Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 ✝ Eygló Boga-dóttir fæddist 11. desember 1945 á Djúpavogi. Hún lést á Landspít- alanum Fossvogi 31. janúar 2019. Móðir hennar var Guðleif Magn- úsdóttir, f. 12. nóvember 1918, d. 6. mars 2006, og faðir hennar var Bogi Steingrímsson, f. 18. júní 1922, d. 12. júlí 1963. Eygló bjó ásamt móður sinni hjá Hildi ömmu sinni og Magn- úsi afa sínum í Hamarseli í Hamarsdal í Suður-Múlasýslu fyrstu ár ævi sinnar. Hún bjó um hríð með móður sinni og eiginmanni hennar á Djúpavogi og fóru þau þaðan til Vest- mannaeyja, þar sem hún út- skrifaðist sem gagnfræðingur árið 1963. Hún kynntist föðurfjölskyldu sinni ekki fyrr en á táningsaldri þar sem meginhluti hennar var vestur í Dölum en hún skrif- aðist á við þau um leið og hún lærði að skrifa. Leið hennar lá svo í Dalina þar sem hún hóf í nám í Húsmæðraskólanum á María, f. 4. apríl 1999. 2) Hild- ur M., f. 29. júní 1972, gift Björgvini Ingvasyni, f. 26. okt. 1977, börn úr fyrra hjónabandi Daníel Þorsteinn, f. 27. sept- ember 1990, á hann tvö börn, Dómald D., f. 19. október 1994, Sveinn Óli, f. 30. apríl 1996, Magnús Stígur f. 10. september 2000, og Eyþór Burkni, f. 31. ágúst 2003 Dómaldssynir, dæt- ur með núverandi eiginmanni Eygló Ásta, f. 30. júní 2012, og Ingibjörg Anna, f. 24. mars 2014. 3) Þ. Una, f. 12. júní 1974, gift Gísla Páli Davíðs- syni, f. 5.11. 1973, börn þeirra Alex D., f. 3. janúar 1995, Þor- steinn E., f. 18. júlí 1998, og Sóley Rós, f. 3. júní 2003. 4) Helgi, f. 11. nóvember 1977, börn hans Filip Már, f. 29. febr- úar 2000, Danía Margrét, f. 8. júlí 2002, Loki, f. 16. desember 2004, og Sigurður H., f. 4. ágúst 2009. 5) Leifur Már, f. 14. maí 1979, giftur Grétu Gunnarsdóttur, f. 20. febrúar 1980, börn þeirra María Rún, f. 21. apríl 2005, Kristín Gyða, f. 27. maí 2007, og Gunnar Freyr, f. 23. apríl 2011. Lengst af bjó Eygló ásamt eiginmanni og börnum í Reyni- hvammi 12 í Kópavogi. Útförin fer fram frá Linda- kirkju í dag, 8. febrúar 2019, klukkan 15. Staðarfelli. Systur sam- mæðra voru Jónína Rebekka, f. 13. apríl 1951, Dag- björt Þ., f. 24. maí 1955, d. 3. október 2009, Gústa, f. 29. apríl 1958, og Magnhildur, f. 6. okt. 1959, Hjör- leifsdætur. Systkini sam- feðra voru Þuríður, f. 24. maí 1953, Steingrímur, f. 8. febrúar 1955, Jóhann, f. 7. janúar 1958, Bergsteinn, f. 14. febrúar 1959, d. 6. júní 1980, og Hjalti f. 29. mars 1962. Móðir þeirra Una Jóhannsd., f. 17. apríl 1934. 18 ára gömul kynntist Eygló eiginmanni sínum, Þorsteini E. Einarssyni, f. 20. maí 1946 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Einar Geir Lárusson, f. 24. sept- ember 1913, d. 22. ágúst 1997, og Stígheiður Þorsteinsdóttir, f. 5. ágúst 1903, d. 30. ágúst 1999. Eygló og Þorsteinn gengu í hjónaband 29. desember 1968. Börn þeirra eru: 1) Heiða, f. 8. mars 1971, gift Sigurði B. Gil- bertssyni, börn þeirra Gilbert Arnar, f. 13. ágúst 1995, og Eva Elsku mamma, hvernig eigum við að trúa því að þú sért farin. Þú sem varst okkur svo kær. Við er- um klárlega betri manneskjur vegna þín. Það var alltaf hægt að leita til þín alveg sama hversu stórt eða smátt vandamálið var já þú varst alltaf til staðar, stundum þurfti maður bara spjall og knús og þá varð allt betra. Ætli ástæð- an fyrir því að við vorum nú ekki meiri villingar á unglingsárunum sé ekki sú að maður vildi ekki valda þér vonbrigðum, þú treystir okkur alltaf til að taka eigin ákvarðanir og ábyrgð á því sem við vorum að gera. Öll erum við sammála um að heyra rödd þína þegar við erum að drífa okkur „ef þú ætlar ekki að gera þitt besta skaltu bara sleppa þessu“. Lífið er svo skrítið og svo óút- reiknanlegt, eina stundina erum við að spjalla og hlæja og þá næstu ertu farin, elsku mamma. „Heilablæðing? Ha, hvað ertu að segja?