Morgunblaðið - 01.02.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019
Veður víða um heim 31.1., kl. 18.00
Reykjavík -3 léttskýjað
Hólar í Dýrafirði -4 skýjað
Akureyri -4 snjókoma
Egilsstaðir -4 snjókoma
Vatnsskarðshólar -1 léttskýjað
Nuuk -9 skýjað
Þórshöfn 0 heiðskírt
Ósló -5 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 skúrir
Stokkhólmur -3 skýjað
Helsinki -3 skýjað
Lúxemborg -1 léttskýjað
Brussel 0 þoka
Dublin 2 rigning
Glasgow 0 þoka
London 2 skýjað
París 1 skýjað
Amsterdam 0 þoka
Hamborg 2 léttskýjað
Berlín 2 léttskýjað
Vín -1 þoka
Moskva 0 þoka
Algarve 16 skýjað
Madríd 11 alskýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 9 rigning
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -27 skýjað
Montreal -16 skúrir
New York -12 snjókoma
Chicago -25 skýjað
Orlando 14 alskýjað
1. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:09 17:15
ÍSAFJÖRÐUR 10:30 17:03
SIGLUFJÖRÐUR 10:14 16:45
DJÚPIVOGUR 9:42 16:40
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Hæg breytileg átt og víða léttskýjað,
en stöku él við sjávarsíðuna. Frost víða 10 til 22 stig,
kaldast í innsveitum nyrðra. Þykknar upp með lítils-
háttar snjókomu og dregur úr frosti við suðurströnd.
Yfirleitt 5-13 m/s en 10-15 við austurströndina. Dregur víða úr vindi og minnkandi ofankoma um
landið norðanvert síðdegis. Frost 2 til 16 stig, kaldast í innsveitum en kólnar enn frekar í kvöld.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Meirihluti starfshóps um úthlutun
tollkvóta leggur til að fallið verði
frá núverandi útboðskerfi um út-
hlutun tollkvóta þar sem tollkvót-
um er úthlutað til hæstbjóðanda.
Þess í stað leggur hópurinn til að
úthlutun tollkvóta fari fram með
svokallaðari hollenskri útboðsleið.
„Meginviðfangsefni okkar var að
finna aðferð til þess að úthluta toll-
kvótum, sem eru takmörkuð gæði,
þannig að aukningin sem er að
verða hér á tollkvótum á næstu ár-
um komi neytendum sem best til
góða,“ segir Óli Björn Kárason,
þingmaður og formaður starfs-
hópsins.
„Okkar niðurstaða var sú að það
sé skynsamleg-
ast að fara þá
leið sem kallast á
ensku „Dutch
auction“ eða hol-
lenskt útboð.
Það felur í sér að
þeir sem vilja
flytja inn við-
komandi vöru á
þessum tollkvót-
um, þeir bjóða
fyrirfram í hverja einingu fyrir sig.
Niðurstaða útboðsins miðast við að
verðið sem er lægst á síðustu ein-
ingunni sé það verð sem gildir fyrir
alla í heild sinni. Þannig að ólíkt
öðrum útboðum er þetta aðferð
sem tryggir að það sé lægsta verð
en ekki hæsta verð sem ræður nið-
urstöðu útboðsins,“ segir Óli Björn.
Með þessari aðferð sé talið að
útboðsverð tollkvóta yrði að öllum
líkindum talsvert lægra en nú er.
Breytingar á regluverki í ár
„Meginmarkmið þessarar vinnu
var að finna leiðir til að koma
ávinningnum sem skapast með
þessum tollkvótum í ríkara mæli til
neytenda í formi lægra vöruverðs.
Mér virðist sem sú tillaga sem hóp-
urinn leggur til sé í góðu samræmi
við þetta markmið og líst því heilt
yfir vel á hana. Næsta skref er að
vinna áfram með þessar niðurstöð-
ur hér í ráðuneytinu og vonandi
kynna mögulegar breytingar á nú-
gildandi regluverki síðar á þessu
ári,“ segir Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, um tillögur starfshópsins.
Þá telur starfshópurinn forgangs-
mál að umsýsla og úthlutun toll-
kvóta verði færð sem mest á raf-
rænt form og að upplýsingar um
verð og magn verði gerðar að-
gengilegar. Jafnframt er lagt til að
heimildir fyrir innflutning á svo-
kölluðum opnum tollkvótum verði
afnumdar í núverandi mynd og þar
með verði ráðgjafarnefnd um inn-
og útflutning landbúnaðarvara lögð
niður. Þess í stað yrði byggt á
sögulegri reynslu um opna toll-
kvóta en algengt er að veittir séu
tímabundnir tollkvótar, t.d. vegna
árstíðabundinna landbúnaðarvara.
Eftirlit með framkvæmdinni
Spurður segir Óli Björn að
breytingar eigi að skila sér til
neytenda í formi lækkunar á vöru-
verði en bendir jafnframt á að
nauðsynlegt sé að fylgjast með
framkvæmdinni.
Telur starfshópurinn nauðsyn-
legt að hafa sérstakt eftirlit með
markaðinum þegar breytingar sem
þessar eiga sér stað.
„Stjórnvöld tryggðu t.d. fjár-
muni í eftirlit til að fylgjast með að
lækkun virðisaukaskatts árið 2007
skilaði sér til neytenda. Verðlags-
eftirlit ASÍ, Neytendastofu og
Neytendasamtökunum var þá falið
slíkt eftirlit. Nauðsynlegt er að
fylgst sé með þróun á markaði á
komandi árum og beinir starfshóp-
urinn því til ráðherra að beita sér
fyrir því að fylgst verði sérstaklega
með samkeppni og verðþróun á
dagvörumarkaði til að tryggja hag
almennings,“ segir í skýrslunni.
