Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ein af þessummjög svosérstöku umræðum á Alþingi fór fram í fyrradag og að þessu sinni fjallaði hún um svo- kallaða borgarlínu. Reykjavíkurborg varð alræmd fyrir Línu.net fyr- ir allmörgum árum svo að þetta er ekki fyrsta línan sem vinstri menn í borginni taka ástfóstri við og eru tilbúnir að eyða stór- fé í. En það er að vísu ósann- gjarnt að bera þetta saman, því að fyrri línan útheimti aðeins brot af þeim fjáraustri sem borgarlínan býður upp á. Síðan hefur borgarstjórn undir óöruggri forystu vinstri manna afrekað ýmislegt í fjár- austri og er nærtækast að nefna braggann og dönsku hönnunar- stráin. Nú síðast eru það pálmatrén tvö fyrir um 150 milljónir króna samkvæmt áætlun, sem þýðir, ef marka má fyrri afrek borgarstjórnar- meirihlutans, um hálfan millj- arð þegar á hólminn verður komið. Það er óneitanlega mjög sér- stakt að borgarstjórnarmeiri- hluta sem hefur afsannað sig mjög rækilega þegar kemur að áætlanagerð og fjármálastjórn skuli hafa tekist að sannfæra marga þingmenn og heila rík- isstjórn um það, að það sé góð hugmynd að ausa tugum millj- arða, jafnvel á annað hundrað milljörðum, í að byggja upp risavaxið ofurstrætisvagnakerfi á höfuðborgar- svæðinu. Borgarlínan svo- kallaða er fjarri því að vera einhver töfralausn í um- ferðarmálum eins og talsmenn henn- ar virðast halda, en hljóta að vita betur. Borgar- línan verður ekki til þess að fleiri vilji taka strætó en áður. Þetta eru bara strætisvagnar, farartæki til að flytja fólk á milli staða eftir ákveðnum leið- um. Það mundi ekki heldur breyta neinu þó að vagnarnir væru lestir á teinum, fólk mundi ekkert flykkjast í lestir frekar en okkar hefðbundnu og ágætu strætisvagna. Leiðin til að auka notkun á strætó væri frekar að fjölga ferðum, auka tíðni og þétta net- ið, en borgarlína er fjarri því nauðsynleg til að ná þessu fram, og er aðeins yfirgengilega dýr leið að markmiði um að efla samgöngur – og ólíkleg til að ná því markmiði. Það sem gera þarf í sam- göngumálum á höfuðborg- arsvæðinu er að auðvelda þeim farartækjum sem langflestir nota að komast leiðar sinnar. Þess vegna þarf að bæta gatna- kerfið og greiða leið fjölskyldu- bílsins. Samhliða er hægt að fjölga strætisvögnum, en til þess þarf ekki borgarlínu fyrir óheyrilegar fjárhæðir. Og er þá aðeins gengið út frá fjárhags- áætlun, sem afar hæpið er að gangi eftir. Lína.net, braggi og strá, pálmatré í sí- valningum, borg- arlína – allt frá sama meirihluta} Mjög sérstök umræða um borgarlínu Nýjar hagtölurfyrir Ítalíu birtust í vikunni, og kom þar í ljós að stöðugur sam- dráttur var í hagkerfi landsins seinni hluta ársins 2018. Jafnvel þó að samdrátturinn sé ekki mikill í prósentum talinn, eða einungis um 0,1-0,2%, þýðir hann þó að skuldavandi ítalska ríkisins er nú talinn meiri en áð- ur, þar sem minna mun inn- heimtast af sköttum en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta þykja ekki góð tíðindi fyrir núverandi ríkisstjórn Ítal- íu, sem hafði fengið skammir frá Evrópusambandinu og verið rekin til baka með fjárlög. Vakti sú deila athygli, ekki síst fyrir þær sakir að þegar ríkisstjórn Frakklands fór einnig yfir við- mið Evrópusambandsins heyrð- ist hvorki hósti né stuna frá embættismönnunum í Brussel. Hvað sem því líður er staða Ítalíu ekki öfundsverð. Ítalska ríkið er stórskuldugt, hið fjórða skuldugasta í heimi, og eru skuldirnar sagðar nema 132% af þjóð- arframleiðslu. Ein- ungis Grikkir standa verr að því leyti. Þá bendir flest til að sam- dráttarskeiðið á Ítalíu haldi áfram frameftir þessu ári. Helsta áhyggjuefnið fyrir forvígismenn