Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér finnst verkefnavalið á þessum tónleikum vera djarft og spennandi. Það er djarft að setja Mahler á efnis- skrána, því það er mjög stór ákvörð- un að fást við þessa djúpu tónlist hans sem er afar mystísk og af trúarlegum toga, en einstaklega óá- þreifanleg. Tónlist hans þarf að fá að svífa og snerta á einhverju sem er ósnertanlegt, sem er töluverð áskor- un fyrir flytjendur,“ segir Ólöf Sigursveinsdóttir, sem stjórnar tón- listarhópnum Íslenskum strengjum á tónleikum í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar í Norðurljósum Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 16. Á efnisskránni eru tvö ljóð úr tón- smíðinni „Ich bin der Welt abhanden gekommen“ eftir Gustav Mahler, Serenaða op. 31 fyrir horn, tenór og strengi eftir Benjamin Britten og Concerto Grosso í d moll „La Folia“ eftir Francesco Geminiani auk þess sem frumflutt verður verkið Sprund eftir Birgit Djupedal. Efnisskrána valdi Ólöf í samstarfi við Sigríði Bjarneyju Baldvinsdóttur sem er hennar listræni ráðunautur. „Ástæða þess að Mahler er settur á dagskrá helgast fyrst og fremst af því að mér finnst Hanna Dóra Sturludóttir ein fremsta messó- sópransöngkona landsins. Að mínu mati ætti hún að fá mun fleiri tæki- færi til að flytja tónlist eftir Mahler,“ segir Ólöf. Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór og Joe Ognibene horn túlka dramatískan ljóðaflokk Britten. „Við fluttum þetta verk á tónleikum í haust við mikinn fögnuð viðstaddra. Ólíkt leik- húsunum fáum við tónlistarflytj- endur oft aðeins eitt tækifæri til að flytja efnisskrár okkar. Við ætlum hins vegar að leyfa okkur þann lúxus að flytja þetta verk aftur og leyfa fleirum að njóta. Síðan spillir ekki fyrir að vera í þessum frábæru húsa- kynnum sem Harpa er.“ Spurð um Sprund segir Ólöf spennandi að frumflytja verk eftir hina ungu og upprennandi Birgit Djupedal. „Hún er fædd 1994 og að stíga sín fyrstu skref sem tónskáld. Og er afar fær,“ segir Ólöf, en verkið er samið að beiðni Íslenskra strengja. „Birgit, sem er norsk, heillaðist af því hversu mörg orð við Íslendingar eigum yfir konu. Hún hugsar verkið sem femínískan gjörning þar sem þættirnir bera heiti eins og Telpa, Snót, Hrund og Fljóð. Þetta er svíta í barokkstíl.“ Í tilkynningu segir að tónleik- unum ljúki með „kraftmikilli flug- eldasýningu úr höndum barokktón- smiðsins Geminiani“. Innt eftir því hvað það þýði bendir Ólöf á að La Folia sé víðfrægt verk. „Það er af rótum gamals þjóðlags. Við tölum um flugeldasýningu vegna þess að í þessu verki breytum við dýnamík- inni í hljómsveitinni. Sigurlaug Eð- valdsdóttir er konsertmeistarinn okkar á tónleikunum, en það er stór- skotalið í hljómsveitinni líka sem fær að brjótast fram í þessu verki. Þann- ig fá fiðluleikararnir Chrissie Telma Guðmundsdóttir og Justyna Bidler, víóluleikarinn Þórunn Harðardóttir og sellóleikarinn Helga Björg Ágústsdóttir að láta ljós sitt skína. Ég stíg til hliðar sem stjórnandi og hljómsveitin tekur yfir og lýkur tón- leikunum af miklum krafti – því þetta er æðislegt verk. Við hlökkum því mikið til.“ Miðar fást við inn- ganginn, í miðasölu Hörpu og á tix.is „Verkefnavalið djarft“  Íslenskir strengir koma fram á Sígildum sunnudögum í Hörpu á morgun kl. 16  Flytja verk eftir Mahler, Britten og Geminiani og nýja tónsmíð eftir Birgit Djupedal  „Kraftmikil flugeldasýning“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjöldi Ólöf Sigursveinsdóttir ásamt Íslenskum strengjum á æfingu. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Þessi plata er mest „ég“ af þess-um þremur sem ég hef gefiðút,“ segir Myrra Rós í samtali við blaðamann vegna Thought Spun, sem út kom fyrir stuttu (fáanleg á Bandcamp, Spotify og Youtube eins og er). Myrra Rós hefur vaxið fal- lega sem tónlistarmaður, allt síðan fyrsta plata hennar, Kveldúlfur (2012) kom út. Á henni var hún að finna fótum sínum forráð, nýlögð út á ísinn og platan bar ýmis merki byrjendaverksins. Risastór skref voru síðan tekin fram á við á næstu plötu, One Amongst Ot- hers (2015) og vart hægt að greina að hér væri sama listakona á ferð. Fágæt perla, þar sem allt gengur upp, hvort heldur í lagasmíðadeild- inni eða hvað hljóðheim varðar. Fal- legt, áreynslulaust og snoturt flæði hvar strengir, píanó og gítarstrokur synda um í fullkomnum samhljóm. Það er því æði magnað að Myrru tekst að toppa sig á þessari nýjustu plötu, umyrðalaust hennar langbesta plata til þessa, verkið heil- steypt bæði og úhugsað. „Ég ætlaði sko ekkert endilega að gera nýja plötu“, upplýsir hún. „Ég hafði unn- ið með Bassa Ólafsyni í tónsmiðju KÍTÓN í upphafi síðasta árs og kunni því vel, hljóðverið hans hefur svo góðan anda. Ég sótti svo um styrk hjá Rannís með það í huga að ef ég fengi styrkinn myndi ég vilja gera næstu plötu með Bassa. Og þetta varð að veruleika.“ Platan er ólík fyrri plötunum um ýmislegt, var t.d. tekin upp á ein- um stað og af einni og sömu Svefninn laðar manneskjunni sem Myrra lýsir sem góðri upplifun. Innihaldslega er hún samkvæmt Myrru „hreinskilnari og aðeins meira dimm en hinar.“ Það er ekki alltaf sem lista- mennirnir sjálfir eru góðir í að lýsa eigin verkum en þetta með dimmuna og hreinskilnina er kórrétt. Platan er myrkari og meira straumlínulaga en síðasta verk. Meiri naumhyggja og gotneskur („goth“) blær yfir. Dún- mjúkt rökkur, biksvartar stemmur. Tónninn er settur með „Red Thread“ og við rúllum inn í skuggum bundið svæðið. „Water“ er dularfullt, byrjar með hálfgerðum Joy Division bassa og Myrra tónar grandvör yfir. Svo er skipt glæsilega um gír og dásamleg bakrödd styður við melódískan fram- ganginn (Lára Þöll, dóttir Myrru). Hápunktur plötunnar er svo „Ghost Birds“, stórkostlegt lag, það er ekki hægt að lýsa því öðruvísi. Þar heyrir maður svo vel hversu frábært sam- starf Myrru og Bassa hefur verið. Þau eru að lesa hvort annað. Bassi setur kröftugar trommur undir ann- ars stighækkandi framvindu sem brotnar svo upp, hálf óvænt, er langt er liðið á lagið. „Sleeping is for drea- mers“ syngur Myrra, viðkvæmnis- lega og angistin í röddinni er áhrifa- rík. Önnur lög eru af svipuðum staðli og ljóst að jólin komu mjög snemma í ár, ein af plötum ársins þegar lent og janúar bara hálfnaður. Vel er þá mannað í brúnni eins og segir hvað plötuvinnsluna varðar en auk Bassa koma Lovísa Elísabet Sig- rúnardóttir (Lay Low), Sóley og Elín Ey að málum. Ekkert hefur verið ákveðið með tónleikahald til að fylgja plötunni eftir og við verðum því að „spinna“ góðar hugsanir í garð tónlistarkonunnar, og vona að þær hrindi henni út í slíka starfsemi. Karma heimsins myndi hækka, svei mér þá. » Platan er myrkariog meira straum- línulaga en síðasta verk. Meiri naum- hyggja og gotneskur („goth“) blær yfir. Thought Spun er ný plata eftir tónlistarkon- una Myrru Rós. Fallegt verk sem ristir djúpt og er hennar per- sónulegasta til þessa. Fegurð Thought Spun, nýjasta plata Myrru Rósar, varð nánast til fyrir hendingu. Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.