Morgunblaðið - 26.01.2019, Side 18

Morgunblaðið - 26.01.2019, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verðþróun seldra íbúða á fjórða árs- fjórðungi í fyrra bendir til að hægt hafi á verðhækkunum í Reykjavík. Þetta má lesa úr samantekt Þjóð- skrár Íslands fyrir Morgunblaðið. Blaðið hefur birt slíkar saman- tektir reglulega síðustu misseri til að bregða ljósi á verðþróunina. Hafa ávallt sömu póstnúmerin í Reykja- vík verið notuð við samanburðinn. Tölur frá 2013 og fram undir mitt síðasta ár hafa verið uppfærðar en tafir geta orðið á þinglýsingu kaup- samninga. Söluverð á fermetra í fjölbýli mið- borginni, 101 Reykjavík, hækkar um 2.500 krónur milli þriðja og fjórða fjórðungs í fyrra í 548 þúsund. Með sama áframhaldi stefnir fermetra- verðið í miðbænum í 600 þúsund krónur en það var til samanburðar 323 þúsund á fyrsta fjórðungi 2013. Hafa kaupendur fasteigna í 101 því ávaxtað pund sitt vel síðustu ár. Verðlækkun í Vesturbænum Verðið lækkar hins vegar um rúmar 2.000 krónur í Vesturbænum, 107 Reykjavík, og var 511 þúsund. Samanburður milli þriðja og fjórða fjórðungs 2018 í Hlíðunum og Holtunum, 105 Reykjavík, bendir til að söluverðið hafi hækkað úr 459 þúsund í 491 þúsund, sem er 7% hækkun. Hafa þá verið undanskilin kaup stórs fasteignafélags á fjölda eigna í póstnúmerinu á þriðja fjórð- ungi. Vegna þessa er sennilega rétt- ara að bera saman annan og þriðja fjórðung í 105 Reykjavík. Verðið hækkar þar úr 482 þúsund í 491 þús- und, eða um 2%. Til samanburðar hækkaði það um rúm 11% milli fjórða fjórðungs 2016 og 2017́. Slíkar hækkanir virðast vera að baki í bili. Lækkun í Seljahverfinu Þá var meðalsöluverð íbúða í Seljahverfinu rúmar 373 þúsund krónur á fjórða fjórðungi í fyrra, sem var lækkun um á þriðja þúsund krónur. Til samanburðar var sölu- verðið 369 þúsund á fjórða fjórðungi 2017 og hefur því lítið breyst um- fram verðbólgu á tímabilinu. Verðið breytist að sama skapi lítið í Breiðholtinu, 111 Reykjavík, en það var um 379 þúsund krónur á þriðja og fjórða fjórðungi í fyrra. Verðið lækkaði um 16 þúsund á fermetra í Grafarvogi, 112 Reykja- vík, milli þriðja og fjórða fjórðungs og var rúmar 415 þúsund krónur. Nýbyggingar hækka verðið Það lækkar söluverðið töluvert í 101 Reykjavík að undanskilja ný- byggingar. Þær eru enda dýrari. Til dæmis lækkar það fermetra- verðið í 101 Reykjavík um 24 þúsund krónur, sem samsvarar 2,4 milljón- um króna á 100 fermetra íbúð. Nokkur fjöldi nýrra íbúða hefur að undanförnu komið í sölu í mið- borginni og má þar nefna Hafnar- torg, Frakkastígsreit og Hverfis- götu 94-96. Fermetraverð á þessum reitum er í mörgum tilfellum mun hærra en meðalverð seldra eigna í fjölbýli á tímabilinu. Það hefur minni áhrif á söluverðið í 105 og 107 Reykjavík að undan- skilja nýbyggingar. Þá er munurinn nær enginn í 109, 111 og 112 Reykja- vík en ætla má að það skýrist af tak- mörkuðu framboði nýrra íbúða í þessum póstnúmerum á tímabilinu. Hægt hefur á hækkunum í borginni  Söluverð fjölbýliseigna bendir til að tímabil mikilla hækkana sé að baki Frá fyrsta ársfjórðungi 2013 til fjórða fjórðungs 2018 PÓSTNR. 101 PÓSTNR. 105 PÓSTNR. 107 PÓSTNR. 109 PÓSTNR. 111 PÓSTNR. 112 Meðalkaupverð á fermetra, þús. kr. Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga 2013, 1. ársfj. 