Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18
Fjölskyldufyrirtæki
frá 1953
Þú kemur með
fjórar flíkur en
greiðir fyrir þrjár
(ódýrasta flíkin frítt)
4 3fyrir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Áfram eru merki um innstreymi
kviku og þenslu á nokkurra kíló-
metra dýpi undir Öræfajökli. Fjallið
heldur áfram að tútna út um nokkra
sentímetra ári. Við fylgjumst því
áfram grannt með fjallinu og teljum
brýna ástæðu til. Almennt sagt er þó
heldur rórra við jökulinn en verið
hefur lengi, segir Kristín Jónsdóttir,
jarðeðlisfræðingur og hópstjóri nátt-
úruvárvöktunar á Veðurstofu Ís-
lands.
Áfram mælist óróleiki í Öræfajökli
og reglulega koma skjálftar sem ná
allt að þremur stigum að styrk. Jarð-
skjálftavirknin er sambærileg núna
og hún var áður en hún fór að aukast
verulega árið 2017. Raunar hefur
síðastliðna þrjá mánuði dregið veru-
lega úr bæði fjölda og stærð skjálfta.
Aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku
kom þó skjálfti sem átti upptök sín
rétt norðan við Hvannadalshnjúk og
mældist hann 2,6 að styrk.
Síðasti skjálfti 2,6 að styrk
Veðurstofan er í rannsóknarsam-
vinnu við vísindamenn við háskólann
í Uppsölum í Svíþjóð, varðandi innri
gerð Öræfajökuls. Fyrstu nið-
urstöður í rannsóknum gefa til
kynna að frávik í jarðskjálftabylgju-
hraða sé í berginu á um 4 til 8 km
dýpi undir miðju eldfjallinu. „Þetta
frávik getur verið vísbending um
kvikuhólf á þessum stað. Þá sýnir
greining á vatnssýnum úr þremur
jökulám umhverfis eldfjallið, það er
Kvíá, Virkisá og Kotá, engar breyt-
ingar í efnasamsetningu síðastliðna
mánuði, sem staðfestir að ekkert
jarðhitavatn mælist í ánum. Þetta
svo helst í hendur við að sigketillinn í
miðri öskjunni hefur grynnkað síðan
snemma í byrjun 2018 sem er til
marks um að dregið hafi úr afli jarð-
hita undir honum,“ segir Kristín.
Áfram á óvissustigi
„Við höfum Öræfajökul áfram á
óvissustigi og fylgjumst með fram-
vindunni,“ segir Björn Ingi Jónsson,
verkefnisstjóri almannavarna hjá
lögreglustjóranum á Suðurlandi.
Fundað var á dögunum um stöðu
mála með sveitarstjórnarmönnum á
Hornafirði svo og vettvangsstjórn
almannavarna en hana skipa fulltrú-
ar þeirra sem bjargir veita til dæmis
í náttúruhamförum.
Ljósmynd/Ingimar Eydal
Flugsýn Öræfajökull í allri sinni dýrð blasti við farþegum sem komu með Icelandair frá Stokkhólmi á dögunum. Á sléttum fleti á hábungu jökulsins sést móta fyrir sigkötlunum.
Áfram mælist óróleiki í Öræfajökli
Kvikuinnstreymi og fjallið heldur áfram að tútna út Verulega dregur úr fjölda og stærð skjálfta
Kristín
Jónsdóttir
Björn Ingi
Jónsson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Það er vaxandi óróleiki í verkalýðs-
hreyfingunni vegna þess hversu hægt
miðar í kjaraviðræðunum á almenna
markaðinum. Þrátt fyrir tíð fundar-
höld um afmörkuð mál er enn ekki
farið að takast að ráði á um stærstu
úrlausnarefnin.
Ágreiningur er að koma upp á yfir-
borðið innan verkalýðshreyfingarinn-
ar um þær ólíku hugmyndir sem
ræddar hafa verið um styttingu
vinnuvikunnar og tillögur Samtaka
atvinnulífsins um meiri sveigjanleika
vinnutímans. Stéttarfélögin fjögur
sem hafa vísað kjaradeilunni til ríkis-
sáttasemjara og Framsýn á Húsavík
hafa með öllu hafnað hugmyndum SA
um breytingar á vinnutíma og að
lækka yfirvinnuálag úr 80% í 66%.
