Morgunblaðið - 05.02.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.
Milljónir hindúa böðuðu sig á mótum
helgra fljóta á Indlandi í gær á fjöl-
mennustu trúarhátíð heimsins. Þeir
telja að baðið veiti þeim aflausn frá
syndum og leysi þá undan hringrás
endurfæðinga. Hefð er fyrir því að
þúsundir helgra manna, sem nefnast
Naga Sadhus, fari fyrir hindúunum,
hlaupi naktir í kalt vatnið og veifi
lurkum og sverðum.
Hindúarnir böðuðu sig þar sem
þrjú fljót, Ganges, Yamuna og Sa-
raswati, renna saman, og baðið er
álitið helgasta athöfnin á 48 daga
trúarhátíð, Kumbh Mela, sem lýkur
4. mars. Rúmlega 30.000 lögreglu-
menn voru á staðnum til að hafa
stjórn á mannfjöldanum og koma í
veg fyrir mannskæðan troðning.
Indversk yfirvöld hafa einnig varið
jafnvirði tæpra fimm milljarða
króna til að loka holræsum, hreinsa
sorp og gera ráðstafanir til þess að
hindúarnir geti þvegið sér eftir at-
höfnina svo þeim verði ekki meint af
baðinu í menguðu vatni fljótanna.
AFP
Syndahreinsun Helgir hindúar baða sig á mótum helgra fljóta á Indlandi.
Milljónir hindúa þvo af sér
syndir í helgum fljótum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bretland, Frakkland, Spánn, Þýska-
land og fleiri aðildarríki Evrópusam-
bandsins sögðust í gær hafa ákveðið
að viðurkenna Juan Guaidó, forseta
þingsins í Venesúela, sem lögmætan
forseta landsins þar til kosningar
fara fram. Áður hafði Nicolás Mad-
uro, leiðtogi sósíalistastjórnarinnar,
hafnað kröfu ESB-ríkja um að efna
til frjálsra og lýðræðislegra kosn-
inga.
Stjórnvöld í Rússlandi gagnrýndu
ákvörðun ESB-ríkjanna, lýstu henni
sem ólögmætri íhlutun í innanríkis-
mál Venesúela og sögðu þau reyna
að „réttlæta tilraun til valdaráns“.
Rússar eru á meðal helstu banda-
manna sósíalistastjórnar Venesúela
og hafa mikilla fjárhagslegra hags-
muna að gæta í landinu. Rússnesk
stjórnvöld voru í nánum tengslum
við forvera Maduros, Hugo Chávez,
og hafa aukið samstarfið við sósíal-
istastjórnina á síðustu árum, m.a.
með því að auka vopnasöluna til
Venesúela, og framlengt lán. Stjórn-
málaskýrendur telja að Rússar hafi
veitt Venesúela lán að andvirði 17
milljarða bandaríkjadala, sem svar-
ar rúmum 2.000 milljörðum króna,
frá því að Maduro komst til valda ár-
ið 2013, eftir að Chavez lést. Rússar
óttast að þeir glati þessu fé ef Mad-
uro hrökklast frá völdum.
Vilja aðgang að olíulindum
Eftir miklu er að slægjast því að
Venesúela býr yfir meiri ónýttum
olíuforða en nokkurt annað land í
heiminum. „Þegar við sendum vopn
þangað hugsaði enginn um hvernig
við ættum að fá skuldina greidda. Ég
tel að það sem menn hafi í reynd haft
í huga sé aðgangur að olíulindum til
vinnslu,“ hefur fréttavefur breska
ríkisútvarpsins eftir rússneska hag-
fræðingnum Andrej Movtsjan.
Rússneska ríkisfyrirtækið Rosneft
hefur fjárfest í mörgum olíuvinnslu-
verkefnum í Venesúela og veitt ríkis-
reknu olíu- og gasvinnslufyrirtæki
landsins, PDVSA, há lán.
Þótt rússneskir ríkisfjölmiðlar
hamri á því að stjórnvöld á Vestur-
löndum hafi gerst sek um ólögmæta
íhlutun í málefni fullvalda ríkis hafa
nokkrir stjórnmálaskýrendur í
Rússlandi gagnrýnt fjárausturinn í
sósíalistastjórnina. „Venesúela er
svarthol sem hefur gleypt í sig millj-
arða dollara frá Rússlandi … og
ávinningurinn er enginn,“ hefur
rússneska blaðið Kommersant eftir
Míkhaíl Krútíkín, sérfræðingi í fjár-
festingum Rússlands í olíuvinnslu.