“ voru viðbrögð okkar allra systkinanna þegar hringing- in kom frá Spáni og vorum við öll komin til þín eins fljótt og flogið var. Hrædd en samt svo viss um að þú mundir ná þér og þú varst á svo góðri leið orðin svo spræk, enginn hjólastóll, nei sleppum bara þessari göngugrind og tókst svo bara á móti okkur brosandi í dyrunum um helgina, en ætli þau hafi ekki þarfnast þín meira þarna uppi. Við skulum passa upp á pabba og hvert annað eins og þú gerðir. Við komum alltaf til með að elska þig og sakna þín. Brosið og ástin sem skein í gegnum þig. Augun sem sögðu allt sem segja þurfti. Oft hún reynist erfið mjög brautin þyrnum stráða en reyndu vina í lengstu lög að láta hjartað ráða (Eygló Bogadóttir) Ólátabelgirnir þínir 5, Heiða, Hildur, Una, Helgi og Leifur. Elsku Eygló, betri tengda- mömmu er ekki hægt að hugsa sér. Hjartahlýja, gestrisni og hjálpsemi einkenndu allt þitt fas. Frá fyrstu tíð var ég velkomin og ein af fjölskyldunni. Minning þín lifir um ókomin ár. Takk fyrir allt. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Gréta. Elsku amma. Við viljum byrja á því að þakka þér fyrir ástina, um- hyggjuna og góðu tímana. Allar sögunar sem munu halda áfram að lifa með okkur í gegnum kyn- slóðir. Eitt sem við öll frænd- systkinin erum sammála um er ástin og hlýjan sem þú veittir okk- ur öllum. Við viljum þakka þér fyrir að hafa verið alltaf til staðar fyrir okkur þegar við þurftum á þér að halda, þú varst alltaf tilbúin með opinn faðm og að hjálpa þeim sem á þurftu að halda. Við munum öll eftir bakstrinum þínum, mömmukökunum og hjónabandssælunni eða eins og þú sagðir stundum „hjónabands-æl- unni“ – þessi litli brandari verður alltaf með okkur og í hvert skipti sem við sjáum kökuna munum við hugsa til þín. Þú varst góðhjörtuð, indæl, gestrisin og hjálpsöm, þú gafst alltaf bestu knúsin með þínum in- dælu litlu ástarkossum. Við munum vel eftir því hvernig allt þurfti að vera spikk og span og hvernig þú gast eytt mörgum klukkutímum í að taka upp mylsnu, þrífa vaskinn og allt hús- ið. Við hefðum öll óskað eftir að fá meiri tíma með þér, guð tók þig of snemma frá okkur, heimurinn getur verið svo ósanngjarn stund- um. Því hver dagur með þér var ávallt hamingjuríkur og sendi mann heim tilbúinn fyrir næsta dag. Þú hefur alltaf verið góð fyr- irmynd fyrir okkur öll og þín verð- ur svo sannarlega sárt saknað, við vorum og verðum alltaf litlu lömb- in þín. Elskum þig endalaust Eygló amma. Hvíldu í friði. Alexander, Eva María, Eyþór Burkni, Filip Már, Gilbert Arnar, Magnús, Sóley Rós, Þorsteinn (Steini) og Sveinn Óli. Elskuleg frænka mín, hún Eygló, er látin, hún veiktist úti á Spáni og eftir heimkomuna var hún flutt á Landspítalann í Foss- vogi. Allt virtist ganga að óskum og allir voru vongóðir um að hún myndi ná sér en allt í einu dró ský fyrir sólu og lést Eygló 31. janúar. Við Eygló vorum systradætur og jafn gamlar og miklar vinkonur alla tíð