Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 fékk hjá Sigmundi Davíð í sjón- varpsþætti fyrir nokkrum árum. Seinna skaupið Svo kom þetta árvissa skaup á gamlárskvöld að vanda en til þess hafði verið valið til handritsgerðar af RÚV sanntrúað samfylkingarslekti með í fararbroddi fyrrverandi hand- bendi Dags B., sem er Ilmur Krist- jánsdóttir. Og það var til þess að auðvitað steingleymdist bragga- málið, eitt mesta klúðursmál aldar- innar. En því var reddað allsnarlega og á síðustu stundu var handritið rif- ið upp, ekki til að setja braggamálið inn heldur Klausturdellumálið þar sem Ilmur leikkona leiddi börn í jólaösinni til að líta eftir jólasveinum í glugga eins og börn hafa gaman af en móðirin afvegaleiddi börnin sín að glugga þar sem sjá mátti ofurölv- aða menn að hrakyrðast. Það fer ekki sögum af hátíðarrölti blessaðra barnanna. Í lögum um Ríkisútvarpið segir að það skuli í starfsháttum sínum ábyrgjast að sanngirni og hlutlægni sé gætt í frásögn, túlkun og dag- skrárgerð. Nýjustu fréttir herma að Ríkis- endurskoðun hyggist gera stjórn- sýsluúttekt hjá RÚV og mun úttekt- in ná til fjármögnunar, reiknings- skila og samkeppnisrekstrar RÚV. Þetta mun vera í fyrsta skipti í 24 ár sem slík úttekt er gerð. Kannski ekki vanþörf á? Þar sem RÚV er hald- ið gangandi með áskrift- argjöldum landsmanna og nokkrum milljörðum króna að auki frá sömu aðilum hefur það trúlega þótt við hæfi að „gleðja“ þjóðina með tveimur áramótaskaupum. Það fyrra var nauðaómerki- legur þáttur Gísla Mar- teins föstudaginn 28. desember, þar sem hann greinilega í sínum þáttum reynir að apa eftir stórgóðum þáttum í sjónvarpi Sím- ans sem heita The Late Late Show With James Corden. En Gísli Mar- teinn kemst ekki með tærnar þar sem Corden hefur hælana og munar þar nokkrum metrum og vil ég því benda fólki á þessa stórgóðu þætti hjá James Gorden því hann er bæði skemmtilegur og mjög góður þátta- stjórnandi og fær til sín í viðtöl al- vörufólk, þekkta leikara frambæri- lega og gamansama, en er aldrei í því að rægja fólk eða leggja í einelti. Jóla- og áramótaboðskapur í þætti Gísla Marteins var Klausturdellu- málið fræga þar sem nokkrar lista- spírur ásamt þáttastjórnanda, glott- andi út að eyrum allan þáttinn, rægðu menn og lögðu í einelti. Fréttir herma að Sigurjón Kjartans- son hafi í handriti farið ósmekk- legum og ljótum orðum um Downs- fólk og gert auðvitað mæður þessara einstaklinga ævareiðar. Sigurjón þessi var mjög stór- yrtur um Klaust- urfólkið. Það hefur aldrei verið sama Jón og séra Jón á Íslandi. Í Klausturdellumál- inu var um að ræða ofurölvi menn, sem aldrei kemur fram, menn sem höfðu í áfengisvímu látið sér um munn fara miður sæmilegt og í ein- hverjum tilfellum ljótt orðbragð um samstarfsfólk. En sá yðar sem synd- laus er kasti fyrsta steininum, er haft eftir þeim sem allt veit og verð- ur gaman að fylgjast með hvaðan grjóthríðin heldur áfram. Þátturinn endaði svo á yfirheyrslu Gísla Mar- teins yfir Báru Halldórsdóttur, þeirri sömu og hleraði samtalið hjá þeim ofurölvuðu og kom því í fjöl- miðla. Greiðsla? Einhverra hluta vegna var leikkonan Steinunn Ólína fengin Báru til halds og trausts við yfirheyrsluna. Steinunn Ólína virk- aði pirruð í þættinum og Gísli Mar- teinn var eflaust ekki búinn að gleyma rassskellinum sem hann Eftir Hjörleif Hallgríms » Í lögum um Ríkis- útvarpið segir að það skuli í starfsháttum sínum ábyrgjast að sanngirni og hlutlægni sé gætt. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri. Tvö áramótaskaup Sjónvarps Lifandi Guð og frels- andi lífgjafi! Þú sem elskar, kannt að hlusta og finna til. Þú sem yfir okkur vak- ir og berð raunveru- lega umhyggju fyrir hverju barni þínu í öll- um kringumstæðum. Þú sem lofaðir að yf- irgefa okkur ekki! Miskunna þú okkur nú í vanmætti okkar og máttleysi er við í einlægri bæn vonumst til að þú heyrir ákall okkar og skynjir vonbrigði okkar og umkomuleysi. Í dag leyfi ég mér að minnast sér- staklega frammi fyrir þér allra þeirra allt of mörgu sem greinst hafa með krabbamein eða einhverja aðra óáran og þurfa því að heyja áður ófyrirséða baráttu við erfiðar tilfinningar og von- brigði. Og takast á við uppskurð og eða meðferðir, geisla eða lyfja, sem mörgum reynast erfiðar. Vertu ná- lægur öllu þessu fólki, aðstandendum þeirra og öðrum sem þau annast. Uppörvaðu þau og styrktu og veittu þeim von og baráttuþrek. Hjálpaðu þeim að takast á við verk- efnið, dagana og næturnar, vikurnar og mánuðina og vonandi árin sem framundan eru. Gefðu að meðferð- irnar við meininu mættu takast vel og aukaverkanir verði eins litlar og frek- ast er kostur, – og gef að þau einangr- ist ekki. Þú veist hver okkar vilji er, því biðj- um við þig um að gefa þessu fólki heilsu og krafta á ný og hjálpaðu fjöl- skyldum þeirra að tapa ekki voninni og trúnni á lífið. Hjálpaðu þeim að fela sig þér á vald og leyf þeim að finna fyrir nær- veru þinni og að þau séu leidd af þér í gegnum hið krefjandi verkefni. Veittu þeim uppörvun og styrk, þrek, þrautseigju og þolinmæði, bjartsýni og von. Þrátt fyrir jafn- vel langvarandi álag, þreytu og svefnleysi. Hjálpaðu þeim að huga að sjálfum sér, gef að þau nái góðri hvíld og gleymi ekki að nærast eðli- lega. Svo þökkum við þér fyrir læknavís- indin og allt hið frábæra fagfólk sem við höfum aðgang að. Blessaðu þau öll einnig og uppörvaðu. Við þökkum fyr- ir öll kraftaverkin og alla þá sigra sem náðst hafa, sem fer sem betur fer fjölgandi. Þú eilífi lífgjafi Þú eilífi lífgjafi! Veit okkur öllum æðruleysi og leyfðu okkur finna fyrir kærleiksríkri nærveru þinni. Þakka þér fyrir að fá að hvíla öruggur, þrátt fyrir allt, í þínum almáttugu, líknandi og græðandi örmum sem ekkert fær mig/okkur hrifið úr. Hvorki nú né síð- ar. Já og svo bara andvörpum við í ein- lægri von til þín, því að við vitum ekki um hvað við eigum að biðja, finnum ekki réttu orðin en treystum því að þú biðjir fyrir okkur og skynjir þrár okkar og þarfir og munir vel fyrir sjá. Gefðu okkur öllum þinn frið í hjarta. Þann frið sem er æðri öllum skilningi. Þess bið ég/við, í nafni Jesú Krists, okkar upprisna frelsara og eilífa líf- gjafa. Lof sé þér, kærleikans Guð, sem ert sigurvegarinn í baráttunni við hvers konar óáran og allt hið illa. Þér sem gerir alla hluti nýja. Lifi lífið! Bæn fyrir þeim sem glíma við krabbamein Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Svo bara andvörpum við í von til þín, því við vitum ekki um hvað við eigum að biðja, finn- um ekki réttu orðin en treystum því að þú mun- ir vel fyrir sjá Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Svo merkilegt sem það kann að hljóma þá virðist það vera í huga margra að þar sem sjúkrahús er staðsett þar skuli einnig vera fullbúinn flugvöllur. Víðast á Íslandi er þetta þannig. Einn staður sker sig þó allhressilega úr, með einn best útbúna flugvöll á Íslandi en einungis slitrur af heilsugæslustöð. Flugvöllurinn er ekki grafinn milli hárra fjalla, hann er með þægilegt aðflug inn á báða enda og ekki er sérstök þörf á að koma ILS-aðflugi inn á þann enda, þá flogið er úr norðri. Flugvöllurinn er malbikaður og vegna aðstæðna í landslaginu er hann sá flugvöllur sem sjaldnast er ófær veðurfarslega séð, ef frá er talinn Keflavíkurflugvöllur. Kefla- víkurflugvöllur hefur nauman vinn- ing, eingöngu vegna þess að þar eru tvær flugbrautir. Ef Keflavík- urflugvöllur væri einungis með eina flugbraut stæði hann að baki þeim flugvelli sem hér er til umræðu. Heimabær umrædds flugvallar er þannig í sveit settur að þar eru allar gerðir af náttúruvá í lág- marki, nema hugsanlega skógar- eldar. Hverfandi áhætta er af ágangi sjávar og hækkuð sjávar- staða mun seint hafa áhrif þar. Skriður, jarðskjálftar, eldgos, aur- og snjóflóð eru nær óþekkt á svæð- inu. Vatnsflóð hafa ekki teljandi hættu í för með sér, þótt áður fyrr hafi þau haft lítilsháttar truflandi áhrif á dagleg störf íbúa svæðisins en fráleitt lífshættu í för með sér. Þakplötur hafa þar ekki fokið síðan rifflaður þaksaumur var fundinn upp. Staðurinn er þar af leiðandi ekki ein- ungis