Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 36

Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 36
Kvartett bandaríska saxófónleik- arans Phils Doyles leikur í kvöld á vikulegu djasskvöldi Kex hostels og hefjast tónleikarnir kl. 20.30 að vanda. Auk Doyles skipa kvartett- inn Tómas Jónsson sem leikur á hljómborð, Pálmi Gunnarsson sem leikur á bassa og Einar Scheving sem leikur á trommur. Aðgangur er ókeypis. Kex hostel er á Skúlagötu 28. Kvartett Doyles leikur á djasskvöldi Kex ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 36. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Selfoss tryggði sér tvö mikilvæg stig í toppbaráttu Olís-deildar karla í handknattleik í gærkvöldi þegar liðið vann Aftureldingu, 29:28, í há- spennuleik að Varmá í Mosfellsbæ. Pawel Kiepulski var hetja Selfoss þegar hann varði skot Afturelding- armanns á síðustu sekúndu leiks- ins. ÍR-ingar sýndu baráttu og dug og náðu í stig í Eyjum. »3 Selfoss vann í há- spennuleik að Varmá ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Njarðvíkingar léku Íslandsmeist- ara KR í körfuknattleik karla grátt á þeirra eigin heimavelli í gærkvöld þegar liðin mættust í Dominos-deildinni. KR-ingar skor- uðu aðeins 55 stig í leiknum, gegn 71 stigi Njarðvíkinga sem þar með eru á ný með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. KR-ingar sitja hins- vegar áfram í fjórða sætinu og eru nú sex stig- um á eftir Njarðvíkingum. »2-3 Njarðvík hélt KR í 55 stigum í Vesturbænum Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Kristín Gunnarsdóttir er sjónfræð- ingur sem unnið hefur lengstan hluta starfsævinnar í Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda og sjónskerta. Hún ferðast um heiminn sem sjálfboðaliði, mælir sjón og út- vegar gleraugu handa þeim sem ekki hafa tök á að því sjálfir. „Þetta byrjaði allt í skemmtiferð til Kúbu 2005. Mér var sagt að vöru- úrval væri lítið á Kúbu svo ég tók með mér slatta af lesgleraugum. Þar sem ég sat á veitingastað sá ég að gítarleikarinn á staðnum var með rammskökk gleraugu. Þegar hann var búinn að spila kom hann að borðinu til mín að selja disk og ég vildi fá að laga gleraugun hans, sem ég og gerði. Flautuleikari hljómsveitarinnar sagði mér að hann sæi varla orðið á nóturnar svo ég dró upp úr veskinu mínu lesgler- augu og lét hann máta,“ segir Krist- ín og bætir við að flautuleikarinn hafi æpt upp yfir sig: „Ég sé, ég sé!“ Kristín segir að á þeim tíma hafi verið hægt að fara í sjónmælingu á Kúbu, en mikill skortur hafi verið á sjónglerjum og efni í umgjarðir. Að sögn Kristínar heillaðist hún af Kúbu. Hún fór í samstarf við Lions sem safnaði fyrir hana nokk- ur hundruð gleraugum sem hún fór með til Kúbu ári seinna, veifaði þeim á torgum og gaf. „Ég lenti í smá vandræðum í toll- inum og það tók nokkra daga að leysa öll gleraugun út. Ég ákvað í kjölfarið að ganga til liðs við rúm- lega 1.000 manna sænsk samtök, Vi- sion for all, sem fara sjö til níu sinn- um á ári til Suður-Ameríku og Afríku að mæla sjón og útbýta not- uðum gleraugum,“ segir Kristín sem bendir á að mikið starf liggi í því að hreinsa, mæla upp og merkja gleraugu áður en þau eru afhent. Kristín hefur farið með gleraugu til Kúbu, Nepal, Síle og Páskaeyju. Á Páskaeyju sem er 164 ferkíló- metrar búa fimm til sjö þúsund manns. Eyjarskeggjar eru frekar einangraðir, þar sem einu sam- göngur þangað eru fimm klst. flug frá Santíagó einu sinni í viku. Kristín sem er nýhætt að vinna ætlar að verja tíma sínum í áfram- haldandi hjálparstörf og stefnir næst á Perú. Hún segist standa sjálf straum af öllum ferðunum en hafi fengið stuðning og velvilja hjá vinnuveitendum, Blindrafélaginu, Echo heildsölu sem gefið hafi les- og sólgleraugu, Lions sem hafi stað- ið fyrir söfnun á gleraugunum og Icelandair afhendi henni gleraugu sem gleymast í vélum félagsins og ekki hafi verið vitjað í lengri tíma. Gjafmildi Kristín Gunnarsdóttir sjónfræðingur ásamt þakklátum Tiroabúa sem öðlast hefur nýja sýn. Ferðast um og gefur bágstöddum gleraugu  Byrjaði á gleraugnagjöfum í skemmtiferð á Kúbu Picasso rmúla 24 • S. 585 2800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.