Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 19
Norðvestur-
kjördæmis
þarf að bera
skynbragð á
málefni Suð-
urkjördæmis.
Saman til
spjalls á
heimavelli
Þess vegna
ætlum við
þingmenn
Sjálfstæðis-
flokksins að
fara öll saman
í þessa hringferð um landið og
leggja þannig áherslu á að þótt við
séum þingmenn einstakra kjör-
dæma, þá erum við líka og ekki síður
þingmenn landsins alls.
Þannig náum við öll betur saman,
fáum betri skilning á því sem er að
gerast á hverjum stað og landinu
öllu. Það snýr bæði að þörfum og
metnaði hvers byggðarlags, en ekki
þó síður hvernig það styrkir land og
þjóð sem heild. Íslendingar eru og
eiga að vera ein þjóð í einu landi, þar
sem menn eiga að njóta jafnræðis,
jafnréttis og jafnra tækifæra til þess
að efla hag sinn og hamingju, óháð
búsetu, uppruna og öðrum að-
stæðum.
Á næstu dögum munu birtast aug-
lýsingar um hvenær við komum á
hvern stað og við viljum hvetja alla
til þess að koma, hvort sem þeir nú
fylgja Sjálfstæðisflokknum að mál-
um eða ekki. Þetta verða óformlegir
spjallfundir, þar sem okkur langar
til að sem flestar raddir og ólík sjón-
armið komi fram, því til þess er nú
leikurinn gerður: Að hitta fólk á
heimavelli og ræða það sem skiptir
máli.
Stundum er sagt
að stjórnmálamenn
eigi aðeins erindi við
kjósendur rétt fyrir
kosningar, en þess á
milli sjáist þeir sjald-
an. Það er vitaskuld
rétt að það ber aldrei
meira á stjórnmálamönnum en í
kosningabaráttu, þá setja þeir mál
sín fram og leggja í dóm kjósenda.
Þess á milli er hins vegar ekki síður
mikilvægt að stjórnmálamenn rækti
sambandið við umbjóðendur sína,
hlusti eftir sjónarmiðum þeirra,
hlýði á áhyggjur þeirra og hagi
störfum sínum í samræmi við það og
þjóðarhag.
Kjördæmavikan svonefnda er ein-
mitt hugsuð til þess, að hlé sé gert á
þingstörfum svo þingmenn geti farið
út í kjördæmi sín og tekið púlsinn.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
hefur ávallt lagt áherslu á að nýta
kjördæmavikuna vel og hefur hver
þingmaður jafnan að mestu sinnt
sínu kjördæmi, þar sem hann þekkir
best til fyrir. Við viljum gera þetta
öðruvísi nú. Fara áfram út í kjör-
dæmin en gera það saman, svo allir
þingmenn flokksins kynnist þeim
málum sem mest brenna á fólki, á
hverjum stað og í hverju kjördæmi.
Þess vegna erum við þingmenn
Sjálfstæðisflokksins nú að leggja í
sameiginlega hringferð um landið,
sem standa mun yfir næstu vikur.
Við ætlum að heimsækja um 50 bæi
og byggðakjarna um allt land, hitta
fólk á heimavelli og tala við það um
stjórnmálin, atvinnulíf og mannlíf. Í
því spjalli er ekkert undanskilið og
þar verður bæði horft til þess sem
stendur fólki næst og hins sem varð-
ar landið allt.
Það er auðvitað ekki nýtt að fólk
eigi greiðan aðgang að þingmönnum
sínum, í störfum okkar í þinginu og
ráðuneytum hittum við auðvitað
ákaflega marga. Þingmenn hafa við-
talstíma og eru duglegir við að sinna
kjördæminu með margvíslegum
hætti. En betur má ef duga skal, því
það er ekki þannig að á þingi séum
við, hvert og eitt, aðeins að fást við
málefni okkar kjördæmis.
Þrátt fyrir að við séum kjörin á
þing fyrir tiltekin kjördæmi, þá er-
um við oftast að fást við mál, sem
varða landið allt. Málefni höfuðborg-
arsvæðisins varða líka fólk úti á
landi, rétt eins og borgarbúana
skiptir máli hvað er að gerast á
landsbyggðinni. Hagsmunirnir fara,
og eiga að fara, saman. Á Alþingi
þarf þingmaður úr Reykjavík norður
að vita og skilja hvað er á döfinni á
Austurlandi og þingmaður
Eftir Bjarna
Benediktsson,
Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð
Gylfadóttur og
Áslaugu Örnu
Sigurbjörnsdóttur
Bjarni er fjármálaráðherra og for-
maður Sjálfstæðisflokksins. Þórdís
Kolbrún er ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug
Arna er formaður utanríkismála-
nefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins.
