Morgunblaðið - 01.02.2019, Page 1
Selir Mikil fjölgun á útsel hér við strendur.
Útselsstofninn við Ísland er á
uppleið. Samkvæmt mati á stofn-
stærð var stofninn 6.300 dýr árið
2017 og er það fjölgun um 2.100 dýr
frá árinu 2012. Þetta gerist á sama
tíma og fækkað hefur verulega í
landselsstofninum.
Útselurinn lækkar nú um flokk á
válista spendýra og er metinn í
nokkurri hættu en var áður metinn
í hættu samkvæmt skilgreiningu
Náttúrufræðistofnunar. Sandra M.
Granquist hjá Selasetrinu á
Hvammstanga segir að niðurstöð-
urnar séu jákvæðar fyrir útselinn
en hafi komið á óvart. »14
Fjölgar um 2.100
dýr í útselsstofni
F Ö S T U D A G U R 1. F E B R Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 27. tölublað 107. árgangur
S Ö N G L E I K U R I N N
borgarleikhus.is
VERK UM EINSEMD,
EINANGRUN OG
ÓTTA VIÐ HÖFNUN SPRIKLANDI SPRÆKAR
SVERRE JAKOBSSON
FRÁ AKUREYRI Í
KA AKUREYRI
UKULELLUR 12 ÍÞRÓTTIR HANDBOLTIBÍÓ OG LEIKHÚS 30
Lífeyrissjóðurinn Gildi hefur
ákveðið að hverfa úr hópi eigenda
Bláa lónsins. Þetta herma heimildir
Morgunblaðsins. Brotthvarf sjóðs-
ins úr hópnum kann að hafa áhrif á
afstöðu annarra stofnanafjárfesta
til aðkomu sinnar að fyrirtækinu.
Ágreiningur milli eigenda mun
hafa valdið því að sjóðurinn nýtti
ekki forkaupsrétt að 18,2% hlut í fé-
laginu Horn II, sem á 49,45% hlut í
eignarhaldsfélaginu Hvatningu hf.
sem aftur á tæplega 40% hlut í Bláa
lóninu. Landsbankinn neitar að
gefa upp hvort hann hyggist eiga í
fyrirtækinu áfram. »16
Hverfur úr eigenda-
hópi Bláa lónsins
„Þetta tjón er okkur afar þung-
bært og við erum nú að athuga
hvað skuli gera,“ segir Einar Svein-
björnsson, formaður safn-
aðarstjórnar Fríkirkjunnar í Hafn-
arfirði. Ummerki um veggjatítlur
hafa greinst í þaksperrum safn-
aðarheimilis kirkjunnar. Ákveða
þarf hvort ráðist verði í kostn-
aðarsamar viðgerðir eða húsið
verði rifið. »9
Veggjatítlur í safn-
aðarheimilinu
Meistaradeildin í hestaíþróttum hófst í Samskipahöllinni í Kópavogi í gær-
kvöldi. Meistaradeildin er ein af mörgum mótaröðum hestamanna yfir
vetrartímann. Í henni taka þátt margir af öflugustu knöpum landsins og
eru með rjómann af hestakosti landsmanna. Bergur Jónsson á Glampa frá
Ketilsstöðum er í braut á myndinni. Árni Björn Pálsson, margfaldur meist-
ari, sigraði nokkuð örugglega á Flaumi frá Sólvangi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Keppni meistara hafin í öflugustu mótaröð hestamanna
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík ætla að
heimila 1.730 íbúðir í þremur grónum
hverfum; Ártúnsholti, Árbæ og Selási.
Þar af yrðu heimilaðar rúmlega þús-
und aukaíbúðir í núverandi sérbýli.
Það yrði veruleg þétting byggðar.
Sambærilegar heimildir verða svo
veittar í öðrum borgarhlutum en þær
verða misjafnar eftir hverfum.
Ævar Harðarson, verkefnisstjóri
hverfisskipulags hjá Reykjavíkurborg,
segir að með breytingunum verði
hægt að bjóða ódýrari íbúðir en á dýr-
um lóðum miðsvæðis.
„Það er verið að setja íbúðir á svæði
sem eru þegar byggð. Sumar auka-
íbúðirnar þarf ekki að byggja heldur
þarf aðeins að setja upp létta inn-
veggi,“ segir Ævar.
Áformað í öllum borgarhlutum
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkur, segir að á næstu miss-
erum verði slíkar breytingar kynnt-
ar í níu öðrum borgarhlutum. Með
þeim gæti smáíbúðum fjölgað mikið
í Reykjavík, ekki síst í grónum
hverfum með bílskúrum og stórum
lóðum.
„Við erum líka að gefa íbúunum færi
á að hafa leiguíbúðir innan síns hús-
næðis sem geta þá verið tekjuaukandi
og aukið verðmæti eignarinnar. Það er
til dæmis íbúðarhúsnæði í mörgum bíl-
skúrum í dag, þótt slíkt sé ekki löglegt.
Þetta snýst því líka um að stíga skrefið
í átt að raunveruleikanum. Þessar
breytingar verða gerðar í öllum hverf-
um borgarinnar. Það er verið að halda
í byggðamynstrið en auka nýtingar-
möguleika,“ segir hún. »10
Leyfa aukaíbúðir í húsum
Reykjavíkurborg hyggst heimila húseigendum að gera þúsundir aukaíbúða
Byggt ofan á blokkir
» Til greina kemur að heimila
aukahæðir ofan á fjölbýlishús
sem eru án lyftu.
» Slíkt er til skoðunar í Hraun-
bænum en rætt er um fjölda
mögulegra íbúða á aukahæð.
» Þá skoðar borgin að heimila
að byggt sé á lóðum við fjöl-
býlishús, t.d. við Birkimel.