Morgunblaðið - 08.02.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019
Meirihluti borgarstjórnar sam-þykkti í gær glæsilega endur-
skipulagningu borgarkerfisins. End-
urskipulagningin er viðbrögð við
braggamálinu, enda öllum ljóst að
braggamálið var aðeins skipulags-
vandamál og hafði ekkert að gera
með sóun, bruðl og
getuleysi þeirra sem
ábyrgð bera á stjórn
borgarinnar.
Hin glæsilegaendur-
skipulagning felst í
því að leggja niður
þrjú svið borg-
arinnar og stofna í
staðinn önnur þrjú.
Enginn þarf aðefast um að þetta muni breyta
öllu og frá 1. júní, þegar glæsilegar
stjórnkerfisbreytingar taka gildi,
verður allt hnökralaust hjá borginni.
Öllu munar auðvitað, það sér hvermaður, að í stað skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar, fjár-
málaskrifstofu og skrifstofu þjón-
ustu og reksturs, komi svið þjónustu
og nýsköpunar, svið mannauðs og
starfsumhverfis og svið fjármála og
áhættustýringar.
Þessar nafnabreytingar þriggjasviða borgarinnar eru aug-
ljóslega það sem borgin þurfti og
grátlegt að enginn skyldi hafa áttað
sig á því fyrr að vandinn fælist í því
að þremur sviðum var ofaukið og að
stofna þurfti þrjú svið til að fást við
þau verkefni sem hin niðurlögðu
svið sinntu áður.
Borgin hefði getað sparað sérhátt í hálfan milljarð króna,
bara í bragganum, ef þessi snjalla
hugmynd hefði fæðst fyrr. En betra
er seint en aldrei og breytingarnar
vitaskuld mikið fagnaðarefni.
Dagur B.
Eggertsson
Glæsilegar
nafnabreytingar
STAKSTEINAR
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Launagreining sem unnin var vegna
jafnlaunavottunar í forsætisráðu-
neytinu leiðir í ljós að kynbundinn
launamunur var 0,73% að teknu til-
liti til frávika sem leiða af ákvæðum
laga, m.a. um launaákvarðanir emb-
ættismanna. ,,Kynbundinn launa-
munur reyndist hins vegar vera
4,3% þegar greining var gerð á öllu
úrtakinu. Í báðum tilfellum var um
að ræða hærri laun hjá konum en
körlum,“ segir í svari forsætisráð-
herra við fyrirspurn Þorsteins Víg-
lundssonar alþingismanns um jafn-
launavottun Stjórnarráðsins.
Fram kemur að 1. febrúar sl.
höfðu forsætisráðuneyti, mennta- og
menningarmálaráðuneyti, fjármála-
og efnahagsráðuneyti, umhverfis- og
auðlindaráðuneyti, dómsmálaráðu-
neyti og velferðarráðuneyti öðlast
jafnlaunavottun. Þorsteinn spurði
m.a. um ástæður þess að ekki var
unnið að jafnlaunavottun fyrir
Stjórnarráðið sem eina heild eins og
meirihluti allsherjar- og mennta-
málanefndar hafði lagt til. Í svarinu
er bent á að ríkisstjórnin sé ekki
fjölskipað stjórnvald og teljist hvert
ráðuneyti fyrir sig sérstök stofnun
og sérstakt stjórnvald. Því hafi ekki
verið lagalegar forsendur til að
fylgja áherslum meirihluta alls-
herjar- og menntamálanefndar.
Hærri laun hjá konum en körlum
Launagreining sýndi 4,3% kynbund-
inn launamun í forsætisráðuneytinu
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnarráðið Sex ráðuneyti höfðu
öðlast jafnlaunavottun 1. feb.
Vinnutími fólks í fullu starfi á vinnu-
markaði var að jafnaði langur á sein-
ustu mánuðum seinasta árs skv. ný-
birtum niðurstöðum úr Vinnu-
markaðskönnun Hagstofunnar. Í
henni má sjá að meðalfjöldi vinnu-
stunda á viku meðal þeirra sem voru í
fullu starfi í viðmiðunarviku þegar
könnunin var gerð var 43,4 klukku-
stundir, 41 stund hjá konum og 44,9
hjá körlum.
Ef litið er á allan seinasta ársfjórð-
ung seinasta árs er meðalfjöldi vinnu-
stunda fólks bæði í fullu starfi og í
hlutastörfum 38,9 stundir á viku, 34,7
stundir hjá konum og 42,5 stundir
meðal karla. ,,Þeir sem voru í fullu
starfi unnu 44,3 stundir að jafnaði en
þeir sem voru í hlutastarfi unnu að
jafnaði 23,0 stundir,“ segir í Hagtíð-
indum.
Hagstofan mældi 2,4% atvinnuleysi
meðal landsmanna á vinnumarkaði á
seinasta ársfjórðungi. Starfandi fólki
hafði fjölgað um 4.500 frá sama tíma á
árinu á undan en hins vegar er hlut-
fall starfandi fólks af mannfjöldanum
hálfu prósentustigi lægra en 2017.
Í könnunum Hagstofunnar er
reynt að leiða í ljós hversu margir
einstaklingar eiga það sammerkt að
leggja minna af mörkum á vinnu-
markaði en þeir geta eða vilja og
segja megi að séu vannýtt vinnuafl.
Þessir hópar teljast ekki atvinnulaus-
ir skv. skilgreiningu Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar og á það t.d. við
um fólk í hlutastörfum sem vill vinna
meira og einnig þá sem ekki eru að
leita að vinnu en vilja vinna ef hún
býðst og þeir sem segja má að séu á
mörkum atvinnuleysis og óvirkni. „Á
fjórða ársfjórðungi voru tæplega
16.600 manns sem teljast atvinnu-
lausir samkvæmt skilgreiningu, gætu
að einhverju leyti talist vannýtt
vinnuafl (vinnulitlir) eða mögulegt
vinnuafl, sem gerir 6,5% af heildar-
mannfjölda 16-74 ára,“ segir í Hag-
tíðindum.
Vinna að jafnaði
43,4 klst í fullu starfi
16.600 vannýtt
vinnuafl og sumir
á mörkum atvinnu-
leysis og óvirkni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Störf Atvinnuþátttaka var 80,5%
síðustu þrjá mánuði síðasta árs.
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
ALLAR BAÐHERBERGISINNRÉTTINGAR
OG ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR
FÁSTMEÐ 20%AFSLÆTTI
ÚT febrúar 2019
GÓÐ KAUP
NÚ ER LAG AÐ GERA
Við gerum þér
hagstætt tilboð í
innréttingar, vaska
og blöndunartæki
- AFSLÁTTUR -
20%
Útfebrúar 20
19
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
OPIÐ:
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/