Morgunblaðið - 05.02.2019, Side 11

Morgunblaðið - 05.02.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 Vatnsheldir Kuldaskór SMÁRALIND www.skornirthinir.is Innbyggðir broddar í sóla Verð 16.995 Stærðir 37 - 41 Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is „Það er ekki spurning hvort þetta gerist, heldur hvenær,“ segir Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðs- stjóri í Borgarbyggð, um ummæli Trausta Jónssonar, sérfræðings í veðurfarsrannsóknum, í Sunnudags- blaði Morgunblaðsins um liðna helgi. Trausti sagði þá aðeins tímaspursmál hvenær mjög slæmir gróðureldar myndu brjótast út í þétt grónum sumarhúsabyggðum hér á landi. Bjarni tekur undir það. „Þetta eru orð í tíma töluð hjá Trausta. Ég held að slökkviliðin al- mennt séu illa búin að takast á við svona. Það þarf að verða hugarfars- breyting varðandi búnað og annað fyrir slökkviliðið. Þetta flokkast ekki undir neitt annað en almannavarna- ástand ef svona gerist. Til dæmis á mínu svæði, í Munaðarnesi og í Skorradalnum; þetta yrðu hamfarir. Heilu sumarhúsahverfin gætu hrein- lega horfið,“ segir Bjarni. Trausti sagði að hættan væri fyrst og fremst fólgin í ræktun sumar- bústaðaeigenda í þéttri byggð og aukinni grósku vegna hlýnunar jarð- ar. Bjarni segir þetta hárrétt og er minnugur Mýraeldanna árið 2006, sem nefndir voru mestu sinueldar Ís- landssögunnar. „Ég kem aldrei til með að gleyma þeim. En það virðist ósköp lítið hafa gerst síðan þá í sambandi við þessi mál. Því miður finnst mér gæta sof- andaháttar gagnvart þessu hjá stjórnvöldum. Mér finnst fólk hafa sofið mjög á verðinum. Það er ekki nóg að tala um hlutina heldur þarf að gera eitthvað róttækt.“ Ekki meðvitaðir um alvarleika Bjarni segir að margir sumarhúsa- eigendur séu heldur ekki meðvitaðir um alvarleika málsins. Tré séu gróðursett alveg heima við hús, sem auki enn frekar hættuna á því að eld- ur læsist í húsin ef hann breiðist út í gróðrinum. Þá sé oft mikill eldsmatur í geymslum undir veröndum. Fólk sé hreinlega að bjóða hættunni heim. „Ef eitthvað gerist þá reynum við allt sem við getum til að hefta út- breiðsluna, en við getum lent í alveg hreint rosalegum hremmingum. Við höfum bara stóra, þunga bíla og þurf- um að geta sent menn í þjálfun til þess að kynna sér hvernig aðrir haga þessu. Við höfum bara ekki peninga í það,“ segir Bjarni. Geta breiðst út á gönguhraða Sverrir Haukur Grönli, vara- slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, segir að þar á bæ hafi menn einnig áhyggjur af stöðunni enda séu skógi vaxnar sumar- húsabyggðir víða í umdæmi þeirra. „Skógareldar geta breiðst út á gönguhraða. Það var engin hugsun að búa til brunavarnarlínur þegar byrjað var að reisa sumarhúsabyggð- ir. Þær hafa þess vegna sprottið upp á samfelldu svæði,“ segir Haukur, en nefnir til að mynda að Brunavarnir Árnessýslu hafi kerrur með dælubún- aði til taks við sumarhúsabyggðir þar sem erfitt er að koma að stórum dælu- bílum. Tíðarfarið er að breytast „Við erum ekki á sama stað og er- lendis þar sem hægt er að kalla til margar þyrlur og meiri búnaður er til umráða. Auðvitað höfum við áhyggjur af þessu. Við sjáum að tíðarfarið er að breytast. Við fengum miklar rign- ingar í fyrra en í ár geta alveg orðið miklir þurrkar. Við viljum ekki vera með hræðsluáróður, en þurfum að hafa hugann við þetta,“ segir Haukur. Gætu orðið svakalegar hamfarir  Slökkvilið eru almennt illa í stakk búin til að takast á við mikla gróðurelda  Heilu sumarhúsa- hverfin gætu hreinlega horfið, segir slökkviliðsstjóri  Hugarfarsbreyting og fræðsla er nauðsynleg Morgunblaðið/Júlíus Gróðureldar Aukin hætta er talin á því að miklir gróðureldar brjótist út hér á landi, sérstaklega í þétt grónum sumarhúsabyggðum. Slökkvilið hafa hér víða þurft að berjast við erfiða gróðurelda, meðal annars í Heiðmörk þar sem þessi mynd var tekin 2012 þegar á fimmta tug manna tók þátt í aðgerðum. „Forvarnir eru númer eitt, tvö og þrjú sem slökkviliðið getur gert. Alveg eins og þegar við byrjuðum með bíl- belti eða að flokka rusl. Það tekur tíma að fá fólk til að hugsa,“ segir Sverrir Haukur Grönli, varaslökkvi- liðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu. Hann sat í stýri- hópi um þessi mál fyrir Mannvirkjastofnun og ríkis- stjórnina síðasta vetur. Úr því starfi kom meðal annars heimasíðan grodureldar.is sem geymir mikið fræðslu- efni um málið. „Við getum sett alls konar reglugerðir og keypt fullt af búnaði, en fyrst og fremst þurfum við að fá almenning til þess að vita hvað þarf að varast. Það sem er aðalmálið í dag er fræðslan.“ Mikilvægt að fræða almenning SUMARHÚSAEIGENDUM BENT Á GRODURELDAR.IS Sverrir Haukur Grönli Búist er við því að vegir á Suðurlandi lokist eða verði ófærir í dag vegna veðurs. Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna hvass- viðris eða storms í Austur-Landeyj- um og þar austur af eftir klukkan 15 í dag. Vegagerðin reiknar með að loka þurfi vegum á Suðvestur- og Suður- landi. Fyrst verður Hellisheiði og Þrengslum lokað, um klukkan 6 að morgni og síðan veginum um Kjal- arnes og Mosfellsheiði kl. 7. Líklegt er talið að Kjalarnesi verði opnað aftur um klukkan 12 en Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði verði lokuð þar til í fyrrramálið. Búist er við að veginum á milli Hvolsvallar og Víkur verði lokað um klukkan 12 og Skeiðarársandi og Öræfasveit um klukkan 15. Öll þessi leið verður væntanlega lokuð fram undir morgun og suðurströndin heldur lengur. Appelsínugul viðvörun Veðurstofa Íslands segir að það gangi í austanstorm eða rok og jafn- vel staðbundið ofsaveður í Austur- Landeyjum og undir Eyjafjöllum síðdegis í dag og fram á kvöld. Hvið- ur geta náð allt að 45 metrum á sek- úndu. Hætta er talin á foktjóni og ekkert ferðaveður, segir á vef Veð- urstofunnar. Stormur og slæmt ferðaveður Vegagerðin bendir vegfarendum einnig á að víða séu vegir hálir, þar sem kalt veður með stífri norðanátt valdi því að hálkuvörn bindist illa við yfirborð vega. „Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Morgunblaðið/RAX Ófærð Hringveginum austan við Hvolsvöll verður lokað í dag. Vegum lokað á Suð- vestur- og Suðurlandi  Ekkert ferðaveður vegna storms

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.