Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 27
Björn var virkur í starfi skáta- hreyfingarinnar á yngri árum og starfaði líka með Hjálparsveit skáta. Hann starfaði enn fremur um skeið á vegum Amerísku skátahreyfing- arinnar í New Mexico og á vegum Alþjóðahreyfingar skáta í svissnesku Ölpunum. Hann æfði frjálsar íþrótt- ir með meistaraflokki ÍR um árabil. „Það fór lítið fyrir afrekum mínum á því sviði en ég náði þó eitt sinn að verða Reykjavíkurmeistari í 400 m hlaupi en þann daginn hittist svo á að bestu hlaupararnir voru fjarri góðu gamni!“ Spurður um áhugamál segist Björn Jón lesa mikið: „Ég hef mesta ánægju af lestri íslenskra fræðibóka og ævisagna. Ég reyni líka að lesa alltaf bækur á öðrum málum og hef mikinn áhuga á tungumálum. Mér þótti ómögulegt að hafa ekki lært frönsku í menntaskóla svo ég ákvað að bæta úr því og er núna í frönsku- námi.“ Björn Jón sat á námsárum í stjórn Félags sagnfræðinema og var virkur í starfi Heimdallar og SUS. Hann sat í stjórn Sjálfstæðisfélags Langholtshverfis, Sjálfstæðisfélags- ins í Grafarvogi og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Hann starfaði einnig mikið með Verkalýðsráði Sjálfstæðisflokksins og Verði og stýrði ýmsum námskeiðum á þeirra vegum. Björn var varaborgarfulltrúi um hríð og sat í ýmsum nefndum á vegum Reykjavíkurborgar 2014- 2018. Hann var formaður Frjáls- hyggjufélagsins 2009-2012 og hefur frá árinu 2018 setið í stjórn Stúd- entafélags Reykjavíkur. Björn er enn fremur formaður minjanefndar skáta frá árinu 2009 og vinnur að ritun sögu skátahreyfingarinnar á Íslandi. Björn Jón er framkvæmdastjóri Félags hópferðaleyfishafa frá árinu 2013, en hans aðalstarf frá árinu 2006 hafa verið ritstörf og árin 2015- 2016 ritstýrði hann Reykjavík viku- blaði. Þá kennir hann lögfræði við Verzlunarskóla Íslands og er einn af stjórnendum sjónvarpsþáttarins 21 á Hringbraut. Eftir Björn Jón liggja bækurnar Hafskip í skotlínu (2008), Bylting og hvað svo? (2015), Gjaldeyriseftirlitið. Vald án eftirlits? (2016), The Capital Controls Surveillance Unit. Out of Control? (2017), Maður nýrra tíma. Æviminningar Guðmundar H. Garð- arssonar (2017), Í liði forsætisráð- herrans eða ekki? (2017), og Lög- fræði fyrir verzlunarskólanema (2018). Þá hefur hann ritað fjölda fræðigreina, auk greina í blöð og tímarit. Okkur lék forvitni á því hvort von væri á nýrri bók frá Birni: „Það vill svo skemmtilega til að ég er með bók í prentsmiðjunni sem kemur út síðar í þessum mánuði, en ég hef unnið að henni allt síðasta ár. Ég er stoltur af því að hún er prentuð hér á landi. Því miður má ég ekki segja frá því strax um hvað bókin er, en hún er 544 blaðsíður og nokkuð óvenjuleg.“ Björn hefur verið sæmdur gull- merki Bandalags íslenskra skáta og gullmerki Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Fjölskylda Systkini Björns Jóns eru Magnús Daníel, f. 8.5. 1973, bifreiðarstjóri, Margrét Hanna, f. 25.11. 1980, hjúkrunarfræðingur, og Arna Björt, f. 6.5. 1993, læknakandídat. Öll bú- sett í Reykjavík. Foreldrar Björns Jóns eru Bragi Björnsson, f. 2.2. 1952, bifreið- arstjóri og bókavörður í Reykjavík, og k.h., Katrín Magnúsdóttir, f. 7.7. 1954, bókari í Reykjavík. Úr frændgarði Björns Jóns Bragasonar Björn Jón Bragason Katrín Magnúsdóttir bókari í Rvík Magnús Daníelsson húsgagnasmíðameistari í Rvík, starfaði við sína iðn í Skólastræti í 65 ár Jóhann Daníel Daníelsson verkamaður í Rvík Arnbjörg Sigmundsdóttir húsfreyja í Rvík Guðjóna Guðjóns- dóttir Olsen húsfreyja í Khöfn Rudolph Olsen fjármálastjóri í Venesúela, síðar Khöfn Ólöf Magnúsdóttir tækniteiknari í Rvík Brynja Örlygsdóttir dósent í hjúkrunarfræði við HÍ Þórður Örlygsson reglu- vörður Landsbanka Íslands Katrín Guðnadóttir húsfreyja í Rvík Kristinn Eyjólfsson símamaður í Rvík Margrét Kristinsdóttir húsfreyja í Rvík Sjöfn Björg Kristinsdóttir skrifstofum. í Rvík Kristinn Grétarsson múrarameistari Lárus Grétarsson knattspyrnuþjálfari Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir Álftagerðisbræður Arnfríður Ingibjörg Halldórsdóttir húsfr. í Álftagerði, Skagaf. Sigrún Ólafsdóttir húsfreyja í Álftagerði jarni Halldórsson á Uppsölum, Skagaf.Bgill Bjarnason frkvstj. Búnaðarsambands Skagafjarðar EVilhjálmur Egilsson rektor og fyrrv. alþm. Sigríður Halldórsdóttir húsfreyja á Mannskaðahóli Jóhannes Bjarnason kaupmaður í Rammagerðinni Svanhildur Jóhannes- dóttir kaupmaður í Rammagerðinni Einar Leif Nielsen rithöfundur Gróa Guðnadóttir húsfreyja á Sleggjulæk, síðar á Beitistöðum, Leirársv. Bjarni Guðlaugsson bóndi á Sleggjulæk, Stafholtstungnahr., Mýr. Jóhanna Bjarnadóttir hjúkrunarkona í Rvík Bjarni Björnsson bifreiðarstjóri og bókavörður í Rvík Jóhanna Fríður Bjarnadóttir útibússtjóri hjá Íslandspósti Sólveig Jónsdóttir húsfreyja í Keflavík Sigríður Egilsdóttir húsfreyja í Keflavík Egill Ingvason frkvstj. Rafha Jón Björnsson 1942-1963, stúdent Björn Jónssonverkamaður í Rvík Jón Jónsson bóndi á Mannskaðahóli, Höfðahr., Skagafirði Bragi Björnsson bókavörður og bifreiðarstjóri í Rvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 Ármúla 24 • S. 585 2800 VIENDA borðlampi Valborg Sigurðardóttir fæddist1. febrúar 1922 í Ráðagerði áSeltjarnarnesi en ólst upp á Ásvallagötu 28 í Reykjavík. For- eldrar hennar voru hjónin Ásdís Margrét Þorgrímsdóttir húsfreyja, f. 1883, d. 1969, og Sigurður Þórólfsson skólastjóri, f. 1869, d. 1929. Valborg lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1941. Hún hlaut styrk Menntamálaráðs og stundaði nám í sálfræði við Háskólann í Minnesota 1942-1943 og lauk BA- prófi í uppeldis- og sálarfræði frá Smith College, Massachusetts 1944 og MA-prófi þaðan 1946. Valborg var skólastjóri Fósturskóla Íslands frá stofnun árið 1946 og þar til hún lét af störfum 1985. Þar vann hún sannkallað brautryðjandastarf. Fáar fagmenntaðar fóstrur voru á Íslandi og ekki til nein skilgreining á fóstr- unáminu sjálfu, starfi þeirra né hlut- verki á íslenskum barnaheimilum. Valborg í samstarfi við fleiri lagði mikilvægan skerf í mótun og þróun á faglegu hlutverki fóstrunnar, eða rétt- ara sagt leikskólakennarans, en það starfsheiti er frá Valborgu komið, í nútíma leikskólauppeldi. Valborg var kjörin heiðursdoktor við Kennaraháskóla Íslands 2002 og var heiðursfélagi í Fósturfélagi Ís- lands og Sálfræðingafélagi Íslands. Hún var sæmd riddarakrossi fálka- orðunnar 1972 og stórriddarakrossi 1986. Valborg skrifaði fjölda greina og bóka um uppeldis- og kennslumál. Meðal útgefinna ritverka má nefna Myndsköpun ungra barna, 1989, Leikur og leikuppeldi, 1991. Árið 2005 kom út bók hennar Íslenska menntakonan verður til. Eiginmaður Valborgar var Ár- mann Snævarr, háskólarektor og hæstaréttardómari, f. 18.9. 1919, d. 15.2. 2012. Börn þeirra eru Sigríður sendiherra, Stefán, prófessor í Lille- hammer í Noregi, Sigurður hag- fræðingur, Valborg hæstaréttar- lögmaður og Árni Þorvaldur, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum. Valborg lést 25. nóvember 2012. Merkir Íslendingar Valborg Sigurðardóttir 90 ára Jónína Nielsen 85 ára Gústaf Þór Tryggvason Margrét Þorvaldsdóttir Sæberg Þórðarson 80 ára Bernharð Sigursteinn Haraldsson 75 ára Birgir Vilhjálmsson Guðfinna Björnsdóttir Hjörtur Jóhann Hinriksson Jónas Guðmundsson 70 ára Anna María Jónsdóttir Guðbjörg K. Hjörleifsdóttir Guðrún Halldórsdóttir Helgi Skúli Kjartansson John Pauli Joensen Vilberg Guðmundsson 60 ára Einar Jónsson Einar Þórketill Einarsson Gunnar Pétur Gunnarsson Hallfreður Óttar Símonarson Janusz Cholewinski Lárus Ragnar Einarsson Marta Jónsdóttir Ómar Torfason Sigurdór Már Stefánsson Sigurður Kristinn Pálsson Viðar Benediktsson 50 ára Auður Ásgrímsdóttir Birgir Hrafnkelsson Hersteinn Kristjánsson Hildur Þórsdóttir Inese Jansone Jacek Piotr Szpin Jón Arnar Árnason Józef Szarek Kristín Huld Gunnlaugsdóttir Sigríður Gylfadóttir 40 ára Andrea Karabin Berglind Hallgrímsdóttir Björn Jón Bragason Helga Sigurðardóttir Helgi Már Isaksen Hulda Signý Jóhannesdóttir Ingvar Ingvarsson Íris Dröfn Árnadóttir Kristinn Kristjánsson Nikolay Zhelyazkov Zhivkov Olesya Anna Baldvinsson Ólafur Árni Másson Steinberg Reynisson Sæmundur Þór Hauksson Tómas Rúnarsson Vivien Leigh Antonio Örvar Konráðsson 30 ára Abod György Antonio Arana Lopez Birgir Björn Birgisson Bjarni Benedikt Kristjánsson Daniel Ben-Yehoshua Edyta Anna Ufa Hartmann Bragi Stefánsson Hákon Logi Sigurðarson Höskuldur Bjarnason Ivan Marinov Kalinov Melkorka Rut Bjarnadóttir Mubashar Nazar Sunna María Einarsdóttir Tereza Kocianova Vlatko Gocevski Zoran Plazonic Til hamingju með daginn 40 ára Ólafur er frá Dalbæ í Flóa en býr í Brandshúsum 3. Hann er vélvirki og annar eigenda Vélsmiðju Suðurlands. Maki: Jónína Ósk Ingólfs- dóttir, f. 1979, nemi í op- inberri stjórnsýslu við HÍ. Börn: Árni Már, f. 2000, og stjúpdóttir er Hjördís, f. 1997. Foreldrar: Már Ólafsson, f. 1953, og Jóhanna Sig- ríður Harðardóttir, f. 1955, fv. bændur á Dalbæ. Ólafur Árni Másson 30 ára Birgir er Fá- skrúðsfirðingur og er kranamaður hjá Loðnu- vinnslunni og Krönum ehf. Maki: Eydís Lilja Ólafs- dóttir, f. 1990, skólaliði. Börn: Kristófer Húni, f. 2011, og Sóley Birna, f. 2015. Foreldrar: Birgir Krist- mundsson, f. 1957, krana- maður, og Áslaug Guðný Jóhannsdóttir, f. 1958, bús. á Fáskrúðsfirði. Birgir Björn Birgisson 30 ára Sunna er Reykvík- ingur en býr í Hafnarfirði. Hún er tannlæknir hjá Tannheilsu. Maki: Friðrik Árni Frið- riksson, f. 1989, fjármála- hagfræðingur í Seðla- bankanum. Börn: Elísabet Tanja, f. 2014, og Andrea Röfn, f. 2018. Foreldrar: Einar Sveins- son, f. 1965, og Guðný Elísabet Óladóttir, f. 1968, bús. í Reykjavík. Sunna María Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.