Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Íslendingum vegna yfirleitt vel hér í Noregi. Aðstæður að minnstakosti hér við vesturströndina eru um margt líkar því sem geristheima á Íslandi, takturinn í mannlífinu svipaður og tungumálin
svipuð. Í norskunni sem er töluð hér um slóðir eru mörg orð sem einn-
ig bregður fyrir í íslenskum enda er ekki langt héðan á þær slóðir sem
íslensku landnámsmennirnir komu frá,“ segir Erlingur Níelsson sem
er 57 ára í dag. Hann býr með sínu fólki í þorpinu Seimsfoss sem er
við Harðangursfjörðinn í Noregi og þar unir fjölskyldan sér vel.
Erlingur er Akureyringur að uppruna og fór um tvítugt til náms í
liðsforingjaskóla hjálpræðishersins í Noregi og þar sköruðust leiðir
þeirra Ann Marete Jakobsen. „Við fórum heim til Íslands og bjuggum
þar í mörg ár. Þar starfaði ég lengi við fullorðinsfræðslu fatlaðra og á
sumrin var ég fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu. Svo ákváðum við Ann
að halda á heimaslóðir hennar, flytja til Noregs og taka nokkur ár
þar. En við festum fljótt rætur í Noregi og erum ekkert á heimleið,“
segir Erlingur sem fyrstu árin ytra rak verslun, seldi harðfisk og stóð
fyrir Íslandsferðum með Norðmenn. Fyrir nokkrum árum gerðist
hann framkvæmdastjóri safnaða norsku kirkjunnar í Kvinnherad, á
víðfeðmu svæði þar sem eru alls 13.000 íbúar og kirkjurnar alls tólf.
„Þetta er fjölbreytt starf og áhugavert og mér hefur líka alltaf
fundist gefandi að taka þátt í kirkjustarfi,“ segir Erlingur. Þau Ann
Marete eiga fjögur börn, þrjú tengdabörn og jafnmörg barnabörn –
þrennt af hvoru. Svo stór hópur þarf líka pláss og þessa dagana er
fjölskyldan að koma í stand einbýlishúsi sem þau keyptu á dögunum.
„Afmælisdagurinn fer í málningarvinnu og ég hlakka til,“ segir
Íslendingurinn í Seimsfoss. sbs@mbl.is
Lífsgleði Erlingur hér með afastelpunni Klöru Elea Jansdóttur.
Vegnar vel í Noregi
Erlingur Níelsson er 57 ára í dag
J
ón Sigurður Helgason
fæddist 5. febrúar 1969 í
Fossvogi í Reykjavík þar
sem hann ólst upp og þar
búa foreldrar hans ennþá.
Jónsi, eins og hann er alltaf kall-
aður, varð strax upptekinn af íþrótt-
um. „Sérstaklega fótbolta og var
fyrstu árin í KR-búningi en pabbi
spilaði með gullaldarliði KR. Gegn-
um æskuvini endaði ég samt á
minni fyrstu æfingu hjá Val og hef
verið Valsari síðan. Lífið gekk mikið
út á fótbolta allt þar til ég hætti að
spila með meistaraflokki 1997,“ en
Jónsi varð bikarmeistari með Val
1991 og 1992.
Jónsi gekk í Fossvogsskóla, Rétt-
arholtsskóla, varð stúdent frá Verzl-
unarskóla Íslands 1989 og cand.-
oecon. frá Háskóla Íslands 1993.
Hann varð löggiltur endurskoðandi
1998.
Jón Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri KPMG – 50 ára
Fjölskyldan Stödd í París á Evrópukeppninni í fótbolta 2016, en Jónsi lék sjálfur fótbolta í meistaraflokki með Val.
Stýrir fyrirtæki sem
foreldrar hans stofnuðu
Hjónin Jónsi og Erla á hrísgrjónaakri í Balí í fyrra.
Garðabær Emma
Júlía Davíðsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 16. júní 2018.
Foreldrar hennar
eru Davíð Páll
Jónsson og
Klaudia Ewa
Gargas. Hún vó
4.526 g og var
54 cm löng.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.