Morgunblaðið - 01.02.2019, Side 24

Morgunblaðið - 01.02.2019, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 ✝ Vilberg Alex-andersson fæddist í Stykkis- hólmi 30. septem- ber 1937. Hann lést á Landspít- alanum 23. janúar 2019. Foreldrar hans voru Gróa Elín- björg Jóhannes- dóttir húsfreyja, f. 11.10. 1901, d. 12.7. 1963, og Alexander Stef- ánsson leigubílstjóri, f. 26.6. 1913, d. 22.7. 1999. Sammæðra systkini hans eru: Sigrún Elív- arðsdóttir, f. 14.7. 1922, d. 23.12. 2011, Vilhjálmur Hákon Elívarðsson, f. 18.12. 1925, d. 17.5. 1972, Klara E. Hansen (Elívarðsdóttir), f. 24.6. 1928, d. 11.10. 2004, Elín Elívarðs- Vilberg lauk kennaraprófi árið 1959 og stundaði einnig 1964-65 framhaldsnám í upp- eldisfræði og dönsku við Kennaraháskólann í Kaup- mannahöfn. Hann kenndi við Skóla Ísaks Jónssonar til árs- ins 1966 þegar hann leysti af sem skólastjóri í Ólafsfirði einn vetur. Eftir vetrardvöl á Ólafsfirði lá leið þeirra hjóna til Akureyrar þar sem Vilberg tók við stöðu skólastjóra og Sigurbjörg sem kennari í Glerárskóla. Vilberg gegndi þeirri stöðu fram til ársins 2002 þegar þau hjónin fóru bæði á eftirlaun. Vilberg bætti við sig ýmsu námi, meðal annars í sér- kennslu. Auk þess fékk hann námsorlof frá Glerárskóla árið 1979 og fóru þau hjónin til Emdrup í Danmörku. Árin 1992-1993 fóru þau aftur í námsorlof og þá til Glasgow. Útför Vilbergs fer fram frá Glerárkirkju í dag, 1. febrúar 2019, og hefst athöfnin klukk- an 10.30. dóttir, f. 6.9. 1930, d. 13.9. 2015, og Stella Breiðfjörð Magnúsdóttir, f. 17.3. 1940, búsett í Reykjavík. Sam- feðra systir hans er Esther Alexand- ersdóttir, f. 3.10. 1938, d. 12.7. 1999. Vilberg giftist Sigurbjörgu Guð- mundsdóttur, f. 28.3. 1938, d. 15.7. 2018 árið 1968 og eiga þau tvær dætur, Þórunni og Sigurbjörgu Gróu. Þórunn, f. 1965, er sjúkraliði og býr ásamt eiginmanni sín- um og þremur börnum í Nor- egi. Sigurbjörg Gróa, f. 1981, er tölvunarfræðingur og býr með tveimur börnum sínum í Kópavogi. „Ég hef átt gott líf,“ sagði mágur minn þegar honum var tilkynnt að loknum rannsókn- um að stutt yrði í lífslok. Það er dýrmætt að geta sýnt slíkt æðruleysi. Fyrir það ber að þakka. Þau kynntust fyrst í Kenn- araskólanum fyrir hartnær 60 árum, systir mín Sigurbjörg Guðmundsdóttir og mágur minn Vilberg Alexandersson frá Stykkishólmi. Nánari kynni urðu síðar er þau voru við frekara nám í Kaupmannahöfn. Þau giftu sig fyrir um 50 árum og stofnuð sitt heimili á Akureyri, fæðing- arbæ okkar systra. Hann varð skólastjóri í Gler- árskóla, hún sérkennari lengst af. Eldri dóttir þeirra er sjúkraliði og nuddari í Noregi á mann og þrjú börn, sú yngri er búsett í Kópavogi, tölvunar- fræðingur M.S. og á tvö börn. Á árum áður meðan foreldr- ar okkar lifðu var það fastur siður að fara norður til Akur- eyrar í sumarfrí með piltana okkar tvo og halda austur í Vaglaskóg, heiðin keyrð upp og niður með öllum sínum hlykkj- um að maður tali nú ekki um vegina, holóttir og rykmökkur- inn inni í bíl og úti. Fjölskyld- an, systkinin