Vilja breytingar á útboðskerfi tollkvóta
Skýrsla starfshóps um úthlutun tollkvóta skilað til ráðherra Markmiðið að tryggja neytendum
lægra verð, segir formaður hópsins Hollenskt útboð hentugasta leiðin þar sem lægsta verðið er valið
Óli Björn
Kárason
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er dálítið misjafnt á milli
ára, en stundum sjást þessir fuglar
í byggð, svo sem í stærri húsagörð-
um og á landi Skógræktarinnar, en
þetta er alls ekki algengt,“ segir
Jóhann Óli Hilmarsson, formaður
Fuglaverndarfélags Íslands, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til með-
fylgjandi ljósmyndar sem Hrönn
Hjartardóttir, íbúi við Vesturgötu í
Reykjavík, tók af branduglu þar
sem hún sat í garðinum og gæddi
sér á nýveiddum starra, en það eru
einkum smáfuglar og mýs sem laða
uglur að höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta þekkist alveg. Ég man eft-
ir uglu sem hélt til í Seljahverfinu í
Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Hún sást oft á kvöldin og settist þá
í ákveðið tré þar. Þessir fuglar eru
yfirleitt í músum en geta auðvitað
tekið fugla eins og starra líka, þeir
eru yfirleitt í hópum og þá á uglan
oft auðvelt með að læðast að þeim,“
segir Jóhann Óli og bendir á að ugl-
ur séu afar fim og hljóðlát rándýr.
„Þessir fuglar eru eldsnöggir og
ótrúlega hljóðlátir, það er í raun al-
veg merkilegt hversu hljóðlátir þeir
eru á flugi. Ég man eftir því að
hafa verið staddur í hlöðu einni
austur í Grafningi og þar inni var
eyrugla sem flaug um og maður
heyrði engan vængjaþyt í henni.
Þetta eru því algjörlega hljóðlaus
dýr, sem notfæra sér þennan eig-
inleika sinn við veiðarnar,“ segir
Jóhann Óli.
Þrjár tegundir hér á landi
Að sögn Jóhanns Óla má hér á
landi finna þrjár uglutegundir;
branduglu, snæuglu og eyruglu. Þá
hefur einnig sést til skopuglu en
það er afar sjaldgæfur flækingur
hér á landi.
„Snæuglan er sjaldgæfust en frá
því um aldamót hefur eyruglan ver-
ið að festa sig í sessi sem varpfugl.“
Brandugla á Vesturgötu
Íbúi við Vesturgötu í Reykjavík sá branduglu gæða sér á
starra í garðinum Ekki algengt, segir fuglasérfræðingur
Ljósmynd/Hrönn Hjartardóttir
Rándýr Hér á landi má finna þrjár tegundir ugla og eru fuglar þessir miklar
veiðiklær, fimir og hljóðlátir. Þessi var að gæða sér á starra í Reykjavík.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
HRESSIR
UPPÁ PLASTIÐ
ÁHRIF
MYNDAR STERKT HLÍFÐARLAG
SKILUR
EKKI EFTIR RÁKIR OG BLETTI
MÆLABORÐS
HREINSIEFNI
FYRIR BÍLA
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Embætti ríkislögreglustjóra leitar
að framtíðarhúsnæði fyrir embættið.
Leigusamningur Ríkislögreglu-
stjóra á Skúlagötu 21 rennur út 1.
febrúar 2020 að öllu óbreyttu.
Fasteignafélagið Reginn á hús-
næðið. Helgi S. Gunnarsson, for-
stjóri Regins, kveðst telja að Ríkis-
lögreglustjóri verði nokkur ár til
viðbótar á Skúlagötu. Það verkefni
að flytja slíka stofnun taki tíma.
Spurður um framtíðarmöguleika
Skúlagötu 21 segir Helgi að hús-
næðið hafi upp á margt að bjóða.
Staðsetningin sé mjög góð og ekki sé
áhvílandi virðisskattskvöð á eign-
inni. Því henti húsnæðið meðal ann-
ars undir opinberar stofnanir.
Hann segir aðspurður að rætt hafi
verið um möguleika á að leigja hús-
næðið undir hótelrekstur. Þær hug-
myndir séu á frumstigi og engar
ákvarðanir verið teknar í þessu efni.
Þær upplýsingar fengust frá Rík-
islögreglustjóra að fyrir fjórum ár-
um hefði það farið þess á leit við þá-
verandi dómsmálaráðherra að
hafinn yrði undirbúningur að fram-
tíðarhúsnæði Ríkislögreglustjóra og
lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu. Til þess yrði skipuð nefnd
af hálfu dómsmálaráðuneytis og
fjármálaráðuneytis. Mikil vinna
hefði farið fram á vegum Fram-
kvæmdasýslu ríkisins vegna þessa
verkefnis sem stýrihópur ráðuneyt-
anna leiddi.
Formaður stýrihópsins er Sig-
urður Helgason, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu. Ekki hefur
náðst í Sigurð vegna málsins.
Morgunblaðið/Eggert
Skúlagata 21 Ríkislögreglustjóri á förum og leitar nýs húsnæðis.
Ríkislögreglustjóri
leitar nýs húsnæðis
Skoða flutning af Skúlagötunni
Reginn skoðar leigu undir hótel