Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
✝ HildigunnurEyfjörð fædd-
ist á Finnastöðum á
Látraströnd 11.
maí 1929 og ólst
þar upp. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Grenilundi Greni-
vík 14. janúar 2019.
Foreldrar hennar
voru Jón Þor-
steinsson frá
Finnastöðum á
Látraströnd, f. 20.7. 1892, d.
30.7. 1962, og Elísa Stef-
ánsdóttir frá Miðgörðum á
Grenivík, f. 12.12. 1893, d. 12.9.
1944. Systkini Hildigunnar voru
Bára Eyfjörð, f. 20.7. 1915, d.
27.1. 2000, Þorsteinn Eyfjörð, f.
4.10. 1916, d. 23.8. 1997, Elín
Eyfjörð, f. 9.8. 1918, d. 4.10.
1987, Stefán Eyfjörð, f. 16.1.
1921, d. 1.1. 2008, Þórgunnur
Eyfjörð, f. 16.12. 1922, d. 7.2.
2015, Pétur Eyfjörð, f. 23.4.
1925, d. 25.3. 1990, Friðrik Ey-
fjörð, f. 8.8. 1931, Jakob Ey-
dór, f. 10.5. 2003, og Heiðrún
Anna, f. 7.2. 2012. Fyrir átti
Kristinn soninn Fannar Hólm, f.
18.3. 1990, dætur hans eru Ása
Brynja, f. 14.9. 2009, og Katrín
Rós, f. 27.9. 2013. 4) Kristján
Þór, f. 7.6. 1973, kvæntur Hönnu
Björgu Margrétardóttur, f.
23.10. 1977. Dóttir þeirra er
Margrét Fanney Storm, f. 15.11.
2016. Fyrir átti Kristján dæt-
urnar Ásdísi Marín, f. 19.3.
2000, og Hildi Ólöfu, f. 7.2. 2006.
Hildigunnur vann ýmis störf
um ævina tengd sjávarútvegi,
fór ung að beita línu inni á
Grenivík, síðar í síld á Raufar-
höfn og Siglufirði, í mötuneyti
Gjögurs í Grindavík. Síðustu
starfsárin vann hún í frystihúsi
Kaldbaks á Grenivík.
Hildigunnur og Ásmundur
bjuggu lengst af á Grenivík. Þar
byggðu þau sér hús, Birkimel,
sem var æskuheimili barnanna.
Árið 2000 fluttu þau til Akur-
eyrar og bjuggu þar til 2013.
Þau fluttu aftur til Grenivíkur
þar sem þau dvöldu á Hjúkr-
unar- og dvalarheimilinu Greni-
lundi síðustu æviárin.
Útför Hildigunnar fer fram
frá Grenivíkurkirkju í dag, 26.
janúar 2019, og hefst athöfnin
klukkan 14.
fjörð, f. 25.7. 1934,
d. 31.10. 2015.
Hildigunnur gift-
ist Karli Ásmundi
Hólm Þorlákssyni,
f. 5.1. 1935, d. 20.5.
2018, frá Siglufirði
þann 31. desember
1967. Foreldrar
hans voru Þorlákur
Guðmundsson, f.
22.7. 1894, d. 5.6.
1994, og Guðrún
Jóhannsdóttir, f. 6.6. 1897, d.
5.4. 1963.
Hildigunnur og Ásmundur
eignuðust fjögur börn. 1) Fann-
ey Sólborg, f. 25.8. 1967. 2) Elísa
Jóna, f. 12.11. 1968, gift Grétari
Jóni Pálmasyni, f. 2.12. 1968.
Synir þeirra eru Brynjar Hólm,
f. 22.2. 1994, og Arnar Pálmi, f.
20.9. 1997. 3) Kristinn Hólm, f.
26.10. 1971, kvæntur Ernu Rún
Friðfinnsdóttur, f. 15.1. 1973,
börn þeirra eru Steinar Freyr, f.
21.5. 1994, Berglind Birta, f
28.12. 1999, Friðfinnur Stein-
Mamma fæddist á Finnastöð-
um á Látraströnd 1929 og ólst
þar upp í stórum systkinahópi
en hún var sú sjöunda í röðinni
af níu systkinum. Af sögunum
hennar að dæma, sem voru
ófáar, var oft glatt á hjalla á
heimilinu og alltaf nóg að gera.
