Morgunblaðið - 05.02.2019, Síða 33

Morgunblaðið - 05.02.2019, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell keramik hitarar Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell Listráð Hafnarborgar hefur valið sýninguna Allt á sama tíma sem haustsýningu Hafnarborgar 2019, í sýningarstjórn Andreu Arnars- dóttur og Starkaðar Sigurðar- sonar. „Hugmyndin með sýning- unni er að kanna hvernig listamenn takast á við það frelsi sem finnst í myndlist í dag. Hvernig hægt er að búa til merkingu úr list sem getur verið hvað sem er – málverk, barnaleikfang, pappamassi, hreyf- ing, hugmynd, ópera, gifs. Sýnd verða verk í ólíkum miðlum, frá ol- íumálverki til gjörninga, og gerð tilraun til að sameina þær dreifðu hugmyndir sem finnast í myndlist í dag,“ segir um sýninguna í tilkynn- ingu og að hún reyni ekki að búa til sneiðmynd eða yfirlit yfir það hvernig list sé í dag heldur verði kannað hvernig listamennirnir, sem standa frammi fyrir þessu frelsi, móti merkingu úr því. Allt á sama tíma í haust í Hafnarborg Sýningarstjórar Andrea og Starkaður. Reglugerð sem heimilar greiðslu sýningarstyrkja til framleiðenda kvikmynda á ís- lensku hefur ver- ið samþykkt og undirrituð af mennta- og menningar- málaráðherra, að því er fram kemur á vef stjórnarráðs Íslands. Þar segir að heimilt verði að að veita sérstaka sýningarstyrki vegna sýninga á kvikmyndum á ís- lensku í kvikmyndahúsum hér á landi í hlutfalli við heildarandvirði seldra aðgöngumiða að sýningum á viðkomandi kvikmynd. „Íslenskar kvikmyndir skipa mik- ilvægan sess í menningu okkar og þessi nýja reglugerð fylgir eftir þörfum breytingum á kvikmynda- lögum sem samþykktar voru síðasta vor,“ er haft eftir Lilju Alfreðs- dóttur mennta- og menningar- málaráðherra, og að heimilt sé að styrkirnir nemi allt að 20% af heild- arsölutekjum kvikmynda á íslensku eftir því sem fjárveitingar leyfi. Kvikmyndamiðstöð auglýsir eftir umsóknum um sýningarstyrki. Ráðherra heimilar sýningarstyrki Lilja Alfreðsdóttir FRÁ LOS ANGELES Gunnar Valgeirsson gvalgeir@gmail.com Ólafur Arnalds og hljómsveit hans hafa verið á tónleikareisu um heiminn undanfarið eitt og hálft ár, en það er við hæfi hjá þessum tónlistarmanni sem hefur verið af- kastamikill í að semja og flytja tónlist undanfarin fimmtán ár – oft í samvinnu við annað listafólk. Hljómsveitin staldraði við hér í Orpheum-leikhúsinu nálægt miðbæ Los Angeles á föstudagskvöld. Eins og mörgum lesendum Morgunlaðsins er eflaust kunnugt er erfitt að setja tónlist Ólafs í ein- hvern ákveðinn flokk. Á nýjustu útgáfu hans frá síðasta sumri – Re:member – tók hann sig til og notaði tónlistarhugbúnað til að tengja píanóleik sinn við tvö önnur píanó. Þessi tækniuppfinning er hluti af sviðsetningu hljómsveitar Ólafs, en hún er vel útsett fyrir áhorfendur sem geta vel séð spilun hljómsveitarmeðlima. Uppselt var á þessa tónleika og meðan salurinn smám saman fylltist var hægt að hlusta á róleg píanóverk sem sköpuðu viðeigandi Stundum gerast töfrar Morgunblaðið/Gunnar Valgeirsson Tónleikastaðurinn Nafn Ólafs Arnalds upplýst á skilti Orpheum-leikhússins í Los Angeles. stemningu. Það var nauðsynlegt þar sem tónlist Ólafs krefst ákveð- innar þagnar í salnum svo hægt sé að njóta hennar en það getur oft reynst erfitt fyrir yngri tónlistar- unnendur hér í bæ. Lunginn af tónleikagestum var í yngri kant- inum – frá sjónarhorni sextugs manns – en eftir að Ólafur og hljómsveit hófu leik var alger þögn í salnum. Hljómlist Ólafs hafði sýnilega áhrif á fólk því það hlustaði af nærgætni og án venjulegrar farsímaáráttu. Að loknu upphafs- laginu, „Árbakkinn“, urðu góð fagnaðarlæti, enda hafði fólkið haldið vel aftur af sér. Ólafur notaði pásuna fyrir næsta lag til að tala við áhorf- endur. Hann gerði góðlátlegt grín að Los Angeles-borg, enda bjó hann hér á tímabili þegar hann samdi kvikmyndatónlist. Spaug Ólafs féll í góðan jarðveg enda eiga margir borgarar Los Angeles auðvelt með að gera grín að skemmtanabransanum í Hollywood – sérstaklega þar sem svo