alveg frá því ég man eftir mér. Fyrstu árin bjó Eygló í Hamarsseli í Hamarsfirði hjá móður sinni og ömmu okkar og afa, seinna fluttist hún í Álftafjörð með móður sinni og manni hennar Hjörleifi og þar sem ég bjó á Djúpavogi fékk ég að fara til þeirra á hverju sumri og dvelja þar í nokkra daga. Þar gerðum við ýmislegt skemmtilegt eins og að búa til te úr íslenskum jurtum sem við tíndum fyrir ofan bæinn Melrakkanes þar sem þau bjuggu. Þegar við vorum níu ára fórum við til Akureyrar með ömmu okk- ar og afa, móður minni og frænda okkar en við fórum að heimsækja frænda okkar á Kristnesi í Eyja- firði þar sem hann dvaldi frá unga aldri og síðar varð það hans heim- ili. Ferðin norður tók tvo daga og gist var á leiðinni á Möðrudal á Fjöllum og á Grímsstöðum á bakaleiðinni, við áttum fallega minningu um þessa ferð. Eygló kynntist ekki föður sín- um fyrr en hún var orðin ungling- ur og tóku allir í hans fjölskyldu svo vel á móti henni enda var hún einstaklega ljúf og góð. Skömmu seinna lést faðir hennar sviplega en konan hans var Eygló alla tíð eins og besta móðir. Þó að sam- skipti okkar Eyglóar hafi minnk- að um tíma þegar barnauppeldið stóð sem hæst töluðum við alltaf saman í síma og alltaf á afmæl- unum okkar töluðum við saman. Takk fyrir samfylgdina elsku frænka mín, guð blessi þig. Innileg samúðarkveða til fjöl- skyldunnar. Þín frænka Karen. Við hjónin vorum svo ótrúlega heppin að kynnast Eygló og Steina fyrir 20 árum. Á þeim tíma hefur ýmislegt verið brallað, ótelj- andi ógleymanlegar veiðiferðir og fjölmargar utanlandsferðir, alltaf glatt á hjalla, mikið hlegið og alltaf gaman. Nú hefur Eygló kvatt okkur og haldið í nýtt ferðalag til sumar- landsins. Með sorg í hjarta kveðjum við þig, elsku vinkona, sem hafðir hjarta úr gulli, alltaf boðin og búin að aðstoða aðra og alltaf með gleðina að leiðarljósi. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þessara ára með þér, takk fyrir allar góðu samverustundirn- ar, þær verða vel varðveittar í minningabankanum og þín verður sárt saknað. Elsku Steini og börn, okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi góður guð styrkja ykkur á erfiðum tímum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hvíl í friði, okkar kæra vin- kona. Elín Snorradóttir og Pálmar Einarsson. Að kveðja kæra vinkonu er allt- af erfitt og vantar oft orð til að tjá hugsanir. Nú er stórt skarð í vinahópnum okkar. Munum við sakna hennar mjög. Var hún virk í öllu sem gert var, hvort sem var í leik eða störf- um hvers konar. Því kynntumst við Eldeyjar- konur vel. Vann hún ómetanleg störf í félagi okkar, stjórnarstörf af ýmsu tagi. Til dæmis formaður í tvö ár í röð, þar sem engin var til- tæk í verkefnið. Alltaf gleði og dugur, sem smitaði út frá sér. Þökkum við allar fyrir ljúf og ógleymanleg ár. Samúðarkveðjur eru hér frá hópnum til Þorsteins og fjölskyld- unnar. Við hjónin söknum góðrar vinkonu til margra ára. Þökkum alla þá vináttu, sem geymd er í hjartastað, í minningum okkar. Elsku Steini og stórfjölskyldan öll. Sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur um alla fram- tíð. Blessuð sé minning Eyglóar Bogadóttur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Heiða og Valur. Þegar við kveðjum Eygló vin- konu mína til 58 ára þá kemur efst í huga mér þakklæti. Þakklæti fyrir allar góðu og dýrmætu