Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 241 cm Leður ct. 30 Verð 739.000,- L 241 cm Áklæði ct. 70 Verð 479.000,- Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Aðeins 4 verð 2.000-5.000 kr. á laugardaginn ÚTSÖLU- LOK Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Ég myndi segja að þetta hefði verið döpur reynsla, þetta var nú kannski ekki besti staðurinn fyrir þetta. Birtuna vantaði, það vantaði sólina og vökvunin ekki nógu góð,“ segir Bjarni Ingvar Árnason um pálmatré sem komið var fyrir í Perlunni 1991 og drápust innan þriggja ára. Bjarni rak veitingastað Perlunnar í um tvo áratugi. „Þetta kostaði milljónatugi, ég man ekki hve marga. En okkur tókst að komast hjá því að eiga þessi tré, það var í raun stór varnarsigur þar sem við höfðum ekki áhuga á að eiga þetta og Hitaveitan þurfti að punga út fyrir þessu, þetta voru rosalegir peningar. Svo endaði það með því að frekar en rífa uppsetninguna niður, það kostaði svo mikið að koma þessu fyrir, var komið fyrir gervi- pálmatrjám sem skorpnuðu upp og misstu litinn á fáum árum og héngu þarna sem einhverjir draugar,“ seg- ir Bjarni. Frekar Pálmar Ólason Hann segist ekki mæla með áformum um að koma fyrir pálmum í Vogahverfi að fenginni reynslu. „Ég myndi halda að þessu fylgdu um tíu vandamál og lítil gleði. Þú getur ímyndað þér muninn á hita og kulda þarna inni, bara það. Hiti, kuldi, raki. Það verða öll elementin á móti þeim. Þetta er fíaskó, eins róm- antískt og þetta er, þá er þetta fí- askó. Það væri miklu frekar að taka Pálmar Ólason vin minn og láta hann spila þarna á flygilinn í gler- búri. Hann er svo skemmtilegur að það myndi vera miklu betra að setja hann þarna inn í búr og það væri örugglega ódýrara að hafa hann þarna klukkutíma á dag,“ svarar Bjarni og hlær þegar hann er spurð- ur hvað honum finnist eiga að koma í staðinn fyrir pálmatré í nýju Voga- hverfi. „Ég held að pálmatré eigi bara að vera þar sem þau vaxa og ætlað að vera í upphafi, það er ein- hver ástæða fyrir því að pálmatré eru ekki á Íslandi.“ Fólk hrifið af pálmum „Ég hef ekki tekið eftir því en við eigum pálma,“ svarar Berglind Bjarnardóttir, rekstrarstjóri Blóma- vals, spurð hvort eftirspurn eftir pálmum hafi aukist. Hún segir pálm- ana í versluninni seljast vel og þeir séu mikil stofuprýði. „Ég veit ekki hvort við ættum að byggja í kringum þetta einhverja glerhjúpa, en það er kannski góð hugmynd. Þetta selst alltaf jafnt og þétt og fólk er hrifið af þeim, fólk verður örugglega jafn hrifið af þeim í listaverkinu.“ Berg- lind tekur þó sérstaklega fram að „okkar pálmar eru allir mun viðráð- anlegri en þessir sem þeir eru að spá í“. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gróður Pálmarnir í Perlunni lifðu ekki lengi og var þeim skipt út fyrir gervitré og nú standa þar pálmar úr plasti, en myndin er af nýrri tegund. Pálmarnir sagðir rómantískt fíaskó Arðgreiðslur Landsvirkjunar í fyrirhugaðan Þjóðarsjóð gætu á nokkrum árum náð upp í 10-20 milljarða króna á ári, að því er kemur fram í umsögn fyrirtæk- isins um frumvarp um sjóðinn á Alþingi. Til greina kemur að arð- greiðslurnar verði í bandaríkja- dölum en ekki krónum. Í umsögninni kemur fram að Landsvirkjun hafi um nokkurt skeið bent á að arðgreiðslugeta fyrirtækisins muni aukast á næstu árum. Síðastliðin ár hafi fyr- irtækið greitt eiganda sínum 1,5 milljarða króna árlega í arð- greiðslur. „Með sterkari efnahag, minni framkvæmdum og tryggu sjóðstreymi eru nú forsendur til að auka arðgreiðslur. Miðað við núverandi áætlanir er stefnt að því að arðgreiðslur geti hækkað í skrefum og náð á nokkrum árum upp í 10-20 milljarða króna á ári,“ segir í umsögninni. Þá kemur þar fram að í frum- varpinu sé gert ráð fyrir að eignir Þjóðarsjóðsins verði varðveittar og ávaxtaðar í erlendum gjald- miðlum og að skoða megi þann möguleika við arðgreiðslur að þær verði að hluta til í erlendri mynt. „Uppgjörsmynt Landsvirkjunar er bandaríkjadalur og eru tekjur fyrirtækisins að stærstum hluta í þeirri mynt. Það gæti því farið vel að arðgreiðslur Landsvirkjunar verði í bandaríkjadal en ekki í ís- lenskum krónum eins og verið hefur hingað til,“ segir síðan í umsögn Landsvirkjunar. Arðgreiðslurnar í dölum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Virkjun Hornsteinn var lagður að Þeistareykjavirkjun árið 2016.  Hagur Landsvirkjunar fer hratt batnandi Nýskipaður sendimaður Grænlands á Íslandi, Jacob Isbosethsen, verður heiðursgestur Hróksins og Kalak í Pakkhúsi Hróksins í Geirsgötu 11, nk. laugardag kl. 13. Hann mun kynna sér starfsemi félaganna og leika fyrsta leikinn á Grænlands- skákmótinu sem haldið er af þessu tilefni. Fyrsti leiðangur félaganna á nýju ári verður til Kulusuk í lok febr- úar og síðan rekur hver hátíðin aðra. Í haust er von á 14. hópi barna frá austurströndinni til að læra sund. Kynna verkefni Hróksins og Kalak Gestir Ane Lone Bagger ráðherra, Vigdís Finnbogadóttir, Jacob Isbosethsen og Hrafn Jökulsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.