Hún fór ung inn á Grenivík að
vinna við að beita línu og seinna
tóku við mörg ár þegar hún
vann í síld á Raufarhöfn og
Siglufirði. Einnig sem ráðskona
hjá Gjögri í Grindavík. En á
Siglufirði kynntist hún pabba.
Þann 31. desember 1967 genguð
þið í hjónaband á Finnastöðum.
En þar bjugguð þið um tíma
með Fanneyju og Elísu. Seinna
fluttuð þið inn á Grenivík og
bjugguð á nokkrum stöðum eða
þar til þið fluttuð í Birkimel
sem þið byggðuð fyrir fjölskyld-
una. Voru þá komnir synirnir
Kristinn og Kristján. Þar
bjuggu þið fram til ársins 2000.
Þá fluttuð þið til Akureyrar þar
sem þið bjugguð til 2013. Seinna
meir fluttuð þið aftur til Greni-
víkur. Vegna heilsubrests flutt-
ist hún á dvalarheimilið Greni-
lund en pabbi bjó fyrst um sinn
að Lækjarvöllum 2. Pabbi kom
á eftir henni á Grenilund 2015.
Þar bjugguð þið síðustu æviárin
við góða umönnun.
„Hvað er í matinn?“ var al-
gengasta spurningin sem hún
hefur líklegast fengið en aldrei
skorti mat á borðið hjá mömmu.
Oft eftir góðan dag, eftir að
vera búin að renna sér í Höfða-
brekku eða eftir leik uppi á túni
var gott að koma heim og beið
þá stundum full ofnskúffa af ný-
bökuðum kleinum og ísköld
mjólk. Þegar við vorum heppin
var til soðið brauð, vínarbrauð
eða nýbakaðir kanilsnúðar. Og
fyrir jólin gerði hún bestu smá-
kökur í heimi og var oftar en
ekki mikil rýrnun á þeim þrátt
fyrir að búið væri að líma og
fela baukana vel. Seinna þegar
barnabörnin voru komin til sög-
unnar, en þau eru tíu talsins og
langömmubörnin tvö, var það
sama. alltaf var nóg til af bakk-
elsi og veitingum sem bornar
voru fram þegar litið var inn í
heimsókn. Barnabörnin voru
ekki há í loftinu þegar þau voru
búin að læra hvar amma geymdi
góðgætið. Oft var gripið í spil
með barnabörnunum og skipti
þá ekki máli þó að þau svindl-
uðu, hún brosti út í annað.
Einnig var hún dugleg að segja
barnabörnunum sögur af því
þegar hún var ung, t.d. áður en
rafmagnið kom á Finnastaði og
fékk þá spurninguna: „Amma,
áttir þú þá ekki tölvu?“
Á seinni árum fór heilsu
hennar að hraka og síðustu
mánuðina var hugurinn kominn
heim á Finnastaði og spurði hún
þá oft hvað væri að frétta
þaðan.
Ekki vantaði glæsileikann hjá
henni á Grenilundi og alltaf var
hún teinrétt er hún gekk um
gólf með göngugrindina og átti
það til að taka dansspor af
minnsta tilefni. Á Grenilundi
var Þórgunnur systir hennar
einnig og áttu þær margar
gæðastundir saman. Þrátt fyrir
mikinn söknuð vegna fráfalls
þíns er líka léttir að vita að þú
ert komin á betri stað og sam-
einuð pabba á ný.
Við þökkum mömmu fyrir all-
ar dýrmætu stundirnar sem við
áttum með henni. Hún elskaði
okkur og við elskuðum hana.
Hvíldu í friði, elsku mamma,
þín verður sárt saknað.
Að lokum viljum við koma á
framfæri kærum þökkum til
starfsfólks Grenilundar fyrir
hlýja og góða umönnun.
Fyrir hönd barnanna,
Kristinn Hólm Ásmundsson.
Hildigunnur
Eyfjörð Jónsdóttir
Jónas í Blöndu-
dalshólum er lát-
inn. Þar er kvaddur
mikill ágætismaður að loknum
farsælum vinnudegi. Jónas átti
til merkra foreldra að telja, sem
saman og hvort í sínu lagi settu
markverðan svip á umhverfi
sitt. Faðir Jónasar var Bjarni
Jónasson kennari og ættfræð-
ingur, en móðir hans Anna Sig-
urjónsdóttir húsfreyja og bóndi.
Frá samdrætti þeirra segir í
bók sem kom út fyrir fáum ár-
um og heitir „Ástin á dögum afa
og ömmu“. Bókin er gefin út af
dótturdóttur þeirra og er byggð
á sendibréfum Bjarna til Önnu,
svo og dagbókum hans. Bókin
gefur einstaka mynd af hug-
sjónum og tilfinningum Bjarna.
