Morgunblaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 15
BÆJARLÍFIÐ
Reykjanesbær
Svanhildur Eiríksdóttir
Framkvæmdir við Stapaskóla, nýj-
an skóla í Dalshverfi hófust nýverið.
Um er að ræða fyrsta áfanga sem
áætlað er að verði tekinn í notkun í
haust fyrir nemendur í 1.-5. bekk.
Fullbúinn mun skólinn vera í senn
grunnskóli, leikskóli og menningar-
miðstöð fyrir íbúa grenndarsam-
félagsins. Í bráðabirgðahúsnæði á
lóðinni er nú rekið útibú frá Akur-
skóla. Um þessar mundir er auglýst
eftir skólastjóra en ráðið hefur verið
í ýmsar kennarastöður við skólann.
Ljósanótt, menningarhátíð
Reykjanesbæjar, verður haldin í 20.
sinn á þessu ári. Á afmælisári verð-
ur staðan á hátíðinni tekin með íbú-
um og þátttakendum. Á þriðjudag
verður haldinn opinn íbúafundur
sem hefst kl. 19.30 í Duus Safna-
húsum og verið er að kanna hug til
hátíðarinnar með spurningakönn-
unum.
Engar upplýsingar hafa enn
borist um hvort andstæðingar stór-
iðju í Helguvík hafi náð tilskildum
fjölda undirskrifta varðandi kröfu
um bindandi íbúakosningu. Þeir
vilja að kosið verði um hvort íbúar
vilji eða vilji ekki kísilver Stakks-
bergs ehf. og Thorsils ehf. í Helgu-
vík. Þar með verði hafnað beiðni
Stakksbergs ehf. um breytingu á
deiliskipulagi í Helguvík.
Tilskilinn fjöldi undirskrifta,
sem er 20% íbúa skv. sveitarstjórn-
arlögum, hafði ekki náðst þegar raf-
rænni kosningu lauk fyrr í mán-
uðinum og söfnun skriflegra
undirskrifta hófst í framhaldi. Sam-
kvæmt sömu lögum er ákvörðunar-
vald um framkvæmd íbúakosninga
hjá sveitarstjórnum.
Á fundi bæjarstjórnar sl. þriðju-
dag féllst bæjarstjórn á að Stakks-
berg hæfi vinnu við skipulags- og
matslýsingu, sem umhverfis- og
skipulagsráð hafði hafnað. Áréttað
var að Reykjanesbær hefði skipu-
lagsvald á svæðinu og áskildi sér
rétt til að hafna tillögum. Á fund-
inum skoraði meirihlutinn og fulltrúi
miðflokks í bæjarstjórn á Stakks-
berg og Thorsil að falla frá öllum
áformum um uppbyggingu og rekst-
ur kísilmálmverksmiðja í Helguvík.
Fulltrúar D-lista taka ekki undir þá
áskorun og skora á fyrirtækin að
uppbyggingin verði bæði í samráði
og sátt við íbúa og umhverfi Reykja-
nesbæjar.
Rétt rúmir fjórir mánuðir eru
síðan flokkunarverkefni Kölku hófst.
Grænum tunnum var úthlutað til
allra íbúða á Suðurnesjum og flokk-
unarleiðbeiningum á þremur tungu-
málum. Að sögn Jóns Norðfjörð,
framkvæmdastjóra Kölku, hefur
flokkunin gengið bærilega, en betur
má ef duga skal. Um fjórðungur af
efninu hefur farið í frekari flokkun
en því miður er hluti efnisins
skemmdur vegna matarleifa og
blöndunar við önnur efni.
Að sögn Jóns verða frekari upp-
lýsingar sendar til íbúa, þar sem þeir
verða hvattir til meiri vandvirkni og
þátttöku í flokkunarverkefninu. Jón
segist vonast til að með tímanum
verði Reyknesingar góðir í flokkun.
Íbúar Reykjanesbæjar þyrftu
að gera flokkun og umhverfismál að
keppni og vera leiðandi fyrir önnur
sveitarfélög á Suðurnesjum. Árang-
ur í keppnum hefur oft verið góður í
Reykjanesbæ og þá sér í lagi í
íþróttum, já og Útsvari, spurninga-
keppni sveitarfélaga.
Liði Njarðvíkur hefur gengið
vel í körfunni í vetur. Nú er liðið
komið í fjögurra liða úrslitin í bikar-
keppni karla í körfu og mun mæta
KR 14. febrúar nk. Gengi þeirra í
úrvalsdeildinni hefur einnig verið
gott og trónir liðið þar á toppnum.
Lið Keflavíkur er í fjórða sæti í
deildinni en það er nóg af leikjum
eftir og stigum í pottinum.
Þá er Keflavík í toppsæti úr-
valsdeildar kvenna svo körfuknatt-
leiksáhugafólk í Reykjanesbæ er
nokkuð kátt þessa dagana.
Við getum haldið áfram og horft
á íþróttagreinar eins og taekwondo,
hnefaleika, júdó, sund, fimleika, fót-
bolta og séð að þar leynist margt
keppnisfólk og flottir fulltrúar
Reykjanesbæjar sem vinna hvert
mótið á fætur öðru.
