Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 HD-4.50BTNC Noisecancelling Verð: 24.900 kr. PXC-550 Noisecancelling Verð: 47.900 kr. Momentum TRUE Verð: 39.800 kr. CX-6.00BT Verð: 13.980 kr. Sennheiser – þráðlaus heyrnartól Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Heldur hefur rofað til hjá útsel við Ísland síðustu ár. Samkvæmt mati á stofnstærð var stofninn 6.300 dýr árið 2017, sem er fjölgun frá 2012 þegar fjöldi útsela var metinn 4.200 dýr. Þetta gerist á sama tíma og fækkað hefur verulega í stofni landsels. Landselurinn er metinn í bráðri hættu á válista íslenskra spendýra, sem er mesti hættu- flokkurinn. Út- selurinn lækkar nú um flokk á válistanum og er metinn í nokkurri hættu, en var áður metinn í hættu samkvæmt skilgreiningu Náttúrufræði- stofnunar. Sandra M. Granquist, deildar- stjóri líffræðirannsóknadeildar hjá Selasetrinu á Hvammstanga og sérfræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, segir þessa þróun jákvæða fyrir útselinn, en niðurstöðurnar hafi komið nokkuð á óvart. Ástand stofnsins sé betra en það var fyrir sjö árum og minni hætta sé á út- rýmingu. Kópar taldir í látrum Viðmiðunarmörk stjórnvalda fyrir útsel séu að fjöldinn fari ekki niður fyrir 4.100 dýr þannig að stofninn er fyrir ofan þau viðmið- unarmörk. Nýtt mat og lækkun um flokk á válista breyti því þó ekki að útselur sé enn á þessum lista. Við mat á stofnstærð eru kópar taldir úr lofti í látrum, en útselur kæpir yfirleitt í október. Kóparnir fæðast með hvítt fæðingarhár og áður en þeir fara úr þeim á þriðju til fjórðu viku og fá gráleitan lit foreldranna er tiltölulega auðvelt að telja útselskópana. Sandra segir að það sé tæpast tilviljun af náttúr- unnar hendi að þessi norðlæga teg- und fæðist með hvít fósturhár. Á þann hátt séu kóparnir aðlagaðir til að þeir sjáist síður á ís eða snjó. Fullorðnir útselir eru ekki tald- ir, en hins vegar liggja fyrir upp- lýsingar um hversu margir full- orðnir eru á bak við hvern kóp og á þennan hátt er stofnstærðin reiknuð. Stofninn stöðugur yfir lengri tíma „Hafa verður í huga að þegar stofnmat er gert eins sjaldan og við Ísland er eðlilegt að skoða þró- un yfir lengra tímabil. Ef bornar eru saman niðurstöður á tíma- bilinu 2005 til 2017 þá er ekki marktækur munur. Það bendir til þess að stofninn haldist nokkuð stöðugur yfir lengri tíma, en sveifl- ur geta verið á milli ára,“ segir Sandra. Hún segir að ýmislegt geti haft áhrif á stofnmat. Hún nefnir að ekki sé víst að kópar lifi af slæm haustveður. Eins geti ungar urtur átt erfitt með að koma kópum á legg í erfiðu tíðarfari og það geti valdið tímabundnum sveiflum. Samkeppni við landsel? Aðspurð hvað hafi helst valdið því að útselsstofninn hafi haldist nokkuð stöðugur á sama tíma og landsel hefur fækkað verulega segir Sandra ýmsar kenningar uppi en minna sé um bein svör. Vísbendingar séu þekktar frá út- löndum um að komi til samkeppni milli útsels og landsels, til dæmis um fæðu, þá hafi útselur betur. Á fyrrnefndu tímabili hafi ekki verið stundaðar miklar beinar veiðar á útsel og þær hafi reyndar ekki verið stundaðar í stórum stíl í lengri tíma. Töluvert sé um að út- selur drukkni í netum, en ekki séu vísbendingar um að breytingar hafi orðið á hjáveiðum. Þá sé spurning um hvort umhverfis- aðstæður hafi verið hliðhollari út- sel heldur en landsel. Samkvæmt upplýsingum Söndru eru helstu látur útsels við Breiða- fjörð, eða um 58% af heildinni. Stór látur eru einnig á Ströndum, í Skagafirði, Öræfum og Surtsey og með látrunum í Breiðafirði eru 92% látra útsels á þessum slóðum. Útselur virðist vera á uppleið  Mat á stærð útselsstofnsins við landið  Hefur tekið við sér á síðustu árum á sama tíma og landsel hefur fækkað  Hvít fósturhár útselskópa ekki tilviljun  Stærstu látrin eru við Breiðafjörð Ljósmynd/Selasetur Íslands Við Breiðafjörð Innan við viku gamall útselskópur í sellátri. Nokkurra vikna gamlir fara kóparnir úr hvítum fósturhárunum og fá þá gráleitan lit. Stofnstærð útsels við Ísland 1982-2017 ’82 ’85-’86 ’90 ’92 ’95 ’98 ’02 ’05 ’08-’09 ’12 ’17 10 8 6 4 2 0 6.300 4.200 Mat á stofnstærð, þúsundir dýra Viðmiðunarmörk stjórnvalda Sandra M. Granquist Heimkynni útsels eru á tempruðum hafsvæðum í Eystrasalti og Norður- Atlantshafi. Að austanverðu ná þau frá Biscayaflóa í suðri, norður til Bretlands, Íslands, Færeyja, norður með Noregi og til Hvítahafs en vest- anmegin frá Maine í Bandaríkjunum, norður með austurströnd Kanada, til Nýfundnalands og St. Lawrenceflóa. Við Grænland er útselur aðeins flækingur. Árið 2010 voru alls um 300 þúsund dýr í stofnum útsels. Alls um 300 þúsund dýr ÚTSELUR FINNST VÍÐA UM HEIM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.