margir sem hér búa eru aðfluttir. Tal Ólafs skapaði góðan anda í saln- um. Margir Íslendingar þekkja vel til verka Ólafs, sem sveiflast á milli hægláts píanóleiks sem stundum þróast yfir í fallega hrynjandi þeg- ar hljómsveitin kemur inn í verkið. Blandan af klassískum hljóðfærum og raftónlist virkar mjög vel og augljóst er að hann hefur náð góð- um tökum á því sem hann er að gera. Ólafur lék í tæpar tvær klukkustundir og var honum og hljómsveitinni fagnað geysivel í lokin. Undirritaður hefur verið við- staddur marga tónleika íslensks hljómlistarfólks hér í Kaliforníu undanfarna þrjá áratugi og ekki er laust við – þegar maður fer á jafn marga tónleika ár hvert og raun ber vitni – að tekið sé eftir sér- stökum íslenskum þræði í tónlist íslensks tónlistarfólks. Það er erf- itt að lýsa því í orðum, en tónlist Ólafs fellur vel inn í þennan þráð. »Hljómlist Ólafshafði sýnilega áhrif á fólk því það hlustaði af nærgætni og án venju- legrar farsímaáráttu. Tíðindamaður Morgunblaðsins í Los Angeles hafði samband við Ólaf daginn sem hann hélt tónleika í Warfield-leikhúsinu í San Fran- cisco og innti eftir því hvernig tón- leikahaldið félli inn í starf lista- mannsins. – Þú hefur verið á löngu tón- leikaferðalagi frá því á síðasta ári og það mun halda áfram í ár fram á mitt sumar. Hver er hugmyndin að baki svo löngum tónleikaferðum? „Þetta er í raun enn lengra tíma- bil en það sem þú nefnir. Við spil- um á ýmsum tónleikahátíðum í sumar en svo tökum við smá- skorpu næsta haust og vetur. Sam- tals er þetta rúmlega eitt og hálft ár af tónleikaferðalögum. Heim- urinn er mjög stór og maður reynir að ná yfir flest helstu svæðin svo þetta tekur bara sinn tíma. En þetta er ákveðin lotuvinna og eftir svona ferðalag tekur maður sér al- gera pásu og nýtir tímann í að vinna nýjar hugmyndir og nýja músík,“ svarar Ólafur. – Hvernig gengur með listahlið- ina á tónlistinni á svo löngum ferðalögum þegar svo mikill tími fer í langar rútuferðir viku eftir viku? „Það gengur mjög takmarkað satt best að segja. Þetta er nátt- úrlega ansi þreytandi til lengdar og flestar aukastundir nýttar í að reyna að hvíla sig. En einstaka sinnum gerast einhverjir töfrar, til dæmis í hljóðprufum, og músíkin flæðir.“ – Hefurðu tekið eftir einhverjum mun á því hvernig áhorfendur bregðast við tónleikunum í Evrópu og hér í Norður-Ameríku? „Áhorfendahópar hafa alltaf sinn persónuleika. Í Ameríku er fólk meira „vocal“; ef því finnst eitthvað frábært finnur það sig knúið til að kalla það yfir salinn, en Evrópubúar eru hógværari. Hvort tveggja er frábært á sinn hátt en mér finnst skemmtilegt þegar and- rúmsloftið er lifandi og frjálslegt.“ – Flestir tónleikanna á þessum hluta ferðarinnar hér í Bandaríkj- unum fara fram í eldri leikhúsum og tónleikahöllum. Eru þessir sam- komustaðir eitthvað sem þú hefur lagt áherslu á varðandi andrúms- loftið eða þróast þetta einfaldlega af því hvað bókunarfyrirtækin hafa að bjóða? „Þetta á líka við um Evrópu. Ég spila yfirleitt í svona sölum, göml- um eða glænýjum. Þeir eru yfirleitt af þeirri stærð sem hentar tónlist- inni minni vel og eru sitjandi salir. Þetta hefur mikið með andrúms- loft að gera en einnig bara lógík – ég er að reyna að skapa ákveðna leikhússtemningu og þessir salir hafa það sem við þurfum til þess,“ svarar Ólafur. – Ertu að vinna að nýrri tónlistarsmíð á þessu ferðalagi eða er dagskráin of annasöm fyrir svoleiðis vinnu? „Ég er bara að einbeita mér að tónleikaferðalaginu. Stundum koma hugmyndir, en ég get ekki unnið skipulega að neinu öðru meðan á þessu stendur.“ – Eitthvað annað sem ég hef gleymt að spyrja sem lesendur Morgunblaðsins hefðu gaman af að vita varðandi þessa tónleika- ferð? „Margir tónleikar eru fram und- an, um allan heim, og hægt að skoða þá á olafurarnalds.com. Nýtt tónlistarmyndband við lagið „Ekki hugsa“ kemur svo út 8. febrúar.“ Tónleikaferðalög í eitt og hálft ár ÓLAFUR TEKINN TALI Í SAN FRANCISCO Afkastamikill Ólafur Arnalds.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.