og barnabörn settust að snæðingi og dregnar voru fram SS pylsur frá Reykjavík sem við komum með, en þær voru ekki til sölu á Ak- ureyri. Þar fengust bara KEA pylsur sem ekki voru sambæri- legar að gæðum. Aðalgrill- meistararnir voru Axel bróðir, sem dó fyrir tveimur árum, og Vilberg. Síðan var farið í fót- bolta á stóra balanum við ána. Þar voru allir með jafnt ungir sem aldnir, þeir voru ekki síðri, sýndu mikil tilþrif og mikið hlegið. Svenni minn kvikmyndaði þetta og er feikigaman að horfa á og bregða sér aftur í tímann. Vilberg, systir mín og dætur fóru til Glasgow til frekara náms og dvöldu þar í eitt ár, við heimsóttum þau þangað, enn fremur fórum við systkinin ásamt mökum til Búdapest í til- efni stórafmælis. Margs er að minnast. Þau hjónin voru sam- stíga og samstillt, studdu hvort annað í blíðu og stríðu. Frá dauðastríði systur minn- ar og andláti hafa verið erfiðir tímar hjá Vilberg og í kjölfar höfuðáverka sem hann hlaut eftir fall, en hann hafði jafn- vægistruflanir, hrakaði heilsu hans. Hann hlakkaði til að fara suður og aðstoða yngri dóttur sína með börnin en ferðin suð- ur í haust varð önnur en ætlað var, enda ráðum við litlu, það er bara einn sem ákveður upp- haf lífs og endi. Elsku frænkur mínar, Sigur- björg Gróa, Þórunn og fjöl- skyldur, aðrir ættingjar og vinir. Samúðarkveðjur til ykkar allra frá okkur Svenna og fjöl- skyldu. Vertu kært kvaddur kæri Vilberg og takk fyrir sam- fylgdina. Þín mágkona, Jónína Guðmundsdóttir (Jonna). Vilberg Alexandersson ✝ Jóhanna Gunn-arsdóttir fædd- ist á Ísafirði 11. ágúst 1922. Hún lést á sambýlinu í Roðasölum í Kópa- vogi 18. janúar 2019. Foreldrar Jó- hönnu voru Gunnar Halldórsson, f. 1898, d. 1964, og Sigrún Benedikts- dóttir, f. 1891, d. 1982. Systkini Jóhönnu eru Halldór Á., f. 1921, d. 1997; Elí, f. 1923, d. 1997; Steinþór M., f. 1925; Veturliði, f. 1926, d. 2004; Guð- bjartur, f. 1928; Benedikt G.V. Gunnarsson, f. 1929, d. 2018; Gunnar Kr., f. 1933. Hálfsyst- kini, sammæðra: Anna S. Vetur- liðadóttir, f. 1911, d. 1980; Helga Veturliðadóttir, f. 1912, d. 1915; Jón Veturliðason, f. 1914, d. 1999; Helga Jóhannes- dóttir, f. 1915, d. 1941. Jóhanna giftist 1947 Torfa Ólafssyni, f. 1919, d. 2014, þau skildu. Jóhanna giftist 1967 Þorgeiri Guðmundssyni, f. 1924, d. 1976. Börn Jóhönnu eru 1) Baldur Hermannsson, f. 1942, faðir sr. Hermann Gunnarsson, f. 1920, d. 1951. Maki Baldurs var Björg Karlsdóttir, f. 1944. Þau skildu. Maki Baldurs er Jóna I. Guð- mundsdóttir, f. 1948. Sonur Baldurs og Bjargar: Hermann hannsson, f. 1949; þau skildu. Börn Önnu og Kristjáns: Jó- hanna Sara, f. 1976, maki Jón Gunnar Guðjónsson, f. 1973, þau skildu. Maki er Björn R. Guð- mundsson, f. 1980. Börn Jó- hönnu og Jóns Gunnars: Elísa- bet Lea, f. 1996, og Aron Bjarni, f. 1999. Dóttir Jóhönnu og Björns: Anna Viktoría, f. 2013. Helga Rakel, f. 1977, maki Jó- hann Þ. Jóhannsson, f. 1967. Sonur þeirra: Magnús Torfi, f. 2011. Alma Rut, f. 1979, maki Arnar Dór Hannesson, f. 1982. Börn þeirra: Arna Rut, f. 2006, og Helgi Snær, f. 2008. 