Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 8

Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 SAMSTARFSAÐILI Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVAR SEM ÞÚ ERT Ekki er langt síðan fróðleiks-maður um fjármál og hagvís- indi sagði shitcoin vera réttnefnið á frægri rafmynt. Sumir móðg- uðust, en aðrir sögðu uppnefni í grófari kantinum ekki gagnast um- ræðunni. En rit- stjórn Viðskipta- blaðsins segir þessa smásögu úr veröld rafmyntar:    Kanadísk raf-myntakauphöll, sem skuldar viðskiptavinum sínum 190 milljón Bandaríkjadali, tæpa 23 milljarða króna, hefur ekki aðgang að meiri- hluta fjárins – sem geymdur er í formi rafmyntar sem ekki er hægt að nálgast gegnum netið (e. cold storage) – eftir að stofnandinn og framkvæmdastjórinn lést í desem- ber.    Ekkja stofnanda QuadrigaCX,Jennifer Robertson, hefur í kjölfarið sótt um greiðslustöðvun, og unnið er að því að endurheimta aðgang að fjármununum, en að minnsta kosti hluti þeirra var geymdur á dulkóðaðri fartölvu stofnandans, Geralds Cotten. Ro- bertson segir Cotten hafa séð al- farið um meðferð fjármunanna – sem samanstanda af Bandaríkja- dölum, fjórum tegundum bitcoin og rafmyntunum litecoin og ether- eum.    Virði rafmyntanna sem ekkinæst í er tæpar 150 milljónir dala, eða tæpir 18 milljarðar ís- lenskra króna. Robertson sagði einnig frá því að hún hefði engin skjöl tengd rekstr- inum í höndunum.“    Á Íslandi er stundum deilt umtilveru álfa. Um hana þarf ekki að deila. Álfar eru til svo lengi sem einn eða fleiri trúa því. Það segir bitcoin-lögmálið. Álfar eru til og þeir trúa á bitcoin STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Súlan er byrjuð að hreiðra um sig í Eldey en á klettadranginum undan Reykjanesi er stórt súluvarp. Myndavélar eru í eyjunni og er hægt að fylgjast með á eldey.is. Sigurður Harðarson sem sér um búnaðinn segir að atburðarásin hafi verið hröð í fyrradag, á sunnudag. Um klukkan tíu um morguninn hafi verið farinn að sjást fjöldi fugla á flugi umhverfis eyjuna. Hann var með stöðuga upptöku fram yfir miðj- an dag. Um klukkan 11 var kominn fjöldi fugla fremst á brúnina. Í há- deginu fjölgaði fuglinum hratt innar á eyjunni, fyrir framan myndavélina. Fljótlega hafi nokkrar súlur farið að slást um yfirráð yfir þúfum fyrir hreiður og þannig hafi það einnig verið í gærmorgun. Hreiðrin standa þétt og súluparið ver hreiður sitt af hörku svo ná- grannarnir nái ekki að ræna hreið- urefni. Súlubyggðin er langt frá því að vera kyrrlátur staður og allan daginn hljómar urr og krunk. Sigurður segir að lifandi mynd sé á heimasíðunni á milli kl. 14.40 og 15.40 þessa dagana og svo sé upp- takan spiluð fram að næstu upptöku, á sama tíma daginn eftir. Á varptím- anum er enn meira um að vera og þá verður beina útsendingin lengd um miðjan daginn. helgi@mbl.is Hröð atburðarás hjá súlunni í Eldey  Fuglinn þyrptist að á einum degi  Hægt að fylgjast með baráttunni Ljósmynd/Eldey.is Eldey Súlan er að setjast upp á klettadranginn þessa dagana. Kærunefnd útboðsmála hefur stöðv- að um stundarsakir útboð Garða- bæjar á uppbyggingu og rekstri, fjármögnun og byggingu aðstöðu til líkamsræktar í og við íþrótta- miðstöðina í Ásgarði í Garðabæ. Sporthöllin ehf. kærði útboðið og krafðist þess að kæruefndin felldi úr gildi ákvörðun Garðabæjar um að meta tilboð Sporthallarinnar ógilt og ganga til samninga við Laugar ehf. Að loknu forvali vegna verkefn- isins voru þrír umsækjendur metnir hæfir til þess að taka þátt í hug- myndavinnu vegna þess, þ.á m. Sporthöllin og Laugar, sem var síð- an að því loknu gefinn kostur á að taka þátt í næsta þrepi útboðsins og setja fram endanlegt tilboð. Í októ- ber tilkynnti Garðabær Sporthöll- inni að tilboð hennar teldist ógilt og var ákveðið að leita samninga við Laugar. Var ekki auglýst á EES Sporthöllin taldi ákvörðunina að meta tilboð þess ógilt ólögmæta. Í niðurstöðu kærunefndarinnar kemur fram að bæjarfélagið hafi stefnt að gerð sérleyfissamnings um rekstur og byggingu stöðvarinnar og um hann gildi ákvæði laga um op- inber innkaup og reglur um viðmið- unarfjárhæðir Evrópska efnahags- svæðisins. Leggja verði til grundvallar að verðmæti þessa fyr- irhugaða sérleyfis sé yfir tilgreindri viðmiðunarfjárhæð og því hafi borið skylda til að tilkynna um veitingu þess með opinberum hætti á EES. Útboðið hafi ekki verið auglýst á EES og því séu komnar fram veru- legar líkur á að reglur um opinber innkaup hafi verið brotin. Hefur út- boðið því verið stöðvað um stund- arsakir eins og áður segir. Kærunefnd stöðvar útboð í Garðabæ  Sporthöllin kærði útboð íþróttamið- stöðvar við Ásgarð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Garðabær Auglýst var eftir um- sóknum í opnu útboðsferli 2017.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.