Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Húðslípun
Sléttir og frískar upp h
úðina
–dregur úr línumog h
rukkum!
Láttu fagfólkið á Húðfegrun sjá um þína húð á nýju ári!
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökum vel ámóti ykkur
hudfegrun.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti átta dauðsföll hafa
verið rakin til fimbulfrosts í mið-
vesturríkjum Bandaríkjanna og íbú-
um á köldustu svæðunum hefur verið
ráðið frá því að vera úti við vegna
hættu á kali og ofkælingu. Yfirvöld
vöruðu við því að hætta væri á kali ef
fólk væri lengur en í tíu mínútur úti
við í brunagaddinum.
Frostið mældist mest í Grand
Forks í Norður-Dakóta þar sem það
var 54 gráður á Celsíus að morgni
miðvikudagsins var. Um 20 milljónir
manna búa á svæðum þar sem frostið
hefur verið yfir 28 gráðum eða verður
það á næstu dögum. Um 90 milljónir
manna búa á svæðum þar sem frostið
hefur verið meira en 17 gráður.
Frostið var t.a.m. um 30 gráður á
Celsíus í Chicago, þriðju fjölmenn-
ustu borg Bandaríkjanna, og spáð var
metkulda í borginni í gær. Kuldinn í
Chicago var meiri en í höfuðstað
Alaska, Juneau, og á svæðum á
Suðurskautslandinu. Rúmlega 1.800
flugferðum var aflýst á tveimur
stærstu flugvöllum Chicago og lesta-
fyrirtækið Amtrak aflýsti ferðum frá
aðallestarstöð borgarinnar vegna
vetrarveðursins.
Gripið var til neyðaraðgerða í
þremur ríkjum, Illinois, Michigan og
Wisconsin. Lögð var áhersla á að
tryggja að aldrað og heimilislaust
fólk kæmist í hlýtt húsnæði, m.a. um
16.000 heimilislausir íbúar Chicago.
Hundruðum barnaskóla var lokað,
auk margra framhaldsskóla og há-
skóla. Yfirvöld í Iowa ráðlögðu fólki
að „tala sem minnst og forðast að
anda djúpt“ þegar það væri úti við.
Dæmi eru um að glæpamenn í Chi-
cago hafi ógnað fólki með byssum til
að ræna yfirhöfnum.
Kalt loft frá norðurskautinu
Kuldakastið er rakið til þess að
hvelkjarninn, eða kuldakjarninn, yfir
heimsskautasvæðinu hefur bugðast,
þannig að kalt loft hefur leitað suður
á bóginn yfir miðvesturríki Banda-
ríkjanna og nálæg svæði. Hvelkjarn-
inn (e. polar vortex) „er mjög kaldur
loftmassi sem er yfirleitt yfir norður-
skautinu og hneigist til að haldast þar
fyrir tilstuðlan háloftavindrastar-
innar“, hefur fréttaveitan AFP eftir
Ben Kirtman, prófessor í loftslagsvís-
indum við Miami-háskóla. Hann segir
að háloftaröstin, vindstrengur sem
blæs að jafnaði úr vestri, haldi yfir-
leitt kalda loftinu yfir norðurskauts-
svæðinu en þegar röstin veikist geti
kaldi loftmassinn færst sunnar.
„Stundum bugðast hvelkjarninn og
það hefur gerst núna. Og ef hann
bugðast mjög mikið getur stór tunga
af brunaköldu lofti komist mjög langt
í suður.“
Prófessorinn segir að styrkur há-
loftarastarinnar tengist andstæðunni
milli hlýja loftsins í hitabeltinu og
kalda loftmassans á norðurskauts-
svæðinu. Því meiri sem munurinn sé
því sterkari sé háloftaröstin og því
líklegra sé að kaldi loftmassinn hald-
ist yfir norðurskautssvæðinu.
