Morgunblaðið - 05.02.2019, Side 16
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Tveir af stærstu lífeyrissjóðum
landsins, Lífeyrissjóður verslunar-
manna og Lífeyrissjóður starfs-
manna ríksins, eru á meðal þeirra
stofnanafjárfesta sem lagt hafa fé í
sjö milljarða fjárfestingarsjóð Alfa
framtak ehf., sem sagt var frá fyrir
helgi að myndi ásamt Siglu ehf.
fjármagna valfrjálst tilboð í hluta-
bréf leigufélagsins Heimavalla hf. á
tilboðsgenginu 1,3 á hlut. Þetta
herma heimildir Morgunblaðsins.
Umrætt tilboð var lagt fram
samhliða ósk þriggja hluthafa fé-
lagsins, Snæbóls ehf. (7,54%), Gana
ehf. (7,54%) og Klasa ehf. (3,85%),
þar sem farið er fram á að stjórn
Heimavalla boði til hluthafafundar
þar sem tillaga um töku hlutabréfa
félagsins úr viðskiptum hjá NAS-
DAQ Iceland hf. verði sett á dag-
skrá, eða slík tillaga sett á dagskrá
aðalfundar. Samtals eiga þessir
þrír hluthafar 18,93% í Heimavöll-
um.
Ástæða þess að félögin þrjú vilja
afskrá Heimavelli er sú samkvæmt
tilkynningu að skráning félagsins á
markað hafi ekki skilað væntum
ávinningi fyrir hluthafa og félagið.
Áberandi annars staðar
Það sem vekur athygli við þátt-
töku lífeyrissjóðanna í fjárfesting-
arsjóðnum er að hvorki þessir sjóð-
ir né aðrir af fjórum stærstu
lífeyrissjóðum landsins hafa hingað
til fjárfest að neinu ráði í Heima-
völlum, hvorki í hlutabréfum fé-
lagsins né í skuldabréfum, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Sjóðirnir eru þrátt fyrir það áber-
andi á hluthafalistum flestra ann-
arra félaga í Kauphöllinni.
Verðþróun Heimavalla hefur að
mati þeirra aðila sem Morgunblað-
ið ræddi við í gær valdið vonbrigð-
um frá því félagið var tekið til við-
skipta í Kauphöllinni 24. maí sl. á
útboðsgenginu 1,39 krónur á hlut.
Á útboðsdegi lækkaði gengið strax
og hefur aldrei aftur náð útboðs-
gengi sínu. Í gær hækkaði félagið
um 4,62% og endaði gengið í 1,25
sem er hæsta gengi bréfanna síðan
í júní á síðasta ári.
Aðilar sem Morgunblaðið ræddi
við sögðu að ákveðin óvissa hefði
ríkt með bréf Heimavalla á mark-
aði í gær vegna skorts á upplýs-
ingum í fyrrnefndu tilboði hluthaf-
anna. Ekki væri þar greint frá
hverjar hugmyndir fjárfestanna
væru fyrir félagið til framtíðar.
Stærsta félagið
Heimavellir eru stærsta almenna
leigufélag landsins og skilgreinir
sig sem íbúðaleigufélag að nor-
rænni fyrirmynd. Félaginu var
komið á fót árið 2014 og hefur fyrst
og fremst vaxið með kaupum á
eignasöfnum og sameiningum við
leigufélög eins og Leiguliða ehf.,
Álftaver ehf. og V Laugaveg ehf.,
en sum hver höfðu þessi félög starf-
að allt frá árinu 2001. Með samein-
ingunni var eignasafnið með 191
íbúð í rekstri. Jafnt og þétt hefur
bæst við eignasafnið síðan þá, sem
einnig hefur verið endurskipulagt,
og óhentungar einingar seldar og
hagkvæmari íbúðir keyptar í stað-
inn. Í lok 2018 var eignasafn félags-
ins 1.900 íbúðir, samkvæmt upplýs-
ingum á heimasíðu Heimavalla.
Einstaklingar fá lægri vexti
Magnús Árni Skúlason hjá ráð-
gjafarfyrirtækinu Reykjavik
Economics segir að erfitt sé að
segja nákvæmlega hvað valdi því að
Heimavellir hafi ekki náð að fóta
sig betur á hlutabréfamarkaðnum.
Hann bendir á að það sé ákveðin
skekkja fólgin í því að einstaklingar
fái ódýrari lán til húsnæðiskaupa
en fyrirtæki hér á landi. „Einstak-
lingar geta fengið verðtryggt lán
með 2,5% vöxtum, en til saman-
burðar fengu Heimavellir 3,6%
vexti í skuldabréfaútboði sínu í des-
ember. Með þessu er verið að ýta
einstaklingum út í að kaupa íbúð-
ir.“
Spurður almennt um þátttöku líf-
eyrissjóða í fjármögnun félaga eins
og Heimavalla bendir Magnús á að
í Bandaríkjunum og í Bretlandi sé
algengt að lífeyrissjóðir fjárfesti í
slíkum félögum. „Til langs tíma
hefði maður haldið að það væri góð
fjárfesting fyrir lífeyrissjóði að
fjárfesta í svona félögum. En ís-
lensku sjóðirnir hafa hingað til lík-
lega litið svo á að það væri betri
kostur að lána beint til sjóðfélaga.“
Stóru lífeyrissjóðirnir eru
með í Heimavallatilboði
1,39 útboðsgengi
1,25 lokagengi í kauphöll í gær
1,30 tilboðsgengi í valfrjálsutilboði til hluthafa
Virði eignasafns
55,6 milljarðar kr.*
Stálskip ehf. 8,6%
Snæból ehf. 7,5%
Gani ehf. 7,5%
Landsbankinn hf. 7,4%
Birta lífeyrissjóður 5,6%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 4,8%
Vátryggingafélag Íslands hf. 3,9%
Klasi ehf. 3,9%
M75 ehf. 3,8%
Kvika banki hf. 3,7%
10 stærstu hluthafar**
*Úr 9 mánaða uppgjöri. **Skv. heimavellir.is.
