Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Félag íslenskra söngkennara (FÍS) stendur fyrir söngkeppninni Vox Domini þriðja árið í röð á morgun í Salnum kl. 19. „Vox Domini er söngkeppni fyrir klassískt mennt- aða söngvara sem stunda eða hafa stundað nám á Íslandi. Keppnin skiptist í þrjá flokka, framhalds- flokk, háskólaflokk og opinn flokk,“ segir í tilkynningu. Dómnefnd keppninnar skipa Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Árni Heimir Ingólfsson og Elmar Gil- bertsson ásamt Katherine Johnson, prófessor við Ryder University í Princeton, og David L. Jones söng- kennari frá New York, en hann heldur meistaranámskeið fyrir söngkennara í næstu viku. „For- maður FÍS, Egill Árni Pálsson, sit- ur svo í forsvari fyrir dómnefnd.“ Allar nánari upplýsingar um keppnina, keppendur og meistara- námið má finna á vefnum fisis.is. Keppnin verður send út í beinni út- sendingu á Facebook-síðu sinni. Söngkennari David L. Jones. Vox Domini í Salnum annað kvöld Ég er líklega ekki sá einisem furðaði mig á því aðgera ætti framhald afhinni sígildu kvikmynd Mary Poppins frá árinu 1964. „Ekk- ert er nú Hollywood heilagt!“ hugs- aði ég með mér, eða öllu heldur stór- fyrirtækinu Disney, eins og sann- aðist á stiklunum sem sýndar voru á undan Mary Poppins Returns í Sam- bíóinu í Kringlunni. Leiknar endur- gerðir á Gosa og Dúmbó, hvaða rugl er nú það?! Við nánari umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að göldrótta barn- fóstran og herpitúttan Mary Popp- ins væri ekkert heilög og sjálfsagt mál að gera fleiri kvikmyndir um hana. Enda upphaflega myndin byggð á þeim bókum rithöfundarins Pamelu Lyndon Travers sem þá höfðu verið skrifaðar en á endanum urðu þær átta talsins. Gamla myndin sló rækilega í gegn, hlaut fjölda verðlauna og þyk- ir í dag sígild. Ekki var það síst frá- bærri tónlist Sherman-bræðra að þakka, mörg laganna sem sungin eru í myndinni eru enn þekkt meðal almennings, t.d. „A Spoonful of Sugar“, „Feed the Birds (Tuppence a Bag)“, „Chim Chim Cheree“ og „Supercalifragilisticexpialidocious“. Ekki nær lagahöfundur framhalds- myndarinnar, Mark Shaiman, sömu hæðum en hann reynir sitt besta og lögin bera keim af þeim sem eru í þeirri gömlu. Augljóst er frá fyrstu mínútum að leikstjórinn Rob Marshall, sem einn- ig lagði línurnar hvað söguna varðar þó ekki hafi hann skrifað handritið, ber virðingu fyrir gömlu myndinni og er greinilega aðdáandi. Bæði er það kostur og galli. Kostur að því leyti að fólk veit að hverju það geng- ur og aðdáendur fyrstu myndar- innar fá nokkurn veginn það sem við var að búast, eðlilegt framhald með öðrum leikurum, þó nokkrir úr fyrri myndinni komi við sögu í stutta stund. En tryggð Marshall við frum- myndina er stundum fullmikil og sum atriðin eru bein stæling á atrið- um úr gömlu myndinni. Augljósast er þetta í atriði þar sem Mary Popp- ins, börnin sem hún gætir og vinur hennar, lýrinn, fara inn í teikni- myndatöfraheim postulínsvasa. Í gömlu myndinni hoppaði Poppins með börnum og sótara ofan í krít- armynd á stétt. Annað atriði, mjög vel gert og skemmtilegt, er mikil stæling á hópdansatriðinu með sót- urunum. Nema hvað að núna er sót- arinn sem Dick Van Dyke lék í gömlu myndinni orðinn lýri svokall- aður, hefur þann starfa að kveikja og slökkva á götulömpum. Hann leikur söngleikjastjarnan Lin- Manuel Miranda og er sá bandarísk- ur, eins og Dyke og líka með all- svakalegan Cockney-hreim. Mir- anda öðlaðist frægð með söngleik sínum Hamilton og er bæði lunkinn dansari og söngvari en heldur er það þó kjánalegt þegar hann fer að rappa í miðju atriði og passar ekki við þá gamaldags stemningu sem leikstjórinn er augljóslega að sækj- ast eftir. Emily Blunt leikur Poppins að þessu sinni og gerir það fullkomlega. Ég get ekkert fundið að túlkun hennar og frammistöðu. Vissi ég fyr- ir að hún væri hæfileikarík leikkona en nú kemur í ljós að hún kann líka vel að dansa og syngja. Hún nær auðvitað ekki sömu sönghæðum og Julie Andrews enda ekki hægt að ætlast til þess. Blunt er öllu strang- ari Poppins en Andrews og hefur greinilega tekið þann pól í hæðina að vera ekki að líkja eftir henni, sem er gott. Hún gerir hlutverkið að sínu og er með þennan líka svakalega yfir- stéttaframburð, engu líkara en að Elísabet II. Englandsdrottning sé mætt á svæðið. Og þegar hún byrjar að galdra fyrir börnin er mikið fjör og börnin ljómuðu í bíósalnum. Sagan er nógu einföld, bæði til að koma sem flestum söng- og dans- atriðum fyrir og til þess að barn- ungir bíógestir skilji það sem fram fer. Börnin sem Poppins gætti í fyrstu myndinni, Banks-systkinin Jane og Michael, eru nú orðin full- orðin og hefst sagan um 20 árum eft- ir að þeirri fyrri lauk. Jane er barn- laus en Michael á þrjú börn. Eiginkona hans og móðir barnanna er látin og eru þau enn í sárum. Michael á varla fyrir mat ofan í börnin og hefur ekki greitt af húsnæðisláninu þrjá mánuði í röð. Dag einn koma lögfræðingar frá lán- veitandanum, bankanum sem jafn- framt er vinnustaður Michael og til- kynna honum að samkvæmt skilmálum lánsins verði húsið hans tekið eignarnámi greiði hann ekki lánið að fullu innan fárra daga. Banki þessi er sá hinn sami og faðir Michael starfaði fyrir og nú stýrir honum kaldrifjaður náungi sem Colin Firth leikur með tilþrifum. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst og Poppins kemur fljúgandi af himnum. Nú er ég enginn sérstakur aðdá- andi Mary Poppins, gömlu myndar- innar, og finnst hún á köflum frekar langdregin. En það verður ekki af henni tekið að hún er heillandi og ég skil vel að hún hafi slegið í gegn á sínum tíma og síðar orðið að söng- leik. Það sem heillaði við þá kvik- mynd er það sama og heillar við framhaldið en í öllu minni skömmt- um. Matskeiðin af sykri er orðin að teskeið, svo vitnað sé í eitt þekktasta atriði gömlu myndarinnar. Mér þótti lopinn teygður fullmikið í framhald- inu fram undir miðja mynd en svo gerðist hið óvænta, hún tók á flug eftir hlé og varð miklu skemmtilegri. Kemur þar m.a. til skondið atriði með Meryl Streep og gömlu brýnin og jafnaldrarnir Dick Van Dyke og Angela Lansbury (93 ára, takk fyrir!) eiga glæsilegar innkomur. Atriðið með Lansbury speglar atriði í gömlu myndinni þar sem öldruð kona selur fuglafóður sem kostar bara tvö pens. Andrews syngur um leið fyrir börnin um mikilvægi þess að hugsa um þá sem minna mega sín og bendir börnunum á hversu lítið þurfi til að gleðja aðra og vernda, bara túkall. Ekki varð ég var við slíkan boðskap í framhaldsmyndinni og almennt fer minna í henni fyrir fyrirmyndaruppeldi. Það er þá held- ur að börnin ali föður sinn upp en öfugt, sýni honum hvað sé mikilvæg- ast í lífinu. Dyke gerir sér lítið fyrir og dans- ar uppi á skrifborði, enn í fjöri þrátt fyrir háan aldur og Lansbury fer með hlutverk blöðrusala í skemmti- garði. Atriðið hennar óhemjukrútt- legt og margir munu eflaust komast við og svífa um á nostalgíu-skýi, líkt og í fleiri atriðum. Þessi ágæta fram- haldsmynd er enda til þess gerð að endurvekja gamla tíma og gamlar minningar og tilfinningar. Þeir sem eldri eru, foreldrarnir í salnum og ömmur og afar, munu minnast gam- alla tíma þar sem allt virðist ein- hvern veginn hafa verið miklu ein- faldara, tíma gömlu og sakleysislegu Disney-myndanna sem mín kynslóð leigði á vídeóspólum en kynslóðirnar á undan sáu í bíó. Mary Poppins lifir enn góðu lífi og hefur ekkert elst enda er hún ekki þessa heims. Ég fór á þessa fram- haldsmynd fullur tortryggni og átti, satt best að segja, ekki von á góðu. En bíósalinn yfirgaf ég sáttur og börnin voru líka hæstánægð. Og þá er markmiðinu náð, ekki satt? Teskeið í stað matskeiðar Gleði Lýrinn Jack með Poppins og Banks-börnin á reiðhjólinu sínu. Jane Banks og húshjálpin Ellin furðu lostnar. Sambíóin Álfabakka, Egilshöll og Kringlunni Mary Poppins Returns bbbmn Leikstjórn: Rob Marshall. Handrit: David McGeigh. Aðalleikarar: Emily Blunt, Ben Wishaw, Lin-Manuel Miranda, Emily Mortimer, Julie Walters, Joel Dawson, Nathanael Saleh, Pixie Davies og Colin Firth. Bandaríkin, 2018. 130 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Kvikmyndin Bohemian Rhapsody hefur verið fjarlægð úr flokki til- nefndra kvikmynda á Glaad-hátíð- inni. Glaad eru samtök samkyn- hneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks og verðlauna þau árlega einstaklinga, þætti og bíómyndir sem þykja hafa fjallað um samkyn- hneigð, tvíkynhneigð eða transfólk á sanngjarnan og raunsannan hátt. Ástæðan fyrir sviptingu tilnefn- ingar eru nýtilkomnar ásakanir á hendur leikstjóra myndarinnar, Bryans Singer, sem reyndar klár- aði ekki kvikmyndina þar sem hann var rekinn vegna átaka við tökulið og leikara. Hann er sakaður um að hafa beitt fjóra unga karlmenn kynferðisofbeldi og segjast tveir hafa verið undir lögaldri þegar brotin áttu sér stað. Singer neit- ar allri sök en ásakanirnar eru þó ekki þær fyrstu á hendur honum. Bohemi- an Rhapsody hlaut Golden Globe- verðlaunin á dögunum og er til- nefnd til Óskarsverðlauna. Hún fjallar um hljómsveitina Queen og þá einkum söngvara hennar og for- sprakka, Freddie Mercury heitinn, sem var samkynhneigður. Svipt tilnefningu vegna Singers Bryan Singer ICQC 2018-20 Útivist & ferðalög NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir mánudaginn 28. janúar. SÉRBLAÐ Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Útivist og ferðalög föstudaginn 1. febrúar Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.