Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Mbl.is og Morgunblaðiðgreindu frá því í vikunni að Helga Vala Helgadóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, hefði síðastliðið sumar hvatt Karl Gauta Hjaltason með tölvupósti til að víkja af nefndarfundi alþingis til að fá sér bjór með henni og tveim- ur öðrum þing- mönnum stjórnar- andstöðunnar á frægum Klaustur bar.    Helga Valahefði, ásamt hinum þingmönn- unum sem fóru á Klaustur, átt að vera á umræddum nefndarfundi. Þessir þingmenn töldu rétt að víkja af fundi og það er þeirra mat, þó að umdeilanlegra geti ver- ið að hvetja aðra til hins sama.    Helgu Völu mislíkaði bersýni-lega frásögnin en með henni var þó engin afstaða tekin. Vegna umræðu um að aðrir þingmenn, sem fóru sem kunnugt er á sama bar og viðhöfðu þar ósæmandi um- mæli, hefðu gert það í vinnutím- anum var eðlilegt að greina frá þessu.    Staðreyndin er sú að þingmennfara iðulega á bari eða annað og fá sér áfenga drykki. Erlendis þekkist að í þinghúsum séu barir og jafnvel mikill fjöldi þeirra.    Morgunblaðið gerir engar at-hugasemdir við þetta og staðreyndin er sú að starf þing- mannsins er ekki hefðbundið starf með afmarkaðan vinnutíma.    Þetta er löggjafarstarf semþingmönnum ber að inna af hendi eftir eigin samvisku og á meðan þeir hafa til þess stuðning kjósenda. Helga Vala Helgadóttir Vinnutími þingmanna STAKSTEINAR Farið var yfir fjölbreytta starfsemi Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, á aðalfundi samtakanna sem haldinn var 24. janúar síðastliðinn. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, var endur- kjörinn formaður og aðrir í stjórn eru Auður Sturludóttir, meistara- nemi í frönsku, Gustav Pétursson alþjóðastjórnmálafræðingur, Kjartan Gunnarsson lögfræðingur, Kristinn Valdimarsson, stjórnmála- og stjórn- sýslufræðingur, Magnús Örn Gunn- arsson, svæðisstjóri frjálslyndra stúd- enta í N-Evrópu, og Sóley Kaldal, áhættustjórnunar- og öryggisverk- fræðingur. Starfsemi fé- lagsins snýst m.a. um að efna til opinberra funda fjórum sinnum á ári og er fastur fundarstaður þeirra í fyrir- lestrarsal Þjóð- minjasafnsins. Meðal funda sem efnt var til á síðasta ári voru fyrir- lestur James G. Foggo, flotaforingja og yfirmanns flota NATO í Napólí, sem hann hélt í aðdraganda varnar- æfingarinnar Trident Juncture. Þá var haldið NATO-námskeið í októ- ber síðastliðnum þar sem flutt voru fjögur erindi um varnarbandalagið og aðild Íslands að því. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Anna Jó- hannsdóttir, fastafulltrúi Íslands í NATO, sem ræddi um NATO í dag, og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræddi um NATO og kalda stríðið. Varðberg var stofnað í desember 2010 þegar tvö félög; Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg, runnu saman. Í fyrra voru liðin 60 ár frá stofnun fyrrnefnda félagsins. Fjölbreytt fundahöld og margvísleg starfsemi Varðbergs í fyrra Björn Bjarnason „Þetta er ágæt viðurkenning fyrir okkur,“ segir Andri Þór Guðmunds- son, forstjóri Ölgerðarinnar. Í vikunni komu 45 starfsmenn PepsiCo á Norðurlöndunum hingað til lands og héldu tveggja daga vinnufund í Ölgerðinni. Ástæða þess að Ísland var valið sem fundarstaður er að sögn Andra sá árangur sem náðst hefur í sölu á Pepsi hér á landi. Sala á Pepsi Max hér á landi er til að mynda sú næstmesta í heiminum á hvern íbúa, en að- eins Norðmenn drekka meira Pepsi Max en við. Meðal gesta hér var Anders Boecker Peder- sen, sem er nýr framkvæmdastjóri PepsiCo á Norðurlöndunum. Hann tók einmitt við starfinu í byrjun vik- unnar og gerði það að sínu fyrsta verki að koma til Íslands. Að sögn Andra sýndu norrænu gestirnir heimsókn fyrrverandi for- stjóra PepsiCo, Indra Nooyi, árið 2013 mikinn áhuga enda var boðs- kort Ölgerðarinnar eftirminnilegt. Á 100 ára afmæli Ölgerðarinnar gerði fyrirtækið myndband sem fékk for- stjórann fyrrverandi til að sækja landið heim og halda hátíðarræðu í Þjóðleikhúsinu. „Þessi heimsókn kom Íslandi á kortið í þessum Pepsi- heimi. Hún sá þennan árangur og í kjölfarið fengum við verðlaun fyrir söluna,“ segir Andri. „Hápunktur ferðarinnar hjá þeim var sjálfsagt þegar Höskuldur, vöru- merkjastjóri hjá okkur og kennari í Bjórskólanum, sagði þeim af drykkjarmenningu Íslendinga í tveggja tíma fyrirlestri sem kallast Taste the Saga. Þar fengu þau að heyra um bjórbannið og umræð- urnar á Alþingi um það. Þau engdust af hlátri. Svo leyfðum við þeim að smakka bjórlíki.“ hdm@mbl.is Gestirnir fengu að smakka bjórlíki  Stór vinnufundur PepsiCo á Íslandi Andri Þór Guðmundsson Í VESTURBÆ VEITINGA- STAÐUR Frábært viðskiptatækifæri! Nánari upplýsingar gefur Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is Ha uk ur 01 .1 9 50 sæta skyndibitastaður í Vesturbænum er til sölu. Staðurinn er í fullum rekstri á góðum stað við sjávarsíðuna með 100 mkr veltu á síðasta ári. Vegna breyttra aðstæðna hjá eigendum býðst staðurinn nú til kaups á mjög hagstæðu verði. Staðurinn er í góðu og hagstæðu leiguhúsnæði. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kallað var eftir liðsinni Björgunar- félags Vestmannaeyja í gær vegna smábáts sem var í vanda staddur í innsiglingunni í Eyjum. Leki kom að bátnum þegar hann var á leið út úr höfninni og að sögn skipverja var hann við það að sökkva. „Þeir rétt náðu að keyra hann upp í fjöruna,“ sagði Sveinn R. Valgeirs- son, forstöðumaður Vestmannaeyja- hafnar og skipstjóri á Lóðsinum, í samtali við 200 mílur. Þrír voru í bátnum, sem ber nafnið Lubba VE-27. Lóðsinn dró í kjölfar- ið Lubbu í land og var hún hífð upp á bryggju talsvert skemmd. Smábátur var nærri sokkinn  Leki kom að bátnum í innsiglingunni í Vestmannaeyjum Morgunblaðið/Óskar Pétur Bjargað Lóðsinn og björgunarbáturinn Þór drógu bátinn að bryggju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.