kjörinn til að taka víð íbúum annara svæða þegar fram- angreindar hamfarir, einar eða fleiri, hella sér yfir heldur ætti það að vera markmið stjórnvalda að búa svo um hnútana að íbúar þessa lands ættu sér athvarf þar þegar náttúruvá knýr upp á hjá þeim. En merki- legt nokk – þar er ekkert sjúkra- hús. Stefna stjórnvalda, eins og allir vita, er að koma allri stjórnsýsl- unni, menntastofnunum, menning- arstofnunum, heilbrigðiskerfinu, al- mannavörnum o.s.frv. inn á eitt eldvirkasta landsvæði á Íslandi. Hver er rýmingaráætlun Reykja- víkur og nágrennis ef til hamfara kemur? Er það um Hvalfjarð- argöngin einföld eða tvöföld? Er það um flugvöllinn í Hvassahrauni? Hvert á fólkið að fara? Er ekki rétt að staldra ögn við í þeirri vinnu að byggja nánast ein- göngu upp í Reykjavík? Fram að þessu hefur excel-sértrúarsöfn- uðurinn haft það eina markmið að færa allt til Reykjavíkur án þess að fram hafi farið áhættumat á því fyrir íbúa þess svæðis, fyrirtæki eða stofnanir. Það má varla skipta um þvottaefni á almenningssalerni án þess að gera um það áhættu- mat. Hvar er aðgengilegt áhættu- mat fyrir Reykjavík og nágrenni? Hvernig hefur það verið kynnt íbú- um? Hagkvæmni stærðarinnar er gjarnan flaggað til að rökstyðja samþjöppun valds og stofnana, en aldrei er fjallað um neitt í víðara samhengi, eins og aðgengi annarra íbúa landsins að þjónustu á vegum ríkisins. Þar eiga íbúar landsbyggð- arinnar engan „kassa“ í excel- skjölum, enda er ævinlega lagt upp með fyrirframgefnar niðurstöður til að fá „heppilega“ lausn. Ferða- kostnaður eru fjármunir sem renna beint úr vasa skattgreiðenda utan höfuðborgarsvæðisins og ættu, jafnræðisreglum samkvæmt, að vera a.m.k. frádráttarbærir til skatts, nema allar slíkar ferðir væru greiddar af almannafé vegna ferða í stofnanir sem ekki hafa starfsstöð innan eitt hundrað kíló- metra radíuss frá heimili íbúans. Aftur að upphafi þessarar grein- ar. Bæjarfélagið sem hér er um rætt heitir Egilsstaðir. Flugvöll- urinn er góður og væri enn betri ef hann væri lengdur strax, eins og áformað er, í tvö þúsund og sjö hundruð metra, og breikkaður og skráður sem sextíu metra breið braut. Leitun er að betri aðstæðum fyrir varaflugvöll á Íslandi, sem jafnframt er í fullum rekstri. Með markvissum hætti yrði lággjalda- flugi frá Evrópu vísað þangað til að minnka kolefnisspor ferðamanna á Íslandi. Egilsstaðir yrðu auk þess skilgreindir sem varahöfuðborg Ís- lands og fengju þar af leiðandi sér- staka meðhöndlun sem slík, t.d. með fullkomnu sjúkrahúsi og út- stöðvum fyrir helstu stofnanir rík- isins. Alþjóðaflugvöllur kallar á hátæknisjúkrahús Eftir Benedikt V. Warén » Það má varla skipta um þvottaefni á al- menningssalerni án þess að gera um það áhættumat. Hvar er að- gengilegt áhættumat fyrir Reykjavík og ná- grenni? Benedikt V Warén Höfundur er í 13. sæti M-listans á Egilsstöðum. ps@vax.is Það var undarleg tilfinning, ef ein- hver man það, að koma í fyrsta sinn í kjörbúð. Átti að ryðjast í hillurnar, grípa vörurnar, sí svona, og eiga á hættu að fella allt um koll og eyðileggja nosturlega upp- röðun í búðinni? Þurfti maður svo ekki að gera sig sem heiðarleg- astan í framan, svo kaupmaðurinn, sem beið við afgreiðsluborðið, héldi ekki að eitthvað hefði farið í frakkavasann sem átti að lenda í körfunni? Þetta vandist allt saman og öll- um þykir sjálfsagt að vinna í búð- um við að safna vörum í vagna og fara svo á kassa. En mikið vill meir og nú ýta kaupmenn á að fólk skuli líka sjá um greiðsluna og bera ábyrgð á henni. Þá er hætta á að gamla tilfinningin komi aftur að baka sér klúður og ábyrgð. Eins er það að t.d. dreifbýlis- og sumarhúsafólk fyllir gjarna heilu vagnana í stórmörkuðunum svo það er til of mikils mælst að fólk sjái um að skanna það allt og láta í poka. Það verður að vera lág- marksþjónusta. Svo þurfa versl- unarmenn vinnu, ekki satt? Sunnlendingur. Í vinnu hjá kaupmönnum Sjálfsafgreiðsla Nú á fólk líka að sjá um greiðsluna og bera ábyrgð á henni. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.