323 307 282 282 297 297 213 213 218 200 230 230 4. ársfj. 340 328 289 289 320 320 220 220 216 214 247 247 2014, 1. ársfj. 370 350 300 300 321 321 216 216 229 229 259 259 4. ársfj. 383 368 342 331 351 351 249 249 245 245 272 272 2015, 1. ársfj. 397 375 345 333 351 351 257 257 256 255 283 283 4. ársfj. 413 406 364 365 396 396 274 274 284 284 302 302 2016, 1. ársfj. 459 452 371 371 375 375 286 286 301 300 313 312 4. ársfj. 467 467 427 428 437 441 326 326 325 325 346 344 2017, 1. ársfj. 510 509 458 459 452 458 354 354 354 354 379 379 4. ársfj. 520 518 475 473 480 476 369 369 385 385 396 396 2018, 1. ársfj. 554 543 474 474 469 468 365 365 372 372 402 402 2. ársfj. 537 514 482 479 499 500 372 372 378 378 400 400 3. ársfj. 545 536 312* 297 513 512 376 376 379 379 432 432 4. ársfj. 548 524 491 485 511 507 373 373 379 379 415 415 Breyting frá 1. ársfj. 2013 69,7% 70,6% 74,3% 72,3% 72,0% 70,8% 75,2% 75,2% 73,9% 89,5% 80,2% 80,2% Breyting frá 4. ársfj. 2017 5,3% 1,2% 3,3% 2,6% 6,5% 6,4% 1,1% 1,1% -1,5% -1,5% 4,8% 4,8% Breyting frá 3. ársfj. 2018 0,5% -2,2% 57,4% 63,4% -0,4% -1,0% -0,7% -0,7% 0,0% 0,0% -3,8% -3,8% Breyting frá 4. ársfj. 2016 til 4. ársfj. 2017 11,4% 10,8% 11,2% 10,6% 9,7% 8,0% 13,1% 13,1% 18,5% 18,5% 14,6% 15,1% Heimild: Þjóðskrá Íslands Verðþróun seldra fasteigna í fjölbýli í sex póstnúmerum í Reykjavík *Kaup stórs fasteignafélags á fjölda eigna á fjórðungnum hafa áhrif á meðalverðið til lækkunar á þessum fjórðungi. Án þessa aðila hefði meðalverðið verið 459 þús. kr., allar fjölbýliseignir, og 450 þús. kr. án nýbygginga. Verðþróun seldra fasteigna í fjölbýli í sex póstnúmerum í Reykjavík Heimild: Þjóðskrá 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 4. ársfj. 2018 Póstnr. 109 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 4. ársfj. 2018 Póstnr. 111 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 4. ársfj. 2018 Póstnr. 112 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 4. ársfj. 2018 Póstnr. 101 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 4. ársfj. 2018 Póstnr. 105 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 4. ársfj. 2018 Póstnr. 107 323 548 213 373 282 491 218 379 297 511 230 415 Breyting frá 4. ársfj. ’17: 5,3% Breyting frá 4. ársfj. ’17: 1,1% Breyting frá 4. ársfj. ’17: 3,3% Breyting frá 4. ársfj. ’17: -1,5% Breyting frá 4. ársfj. ’17: 6,5% Breyting frá 4. ársfj. ’17: 4,8% Kaup stórs fasteignafélags á fjölda eigna Reyndur fasteignasali sem Morgunblaðið ræddi við sagði óvissu í efnahagsmálum hafa haft markverð áhrif á fasteigna- markaðinn fyrir áramót. Mikið hafi þá verið rætt um kjarakröf- ur og möguleg verkföll í vor. Nú væri hins vegar að lifna yfir markaðnum á ný. Svo virtist sem margir kaupendur hefðu ákveðið að láta óvissuna ekki standa í vegi fasteignakaupa. Samkeppni við Skuggann Annar reyndur fasteignasali benti á stóraukið framboð lúxusíbúða í miðborg Reykja- víkur. Á Hafnartorgi og við Austurhöfn við Hörpu væru að koma um 140 íbúðir sem mark- aðssettar eru sem lúxusíbúðir. Með því væri Skuggahverfið að glata sérstöðu sinni sem eina lúxushverfið fyrir íbúðir í mið- borginni. Sú breyting gæti aftur haft áhrif á söluverð í Skugga- hverfinu á næstunni. Óvissan hafði sín áhrif KJARADEILUR Í HAUST Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.