5) Sonur Jóhönnu og Þorgeirs, Flosi, f. 1968, maki Helga L. Bergmann, f. 1967, þau skildu. Börn Flosa og Helgu eru Hörður Gabríel, f. 1992, og Una Geirdís, f. 1994. Jóhanna fæddist á Ísafirði, fluttist á öðru ári til Suðureyrar og árið 1936 flutti fjölskyldan til Akraness og síðan til Reykja- víkur. Jóhanna var nemi í Hús- mæðraskólanum að Staðarfelli 1943-1944, lærði vefnaðarfræði 1948-1949 í Handíða- og mynd- listaskólanum og aftur nokkra vetur um 1964 á kvöldnám- skeiðum. Hún vann við heim- ilisstörf og var jafnframt dag- mamma í áratugi. Sumrin 1954-1962 vann hún á Sjúkra- húsinu í Stykkishómi, vann á Sóheimum í Grímsnesi í nokkur sumur, vann við fatagæslu Þjóð- leikhússins á tíunda áratugnum og bar út Morgunblaðið í Kópa- vogi sér til heilsubótar í ára- raðir. Sálumessa verður sungin í Dómkirkju Krists konungs Landakoti í dag, 1. febrúar 2019, klukkan 13. Baldursson, f. 1973, maki Meralda Jara- millo, f. 1977. Börn þeirra: Gloría Björg, f. 2005, María Ósk, f. 2009, og Baldur Elías, f. 2013. Börn Jóhönnu og Torfa: 2) Ólafur Hermann, f. 1947, d. 2017, maki Signý Pálsdóttir, f. 1950, þau skildu. Maki Ólafs var Þor- gerður Sigurðardóttir, f. 1945, d. 2003. Maki Ólafs var Sigríður Dóra Jóhannsdóttir, f. 1948. Börn Ólafs og Signýjar: Mel- korka Tekla, f. 1970, maki Kristján Þórður Hrafnsson, f. 1968. Dóttir þeirra: Thea Snæ- fríður, f. 2005. Torfi Frans, f. 1975, maki Bryndís Í. Hlöðvers- dóttir, f. 1977, þau skildu. Börn þeirra: Konráð Bjartur, f. 2006, og Árni Ólafur, f. 2010. Guðrún Jóhanna, f. 1977, maki Franc- isco Javier Jáuregui, f. 1974. Börn þeirra: Eva, f. 2008, og Leó, f. 2012. 3) Helgi, f. 1949, maki Ella B. Bjarnarson, f. 1947. Dóttir þeirra: Sunna Birna Helgadóttir, f. 1978, maki Ásmundur Einar Daðason, f. 1982. Börn þeirra: Aðalheiður Ella, f. 2006, Júlía Hlín, f. 2008, og Auður Helga, f. 2015. 4) Anna Guðrún, f. 1954. Maki Gunnar Straumland, f. 1961. Maki Önnu var Kristján Jó- „Mikið afskaplega er nú gaman að hitta fólkið sitt,“ sagði öldruð tengdamóðir mín er við ösluðum nýfallinn jóla- snjóinn og skýldum vitum fyrir skafrenningnum. „Svo er þetta svo vel gert fólk. Það er svo fal- legt fólk að vestan. Þú ert frá Húsavík, er það ekki?“ Þau voru ófá skiptin sem við Jóhanna, tengdamóðir mín, spjölluðum um heima og geima á meðan við fórum í ökuferð. Þá var viðbúið að hún hrósaði og dásamaði allt sem hún sá. Fjöllin, veðrið, vegirnir og meira að segja litirnir í umferð- arljósunum voru alveg dásam- lega fallegir. Hún gaf frá sér endalausa jákvæðni og þakk- læti fyrir gjafir lífsins. Og það sem gladdi hana mest voru yngstu afkomend- urnir. Þegar hún hitti þá ljóm- aði hún. Það var heiðríkja í svip hennar og glettnisblik í augum og hún var jákvæðasta mann- eskja sem ég hef haft þá gæfu að kynnast. Jóhanna var alin upp í myndlistarumhverfi, bræður hennar gengu þá braut og urðu afburða myndlistarmenn. Hún hafði lifandi áhuga á öllu því sem auðgar og örvar hugann og fyllir