Utanríkisráðuneytið í Moskvu
segir að rússneska stjórnin sé tilbúin
að gera „allt“ til að styðja Maduro í
deilunni en stjórnmálaskýrendur
telja ólíklegt að Rússar gangi svo
langt að beita hernaði til að verja
sósíalistastjórnina. „Það væri brjál-
æði af hálfu Rússa að reyna hern-
aðaríhlutun,“ hefur BBC eftir Movt-
sjan. „Venesúela er ekki Sýrland.
Kínverjar eru þar og Bandaríkin eru
miklu nær Venesúela.“
Bandaríkjastjórn hefur gripið til
efnahagslegra refsiaðgerða gegn
PDVSA sem á meirihluta í olíu-
hreinsunarstöðvum í Texas í gegn-
um dótturfélagið Citko. Rosneft á nú
þegar 49% hlut í Citko og á veð í
dótturfélaginu, þannig að rússneska
fyrirtækið gæti eignast meirihluta í
olíuhreinsunarstöðvunum í Texas.
Mikið í veði fyrir
Rússa í deilunni
ESB-ríki viðurkenna Guaidó sem forseta Venesúela
AFP
Boðar kosningar Juan Guaidó með stuðningsmönnum sínum í Karakas eft-
ir að hann lýsti sig þjóðhöfðingja Venesúela þar til kosningar færu fram.
ESB-ríkin ekki samstiga
» Minnst 15 ESB-ríki hafa
viðurkennt Juan Guaidó sem
þjóðhöfðingja Venesúela:
Austurríki, Bretland, Danmörk,
Finnland, Frakkland, Holland,
Lettland, Litháen, Lúxemborg,
Portúgal, Pólland, Spánn, Sví-
þjóð, Tékkland og Þýskaland.
» Önnur ESB-ríki, þ.á m.
Grikkland, hafa hafa ekki viljað
lýsa yfir stuðningi við Guaidó.
Abú Dabí. AFP. | Frans páfi tók í gær
þátt í ráðstefnu forystumanna ólíkra
trúarhópa í Abú Dabí, höfuðborg
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna, í sögulegri heimsókn sem mið-
ar að því að stuðla að bættum sam-
skiptum múslíma og kristinna
manna. Þetta er í fyrsta skipti í sög-
unni sem páfi heimsækir land á Ar-
abíuskaganum.
Heimsóknin til Sameinuðu arab-
ísku furstadæmanna stendur í tvo
daga. Páfi hyggst halda messu á
íþróttaleikvangi í höfuðborginni í
dag áður en hann heldur til Rómar.
Gert er ráð fyrir að um 135.000
manns sæki messuna og að hún
verði fjölmennasta opinbera sam-
koman í sögu Sameinuðu arabísku
furstadæmanna.
Fyrr í gær fór páfi í forsetahöllina
í Abú Dabí þar sem tekið var á móti
honum með hersýningu. Hermenn
skutu 21 byssuskoti upp í loftið á
meðan herþotur flugu yfir og mynd-
uðu flugslóða í fánalitum Sameinuðu
arabísku furstadæmanna, hvítu og
gulu. Páfi ræddi síðan við Mohamm-
ed bin Zayed, krónprins Sádi-
Arabíu, og talið var að hann hefði
meðal annars vakið máls á þátttöku
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna í hernaðinum í Jemen undir
forystu Sádi-Arabíu. Páfi hvatti til
þess í gær að endi yrði bundinn á
stríðið í Jemen og Sýrlandi til að
hægt yrði að bjarga nauðstöddum
íbúum landanna, þeirra á meðal
sveltandi börnum. Talið er að
hungursneyð vofi yfir allt að tíu
milljónum manna í Jemen.
Ráðamenn Sameinuðu arabísku
furstadæmanna hafa nefnt árið 2019
„ár umburðarlyndis“ en mannrétt-
indahreyfingar hafa gagnrýnt þá
fyrir mannréttindabrot gegn and-
ófsmönnum, auk þátttöku landsins í
hernaðinum í Jemen.
Nær fjórir af hverjum fimm íbú-
um Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna eru íslamskrar trúar en þar
býr einnig tæp milljón kaþólskra
manna. Farandmenn frá Asíulönd-
um eru um 65% íbúanna.
AFP
Hvatt til friðar Frans páfi heilsar Ahmed al-Tayeb, æðsta ímam al-Azhar,
helsta menntaseturs súnní-múslíma í Egyptalandi, á ráðstefnu í Abú Dabí.
Páfi boðar frið
í sögulegri ferð