Morgunblaðið - 21.01.2019, Page 32
15%
AFSLÁTTUR
af sérpöntunum
til 27. janúar
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.comHáþróaður svefnbúnaður
Náttúruleg efni, einstakt handverk og PASCAL gormakerfið
gera rúmin okkar að athvarfi fyrir stöðugan gæðasvefn.
FRUMKVÖÐLAR SÍÐAN 1926
Klæðskerasniðin
þægindi
Íslensku perlurnar er yfirskrift tón-
leika sem Jóhanna Guðrún heldur í
Bæjarbíói á fimmtudag kl. 20.30. Á
efnisskránni eru uppáhalds ís-
lensku sönglögin að mati söngkon-
unnar. Þeirra á meðal eru Tvær
stjörnur, Vetrarsól, Álfar og Slá í
gegn. Með henni leikur hljómsveit
reyndra tónlistarmanna undir
stjórn Davíðs Sigurgeirssonar.
Íslenskar perlur í
Bæjarbíói á fimmtudag
MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Að sjálfsögðu var gaman að koma
inn á leikvöllinn í fyrri hálfleik. Það
hefur lengi verið draumur minn að
leika á heimsmeistaramóti í hand-
bolta með landsliðinu og ekki var
það verra að draumurinn rættist í
leik á móti heimsmeisturunum.
Það var geggjað að koma inn á,“
sagði Haukur Þrastarson m.a. í
samtali við Morgunblaðið. »1
Frumraun á stórmóti
gegn heimsmeisturum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Fremstu hlaupakonur landsins, Aníta
Hinriksdóttir og Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir, fara vel af stað í ár. Þær
settu báðar mótsmet á Stórmóti ÍR í
Laugardalshöll í gær. Guðbjörg í 200
metra hlaupi og Aníta í 800 metra
hlaupi. Báðar unnu þær örugga sigra
í sínum hlaupum og ætla sér stóra
hluti á nýju ári. Hafdís Sigurð-
ardóttir vann lang-
stökk og hafnaði í 2.
sæti í 60 metra
hlaupi og María
Rún Gunnlaugs-
dóttir vann þrjár
greinar. »2
Aníta og Guðbjörg
Jóna fóru vel af stað
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Átta Íslendingar tóku þátt í hundr-
að kílómetra fjallahlaupinu Hong
Kong 100 Ultra, sem lauk um
helgina, en aðeins fimm þeirra luku
keppni. Aðstæður í hlaupinu voru
krefjandi að sögn Halldóru Gyðu
Matthíasdóttur Proppé, sem er
þaulreyndur fjallahlaupari og kom
fyrst í mark af Íslendingunum. Hún
hljóp hundrað kílómetra með 5.400
metra hækkun á átján klukkustund-
um og 43 mínútum og varð 53. kon-
an í mark.
Setur ávallt fjögur markmið
Halldóra tók þátt í fjallahlaupinu í
Hong Kong þriðja árið í röð. Hún
hefur bætt tímann jafnt og þétt í ár-
anna rás en ávallt sett sér sömu
markmiðin. „Ég set mér fjögur
markmið fyrir hvert hlaup, þau eru
að komast að ráslínu, að klára
hlaupið, að hafa gaman af því alla
leið og að bæta tímann minn ef ég
hef áður keppt í hlaupinu,“ segir
Halldóra. Fyrir ári hljóp Halldóra á
19 klukkustundum og 20 mínútum
en hlaupaleiðin var lengd um 6 kíló-
metra í ár og hækkuð um 500 metra,
svo bætingin er vel merkjanleg.
Keppendur hlupu við ströndina
og á hálendi og fengu að njóta út-
sýnis yfir Hong Kong-borg í leið-
inni. Á hlaupaleiðinni mátti sjá víga-
lega apa, hunda og kýr á hverju
strái en sérstakar aðstæður gerðu
það að verkum að stór hluti kepp-
enda lauk ekki hlaupinu.
„Í keppninni var mikið brottfall
og yfirmaður hlaupsins sagði að um
30% keppenda hefðu dottið úr
keppni. Aðstæðurnar eru krefjandi,
andrúmsloftið rakt og hitinn yfir 20
gráður,“ segir Halldóra.
Næsti Íslendingur í mark varð
Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir sem
kláraði hlaupið af dugnaði þrátt fyr-
ir veikindi sem upp komu skömmu
fyrir hlaupið. Hún hljóp á nítján
klukkustundum og átján mínútum
og varð 60. konan í mark.
Hafdís hljóp hundrað sinnum á
Esjuna á síðasta ári og segist munu
halda uppteknum hætti, þar sem
æfingin hefur skilað góðum árangri.
„Ég setti mér það markmið að klára
hlaupið á innan við 20 klukkustund-
um, svo fékk ég flensu, en ég kláraði
þetta samt og leið þokkalega,“ segir
Hafdís.
Þriðji Íslendingurinn í mark var
Sigurður Hrafn Kiernan en hann
hljóp á 19 klukkustundum og 25
mínútum. Rúna Rut Ragnarsdóttir
og Þorsteinn Tryggvi Másson luku
einnig hlaupinu, Rúna hljóp á 22
klukkustundum og 23 mínútum og
Þorsteinn kláraði hlaupið á 23
klukkustundum og 42 mínútum.
Dugnaður Sigurður Kiernan, Halldóra G. Matthíasdóttir Proppé og Hafdís G. Hilmarsdóttir náðu góðum árangri.
Krefjandi aðstæður í
fjallahlaupi í Hong Kong
Átta Íslendingar tóku þátt í utanvegahlaupi en fimm luku
keppni Halldóra kom fyrst af Íslendingunum í mark