsson 50 ára Baldur Sigurðarson Ewa Palka Guðni Sigurbjarnason Paolo Di Dino Ragnar Björn Agnarsson Ríkharður F. Jensen Þorlaugur Gunnarsson 40 ára Anna Ingibjörg Hallgrímsd. Arnar Hreinsson Björgvin Helgi Jóhannsson Bragi Finnbogason Christopher Donald Jagger Davíð Hreiðar Stefánsson Elísabet Inga Marteinsd. Fannar Bergsson Josef Kubu Laura Martin Merino Marine Petrosyan Piotr Wawro Sandra G. Guðmundsdóttir Slawomir Jerzy Bulga Þór Gunnlaugsson Þórir Þorsteinsson 30 ára Ante Balov Daníel Smári Hauksson Esther Gunnarsdóttir Eygló Sigríður Kristjánsd. Guðmundur R. Gunnarss. Guðrún Gróa Þorsteinsd. Helgi Rúnar Olgeirsson Laufey Viðarsdóttir Olegs Komarovs Rósa María Sigurgeirsdóttir Sigrún Vala Vilmundard. Til hamingju með daginn 30 ára Sigrún Vala fædd- ist í Vestmannaeyjum en býr á Selfossi. Hún er snyrtifr. á Snyrtistofunni Evu. Maki: Sindri Karl Krist- insson, f. 1989, bifvélavirki á Bílaþjónustu Péturs. Börn: Vilmundur Kristinn, f. 2011, og Patrekur Óliver, f. 2013. Foreldrar: Vilmundur Sig- urðsson, f. 1968, og Svala Möller Jónsdóttir, f. 1967, bús. í Reykjavík. Sigrún Vala Vilmundardóttir 40 ára Björgvin er Reyk- víkingur og tölvunar- fræðingur. Maki: Ása Björk Valdi- marsdóttir, f. 1988, tölv- unarfræðingur hjá Cyren. Börn: Fenrir Breki, f. 2017. Foreldrar: Jóhann Helgi Helgason, f. 1959, leigu- bílstjóri, bús. á Blönduósi, og Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, f. 1962, tölvunarfr. hjá Five De- grees, bús. á Selfossi. Björgvin Helgi Jóhannsson 40 ára Þórir er Keflvík- ingur og er lögreglu- maður hjá Lögreglustjór- anum á Suðurnesjum. Maki: Berglind Ósk Guð- mundsdóttir, f. 1976, tal- meinafræðingur hjá Reykjanesbæ. Börn: Andrea Ósk, f. 2003, og Ari Sævar, f. 2008. Foreldrar: Þorsteinn Marteinsson, f. 1953, og Maríanna Einarsdóttir, f. 1952, bús. í Keflavík. Þórir Þorsteinsson NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin Opið virka daga kl. 10.00-18.00 Loðfóðruð barnastígvél fyrir veturinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.