Evrópusam- bandsins er þó ekki hver staða Ítalíu er ein og sér, heldur fremur það, að evrusvæðið í heild sinni náði sér ekki á strik seinni hluta ársins 2018. Með- alhagvöxtur svæðisins á síðasta ársfjórðungi 2018 var einungis 0,2% samkvæmt Eurostat og 0,3% innan Evrópusambandsins sem heildar. Í slíku umhverfi væri ekki gott fyrir Evrópusambandið ef Ítalía yrði fyrir enn frekari skakkaföllum í efnahagslífinu, enda dansar sambandið sjálft á línu þess að enda í djúpstæðri kreppu. Það er því ólíklegt að skuldavanda Ítala verði mætt af miklum skilningi af stjórnvöld- um í Berlín, París og Brussel. Samdráttur reynist meiri en óttast var}Afturför á Ítalíu Í sland er í fremstu röð þegar kemur að greiningu og meðferð krabba- meina. Þann árangur getum við meðal annars þakkað vel menntuðu og hæfu fagfólki og öflugum sjúk- lingasamtökum. Engu að síður má sökum fjölgunar íbúa og hækkandi aldurs þjóð- arinnar búast við mikilli fjölgun einstaklinga sem greinast með krabbamein á næstu ár- um. Í ljósi þessarar þróunar hafa mörg vestræn ríki, þ.m.t. allar hinar Norður- landaþjóðirnar, sett fram krabbameinsáætl- anir og hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin gefið út leiðbeiningar um gerð slíkra áætlana sem ætlað er að skerpa sýn, móta markmið og aðgerðir og stilla saman strengi allra hlutaðeigandi í baráttunni við krabbamein. Segja má að fyrstu skrefin í gerð íslenskrar krabbameinsáætlunar hafi verið tekin hinn 4. febrúar 2011, á alþjóðadegi krabbameins, í til- efni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands. En þá tilkynnti Guðbjartur Hannesson, þáverandi velferð- arráðherra, að stefnt yrði að gerð íslenskrar krabba- meinsáætlunar. Í kjölfarið fór fram undirbúningsvinna af hálfu Krabbameinsfélags Íslands og í ársbyrjun 2013 skipaði velferðarráðherra ráðgjafahóp sem falið var það hlutverk að móta stefnu og meginmarkmið á sviði forvarna og meðferðar vegna krabbameina til ársins 2020. Fjöldi manns kom að gerð krabbameins- áætlunar, bæði beint og sem ráðgefandi að- ilar, en hópurinn var skipaður fulltrúum frá Landspítalanum, Heilsugæslunni, háskóla- samfélaginu og frá sjúklinga- og aðstand- endasamtökum auk þess sem hann leitaði ráðgjafar hjá fjölmörgum aðilum sem hafa aðkomu að málaflokknum. Ráðgjafahópurinn skilaði skýrslu með til- lögu að íslenskri krabbameinsáætlun í júlí 2017. Lögð er rík áhersla á notendur heil- brigðisþjónustunnar í áætluninni og er und- irtitill hennar Notendamiðuð þjónusta í önd- vegi. Ekki hafði verið tekin formleg afstaða til innleiðingar þeirra verkefna sem sett eru fram í áætluninni fyrr en nú, en ég hef nú ákveðið að unnið verði að framkvæmd verk- efna í samræmi við tillögur ráðgjafahóps. Gildistími áætlunarinnar verður til ársins 2030, til sam- ræmis við tillögu til þingsályktunar um heilbrigðis- stefnu sem nú liggur fyrir Alþingi. Þó að við höfum ekki enn náð að sigrast á krabba- meini þá hefur mikið áunnist á undanförnum áratugum. Forvörnum, greiningu og meðferð hefur fleygt fram og batahorfur þeirra sem greinast hafa batnað verulega. Það er mín sannfæring að krabbameinsáætlunin muni stuðla að enn betri árangri á komandi árum. Svandís Svavarsdóttir Pistill Innleiðing krabbameinsáætlunar hafin Höfundur er heilbrigðisráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Juan Guaidó, leiðtogi stjórn-arandstöðunnar í Vene-súela, vakti heimsathygli ísíðustu viku þegar hann lýsti því yfir á miðvikudeginum að hann væri starfandi forseti lands- ins, þar sem síðustu forsetakosn- ingar hefðu ekki verið gildar. Fékk Guaidó samdægurs stuðning frá ríkisstjórnum Bandaríkjanna og Brasilíu, og hafa fleiri