Jónas ólst upp á heimili sem á
margan hátt var til fyrirmynd-
ar. Bjarni var kennari og fræði-
maður, en búreksturinn hvíldi
fyrst og fremst á herðum Önnu,
sem var óvenjulega verkséð og
vinnusöm. Jónas gaf sig ekki
sérstaklega að bústörfum sem
unglingur en lagði fremur stund
á smíðar og vélaviðgerðir. Síðan
vann hann um árabil að jarð-
rækt í héraðinu, bæði með jarð-
ýtum og skurðgröfum og gat sér
mjög gott orð ásamt með sam-
starfsmönnum sínum. Þegar
aldur færðist yfir foreldra Jón-
asar tók hann við búrekstrinum
í Blöndudalshólum ásamt konu
sinni Ásdísi Friðgeirsdóttur.
Jónas Benedikt
Bjarnason
✝ Jónas BenediktBjarnason
fæddist 4. mars
1932. Hann lést 20.
desember 2018.
Útförin hefur
farið fram í kyrr-
þey að ósk hins
látna.
Höfðu þau ein-
göngu kúabú en
ekki blandaðan bú-
skap sem þá var al-
gengast hér um
sveitir. Mikil
snyrtimennska var
ríkjandi bæði utan
húss og innan og
reglusemi um alla
vinnu. Jónas vann
mikið að smíðum
og viðgerðum á
vélum. Hann var einstaklega úr-
ræðagóður, útsjónarsamur og
hagkvæmur. Greiðasemi Jónas-
ar var einstök við okkur ná-
granna hans og var hann alltaf
fús að liðsinna okkur ef við
þurftum einhvers með. Tún var
ræktað þar sem brattlendi
hamlaði ekki. Anna móðir Jón-
asar og Ingibjörg systir hans
hófu talsverða skógrækt og
sönnuðu að skilyrði til skóg-
ræktar eru einstaklega góð í
Blöndudal. Jónas réðst síðar í
umfangsmikla skógrækt og er í
Blöndudalshólum að vaxa upp
um hlíðar fallegur skógur sem
er sveitarprýði. Jónas og Ásdís
tóku við myndarlegu býli og
skildu við glæsilega bújörð.
Hann var greindur maður, orð-
snjall og eru mörg tilsvör hans
minnisverð.
Fyrir nokkrum árum fluttu
þau hjón til Blönduóss og létu
jörðina í hendur syni sínum
Friðgeiri og sambýliskonu hans
Andreu. Ásdís lést árið 2013 eft-
ir skamma búsetu á Blönduósi.
Jónas var greinilega bundinn
jörð sinni traustum böndum og
leitaði þangað flesta daga með-
an heilsa leyfði. Ég votta að-
standendum samúð mína og
kveð þennan góða nágranna
með þakklæti og söknuði.
Páll Pétursson.
Það er erfitt að
setjast niður og
finna réttu orðin. Ég veit ekki
hvar ég á að byrja. Að ég sé
þakklát að ég náði að kveðja þig?
Að ég sé þakklát að þú sért kom-
in aftur í faðm ástvina sem þú
hafðir saknað lengi? Hversu
glaðan ég sé afa fyrir mér taka á
móti þér?
Jú, þakklát fyrir þetta allt – en
fyrst og fremst þakklát fyrir þig.
Elsku amma mín.
Þú varst svo góðhjörtuð og
ljúf – líka hógvær, en alltaf stutt í
hláturinn. Mér fannst gaman að
sitja og hlusta á þig tala um allt
og ekkert, prakkarastrik
barnanna, eða þinna eigin – eða
hvernig þú lærðir um litlu gulu
hænuna á Esperantó. Þú varst
líka með einsdæmum skapandi
og hæfileikarík; þó að þér hefði
nú aldrei þótt það neitt svo
merkilegt, þá dáðust allir að
handverki þínu.
Ég minnist heimsóknanna
vestur til ykkar afa sem sann-
kallaðrar paradísar. Þar var allt-
af nóg af kræsingum (þó kon-
fektið hafi stundum verið orðið
gamalt) og heimilið eins og ævin-
týraveröld. Kóngabrauð og rús-
ínubrauð, kjötsúpa og mjólk í
gullglösum. Fullt af handverki,
gömlum myndum og steinum
sem safnað hafði verið hér og þar
um landið. Hamingjusamur stað-
ur fyrir barn að koma á og í
Nanna Þrúður
Júlíusdóttir
✝ Nanna ÞrúðurJúlíusdóttir
fæddist 9. júní
1926. Hún lést 8.
desember 2018.
