Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
www.apotekarinn.is
- lægra verð
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsog , p ín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
stöflur orða lástur. Inniheldur nikót
*
* 15% afsláttur af öllu lyfjatyggigúmmí, öllum styrkleikum
og pakkningarstærðum. Afslátturinn gildir út janúar 2019.
Ný vefsíða
www.Nicotinell.is
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér finnst þetta útsýni minna okk-
ur á það hvað miðborgin er fallegur
staður. Raunar finnst mér hvergi
fallegra útsýni en héðan. Hér sérðu
alla gömlu söguna birtast; Hótel
Borg, Hótel Holt,
Næpuna, Dóm-
kirkjuna og Al-
þingi, Tjörnina og
styttuna af Jóni
Sigurðssyni.
Þetta er það sem
Kjarval sá,“ segir
Hálfdán Stein-
þórsson, eigandi
hugbúnaðarfyrir-
tækisins GoMo-
bile, þar sem
hann stendur í vinnustofu lista-
mannsins Jóhannesar S. Kjarval á
efstu hæð í Austurstræti 12 og horfir
yfir Austurvöll.
Vinnustaður og félagsheimili
Hálfdán og félagar hans hafa síð-
ustu vikur og mánuði unnið að
endurgerð umrædds húsnæðis og á
næstunni munu þeir opna Vinnu-
stofu Kjarvals, glæsilegt 400 fer-
metra húsnæði þar sem fyrirtæki og
einstaklingar geta leigt sér aðstöðu.
Hálfdán segir að vinnustofur í anda
Kjarvals njóti vaxandi vinsælda víða
um heim. Þar geti viðskiptavinir
brotið upp hversdagsleikann, haldið
fundi eftir þörfum, unnið einir þegar
þeir vilji og deilt hugmyndum sínum
með öðrum þegar þeim henti. Vinnu-
stofan sé þannig bæði vinnustaður
og félagsheimili, þar sem skapandi
fólk kemur saman til vinnu og
skemmtunar. Þarna borgar fólk
leigu en fær á móti vinnuaðstöðu,
kaffi, aðgang að fundarherbergjum,
neti og prenturum. Opið verður frá
morgni til kvölds.
Jóhannes S. Kjarval, einn virtasti
listmálari þjóðarinnar, tók á leigu
herbergi undir norðursúð í Austur-
stræti 12 árið 1929. Þar hafði hann
vinnustofu til dauðadags árið 1972
og bjó þar einnig um langt árabil við
frumstæðar aðstæður. Veggmynd-
ina Lífshlaupið var þar að finna.
Fyrirmyndin sótt að utan
Hálfdán og félagar hans hafa ver-
ið með skrifstofuaðstöðu í þessu hús-
næði síðustu fimm árin og kunnað
vel við sig. Þeir hafa verið að vinna í
ólíkum verkefnum en notið þess að
deila húsnæði. „Við hittumst á
morgnana og fannst æðislegt að fara
yfir fréttirnar saman þegar við
mættum. Svo fór hver að gera sitt og
við tókum kannski stöðuna klukkan
tíu og aftur í hádeginu. Þannig
spratt þetta upp, hjá ungum hópi
sem hafði metnað í að hafa skemmti-
legt vinnuumhverfi á besta stað í
Reykjavík. Við töluðum reyndar um
að það væri gaman að geta labbað á
inniskónum á barinn til að fá sér
drykk og nú verður það hægt.“
Auk Hálfdánar eru í teyminu Páll
Eyjólfsson, sem þekktur er sem um-
boðsmaður Bubba Morthens auk
þess að reka GoMobile og Bæjarbíó
með Hálfdáni, Alexander Gylfason
sem rekur GoMobile í Danmörku,
Hrannar Pétursson ráðgjafi og
Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson,
æskuvinur Hálfdánar frá Eskifirði,
en hann mun verða framkvæmda-
stjóri Vinnustofu Kjarvals.
Hálfdán segir að fjöldi fyrirtækja
hafi þegar tryggt sér pláss í Vinnu-
stofu Kjarvals. Þau séu úr ýmsum
geirum; fjármálageiranum, vís-
indageira, listageiranum og nýsköp-
un. Þá sé byrjað að taka inn fyrstu
einstaklingana líka. „Við viljum auð-
vitað hafa fjölbreyttan hóp af fólki
hérna,“ segir hann.
Þótt vinnustofan hefji upp ís-
lenska sögu er fyrirmyndin sótt til
útlanda. „Við horfum á fyrirmyndir
úti í heimi eins og Soho House sem
dæmi þar sem eru vinnustofur sem
svo breytast í bari á kvöldin. Við höf-
um einmitt þegar gert samninga við
sambærileg fyrirtæki í Evrópu og
Singapúr og erum að horfa yfir til
Ameríku núna. Þá geta okkar kúnn-
ar labbað beint inn á þá staði og unn-
ið með sambærilegum hætti. Við er-
um búin að festa 3-4 svona staði og
munum hafa aðgang að slíkum í nán-
ast hverri borg.“
Það er góður andi þegar maður
labbar um Vinnustofu Kjarvals,
enda segir Hálfdán að lagt hafi verið
upp með að búa til þægilegt, heið-
arlegt og átakalaust umhverfi. Hálf-
dán Pedersen hannaði Vinnustofu
Kjarvals sem nær nú yfir efstu hæð-
ir Austurstrætis 10 og 12, en opnað
var á milli húsanna.
Það sem vekur mesta eftirtekt
þegar þarna er komið inn er glæsi-
legur bar í miðrými. Barinn er
skreyttur með rétt tæplega 40 þús-
und gömlum íslenskum krónum frá
árunum 1946 til 1973. „Allar krón-
urnar voru þrifnar upp úr rauð-
spritti og handlímdar á barinn. Þetta
tók okkur um það bil sjö sólarhringa
og við vorum með öll börnin okkar í
vinnu hér á tímabili. Það skemmti-
lega er að ein af þessum 40 þúsund
krónum snýr vitlaust og ef einhver
finnur hana… þá er Yatzy í boði.“
Saga Inn af glerveggnum var hin eiginlega vinnustofa Kjarvals í áratugi.
Góður andi á Vinnustofu Kjarvals
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilkomumikið Útsýnið yfir Austurvöll og miðborgina er einstakt. Í Vinnustofu Kjarvals í Austurstræti verður pláss fyrir 140 manns og opið verður frá morgni til kvölds.
Skraut 40 þúsund gamlar íslenskar krónur hafa verið handlímdar á barinn.
Hálfdán
Steinþórsson