Kirtman segir að háloftaröstin geti
þó stundum orðið svo sterk að hún
verði óstöðug, þannig að bugður
myndist í henni. Ennfremur hafi
komið fram vísbendingar um að þeg-
ar norðurskautssvæðið hlýni minnki
hitamunurinn milli þess og hitabeltis-
ins og það geti einnig orðið til þess að
háloftaröstin veikist, þannig að kalt
loft taki að leita suður á bóginn. Kom-
ið hefur fram að hlýnunin á norður-
skautssvæðinu hefur verið tvöfalt
meiri en annars staðar á jörðinni.
Tengt hlýnun jarðar?
Kirtman segir að fram hafi komið
vísbendingar um að hlýnun jarðar
geti orðið til þess að slíkar kuldagus-
ur frá pólsvæðinu verði algengari og
skæðari en hann leggur áherslu á að
það hefur ekki verið sannað og því sé
ekki hægt að fullyrða neitt um það.
Breska blaðið The Guardian hefur
eftir Jennifer Francis, sérfræðingi í
loftslagsbreytingum á norðurskauts-
svæðinu, að hugsanlega geti hlýnun
jarðar orðið til þess að hvelkjarninn
veikist og kalt heimskautaloft leiti
oftar suður á bóginn. Hlýnunin hefur
orðið til þess að hafísinn þynnist og
hopar, þannig að sjórinn getur gleypt
í sig meiri hita á sumrin. Hitinn fer
síðan út í andrúmsloftið á veturna og
hugsanlegt er að það geti valdið vind-
um sem raski hvelkjarnanum, þannig
að kuldagusurnar frá pólnum verði
algengari. Francis tekur þó fram að
þetta hafi ekki verið rannsakað til
hlítar.
Varað við
mannskæðum
brunagaddi
Helkalt heimskautaloft herjar
á miðvesturríki Bandaríkjanna
Brunagaddur í Bandaríkjunum
Heimild: NOAA
Sterkur hvelkjarni og sterk háloftavindröst halda köldu
lofti yfir norðurskautssvæðinu og hlýju lofti sunnar
Norðurskautssvæðið
hlýnar hraðar en
hitabeltið
Minni munur á
loftþrýstingi
Hvelkjarninn
og
röstin
veikjast
Sterkur hvelkjarni
(kuldakjarni)
Hvelkjarninn
veikistSterk hálofta-
vindröst
Eðlilegar aðstæður Pólsvæðið hlýnar hraðar en syðra svæðið
Möguleg áhrif loftslagsbreytinga
Hvelkjarninn og háloftaröstin veikjast, þannig að
kalda loftið fer sunnar og hlýja loftið norðar
Röstin
veikist og
bugðast
Kalt loft
Hlýtt loft
Norðurskautssvæðið
Hitabeltið
A B C
Kuldaspá í gær, í gráðum á Celsíus
Fimbulfrost í Norður-Ameríku
KANADA
BANDARÍKIN
- 20- 30 - 10 0 10 20 30- 40
Heimild: Umhverfisráðuneyti Kanada
Chicago
-26
Minneapolis
- 19
Detroit
-18
Toronto
-16
Winnipeg
-23 Montreal
-14
Tónlistarmaður leikur á kontra-
bassa úr ís á tónleikum í Íshvelfing-
unni, snjóhúsi í vetraríþrótta-
miðstöð í Passo Paradiso á Ítalíu.
Bandaríski listamaðurinn Tim Lin-
hart hefur staðið fyrir tónleikum í
snjóhúsinu þar sem leikið er á
hljóðfæri sem hann hefur gert úr ís
og snjó, þ.e. fiðlu, víólu, selló, ketil-
trumbur, sílófón og mandólín, auk
kontrabassa og hljóðfæris sem
hann hefur fundið upp sjálfur og
nefnir rolandófón, stórt ásláttar-
hljóðfæri sem líkist panflautu.
Hann segist hafa byrjað að búa til
hljóðfæri úr ís og snjó fyrir sextán
árum.
Íshvelfingin er á 2.600 metra hæð
á jökli í Alpafjöllum. Þegar tónleik-
arnir hefjast er 12 stiga frost í snjó-
húsinu en kuldinn minnkar smám
saman.
Leikið á hljóðfæri úr snjó
og ís á tónleikum á jökli
AFP