Gagnrýna þau félaga sína í Starfs-
greinasambandinu og iðnaðarmanna-
félögin fyrir að ljá máls á að skoða
þær hugmyndir áfram. Einn reyndur
samningamaður sagði í gær að það
myndi valda mikilli ólgu ef hluti
verkalýðshreyfingarinnar semdi um
svo róttækar breytingar fyrir sína fé-
lagsmenn og ólíkar reglur giltu fram-
vegis um vinnutímann eftir félögum.
Félögin þrjú í SGS sem vísuðu
kjaradeilunni til ríkissáttasemjara og
eru algerlega andvíg þessum hug-
myndum eru með meirihluta launa-
fólks í SGS að baki sér. Þau 16 félög í
SGS sem ekki hafa vísað deilunni til
sáttasemjara koma saman á fimmtu-
daginn til að fara yfir stöðuna.
Búið að gefa SA of mikið rými
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir að
stór hluti af viðræðunum hafi farið í
að ræða hugmyndir SA sem lúta að
breytingum á vinnustundafjölda o.fl.
,,Það má segja að það sé búið að gefa
Samtökum atvinnulífsins allt of mikið
rými í að ræða sínar hugmyndir. Þar
af leiðandi held ég að sé komið að því
að ræða núna okkar hugmyndir og
kröfugerð,“ segir Vilhjálmur. Hann
staðfestir að hugmyndir SA gangi
m.a. út á lækkun yfirvinnuálagspró-
sentunnar í 66% auk þess að fela í sér
lengingu dagvinnutímabilsins og að
kaupa kaffitímana af launafólki. ,,Við
erum búin að hafna öllum þessum til-
lögum,“ segir hann. Spurður hvort
hluti verkalýðshreyfingarinnar sé að
stefna í aðra átt en önnur félög í þessu
máli segir hann margt benda til þess
að það séu skiptar skoðanir.
Yfirmarkmið að stytta vinnuvik-
una og semja um góð laun
Í umfjöllun á vefsíðu Samiðnar
kemur fram að það verkefni að stytta
vinnuvikuna án skerðingar á launum
og gera samhliða ráðstafnir til að
tekjur fyrir dagvinnu dugi til góðrar
afkomu kalli á mikla yfirlegu og vand-
aðar útfærslur. ,,Við erum að vinna
með það yfirmarkmið að stytta vinnu-
vikuna og semja um góð laun. Til að
dregið verði úr yfirvinnu verður fólk
að vera sæmilega sátt við það sem það
ber úr býtum fyrir dagvinnuna. Það
er löng hefð á íslenskum vinnumark-
aði að vinna yfirvinnu og því þarf að
breyta. Það er hins vegar ljóst að við
breytum ekki gömlum hefðum á ein-
um degi en það er sameiginlegur vilji
til að hefja vegferðina að þessu mark-
miði,“ segir þar.
Í dag eru ráðgerðir samningafund-
ir m.a. á milli SGS og SA vegna starfs-
fólks í ferðaþjónustu og á morgun er
boðað til sáttafundar í Karphúsinu.
Leiðir skilur í viðræð-
um um vinnutímann
Segjast hafna lækkun yfirvinnuálags úr 80% í 66%
Morgunblaðið/Hari
Kjaramál Samningamenn á fundi.
Tvö íslensk uppsjávarskip, Jón
Kjartansson SU 111 frá Eskifirði og
Hoffell SU 80 frá Fáskrúðsfirði
leita nú fyrir sér á kolmunnaslóð á
alþjóðlegu hafsvæði vestur af Ír-
landi. Aðalsteinn Jónsson SU 11, er
á leið á miðin og fjórða skip Eskju,
Jón Kjartansson SU 311, leggur
væntanlega úr höfn um miðja vik-
una.
Fleiri munu vera að íhuga kol-
munnaveiðar meðan frétta er beðið
af loðnuleit fyrir norðan land.
Leita að kolmunna
meðan loðnu er beðið
Gera á listaverkaeign Listasafns
Reykjavíkur sýnilegri í skólum
borgarinnar í þeim tilgangi að efla
áhuga nemenda á menningu og list-
um, samkvæmt tillögu Mörtu Guð-
jónsdóttur borgarfulltrúa sem lögð
verður fram í borgarstjórn í dag.
Eins leggur Marta til að verk Lista-
safns Reykjavíkur verði sýnilegri í
öðrum stofnunum borgarinnar í
þeim tilgangi að sem flestir geti
notið þeirra fjölda verka sem eru í
eigu borgarinnar.
Listaverkaeign verði
gerð sýnilegri