Morgunblaðið - 05.02.2019, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
www.gilbert.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hættu að vorkenna sjálfum þér því
það eru margir sem hafa það verra en þú.
Þú ætlaðir að taka heilsuna föstum tökum,
var það ekki?
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kannt að meta fegurð í listum. Þú
ert listamaður af guðs náð og gætir náð
langt ef þú leggur þig eftir því.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú eignast nýja vini því þú átt
auðvelt með að kynnast fólki. Hlutirnir eru
sjaldnast eins einfaldir og við viljum hafa
þá.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur hugsanlega til eirðarleysis
í dag. Vitur leiðbeinandi mun vísa þér leið til
drauma þinna. Hlustaðu á hann og lærðu
sem mest.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það skiptir öllu máli að þú getir haft
stjórn á skapi þínu í dag. Þér er boðið á list-
sýningu og þar muntu upplifa ýmislegt sem
á eftir að kæta þig í framtíðinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fylgdu engum að málum fyrr en þú
ert viss um að þínum hag sé borgið. Það að
eiga trúnaðarvin er lífsnauðsyn. Sinntu þeim
sem þú átt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fullkomnunaráráttan í þér fer í taug-
arnar á fólki. Geturðu ekki slakað aðeins á?
Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn
svona einu sinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einvera og næði er það sem þú
þarfnast og þráir heitt. Þinn tími kemur og
þú færð óskir þínar uppfylltar. Ástvinur þarf
á þér að halda.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér finnst lítið gerast í kringum
þig og saknar gamla lífsins. Skynsamlegast
væri að segja fátt en taka þeim mun betur
eftir því sem aðrir segja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú leggur þig alla/n fram er
ekki við þig að sakast þótt hlutirnir gangi
ekki upp. Taktu neikvæðum viðbrögðum
ekki illa, fólk þarf mislangan tíma til að átta
sig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Bjartsýni þín leiðir þig langt og
þegar sá gállinn er á þér njóta samstarfs-
menn þínir einnig góðs af. Öllu gamni fylgir
einhver alvara.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hóaðu saman gömlu vinunum og
eigðu með þeim kvöldstund og rifjaðu upp
gamlar minningar. Leyfðu þér að njóta lífs-
ins.
Áföstudag skrifaði Sigurlín Her-mannsdóttir í Leirinn: „Þótt
veður hafi verið fallegt og stillt hér
sunnan heiða er víst von á umhleyp-
ingum. Þetta er líka árstíð allra
veðra“:
Okkur nærri nú er þorri
nætur styttast sólin lætur.
Býður allmörg, hátt með hvelli,
hríðarveðrin, þessi tíðin.
Fornar dyggðir fólkið gjarnan
finnur sér í matarkynning.
Vinsælt þema þjappar saman;
þorra að blóta á slíkum mótum.
Ólafur Stefánsson er garðyrkju-
bóndi svo að eðlilegt er að nýjustu
tíðindi úr borginni veki áhuga hans
og því segir hann á Leir: „Það verð-
ur ekki vandi að lifa af slappa hita-
veitu í Reykjavík þegar pálmarnir
eru komnir“:
Í kælunni krassar og bítur,
er kominn með hósta og snýtur,
þá svíf ég í anda
til suðrænna stranda,
með sólskin og senjorítur.
Við þessu brást Ármann Þor-
grímsson:
Freistingar Óla þó ögri
og undir þeim líkaminn skjögri,
ekkert er falt
allstaðar kalt
andinn er bara á flögri.
Kristján Eiríksson skrifaði:
„Pálminn er afskaplega fagurt tré
og full ástæða til að skreyta með
honum garða borgarinnar og torg
enda hafa menn lengi látið heita
eftir honum bæði menn og daga á
landi voru saman ber þessa gömlu
vísu:
Víst pálminn læknar pínu og sorg,
pálminn hár og fagur,
svo pálmum okkar prýðir borg,
Pálmasunnu-Dagur.
Magnús frá Sveinsstöðum orti:
Ofurmenni ýmis sé,
á þá benda má.