lífið; myndlist og hand- verki, ljóðum, söng og dansi. Ekki síst dansi. Síðustu æviárin átti hún heima á dvalarheimilinu Roða- sölum í Kópavogi. Þar leið henni vel og þar var hún ham- ingjusöm. Þar dansaði hún vikulega fram á síðasta dag. Minnið hafði sáldrast burtu smám saman en það var alltaf hægt að spjalla um það sem fyrir augu bar og gleðjast með ættingjum og vinum. Starfsfólk Roðasala hefur einstakt lag á að búa heim- ilisfólki þar hlýlega umgjörð, ekki síst með alúðlegri og elskulegri framkomu við roskna íbúana. Þar var Jóhanna hvers manns hugljúfi, sökum já- kvæðni sinnar og þægilegrar nærveru. Sumt fólk heldur áfram að vera hluti af lífi okkar alla tíð, vegna þeirra minninga sem það hefur gefið okkur og þeirra já- kvæðu og uppbyggjandi áhrifa sem það hefur haft á okkur. Slíkt örlæti einkenndi Jó- hönnu Gunnarsdóttur. Gunnar J. Straumland. Jóhanna, tengdamóðir mín, fæddist árið 1922 á Ísafirði, en ólst upp á Suðureyri við Súg- andafjörð og síðan á Akranesi. Hún var sjötta í röðinni af 12 systkinum og var þröngt í búi hjá stórri fjölskyldu eins og al- gengt var á þeim tímum. Þótt Jóhanna hafi byrjað snemma að vinna fyrir sér auðnaðist henni samt að sækja Húsmæðraskól- ann á Staðarfelli veturinn 1943- 44 og það var henni dýrmætt enda minntist hún þess oft hve góðan tíma hún átti þar. Frumburðinn eignaðist hún 1942, þá tvítug að aldri. Á þeim árum var ekki vel séð að vera einstæð móðir og lífið hefur áreiðanlega ekki verið henni auðvelt. Þrátt fyrir ýmis áföll í lífinu guggnaði hún aldrei held- ur tók því sem á bjátaði með þrautseigju og ekki kvartaði hún yfir hlutskipti sínu. Alls eignaðist Jóhanna fimm börn, 10 barnabörn og 16 lang- ömmubörn og voru þau öll henni mjög hugstæð og hún var mjög stolt af afkomendum sín- um. Hún var mjög listræn í sér, en hún var stelpa og fékk því ekki tækifæri til að mennta sig á listasviðinu. Það var greini- legt af vefnaði hennar að hún hafði mjög næmt form- og lita- skyn. Óhætt er að segja að þessi listræni hæfileiki hafi ver- ið sterkur því öll börn hennar hafa erft góða myndlistarhæfi- leika. Ég kynntist Jóhönnu sem af- skaplega vinnusamri og hjálp- samri manneskju, sem var ætíð tilbúin að gauka einhverju að fólki og þá oftast af prjónlesinu sínu. Hún sá fjölskyldunni og fleirum fyrir ullarsokkum, vett- lingum og húfum. Einnig bak- aði hún hveitikökur og flatkök- ur sem voru óviðjafnanlegar og ég held að fjölskyldan sé mér sammála um það. Er við hjónin bjuggum í Liverpool kom Jó- hanna ásamt Flosa, yngsta syni sínum, í heimsókn. Það var mjög ánægjulegt því Jóhanna hafði svo mikinn áhuga á öllu því sem fyrir augun bar. Vinnusemi Jóhönnu var við brugðið og dæmi þess er eitt haustið er hún kom með okkur í sumarhús okkar í Skógskoti. Einn morguninn er við komum á fætur sat hún með kaffibolla við eldhúsborðið og var að hressa sig eftir að hafa tekið upp kartöflur. Hún hafði farið eldsnemma á fætur „því veðrið var svo fallegt“. Við urðum nokkuð hissa þegar í ljós kom að hún var búin