Fjárfestingar
» Fjárfestar í fjárfestingar-
sjóði Alfa framtak ehf. eru
lífeyrissjóðir að einum þriðja
hluta, tæp 44% af því sem eft-
ir stendur eru stofnanafjár-
festar, tryggingafélög og
eignastýringar, og 56% einka-
fjármagn sem dreifist á hátt í
30 einstaklinga.
» Sigla ehf. er fjárfestinga-
félag í eigu Snæbóls ehf. og
Gana ehf. sem aftur eru í eigu
Finns R. Stefánssonar og Tóm-
asar Kristjánssonar. Klasi ehf.
er í eigu Siglu ehf.
Gengi Heimavalla ekki hærra síðan í júní 2018 Hluthafar vilja afskrá félagið
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
SIF
íslenskt lambaskinn
50.400
GOLA
skinnkragi
16.800
Velkomin í hlýjuna
EIR úlpa
158.000
EIR úlpa
m/refaskinni
158.000
DRÍFA
skinnkragi
31.900
BÁRA
leðurhanskar
5.900
ÞYTUR
prjónahúfa
9.200
5. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.7 120.28 119.99
Sterlingspund 156.28 157.04 156.66
Kanadadalur 91.0 91.54 91.27
Dönsk króna 18.377 18.485 18.431
Norsk króna 14.19 14.274 14.232
Sænsk króna 13.235 13.313 13.274
Svissn. franki 120.57 121.25 120.91
Japanskt jen 1.0985 1.1049 1.1017
SDR 167.31 168.31 167.81
Evra 137.22 137.98 137.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.1673
Hrávöruverð
Gull 1320.75 ($/únsa)
Ál 1871.5 ($/tonn) LME
Hráolía 61.97 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Írska lággjaldaflugfélagið skilaði 20
milljóna evra tapi á síðustu þremur
mánuðum ársins 2018. Það jafngildir
ríflega 2,7 milljarða króna tapi. Er það
viðsnúningur frá fyrra ári þegar hagn-
aðurinn nam 106 milljónum evra. Tekjur
félagsins jukust hins vegar um 9% milli
ára og farþegafjöldinn jókst um 8%.
Sætanýting félagsins var 96% og
breyttist ekki milli ára.
Samhliða afkomutilkynningu sem fé-
lagið sendi frá sér í gær var tilkynnt um
talsverðar skipulagsbreytingar á vett-
vangi félagsins. Þannig mun Michael
O’leary, forstjóri félagsins setjast í stól
forstjóra samstæðunnar, sem fjögur
flugfélög heyra undir, Ryanair DAC,
Laudamotin, Ryanair Sun og Ryanair
UK. Þá hefur hann gert samning um að
starfa hjá félaginu til næstu fimm ára
eða til ársins 2024. Þá tilkynnti stjórn-
arformaður félagsins til síðustu tveggja
áratuga, David Bonderman, að hann
hygðist hverfa úr stjórn á næsta ári.
Hann hefur verið undir miklum þrýst-
ingi frá því í fyrra um að segja af sér.
Ryan air skilar talsverðu
tapi á síðasta fjórðungi
STUTT
Landsbankinn var í hópi þeirra hlut-
hafa í fjárfestingarsjóðnum Horn II,
sem gekk inn í kaup Kólfs ehf. á hlut
sjóðsins í Hvatningu. Síðastnefnda
félagið á tæplega 40% hlut í Bláa lón-
inu. Skv. nýjasta ársreikningi Horns
II er eignarhlutur Landsbankans í
sjóðnum 7,66%. Því má gera ráð fyr-
ir því að óbeinn hlutur bankans í
Bláa lóninu sé 740 milljóna króna
virði. Heimildir Morgunblaðsins
herma að langflestir hluthafar
Horns II hafi ákveðið að ganga inn í
kaup Kólfs ehf. á hlut Horns II í
Hvatningu.
Hins vegar upplýsti Morgunblaðið
um það í liðinni viku að lífeyrissjóð-
urinn Gildi hefði ákveðið að hverfa úr
hlutahafahópnum. Sjóðurinn var
ásamt Lífeyrissjóði verslunarmanna
langstærsti hluthafinn í Horni II
með ríflega 18% hlut. Þeir hluthafar í
Horni II sem ákváðu að halda í eign-
arhlut sinn, munu gera það í gegnum
nýtt félag sem myndað verður um
hlut þeirra og Kólfs ehf. í Hvatningu.
Þá var þeim hluthöfum sem ekki
vildu selja sig niður, boðið að skrá sig
fyrir auknum hlut í Hvatningu.
Síðdegis í gær höfðu svör ekki
borist við því hver hlutdeild hvers og
eins yrði, en viðmælendur Morgun-
blaðsins gerðu ráð fyrir að hlut Gild-
is yrði skipt í hlutfalli milli þeirra
hluthafa sem lýst höfðu áhuga á að
stækka við sig. Meðal annarra fyr-
irtækja sem haldið hafa á óbeinum
hlut í Bláa lóninu gegnum Horn II er
tryggingafélagið VÍS. Skv. upplýs-
ingum þaðan mun félagið áfram vera
í hópi hluthafa fyrirtækisins.
ses@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsulind Litlar breytingar
verða á eignarhaldi Bláa lónsins.
Landsbankinn
heldur í hlutinn
Litlar breyt-
ingar á eignarhaldi
Bláa lónsins