stundirnar með henni, Steina og stórfjölskyldunni. Það eru góðar minningar sem ávallt lifa. Ég fór að lesa bréf sem hún skrifaði mér á árunum ’69-’74 þeg- ar ég bjó í Danmörku. Þetta var skemmtileg lesning sem gaf góða mynd af lífi okkar á þessum árum. Við ungar, nýlega ráðsettar frúr í hreiðurgerð, með nokkur smá- börn og í fullri vinnu. Eygló þá eins og alltaf síprjónandi á fjöl- skylduna sína og líka fyrir aðra. Hún var einstaklega vinnusöm og dugleg og alltaf voru Steini, börn- in og síðan barnabörnin henni efst í huga. Þeirra velferð skipti hana öllu. Ég, eins og eflaust allir sem þekktu Eygló, mun minnast henn- ar og hennar léttu lundar með gleði, hlýju og þakklæti. Hún mun lifa áfram í hjörtum okkar og lýsa upp með góðum minningum. Innilegar samúðarkveðjur til Steina og fjölskyldunnar. Hvíl í friði kæra vinkona, Ellen Maja og fjölskylda. Eygló Bogadóttir HINSTA KVEÐJA Elsku tengdamamma, takk fyrir allar minningarn- ar. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sigurður B. Gilbertsson. Elsku amma. Ég trúi því ekki að þú sért farin og mig langar það ekki. Ég bíð og bíð eftir að vakna upp af þessari martröð. Þú ert ein af bestu, hlýjustu og fallegustu persónum sem ég hef þekkt. Þú hefur alltaf verið og verður alltaf fyrir- mynd mín, elsku amma mín. Mér þykir svo vænt um þig og minningar okkar, bara að hugsa um þær lætur mig brosa. Ég elska þig amma. Hvíldu í friði. María Rún. Ástkær frændi minn og móðurbróð- ir, Gylfi Guðmunds- son, er látinn. Á kveðjustund koma fram minningabrot og mað- ur áttar sig á að Gylfi var sannur frændi og höfðingi heim að sækja. Ein mín fyrsta minning er um lítið tuskudýr, sem mér var sagt að Gylfi hefði sent mér frá Þýska- landi þegar hann frétti að Fríða systir og Árni mágur hefðu eign- ast dreng. Þetta tuskudýr var mér mjög kært. Gylfi var alltaf mjög ættrækinn og hann átti stærstan þátt í ætt- armóti móðurfjölskyldu okkar, sem var haldið á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp árið 1994. Þar kom saman stór hópur frændsystkina og skemmti sér saman, um miðjan júlí í afskaplega fögru veðri. Hann var þar hrókur alls fagnaðar. Ég var með í nefndinni og oft ræddum Gylfi Guðmundsson ✝ Gylfi Guð-mundsson fæddist 27. sept- ember 1932. Hann lést 28. janúar 2019. Útför Gylfa fór fram 6. febrúar 2019. við saman um að gaman væri að halda annað svona ættarmót. Frændi minn var með ákaflega fallega rithönd og var góður penni. Hann hafði gam- an af að skrifa. Nú í seinni tíð átti hann til að senda skemmtilegar greinar um ættingja okkar á tímamótum í lífi þeirra. Ég kem til með að sakna þeirra pósta. Hann hringdi reglulega í mig og við ræddum saman um málefni líð- andi stundar. Hann hafði áhuga á öllu sem viðkom fjölskyldunni og fylgdist vel með hvað við vorum að bardúsa. Að leiðarlokum vil ég þakka Gylfa fyrir allar góðu stundirnar sem við og fjölskyldur okkar höf- um átt saman í gegnum árin og áhugann sem hann sýndi mér og minni fjölskyldu. Elsku Ása, Monna, Milla, Jón- ína og Solla, við sendum ykkur hugheilar samúðarkveðjur á þess- ari sorgarstundu. Blessuð sé minning Gylfa Guð- mundssonar. Þorgrímur St. Árnason og fjölskylda. Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.        þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar       við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.