að taka upp all- ar kartöflurnar, dágóða upp- skeru. Það var vel af sér vikið. Jóhanna vann í nokkur sum- ur á Sólheimum í Grímsnesi og var mjög gaman að heimsækja hana og finna hve henni leið vel að starfa þar. Auk þess vann hún í mörg ár sem dagmamma og þar að auki vaknaði hún eld- snemma á morgnana og bar út Morgunblaðið sér til heilsubót- ar. Hún vann í mörg ár við fatagæslu í Þjóðleikhúsinu og naut þess að fá tækifæri til að horfa á leiksýningarnar. Jóhanna hafði yndi af að dansa og var svo heppin að á sambýlinu Roðasölum, þar sem hún dvaldist síðustu æviárin, var dansiball vikulega og það var ætíð tilhlökkun að komast í dansinn. Hún var afar þakklát fyrir lífið, fyrir börnin sín, barna- börnin og langömmubörnin sín og einkar þakklát fyrir að hafa eigið herbergi. Með þakklæti og virðingu kveð ég Jóhönnu tengdamóður mína. Blessuð sé minning henn- ar. Ella B. Bjarnarson. Amma Jóhanna var um margt sérstök kona, lifði lífinu og sá heiminn með sínum hætti. Í augum margra var eitthvað dulúðugt við hana. Segja má að hún hafi haft listræna lund eða listamannssál. Bræður hennar voru margir þekktir fyrir list- fengi sitt, og þótt amma hafi ekki lagt listir fyrir sig fengu listrænir þættir í persónuleika hennar meðal annars útrás í hannyrðum, prjónlesi og hekli með óvenjulegum litasamsetn- ingum. Myndlistarhæfileikarnir í ættinni komu fram í börnum hennar, og margir afkomendur hennar eru listafólk sem hefur fengist við ólíkar listgreinar. Amma var jafnframt þekkt spá- kona sem fjöldi fólks leitaði til, og ýmsir höfðu mikla trú á hug- arafli hennar og töldu hana gædda óvenjulegum andlegum eiginleikum. Hún var næm fyr- ir fólki og hafði til að bera sér- stakt mannlegt innsæi. Amma Jóhanna gekk í gegn- um ýmsa erfiðleika og þurfti að þola áföll á ævi sinni. Það segir sig sjálft að það hefur ekki ver- ið einfalt fyrir konu af hennar kynslóð að eignast ung barn ut- an hjónabands, eða skilja svo síðar við eiginmann sinn og enda þannig hjónaband sem hafði getið af sér þrjú börn. Amma varð svo fyrir þeirri sorg að heittelskaður seinni eiginmaður hennar dó af slys- förum frá ungum syni þeirra. Hún glímdi lengi við erfiðan meltingarsjúkdóm. Þrátt fyrir þetta var sú amma Jóhanna sem við barnabörnin þekktum glaðlynd og fjörug, góðviljuð, og alltaf stutt í einhvern grall- araskap. Örlæti ömmu Jóhönnu var einstakt. Hún hafði aldrei háar tekjur, en því sem hún vann sér inn var hún fljót að miðla til annarra. Hún var einstaklega höfðingleg við barnabörnin sín, og sýndi þeim alltaf mikla hlýju. Enda hafði hún ákaflega gaman af börnum. Amma hafði heilmikinn húm- or og það var stutt í hláturinn. Hún tjáði sig stundum í hálf- kveðnum vísum, óræðum setn- ingum, og átti það til að vera ögrandi á sinn kankvísa hátt. Svo hafði hún líka til að bera Jóhanna Gunnarsdóttir Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.        þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar       við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.