Morgunblaðið - 05.02.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 05.02.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr lífrænni ull og silki Kíktu á netverslun okkar bambus.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Smíði á fjórum togskipum sem Vard- skipasmíðastöðin er að smíða fyrir Gjögur hf. og Skinney-Þinganes í Víetnam hefur gengið vel. Skipin verða sjósett í þessum mánuði og í framhaldinu verða þau sett um borð í flutningaskip og flutt frá Vung Tau, skammt frá Ho Chi Minh-borg, áður Saigon, til Noregs þar sem smíði skipanna verður lokið. Skipin fjögur eru hluti af sjö skipa rað- smíðaverkefni sem íslensk útgerðarfyr- irtæki sömdu um við Vard, sem rekur m.a. skipasmíðastöðvar í Noregi, Rúmeníu og Brasilíu, auk Víetnams. Auk Gjögurs og Skinneyjar-Þinganess er verið að smíða tvö skip fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síld- arvinnslunnar, og eitt fyrir Útgerðarfélag Akureyringa. Síðarnefndu skipin þrjú verða að öllu leyti smíðuð í Noregi, en öll á að af- henda skipin á þessu ári. aij@mbl.is Ljósmynd/Freyr Njálsson Gjögurbræður í Víetnam Skip Gjögurs hf. í skipasmíðastöð Vard skammt frá Ho Chi Minh-borg. Skipin fá nöfnin Vörður og Áskell og hefur FISK Seafood keypt eldri skip með sömu nöfnum. Fjögur skip í flutningaskipi frá Víetnam til Noregs Guðni Einarsson gudni@mbl.is Stefnt er að því að auka varmafram- leiðslu Hellisheiðarvirkjunar úr rúm- lega 130 megavöttum (MW) af varmaorku í 200 MW næsta haust. Varmastöðin verður stækkuð og gerðar ákveðnar breytingar á vinnsluferlum þar. Ekki er útlit fyrir, að svo stöddu, að grípa þurfi til tak- markana á notkun heits vatns á höf- uðborgarsvæðinu næstu daga, að sögn Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Veitna. Til eru holur á Hellisheiði sem eru vökvamiklar og henta því síður til raf- orkuframleiðslu þar sem sóst er eftir gufuafli. Hægt er að tengja þessar holur inn á varmaskiptana sem fram- leiða hitaveituvatnið. Vatnið sem sent er upphitað til neytenda frá Hellis- heiðarvirkjun er sótt í Engidal vestan undir Henglinum. Varmaframleiðsla Hellisheiðarvirkjunar hófst árið 2010. Samkvæmt upphaflegum ráðagerð- um var gert ráð fyrir því að varma- framleiðslugeta Hellisheiðarvirkjun- ar gæti orðið allt að 400 MW. Ekki stækkað á Nesjavöllum Nesjavallavirkjun var tekin í notk- un 1990. Þar er raforkuframleiðsla auk þess sem ferskt vatn úr Þing- vallavatni er hitað upp og sent til höf- uðborgarsvæðisins. Framleiðslugeta Nesjavallavirkjunar á heitu vatni jafngildir 300 MW í varmaorku. Ekki eru áform um stækkun hennar. Framleiðslugeta Hellisheiðarvirkjun- ar og Nesjavallavirkjunar er saman- lagt ríflega helmingur af framleiðslu- getu hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt upplýsingum frá Veitum. Heita vatnið frá Hellisheiðarvirkj- un og Nesjavallavirkjun er upphitað grunnvatn og inniheldur ekki jafn mikið af efnum og hitaveituvatnið sem kemur frá lághitasvæðum í Mos- fellsbæ og í Reykjavík. Mest er af kísli í heita vatninu sem kemur úr borholum Veitna á Laugarnesi sem er heitasta lághitasvæðið. Morgunblaðið/Hari Hellisheiðarvirkjun Varmastöðin verður stækkuð og gerðar ákveðnar breytingar á vinnsluferlum þar næsta haust. Meira heitt vatn af Hellisheiði í haust  Varmaframleiðsla Hellisheiðarvirkjunar aukin í 200 MW Arnarlax og Arctic Fish hafa kynnt viðbót við frummatsskýrslu vegna umhverfisáhrifa aukningar laxeldis í sjókvíum í Patreksfirði og Tálkna- firði. Skýrslunni er ætlað að bæta úr þeim annmörkum sem úrskurðar- nefnd umhverfis- og auðlindamála taldi vera á umhverfismati fram- kvæmdarinnar. Varð það til þess að rekstrar- og starfsleyfi fyrirtækj- anna voru felld úr gildi. Fyrirtækin fengu rekstrar- og starfsleyfi til bráðabirgða hjá við- komandi ráðuneytum í vetur, eftir að lögum var breytt í kjölfar úrskurðar. Úrskurðarnefndin taldi að ekki hefði verið gerð nægilega góð grein fyrir öðrum kostum en þeim sem fyr- irtækin völdu. Í viðbótarskýrslunni er staðsetningu kvía breytt, með til- liti til nýrrar tækni og þekkingar og til að draga úr neikvæðum áhrifum laxeldisins. Þeir kostir sem úrskurð- arnefndin nefndi sérstaklega, svo sem eldi á ófrjóum laxi og notkun lokaðra kvía, eru ekki taldir tækni- lega mögulegir og samrýmast ekki markmiðum framkvæmdarinnar. Loks er gerð grein fyrir svokölluð- um núllkosti, það er að segja hvaða áhrif það hefði ef ekki yrði framhald á eldi í þessum fjörðum. Umhverfisvænasta aðferðin „Það er engin umhverfisvænni að- ferð til fiskeldis en eldi í hefðbundn- um sjókvíum. Þar er laxinn næst sínu náttúrulega umhverfi, þéttleiki minnstur og ekkert rafmagn notað til dælingar,“ segir Sigurður Péturs- son, framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish. „Engin önnur aðferð fullnægir þeim ströngu umhverfisstöðlum sem við vinnum eftir.“ Hægt er að gera athugasemdir við skýrsluna til 19. mars nk. helgi@mbl.is Bæta úr ágöllum á umhverfismati  Nýtt mat á laxeldi í Patreksfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.