Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Heimasíða var opnuð í gær þar sem
sagðar eru 23 sögur af meintum kyn-
ferðisbrotum og áreitni Jóns Baldvins
Hannibalssonar, fyrrverandi ráð-
herra, í garð kvenna og barna. Elsta
sagan er frá árinu 1962 og sú yngsta
frá árinu 2018. Sögunum var safnað
saman á Facebook-síðu og er að finna
á síðunni metoo-jonbaldvin.blog.is.
Sögurnar eru nafnlausar en í yfir-
lýsingu á heimasíðunni segir að nöfn
þeirra sem sögurnar segja skipti ekki
máli heldur Jón Baldvin sem gerandi.
„Umræðan á að snúast um hann,
brot hans og afleiðingar þeirra. Það er
kominn tími til að Jón Baldvin taki af-
leiðingum gerða sinna.“
Nokkrar af sögunum hafa verið
sagðar í fjölmiðlum að undanförnu en
Jón Baldvin hefur vísað þeim á bug.
Fram kemur á heimasíðunni að þær
sem segja frá eru meðal annars mág-
kona Jóns, elsta dóttir hans, tvær
systurdætur eiginkonu hans sem
segja frá atvikum þegar þær voru 10
ára, fyrrverandi nemendur Jóns í
Hagaskóla og Menntaskólanum á Ísa-
firði, fyrrverandi samstarfskona hans
í Alþýðuflokknum, starfskonur á bör-
um og hótelum og dóttir fyrrverandi
sendiherra Íslands í London, sem var
14 ára árið 1991 þegar þeir atburðir
gerðust sem hún segir frá. Mbl.is
ræddi í gær við konuna um frásögn
hennar sem hún staðfesti að væri
hennar.
Í yfirlýsingu á heimasíðunni segjast
konurnar, sem þar segja sögur sínar,
vera stoltar af því að stíga þetta skref
sem þær vissu að
yrði hvorki auð-
velt né sársauka-
laust en það sé
styrkur að gera
það sem hópur.
„Við viljum gera
þær opinberar í
anda þeirrar
bylgju sem farið
hefur yfir heiminn
og sameinar konur
þegar þær segja: Ég líka – Me too!
Við viljum að það samfélag sem hefur
litið undan þrátt fyrir að kynferðis-
brot hans hafi verið gerð opinber geti
nú lesið þær reynslusögur sem eru
okkar sannleikur. Þannig viljum við
frelsa okkur frá þeirri þjáningu sem
samskipti við hann hafa valdið okkur í
áratugi. Við erum frelsinu fegnar.“
Ingibjörg fundaði með Jóni
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr-
verandi formaður Samfylkingarinn-
ar, greindi frá því í áðurnefndum Fa-
cebookhóp í gær að hún hafi árið 2007
heyrt af bréfaskriftum Jóns Baldvins
við systurdóttur eiginkonu hans. Hún
kveðst hafa boðað Jón Baldvin á sinn
fund þegar hún hafði spurnir af því að
honum hafi verið boðið sæti á lista
Samfylkingarinnar síðar sama ár.
Hafi Ingibjörg greint Jóni Baldvin frá
vitneskju sinni og óskað eftir því að
hann drægi sig af framboðslistanum.
Samkvæmt frásögninni brást Jón
Baldvin ókvæða við en lét taka sig af
lista Samfylkingarinnar.
Deila sögum af
Jóni Baldvini
Ingibjörg Sólrún vissi af bréfum 2007
Jón Baldvin
Hannibalsson
fólk afgreiðir sig sjálft. Hefðbundnir
afgreiðslukassar, þar sem starfs-
maður stendur vaktina, verða aðeins
tveir. Slíkar afgreiðslulausnir eru
komnar nú þegar í nokkrar búðir
Krónunnar og víðar.
Stefna á opnun
fleiri nýrra verslana
„Sjálfsafgreiðsla er framtíðin og
það sem viðskiptavinir kalla eftir
Ný verslun Krónunnar í Skeifunni
11d í Reykjavík, sú 20. sem fyrir-
tækið starfrækir, verður opnuð á
fimmtudaginn. Hún er í rými þar
sem áður var verslun Víðis, en starf-
semi þeirrar keðju var hætt síðasta
sumar. Eftirtekt vekur að nú verða
keppinautar undir sama þaki, en í
Skeifunni 11a er verslun Bónuss í
nýju húsi sem var reist á reitnum
þar sem voru þvottahúsið Fönn og
verslun Griffils; hús sem eyðilögðust
í eldsvoða sumarið 2014. Lágverðs-
verslanirnar snúa hvor á móti ann-
arri; framhlið Krónubúðarinnar veit
til austurs en Bónus til vesturs. Frá
þessum stað er svo ekki langt í Hag-
kaup í Skeifunni og Iceland í
Glæsibæ.
Ferskvaran fær mikið rými
„Við höfum haft áhuga á að vera
með búð í eða við Skeifuna og loks-
ins fengum við húsnæði sem hentaði.
Stundum getur líka verið öllum til
hagsbóta þegar fyrirtæki sem eru í
samkeppni eru á svipuðum slóðum,“
segir Gréta María Grétarsdóttir,
framkvæmdastjóri Krónunnar, í
samtali við Morgunblaðið. Verslunin
nýja verður 580 fermetrar að flat-
armáli. Í framboði verður lögð
áhersla á ferskmeti, svo sem kjöt,
grænmeti og ávexti. „Ferskvaran
fær hlutfallslega meira pláss í Skeif-
unni en í öðrum verslunum okkar
hingað til,“ segir Gréta.
Í Skeifubúðinni nýju verða alls
sex sjálfsafgreiðslukassar, þar sem
enda geta þeir með þessu verið fljót-
ari í gegnum verslunina og snöggir
að ljúka sínum innkaupum þar,“ seg-
ir Gréta María.
Krónan stefnir á opnun þriggja
nýrra verslana í næstu framtíð. Í
fyrsta lagi búð í Norðlingaholti í
Reykjavík og í undirbúningi er að
opna verslanir Krónunnar við Norð-
urhellu í Hafnarfirði og svo norður á
Akureyri.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Krónufólk Gunnar Þór Einarsson verslunarstjóri og Gréta María Grét-
arsdóttir framkvæmdastjóri voru að standsetja nýju búðina í gærdag.
20. Krónuverslunin opn-
uð í Skeifu á fimmtudag
Ferskvaran í öndvegi Bónus er í sömu byggingu
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™