Útför Nönnu var
gerð 14. desember
2018. Jarðsett var í
Bíldudals-
kirkjugarði.
hvert skipti sem ég
kem keyrandi inn
Túngötuna, jafnvel
enn í dag, finn ég
gleðina koma yfir
mig. Gleði sem þú
skapaðir, amma
mín.
Ég er þakklát
fyrir öll jólin sem þú
eyddir hjá mér og
mömmu í seinni tíð
og minnist þess allt-
af með bros á vör, þegar við gáf-
um þér kodda í jólagjöf. Hann
var „nú eiginlega alltof stór –
hálfur koddi hefði verið nóg“!
Amma í hnotskurn, veraldlegir
hlutir skiptu ekki máli. Öryggi
okkar og hamingja skipti mun
meira máli, enda fylgdistu vel
með hverjir voru erlendis eða úti
á sjó og baðst fyrir því að við
kæmum ávallt heil heim.
Rétt áður en ég flutti til Par-
ísar í byrjun árs keyrðum við
mamma í gegnum Garðabæinn
og hugurinn rann ósjálfrátt til
þín. Mig langaði að fara og kíkja
til þín á Hrafnistu, en ég áttaði
mig svo á því að nú ertu í
Draumalandinu, með bros á vör,
og ég sendi því alla mína ást,
vafða inn í þakklæti fyrir allt sem
þú hefur gefið mér, hér í þessari
minningarkveðju.
Sólin speglar sjávarflötinn björt
og tunglið lýsir hlíðina í kvöld
þó að nóttin geti verið býsna svört
get ég ávallt treyst á stjörnufjöld.
Í faðmi bjartra fjalla nú ég er,
í kotinu er best að kúra sér
því ástin hún er allsráðandi hér
og gleðin alltaf brosir móti mér.
(Miriam)
Takk fyrir allt, amma mín,
Miriam Petra.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir,
mágur og svili,
VILBERG ALEXANDERSSON,
fyrrverandi skólastjóri
Glerárskóla á Akureyri,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
23. janúar. Útförin fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn
1. febrúar klukkan 10.30.
Þórunn Vilbergsdóttir og fjölskylda
Sigurbjörg Gróa Vilbergsdóttir og fjölskylda
Stella Magnúsdóttir
Jónína Guðmundsdóttir, Sveinbjörn Matthíasson
Jón Oddgeir Guðmundsson
Guðbjörg Tómasdóttir
Ástkær faðir okkar, afi, langafi og
langalangafi,
ÚLFAR GARÐAR RANDVERSSON,
fyrrverandi vörubílstjóri í Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 22. janúar á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 1. febrúar
klukkan 13.
Þórir Úlfarsson Sigríður Einarsdóttir
Guðlaugur Jón Úlfarsson María Pálsdóttir
Gyða Úlfarsdóttir Erlingur Kristensson
Jóna Sigríður Úlfarsdóttir
Úlfar Randver Úlfarsson Berglind Þorleifsdóttir
Matthildur Úlfarsdóttir
Haraldur Sigurðsson Sæunn Magnúsdóttir
Geir Sigurðsson
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
JÚLÍUS SIGURÐSSON,
fv. skipstjóri,
Hraunvangi 3,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum 24. janúar.
Jarðsett verður fimmtudaginn 31. janúar klukkan 15 frá
Hafnarfjarðarkirkju.
Ásta S. Magnúsdóttir
Guðrún Júlíusdóttir Finnur Sigurðsson
Geir Sigurðsson
Magnús Már Júlíusson Hildur Sigurbjörnsdóttir
Ólöf Helga Júlíusdóttir Bergmundur Elli Sigurðsson
Hafrún Dóra Júlíusdóttir Þórður Sverrisson
og afabörnin
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR INGIBERGSSON
innanhússarkitekt,
Unnarbraut 24,
lést miðvikudaginn 16. janúar.
Útförin fer fram í Neskirkju mánudaginn 28. janúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktar- og vísindarsjóð
RHLÖ.
Eva Jóhannsdóttir
Bjarki Gunnarsson Ólöf R. Sigurðardóttir
Helena Gunnarsdóttir Benedikt Á. Guðmundsson
Marta Gunnarsdóttir Sæmundur Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn