Morgunblaðið - 05.02.2019, Side 4

Morgunblaðið - 05.02.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Stólar Erum á facebook Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Ami Grace Manning Elton Cato Highrock Sierra Kelsey Veður víða um heim 4.2., kl. 18.00 Reykjavík -1 skýjað Hólar í Dýrafirði -2 skýjað Akureyri -6 léttskýjað Egilsstaðir -6 alskýjað Vatnsskarðshólar 2 skýjað Nuuk -10 léttskýjað Þórshöfn 3 heiðskírt Ósló -6 alskýjað Kaupmannahöfn 1 alskýjað Stokkhólmur -7 léttskýjað Helsinki -4 léttskýjað Lúxemborg 0 skýjað Brussel 2 rigning Dublin 8 heiðskírt Glasgow 4 léttskýjað London 7 rigning París 2 rigning Amsterdam 1 rigning Hamborg 2 skýjað Berlín 2 léttskýjað Vín 1 léttskýjað Moskva 1 rigning Algarve 15 heiðskírt Madríd 9 heiðskírt Barcelona 10 heiðskírt Mallorca 12 heiðskírt Róm 10 léttskýjað Aþena 15 alskýjað Winnipeg -21 alskýjað Montreal -5 alskýjað New York 3 heiðskírt Chicago 4 rigning  5. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:56 17:28 ÍSAFJÖRÐUR 10:16 17:18 SIGLUFJÖRÐUR 9:59 17:01 DJÚPIVOGUR 9:30 16:54 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Norðaustan 13-20 m/s. Snjókoma og síðar él norðan- og austanlands, en úrkomulítið á SV- og V-landi. Hiti 0 til 4 stig syðst, annars 0 til 5 stiga frost. Hvessir enn frekar þegar kemur fram á daginn, 18-28 m/s seinnipartinn og hvassast við fjöll S- til. Slydda eða rigning allra syðst á landinu en dálítil slydda eða snjókoma A-lands. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Herkastalinn er aftur til sölu eftir að hafa verið keyptur af Hjálpræðis- hernum fyrir nokkrum árum. Hús- eignin, Kirkjustræti 2, er nú í eigu sjóðs sem er í rekstri hjá Gamma. Valdimar Ármann, forstjóri Gamma, segir eignina bjóða upp á margvíslega möguleika. Herkastal- inn sé án efa eitt helsta kennileiti borgarinnar og sé mjög vel staðsett- ur m.t.t. samgangna og auðvelt að sjá fyrir sér að hann geti hýst ýmiss konar starfsemi. „Þetta er fallegt hús á frábærum stað sem hentar undir margvíslega starfsemi. Í húsinu hefur verið rekin gisting í yfir 100 ár og því liggur beinast við að húsið hýsi einhvers konar gistirekstur. Jafnframt væri mögulegt að nota húsið undir skrif- stofur og til dæmis setja upp skrif- stofuhótel,“ segir Valdimar. Valdimar kveðst aðspurður frem- ur sjá fyrir sér atvinnurekstur í hús- inu en að því verði breytt í íbúðar- húsnæði. Húsið sé við hlið fyrir- hugaðrar skrifstofubyggingar Alþingis og geti hentað undir opin- berar stofnanir. Kaflaskil skapa tækifæri Spurður um tímasetningu sölunn- ar bendir Valdimar á fjárfestingar- markmið sjóðsins. Málið snúist fremur um þau en ytri aðstæður í hagkerfinu. „Hins vegar eru tækifæri að skap- ast fyrir kaupendur. Hægt hefur á ferðaþjónustu. Við erum í vissum kaflaskilum varðandi framhaldið í greininni. Ég hygg að flestir séu sammála um að áfram sé bjart yfir ferðaþjónustunni. Slakinn sem er að myndast gefur mönnum tækifæri til að horfa til framtíðar, taka stöðuna og endurmeta hvernig sumir hlutir eru gerðir,“ segir Valdimar. Nú sé tækifæri til að vinna hlutina vel og vandlega og undirbúa til langrar framtíðar. „Þá út frá hóg- værum væntingum um fjölgun ferða- manna,“ segir Valdimar. Fram kom í Morgunblaðinu í febrúar 2016 að Pálmar Harðarson, fjárfestir hjá Þingvangi, hefði keypt húsið í félagi við ísraelska fjárfestinn Orit Feldman-Dahlgren, sem seldi lúxusferðir til Norðurlanda. Kaup- verðið væri 630 milljónir. Pálmar kvaðst aðspurður hafa selt sig út úr verkefninu. Margt hefði breyst á hótelmarkaði síðan verkefn- ið var í undirbúningi. Húsið var byggt 1916 og er 1.405 fermetrar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hús Hjálpræðishersins Húsið Kirkjustræti 2 var byggt 1916. Það er skráð sem gistiheimili í þjóðskrá. Leyfi er fyrir 133 gesti í húsinu. Selja Herkastalann  Sögufrægt hús aftur til sölu  Fjárfestar hættu við hótel  Fulltrúi seljanda segir mörg tækifæri bíða kaupenda Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ríkisstjórnin þarf að stíga þarna inn af alvöru og þunga og skapa rými fyrir fyrirtækin til að gera þetta. Það þarf að skapa ákveðinn grunn,“ segir Guðrún Hafsteins- dóttir, formaður Samtaka iðnaðar- ins. Fern heildarsamtök í atvinnulíf- inu, aðallega samtök matvælaframleiðenda, hafa samein- ast um áherslur í matvælastefnu fyrir Ísland og kynntu forsætisráð- herra og þremur öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar hugmyndir sínar í gær. Samtök iðnaðarins, Samtök fyr- irtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar og Bændasam- tök Íslands hafa unnið saman að þessu verkefni. Vekja þau athygli á því að mikil tækifæri blasa við ís- lenskri matvælaframleiðslu á næstu árum og áratugum. Stefnumótun stjórnvalda þurfi að endurspegla þessi tækifæri og gera fyrirtækjum í matvælaframleiðslu kleift að nýta þau þjóðinni til heilla, stendur þar. Undirstrika mikilvægið „Við ákváðum að athuga hvort við gætum sameinast um áherslur á þessi sviði. Það tókst. Við viljum lyfta undir og undirstrika að okkur finnst þetta þýðingarmikið,“ segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmda- stjóri Bændasamtaka Íslands. Hann vekur athygli á því að matvælafram- leiðslan sé á starfssviði margra ráðuneyta. Nefnir að nú sé starfandi verkefnisstjórn á vegum sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra um þetta efni. Guðrún Hafsteinsdóttir segir að samtökin eigi sameiginlega snerti- fleti; sjálfbærni, öryggi og heilnæmi og verðmætasköpun. Þeir þurfi að rýma hver við annan. Hún segir að verkefnið hafi verið kynnt Samtök- um verslunar og þjónustu og telur hugsanlegt að þau komi síðar að þessari vinnu eða fulltrúar neyt- enda. Áhersla á gæði „Íslenskir matvælaframleiðendur stefna að því að verða framúrskar- andi á heimsvísu með sérstakri áherslu á sjálfbærni, umhverfis- vernd, hreinleika, rekjanleika og ör- yggi,“ segir í sameiginlegri stefnu samtakanna. Gæðakerfi og innra eftirlit mat- vælafyrirtækja, jafnt innlendra framleiðenda sem innflutningsfyrir- tækja, þurfa að sýna fram á að þau starfi í samræmi við þessar áherslur. Lögð er áhersla á að inn- flutt matvæli þurfi að uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til innlendra matvælaframleiðslufyrirtækja. „Íslensk stjórnvöld munu styðja við framgang þessara stefnumiða og sjá til þess að íslenskir neytendur og gestir sem sækja landið heim hafi ávallt aðgang að fjölbreyttum og heilnæmum úrvalsmatvælum,“ segir einnig í tillögum samtakanna að matvælastefnu. Telja samtökin að þessi stefna geti mætt þeim áskor- unum sem íslensk matvælafram- leiðsla hefur búið við að undanförnu. Vilja lyfta undir matvælaframleiðslu  Samtök á ýmsum sviðum matvælaframleiðslu kynna forsætisráðherra sjónarmið sín við mótun mat- vælastefnu fyrir Ísland  Stefnumótun stjórnvalda þurfi að gera fyrirtækjunum kleift að nýta tækifærin Guðrún Hafsteinsdóttir Sigurður Eyþórsson Dýrafjarðargöng lengdust um 111 metra í síðustu viku. Það er það lengsta sem gangamenn hafa komist á einni viku. Vegalengdin er með því besta sem gerist, jafnvel Íslandsmet að mati framkvæmdaeftirlits Dýra- fjarðarganga. Verktakarnir Metrostav a.s. og Suðurverk hf. grafa þessa mánuðina úr Dýrafirði. Í lok síðustu viku var lengd ganganna þeim megin orðin tæpir 797 metrar og samanlögð lengd ganganna 4.454 metrar. Eru þá aðeins eftir 847 metrar sem eru 16% af heildarlengd ganganna. Framundan er næstsíðasta út- skotið og verður því ekki slegið neitt met í þessari viku. Framkvæmdaeft- irlitið útilokar þó ekki að ný met verði sett á komandi vikum, eftir að útskotsvinnu lýkur. Stytting um 27 kílómetra Dýrafjarðargöng liggja á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar á Vest- fjörðum, frá Mjólkárvirkjun í Arnar- firði að Dýrafjarðarbrú. Göngin eru um 5,6 km löng en auk þess þarf að leggja um 8 kílómetra af nýjum vegi. Þegar göngin verða tekin í notkun styttist Vestfjarðavegur, á milli suð- ur- og norðurhluta Vestfjarða um 27 kílómetra. Þá þarf ekki lengur að fara yfir gamlan og brattan veg um Hrafnseyrarheiði sem er lokaður yf- ir háveturinn. helgi@mbl.is Met sett við gröft í Dýrafirði  Aðeins 847 metrar að gegnumslætti Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dýrafjarðargöng Vel gengur hjá gangamönnum þessar vikurnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.