Snjórinn kallar alltaf fram
blendin viðhorf og nóg er af honum í
Reykjanesbæ þessa daga. Börnin
taka honum þó flest fagnandi og
nýta vel þær hæðir og þá hóla sem
leynast í bænum. Þeir djörfustu
mæta með snjóbrettin og jafnvel
skíðin á Kambinn í Dalshverfi en
aðrir láta litlar brekkur í sínu ná-
grenni duga við að skemmta sér á
þotu eða sleða.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Stapaskóli Framkvæmdir við fyrsta áfanga eru nú hafnar. Áætlað er að fyrsti áfangi verði tekinn í notkun í haust.
Skólar og menning
undir sama þaki
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2019 verða birtir á vefsíðunni island.is og á
Rafrænni Reykjavik á næstu dögum. Álagningar- og breytingarseðlar eru ekki sendir í pósti í samræmi
við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt
að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.
Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum netbanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðslu-
seðil. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum á
mínum síðum á www.reykjavik.is eða í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á
fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi.
Fasteignagjöld ársins 2019, yfir 25.000 kr., greiðast með níu jöfnum
greiðslum á gjalddögum 2. febrúar, 2. mars, 2. apríl, 4. maí, 1. júní,
2. júlí, 3. ágúst, 1. september og 2. október.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 2. febrúar.
Tekjulágir elli- ogörorkulífeyrisþegar, sem fenguafslátt af fasteignaskatti
og fráveitugjaldi sem greitt er til Orkuveitu Reykjavíkur á síðastliðnu ári,
fá einnig að óbreyttu afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi fyrir árið
2019 að teknu tilliti til tekjuviðmiða. Fjármálaskrifstofa framkvæmir
breytingar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi eftir yfirferð skattframtala
elli- og örorkulífeyrisþega. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um
afslátt þessara gjalda. Við álagningu fasteignagjalda í janúar verður
afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur
ársins 2017. Þegar álagning vegna tekna ársins 2018 liggur fyrir í
júní 2019, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar
breytingar tilkynntar bréflega.
Skilyrði afsláttar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi,
sé þinglýstur eigandi fasteignar, eigi þar lögheimili og geti átt rétt
á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um
tekjuskatt og eignaskatt.
Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna afsláttar
fasteignaskatts og fráveitugjalds á árinu 2019 verði eftirfarandi:
100% afsláttur:Einstaklingur með tekjur allt að 4.090.000 kr.
A100 Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 5.710.000 kr.
80% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.090.000 til 4.690.000 kr.
A80 Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 5.710.000 til
6.340.000 kr.
50% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.690.000 til 5.450.000 kr.
A50 Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 6.340.000 til
7.580.000 kr.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, veitir
allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á gjaldi fyrir meðhöndlun
úrgangs í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á
netfangið sorphirda@reykjavik.is.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Höfðatorgi, Borgartúni 12-14, veitir
upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu og breytingar á
þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið
fasteignagjold@reykjavik.is.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is
Fasteignagjöld
2019
Borgarstjórinn í Reykjavík, 26. janúar 2019.
www.reykjavik.is
Póst- og fjarskiptastofnun hefur úr-
skurðað að bílasölunni Islandus hafi
verið óheimilt að hljóðrita símtal við
viðskiptavin sinn án þess að hafa til-
kynnt honum um hljóðritunina, en
samkvæmt fjarskiptalögum er hljóð-
ritun símtals óheimil án þess að við-
mælanda sé tilkynnt um það í upp-
hafi nema í undantekningartilfellum.
Viðskiptavinur fyrirtækisins
kvartaði til stofnunarinnar vegna
málsins og taldi Póst- og fjarskipta-
stofnun að viðskipti og starfsemi Isl-
andus væru ekki það sértæk í eðli
sínu að það gæfi viðskiptavinum
réttmætt tilefni til að álykta að sím-
tölin væru hljóðrituð.
Með hliðsjón af þessu var niður-
staðan sú að Islandus hefði brotið
fjarskiptalög með því að tilkynna
ekki viðskiptavininum í upphafi sím-
talsins að það yrði hljóðritað.
Hljóðritun
var brot á fjar-
skiptalögum
Seinni Lottó-
vinningshafinn í
fjórfalda pott-
inum frá þarsíð-
ustu helgi hefur
nú vitjað vinn-
ingsins. Í til-
kynningu frá
Getspá segir að
sá heppni hafi
verið ungur
maður af höfuð-
borgarsvæðinu. Hann hafði farið
inn á lotto.is til að tryggja sér
miða, en síðar sama dag kom svo
sterk tilfinning yfir hann og ákvað
hann því að fara á nýjan leik inn á
vefsíðuna og bæta við öðrum miða
til öryggis. Sá miði skilaði honum
fimm réttum og vinningi upp á
tæpar 22 skattfrjálsar milljónir.
Í tilkynningu er haft eftir vinn-
ingshafanum að þetta væri allt
mjög ótrúlegt. Það væri mikil
heppni að hann skyldi hafa bætt
aukamiðanum við, tilfinningin
hefði komið svo sterkt yfir hann
að það var ekkert annað í stöð-
unni.
Hann hafði enn ekki deilt gleði-
fréttunum með neinum og var því
ekki búinn að ákveða næstu skref.
Keypti miða fyrir
tilviljun og vann
Lottó Maðurinn
vann stórfé.