Þeim passa betur pálmatré,
en pínulítil strá
Ingólfur Ómar botnaði:
Óráðsíu ekkert tálmar
ennþá bruðlað er með fé.
Ætla mætti að hann Hjálmar
hengdur verði upp í tré.
Sigmundur Magnússon sendi „Yl-
boð“ með hlýrri kveðju á föstudag:
Lama þanka vetrar völd,
vorsins sílar þráin.
Nístir úti nóttin köld
norpa héluð stráin.
Frýs nú víða foldarból,
fjötur sárra kennda.
Þeim, sem ekkert eiga skjól
ylhjúp vil nú senda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Froststillur, pálmatré og strá
„fleiri uppsagnir hjá blaÐinu.
jafnvel ég get ekki bjargaÐ
starfinu hans Clark.”
„ég ætla aÐ gefa þér eitthvaÐ sem
slær á verkina.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta henni líða
extra vel.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ ERT AÐ HORFA Á
ÞÁTTINN MÁLNING ÞORNAR
JÆJA, PRÓFUM AÐ
SNERTA ÞETTA …
ENN SVOLÍTIÐ
BLAUT
Æ, NEI!
EF ÞÚ MYNDIR GIFTAST MÉR
YRÐI LÍF ÞITT AUÐVELT!
Í ALVÖRU?
JÁ! ÉG MYNDI ÁKVEÐA ALLT
FYRIR ÞIG!
HLAUPTU!
Hönd í bolta! Bolti í hönd! Hversuoft hrópa menn þetta upp yfir
sig í miðjum knattspyrnuleik? Inni
á vellinum, uppi í stúkunni, á knæp-
unum og heima í stofu. Og deila svo
um þetta dögum saman á eftir.
Eitt af nýjustu dæmunum er
þriðja mark argentínska stormsent-
ersins Sergios Agüeros fyrir Man-
chester City gegn Arsenal í ensku
úrvalsdeildinni um helgina. Bernd
Leno, markvörður Arsenal, sló þá
knöttinn í olnbogann á framherj-
anum og þaðan hrökk hann í netið.
Mark, sögðu sumir. Ómark, sögðu
aðrir.
Víkverji er á því að markið hafi
átt að standa, eins og það gerði.
Agüero fékk boltann bara í sig og
gerði enga tilraun til að stýra hon-
um með hendinni. Þess vegna hefði
verið strangt að refsa honum. All-
tént hefði allt orðið vitlaust hefði
varnarmaður fengið knöttinn með
þessum hætti í olnbogann og víti
verið dæmt.
x x x
Sjálfur spilar Víkverji innanhúss-fótbolta með tveimur hópum og
þar er ekki síður deilt um hendi og
ekki-hendi en á leikjum í Englandi.
Í öðrum hópnum er hendi dæmd ef
menn eru að stækka sig, hreyfa
sumsé hönd eða hendur frá líkam-
anum. Séu þeir ekki að „stækka sig“
er látið kyrrt liggja.
Ekki svo að skilja að þetta leysi
alltaf málið enda líta menn ekki allt-
af sama atvikið sömu augum. Þá er
deilt. Og sumir verða reiðari en aðr-
ir. Enda réttlætiskenndin misjöfn.
Og sjónin, ef út í það er farið.
x x x
Þess vegna getur verið best aðhafa þetta eins og í hinum
hópnum hans Víkverja, þá er alltaf
dæmd hendi fari boltinn í hönd leik-
manns. Alveg sama hvort hann er
að „stækka sig“ eður ei. Án þess að
vita það fyrir víst stafar þessi ein-
falda en á köflum ósanngjarna regla
ugglaust af því að meirihluti leik-
manna í hópnum er lögmenn. Það
þýðir að verði skrúfað frá málflutn-
ingi, rökum með og á móti, í tilefni
af því að boltinn fór (hugsanlega) í
hönd leikmanns þá yrði ekki meira
spyrnt þann daginn. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn
kross og fylgir mér getur ekki verið
lærisveinn minn.“
(Lúkasarguðspjall 14.27)