ríki sagst styðja við hann eða tekið undir kröfu hans um að nýjar for- setakosningar verði haldnar sem fyrst í Venesúela. Guaidó náði þannig að setja ástandið í Vene- súela í brennidepil heimsmálanna, en fáir höfðu heyrt á hann minnst utan heimalandsins áður. Úr stórri fjölskyldu Juan Gerardo Guaidó Márquez fæddist í hafnarborginni La Guaira 28. júlí 1983. Faðir hans var flugmaður og móðirin var kennari, en Guaidó er einn af sjö systkinum. Árið 1999, sama ár og Hugo Chavez náði völdum í Vene- súela, varð heimaborg Guaidó illa úti í aurskriðum, og segja þeir sem eru nákunnugir honum að Guaidó hafi mislíkað hversu slæ- leg viðbrögð yfirvalda voru við aurskriðunum, og í raun hafi stjórnmálaáhugi hans kviknað þá. Guaidó er menntaður iðn- aðarverkfræðingur, og er hann með framhaldsgráðu frá háskólum í bæði Bandaríkjunum og í Vene- súela. Guaido er giftur Fabiönu Rosales, blaðamanni, og eiga þau saman eina dóttur. Guaidó tók þátt á námsárum sínum í mótmælum gegn rík- isstjórn Chavez og árið 2009 tók hann þátt ásamt Leopoldo López og fleiri þekktum stjórnarand- stæðingum í stofnun sósíal- demókrataflokksins Almannavilj- inn. López, sem nú er í stofufang- elsi, var lengi vel helsti leiðtogi flokksins, og tók hann Guaidó undir verndarvæng sinn. Sem lær- lingur López náði Guaidó nokkr- um vinsældum innan Almannavilj- ans, en var ekki mjög þekktur utan flokksins. Guaidó var fyrst kjörinn sem varaþingmaður á þjóðþingi Venesúela árið 2011, og varð þingmaður eftir þingkosn- ingar árið 2015, en stjórnarand- stöðuflokkar landsins náðu þar meirihluta á þinginu í fyrsta sinn í meira en sextán ár. Þau úrslit mældust hins vegar ekki vel fyrir hjá núverandi forseta, Nicolas Maduro eða nánustu samstarfs- mönnum hans, og sagði Maduro að hann myndi ekki leyfa „hægri- sinnuðu gagnbyltingunni“ að ná völdum. Sneitt að þinginu Fljótlega eftir að þeir þingmenn sem náðu kjöri árið 2015 tóku til starfa fór Maduro að leita leiða til að draga úr völdum þingsins. Lét hann til dæmis skipa „samfélags- þing“, sem átti að taka til sín völd þjóðþingsins. Árið 2017 lét Mad- uro skipa stjórnlagaþing, sem átti að endurskrifa stjórnarskrá lands- ins, en lét það verða sitt fyrsta verk að svipta þjóðþingið völdum, en hæstiréttur Venesúela, sem skipaður er bandamönnum Mad- uro, hefur einnig fellt úr gildi þau lög sem þingið hefur samþykkt. Þingið hefur á móti neitað að við- urkenna stjórnlagaþingið eða dóma hæstaréttar. Þingmenn kusu síðan Juan Guaidó sem forseta þingsins í des- ember síðastliðnum og tók hann við því embætti 5. janúar þessa árs. Það var á grunni þess emb- ættis og gildandi stjórnarskrá Venesúela sem Guaidó ákvað að láta lýsa sig sem starfandi forseta. Valdaræningi eða vonarneisti? AFP Valdatafl Juan Guaidó, forseti þjóðþings Venesúela veifar hér til stuðnings- manna sinna, en hann hefur lýst sjálfan sig sem starfandi forseta landsins. Guaidó tók sér völd starfandi forseta Venesúela á grundvelli 233. greinar stjórnarskrár landsins, sem kveður á um að ef sá sem kjörinn hefur verið for- seti sé ekki til staðar, eða emb- ættið sé tómt, skuli halda aðrar forsetakosningar. Í millitíðinni fari forseti þingsins með völd forseta landsins. Segir stjórn- arandstaðan að forsetakosn- ingar sem haldnar voru á síð- asta ári séu ógildar, og því hafi forsetatíð Maduro í raun lokið 10. janúar síðastliðinn þegar hann sór embættiseið sinn að nýju. Stuðningsmenn Maduro segja hins vegar að með þessu sé stjórnarandstaðan að ræna völdum, þar sem kosningarnar 2018 hafi farið löglega fram. Tekist á um lögmætið STJÓRNARSKRÁIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.