Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Horfur eruekki góð-ar á evru- svæðinu. Á þriðja fjórðungi liðins árs dró úr hag- vexti á svæðinu og var hann aðeins 0,2%, en hafði verið 0,4% á tveimur fyrstu fjórð- ungum ársins. Í frétt frá AFP segir að flestir sérfræðingar séu þeirrar hyggju að tölur fjórða ársfjórðungs 2018 muni einnig valda von- brigðum. Þessi staða á evrusvæðinu leggst ekki vel í forkólfa í þýsku athafnalífi. Í gær var birt niðurstaða könnunar, sem gerð var meðal níu þús- und fyrirtækja og sýndi að trú á viðskiptalífið í landinu hefur ekki verið minni í þrjú ár. Í fyrsta skipti síðan í des- ember 2012 gæti svartsýni hjá þeim um horfur í við- skiptum. Mario Draghi, yfirmaður seðlabanka evrusvæðsins, tal- aði meira að segja um að hall- aði á þegar hann brást við á fimmtudag, en gætti þess þó að skella skuldinni á utan- aðkomandi vá, það er „viðvar- andi óvissuþætti sem tengjast alþjóðastjórnmálum, hótun- inni um verndarhyggju, við- kvæmni nýmarkaða og óstöð- ugleika fjármálamarkaða“. Bætti Draghi því hins veg- ar við að það væri ekki rétt að seðlabanki evrusvæðisins væri orðinn bensínlaus eða uppiskroppa með verkfæri til að bregðast við vaxandi mót- vindi. Draghi getur vitaskuld ekki gengist við því að hann sé bjargarlaus, vextir bankans verði ekki mikið lægri og það hafi litlu skilað að dæla ódýru fjármagni inn á evrusvæðið. Staðan í dag ber því í raun vitni hvað evran er óburðug. Á vefsíðu breska vikuritsins The Economist birtist í vik- unni ágæt greining á vanda evrunnar frá upphafi. Þar segir að myllumerkinu #evruuppsveifla (#euro- boom) hafi verið skeytt við hverja frétt um að evrusvæð- ið væri að hjarna við. Fyrst hafi það verið brandari, svo hafi það virst eiga við stoð að styðjast, en nú væri annað að sjá. Búast mætti við því að þegar tölur síðasta árfjórð- ungs 2018 yrðu birtar kæmi í ljós að efnahagur Ítalíu hefðu dregist saman samfellt í sex mánuði þannig að tæknilega teldist þar ríkja samdráttur og Þjóðverjar hefðu með naumindum sloppuð við að falla í þann flokk. Evrusvæð- ið, sem myndað var í janúar 1999, gæti orðið tvítugt á barmi nýrrar kreppu. Skoðun blaðsins er sú að evran hafi verið erkiklúður frá upphafi. Á evrusvæðinu hafi hagvöxtur verið minni en í öðrum þróuðum hagkerfinu og í Evrópusambandinu í heild frá því til hennar var stofnað. Þannig hafi það verið fyrir fjármálakreppuna, með- an á henni stóð, evrusvæðið hafi setið eftir þegar þar fór fram sérstakur eftirmáli við kreppuna og meira að segja þegar mjakaðist upp á við undanfarin tvö ár hafi það verið eftirbátur annarra. „Ef til vill hefði gengið jafn illa á evrusvæðinu án eins gjaldmiðils,“ segir höfundur, en dregur það um leið í efa. Tilraunir til að meta frammi- stöðu evrusvæðisins út frá því að ekki hefði verið stofnað til þess gefi það til kynna. Undanfarinn áratugur hafi verið evrusvæðinu sérlega grimmilegur. Listinn yfir þá, sem hafa staðið sig verst þeg- ar kemur að vergri lands- framleiðslu á mann síðan 2008 sýni það. Á þeim lista eru lönd, sem nálgast ekki bara efnahagslega heldur pólitíska upplausn. Hagvöxtur hafi verið meiri í Súdan og Úkra- ínu, en Grikklandi. Kýpur og Ítalía hafi lotið í lægra haldi fyrir Brasilíu og Íran. Frakk- ar og Hollendingar hafi staðið sig verr en Bretar. Blaðið bætir því við að margar ástæður séu fyrir því að nú blasi nýr afturkippur við evrulöndunum. Þær eru meðal annars utanaðkomandi líkt og Draghi segir, en að stofni til heimatilbúnar. Dregið hefur úr framleiðslu bíla í Þýskalandi þar sem framleiðendur vinna að því að ná nýjum útblástursstöðlum, efnahagur Ítalíu er valtur vegna baráttu stjórnvalda þar við valdið í Brussel og franskt efnahagslíf höktir vegna mót- mælenda í gulum endurskins- vestum. Þá hafa stjórnvöld á evru- svæðinu verið sett í spenni- treyju aðhalds þannig að þau geta ekki notað útgjöld á fjár- lögum til að blása lífi í efna- haginn og hvað sem Draghi segir um verkfærakistuna sína eru vextir seðlabanka evrusvæðisins í reynd nei- kvæðir nú þegar, þannig að ekki verður mikið meira að gert þar. Evran var vanhugsuð frá upphafi. Hún var pólitískur gjörningur reistur á efna- hagslegum sandi. Enn blasir sam- dráttur við á evrusvæðinu} Viðvarandi evruvandi K arl G. Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlæknir á sýklafræðideild Landspítalans, hefur verið óþreytandi að vara Ís- lendinga við hvaða áhrif aukið sýklalyfjaónæmi getur haft á heilsu þjóðarinnar. Hefur hann m.a. bent á hættuna sem fylgt getur hráu kjöti og grænmeti. Karl er ekki sá eini sem fjallað hefur um skaðann sem af sýklalyfja- ónæmi getur hlotist, um það hefur m.a. verið fjallað í hinu virta læknariti Lancet (www.the- lancet.com). Í frétt sem lesa má í nýjasta tölu- blaði Bændablaðsins er vitnað í fyrirlestur sem Karl G. Kristinsson hélt á nítjándu líf- og heil- brigðisvísindaráðstefnunni. Þar sagði Karl m.a. frá miklum fjölda þvagfærasýkinga í borg í Bandaríkjunum sem rekja má til kjöts á mark- aði. Þá bendir hann réttilega á að alþjóðaverslun með matvæli færist í vöxt og því skipti máli hvaðan matur- inn sem við neytum komi. Mest sé notað af sýklalyfjum á Kýpur, svo Spáni þá Ítalíu, Portútgal og Hollandi. Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin (WHO), hefur einnig varað við hættunni af sýklalyfjaónæmi. Á sextugasta og áttunda heimsþingi stofnunarinnar 2015 var m.a. kynnt heimsáætl- un (Global action plan on antimicrobial resistance) til að berjast gegn hættunni. Fram til þessa hafa neytendur lítið getað áttað sig á því hvort þær matvörur sem þeir neyta geti innihaldið leifar af sýklalyfjum og þannig tekið meðvit- aða ákvörðun um hvort þeir kaupi vöru sem getur innihaldið mikið magn af sýklalyfjum eða lítið. Á áðurnefndu heims- þingi WHO voru samþykkt fimm meginmark- mið þar sem efst á blaði er að auka vitund og skilning á hættunni sem fylgir auknu sýkla- lyfjaónæmi. Þegar við stöndum við kjötborðið í verslunum þá höfum við ekki hugmynd um hvort og í hvaða magni lyf, þ.m.t. sýklalyf, hafi verið notuð við framleiðslu vörunnar. Við sjáum í mörgum tilfellum upprunaland vörunnar sem vissulega var til bóta en þær merkingar eru litl- ar og lítt sjáanlegar. Neytendur eiga að hafa aðgang að upplýs- ingum um lyfjanotkun og mögulegar lyfjaleifar eða annarra efna í þeim matvörum sem þeir kaupa. Það hlýtur að geta verið sameiginlegt markmið okkar allra að leita sem flestra leiða til að sporna við þessari lýðheilsuvá og ein leið til þess er einmitt að auka vitund og skilning neyt- enda. Þessa dagana er því unnið að laga- frumvarpi þar sem markmiðið er að koma þessum upplýs- ingum til neytenda með eins skýrum hætti og mögulegt er. Ætlun mín og annarra þingmanna Miðflokksins er að frum- vapið geri neytendum kleift að sjá eða nálgast upplýsingar um þau lyf sem notuð hafa verið við framleiðslu vörunnar sem þeim stendur til boða. Þeir geti þannig valið hvort þeir láti þær upplýsingar hafa áhrif á það sem þeir velja í sína matarkörfu eða ekki. Munu lögin ná til erlendra og inn- lendra vara. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Viltu vita hvaða lyf eru í matnum þínum? Höfundur er alþingismaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stjórnendur Fiskistofu takaundir margt af því sem framkemur í stjórnsýsluúttektRíkisendurskoðunar á starf- semi stofnunarinnar. Þeir segja að í skýrslunni sé réttilega bent á marg- víslega erfiðleika sem við sé að glíma vegna eftirlits með fiskveiðum, en margt af því hefur áður verið til um- ræðu. Eftirlit á sjó er einn þessara þátta og segir Eyþór Björnsson fiski- stofustjóri að það þurfi að efla með auknum mann- afla, en jafnframt að nýta tæknina í auknum mæli. „Ég myndi vilja sjá þríþættar aðgerðir,“ segir Eyþór. „Fyrst og fremst þurfum við að skoða mögu- leika sem tæknin getur fært okkur hvort sem um myndavélaeftirlit er að ræða eða aðrar lausnir. Myndavélar um borð í fiskiskipum geta verið maki margra eftirlitsmanna og aukið dekkun í sjóeftirliti gríðarlega mikið. Við þurfum líka meiri mannskap vegna þess að verkefnin eru mörg og krefjandi, en til þess vantar okkur fjármagn. Í þriðja lagi er það reglu- verkið. Við þurfum að skoða hvort það sé nógu skilvirkt og hvort viður- lögin hafi varnaðaráhrif eins og þau eiga að gera.“ Þessi atriði eru meðal þeirra sem Ríkisendurskoðandi bendir á í sinni skýrslu. Meðal tillagna til úr- bóta er einnig að kanna þurfi hvort og þá hvernig hægt sé að auka sam- starf Fiskistofu og Landhelgisgæslu við eftirlit með brottkasti. Veikburða og ómarkvisst Í skýrslunni er að finna umsögn sjávarútvegsráðuneytisins og er tek- ið undir mikilvægi þess að koma í veg fyrir brottkast. Þar kemur fram að um þessar mundir sé verið að skipa samráðsnefnd ráðuneytis, Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar sem eigi að móta áherslur, fyrirkomulag og sam- starf við fiskveiðieftirlit á hafi úti. Meðal þess sem Ríkisendur- skoðandi vekur sérstaka athygli á í skýrslu sinni er að eftirlit stofnunar- innar með brottkasti sé veikburða og ómarkvisst. Í skýrslunni segir: „Ríkisendurskoðandi bendir á að Hafrannsóknastofnun hefur ekki ráð- ist í neinar rannsóknir á tegundaháðu brottkasti í rúman áratug auk þess sem gagnasöfnun um lengdarháð brottkast hefur dregist talsvert sam- an undanfarin ár … Taka verði alvar- lega áhyggjur og vísbendingar um að brottkast sé stundað.“ Bent er á að eftirlitið sé ýmsum vandkvæðum háð enda eigi mögu- leikinn á brottkasti við um allan ís- lenska flotann sem árið 2017 var 1.342 skip og bátar. Nú eru 22-23 sjó- eftirlitsmenn við störf hjá Fiskistofu og eru þrír þeirra sérhæfðir til eftir- lits um borð í skipum sem vinna aflann. Eftirlitsmönnum hefur fækkað um fjórðung á áratug, fyrst og fremst vegna kröfu um hagræðingu í rekstri, að sögn fiskistofustjóra. Vinnslu- skipum hefur á sama tíma fækkað í flotanum og vinnuaðferðum verið breytt hjá Fiskistofu. Eyþór vekur athygli á því að starfsfólki hafi fækk- að á flestum sviðum starfseminnar og séu veiðieftirlitsmenn nú jafn stórt hlutfall af heildarfjölda starfsmanna Fiskistofu og þeir voru árið 2007. Árið 2017 fóru eftirlitsmenn í 305 veiðiferðir, þar af 24 með vinnslu- skipum og 281 með öðrum fiskiskip- um. Ferðir þessar stóðu samtals yfir í 1.173 daga, en fjölgaði í 1.250 á ný- liðnu ári. Árið 2013 voru sjódagar hins vegar 1.743. Myndavélar á við marga eftirlitsmenn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eftirlit Íslensk fiskiskip eru mörg og af ýmsum stærðum og gerðum. Eyþór Björnsson Í tilkynningu á heimasíðu Fiskistofu er greint frá því að stofnunin vilji ráða tvo starfsmenn í veiðieftirlit og bent er á að starfandi veiði- eftirlitsmenn séu nær ein- göngu karlar. Því er athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim tilgangi að jafna kynjahlutföll. Eyþór fiskistofustjóri segir að ekki sé verið að fjölga eftir- litsmönnum, heldur að ráða í stöður sem séu lausar eða að losna. Nú séu þrjár kon- ur við þessi störf. Vorið 2017 birti Fiskistofa auglýsingu þar sem auglýst var eingöngu eftir konum í starf eftirlitsmanns. Fiski- stofu var gert að afturkalla þá auglýsingu þar sem vafi léki á að auglýsingin stæð- ist lög. Stofnunin hafði þó haft Jafnréttisstofu með í ráðum við gerð auglýsing- arinnar. Vilja jafna kynjahlutfall VEIÐIEFTIRLIT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.