Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 1. febrúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.54 120.12 119.83 Sterlingspund 156.74 157.5 157.12 Kanadadalur 90.29 90.81 90.55 Dönsk króna 18.301 18.409 18.355 Norsk króna 14.063 14.145 14.104 Sænsk króna 13.15 13.228 13.189 Svissn. franki 119.99 120.67 120.33 Japanskt jen 1.0922 1.0986 1.0954 SDR 166.98 167.98 167.48 Evra 136.62 137.38 137.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.509 Hrávöruverð Gull 1312.95 ($/únsa) Ál 1870.5 ($/tonn) LME Hráolía 61.26 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Guðbrandur Sig- urðsson mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri Heimavalla í lok mars. Í tilkynningu kemur fram að Guðbandur hafi sjálfur óskað eftir því við stjórn að hætta. Heimavellir voru skráðir á markað í maí á síðasta ári á genginu 1,39 en gengið lækkaði strax í 1,24 á fyrsta degi. Í september var gengi félagsins 1,11 og frá þeim tíma hefur illa gengið að hækka markaðsvirði félagsins en við lok- un markaða í gær stóð það í 1,15. „Félag- ið býr í dag yfir verðmætu eignasafni og hefur styrkt rekstur sinn verulega að undanförnu. Framundan eru annars kon- ar verkefni en áður. Þau fela í sér enn frekari endurskipulagningu á eignasafni félagsins og endurfjármögnun á lánum,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Guðbrandur hættir hjá Heimavöllum Guðbrandur Sigurðsson STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í kjölfar þess að Grímur Sæmund- sen, í gegnum félagið Kólf ehf., náði samningum við framtakssjóðinn Horn II, um kaup á hlut sjóðsins í fé- laginu Hvatningu hf., sem aftur held- ur á tæplega 40% hlut í Bláa lóninu, hafa allmiklar þreifingar átt sér stað um með hvaða hætti eignarhaldi á Bláa lóninu verði háttað í kjölfar kaupanna. Kaup Kólfs á hlutnum miðuðu að því að losa um eignarhald Horns II í Hvatningu hf. enda líftími fjárfestingarsjóðsins að renna sitt skeið á enda. Hvatning hefur fram til þessa verið í meirihlutaeigu Kólfs hf. en hluthafar Horns II hafa átt 49,45% hlut í ferðaþjónustufyrirtæk- inu á móti Kólfi. Vildu tryggingu ef eignarhald á Kólfi ehf. breyttist Þreifingarnar sem um ræðir hafa komið upp í kjölfar þess að margir hluthafar í Horni II lýstu yfir vilja til að ganga inn í kaup Kólfs ehf. og halda með því í hlut sinn í Bláa lón- inu, sem malað hefur gull síðustu ár- in. Vegna þessa áhuga hefur um nokkurt skeið verið unnið að nýju hluthafasamkomulagi milli Kólfs ehf. og þeirra sem hyggjast halda í eign- arhluti sína utan Horns II. Í þeirri vinnu hefur m.a. verið kall- að eftir því að ákvæði um „samhliða sölu“ eins og það er kallað, væru sett inn, sem tryggt gætu stöðu annarra hluthafa ef eignarhald á Kólfi ehf. tæki verulegum breytingum. Fæli slíkt ákvæði m.a. í sér að þeim aðila sem hygðist taka Kólf ehf. yfir yrði einnig uppálagt að kaupa hlut ann- arra meðfjárfesta í Bláa lóninu á sama gengi, stæði vilji hluthafa til þess. Þá var einnig kallað eftir því að svokallað lykilmannaákvæði yrði sett inn í hluthafasamkomulagið sem kvæði á um að Grímur Sæmundsen hefði áfram aðkomu að félaginu. Eru þessar kröfur hluthafanna sagðar til marks um hversu mjög þeir tengja rekstur Bláa lónsins við nafn og stöðu Gríms sem hefur frá upphafi stýrt uppbyggingu félagsins. Í gær varð ljóst að lífeyrissjóður- inn Gildi, sem haldið hefur á 18,2% hlut í Horni II, myndi ekki ganga inn í samninginn milli Kólfs ehf. og sjóðs- ins. Heimildir Morgunblaðsins herma að ástæðan að baki þeirri ákvörðun tengist „verulegum ann- mörkum á skjalagerð sem tengist fjárfestingunni“ eins og það er orðað. Viðmælendur Morgunblaðsins sem þekkja til málsins vildu hins veg- ar ekki skýra nánar í hverju hinir verulegu annmarkar fælust. Ákvörð- un sjóðsins leiðir til þess að hann los- ar um tæplega 1.800 milljóna hlut í Bláa lóninu og mun Kólfur ehf. að öllu óbreyttu leysa hann til sín. Flókið endaspil Ekki liggur ljóst fyrir á þessari stundu hversu stór hópur hluthafa Horns II hyggst halda aðkomu sinni að Bláa lóninu áfram. Þó hefur Morg- unblaðið heimildir fyrir því að til- teknir hluthafar hafi bundið áfram- haldandi aðkomu sína ákveðnum skilyrðum, m.a. um lágmarksþátt- töku þeirra sem hingað til hafa átt aðkomu að Horni II. Kann ákvörðun Gildis, sem var stærsti hluthafinn í Horni II, ásamt Lífeyrissjóði versl- unarmanna, að setja þar strik í reikn- inginn. Morgunblaðið leitaði sérstaklega eftir upplýsingum um hvort Lands- bankinn, sem átt hefur 7,66% hlut í Horni II, hygðist halda í eign sína í Bláa lóninu. Sem fyrr fást engin svör frá bankanum um það atriði. Vildi ekki ganga að kröfum lífeyrissjóða Uppbygging Nýjasta krúnudjásnið í starfsemi Bláa lónsins er fimm stjörnu hótel sem nefnist The Retreat. Á hót- elinu er veitingastaðurinn Moss. Þar er einnig að finna nýtt upplifunarsvæði sem nýtur mikilla vinsælda.  Gildi dregur sig úr eigendahópi Bláa lónsins  Landsbankinn gefur ekkert upp Þrír hafa boðið sig fram til stjórnar Iceland Seafood International og einn til varastjórnar, en framboðs- frestur rann út í gær. Því er sjálf- kjörið í stjórnina, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu, en samþykktir félagsins kveða á um að kosið sé í 3-5 manna stjórn á hlut- hafafundi félagsins. Boðað hefur ver- ið til hluthafafundar þriðjudaginn 5. febrúar nk. Stjórnarformaður WOW air meðal frambjóðenda Þeir þrír aðilar sem boðið hafa sig fram til aðalstjórnar eru þau Liv Bergþórsdóttir, stjórnarfor- maður Wow air og Aur app, og fyrr- verandi forstjóri Nova, Magnús Bjarnason, stofnandi og framkvæmdastjóri MAR Advisors, og fyrrverandi forstjóri Icelandic Group, og að síðustu Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf, en í tilkynningunni er hann sagður með áratuga reynslu í sjávarútvegi. Frambjóðandi til varastjórnar fé- lagsins er Ingunn Agnes Kro, en hún er lögfræðingur og framkvæmda- stjóri rekstrar og samskipta hjá Skeljungi. Benedikt Sveinsson, sem hefur setið í stjórn ISI í níu ár og starfað hjá félaginu í yfir 40 ár í margvísleg- um stjórnendastöðum, gefur ekki kost á sér í nýja stjórn. Þá mun Mark Holyoake, sem verið hefur einn stærsti hluthafi ISI undanfarin ár, ekki gefa kost á sér í áframhald- andi stjórnarsetu. tobj@mbl.is Stjórn Bjarni Ármannsson tók við sem forstjóri félagsins á dögunum. Sjálfkjörið reynd- ist í stjórn ISI  Þrír buðu sig fram  Liv Bergþórsdóttir tekur sæti í stjórninni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.