Þingmenn á hringferð
Bjarni
Benediktsson
» Allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins
leggja nú í sameiginlega
hringferð til um 50
byggðarlaga til þess að
hitta fólk á heimavelli
og ræða það sem skiptir
máli á hverjum stað
og fyrir landið allt.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019
Í sáttmála ríkis-
stjórnar Katrínar Jak-
obsdóttur er tekið
fram að hagsmunum
Íslands sé best borgið
utan ESB. Þar er ekki
að finna ákvæði um
þjóðaratkvæða-
greiðslu, hvorki vegna
nýrrar ESB-
aðildarumsóknar né
um framhald viðræðna
sem var slitið í mars 2015. Ólíklegt
er að efnt verði til baráttufundar 16.
júlí 2019 þegar rétt 10 ár verða liðin
frá því að alþingi samþykkti
ESB-aðildarumsóknina að tillögu
ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og
Vinstri-grænna (VG).
Þrátt fyrir þetta sjá stjórnmála-
menn sér enn hag að því að stofna
til umræðna um ESB. Í óund-
irbúnum fyrirspurnum á þingi
mánudaginn 4. febrúar sl. spurði
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra (VG)
spurninga varðandi ESB.
Sigmundur Davíð sagði að Íslend-
ingar hefðu slitið viðræðum við Evr-
ópusambandið 12. mars 2015 og
bætti við: „Ég fylgdi því svo eftir
með bréfi og heimsóknum til Jean-
Claudes Junckers [forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB] og Donalds
Tusks [forseta leiðtogaráðs ESB] til
að árétta að umsókn Íslands hafi
endanlega verið dregin til baka,
væri fallin úr gildi.“
Með þessari áréttingu svarar Sig-
mundur Davíð gagnrýni þeirra sem
halda því fram að hann og Gunnar
Bragi Sveinsson, þáv. utanríkis-
ráðherra, hafi alls ekki dregið um-
sóknina til baka. Gagnrýnendurnir
segja að alþingi hafi
samþykkt umsóknina
og þingið verði að sam-
þykkja afturköllun
hennar.
Í spurningunni til
forsætisráðherra boð-
aði Sigmundur Davíð
þingsályktunartillögu í
tveimur liðum a) um að
alþingi fagni að ESB-
aðildarumsóknin sé úr
sögunni og b) að ekki
skuli sótt um að nýju
án þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Bað hann um álit forsætisráð-
herra á þessari væntanlegu tillögu.
Óvenjuleg tilmæli
Ekki á hverjum degi stendur for-
maður stjórnarandstöðuflokks upp
á þingi, ræðir óframkomna eigin til-
lögu og spyr forsætisráðherra álits
á henni. Innan Miðflokksins er þörf
á uppgjöri við ýmislegt. Eitt af því
er greinilega viðskilnaður þeirra
Sigmundar Davíðs og Gunnars
Braga við ESB. Líta má á lið a) í
væntanlegri tillögu sem óbeina
ályktun þingsins um að ESB-
umsóknin sé úr sögunni.
Þótt Sigmundur Davíð segðist
ekki óska eftir stuðningi forsætis-
ráðherra við óframkomna þings-
ályktunartillögu sína gekk hann þó
sérstaklega á ráðherrann með
spurningu um hvort það væri ekki
„mjög ánægjulegt“ að umsókn Ís-
lands hefði verið dregin til baka.
Hún væri ekki „hangandi yfir okkur
núna“ á Brexit-óvissutímum.
Í svörum Katrínar Jakobsdóttur
kom skýrt fram að ætluðu Íslend-
ingar að nálgast ESB að nýju yrði
að gera það á grundvelli nýrrar um-
sóknar. Hún er réttilega ekki í vafa
um að gamla umsóknin er niður fall-
in. Ráðherrann vék sér eðlilega
undan óvenjulegum tilmælum fyrir-
spyrjanda.
Þjóðaratkvæðið
Þegar Katrín svaraði b-liðnum í
spurningu Sigmundar Davíðs sagði
hún að það hefði ekki verið rétt af
sér og öðrum stjórnarsinnum að
fella tillögu um þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðildarumsóknina á
þingi 16. júlí 2009. „Það hefði verið
öllum til góða að […] ráðast í slíka
þjóðaratkvæðagreiðslu áður en
ákveðið var að sækja um aðild,“
sagði forsætisráðherra.
Rétt er að minna á að sjálfstæðis-
menn fluttu tillöguna um þessa
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þótti ESB-
aðildarsinnum hún mesta fásinna. Á
hinn bóginn blasti við öllum að póli-
tískan þunga skorti að baki illa
ígrundaðri umsókninni. Hún var
raunar öðrum þræði flutt á nei-
kvæðum forsendum til að ýta undir
ágreining innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann birtist síðan í stofnun
ESB-aðildarflokksins Viðreisnar.
Í ljósi reynslunnar sagði forsætis-
ráðherra í svari sínu til Sigmundar
Davíðs: „Ég myndi telja óráð að
ráðast í slíka umsókn á nýjan leik
án þess að fram færi þjóðar-
atkvæðagreiðsla.“ Og einnig: „Ég
hef líka alltaf lýst þeirri skoðun að
ég er reiðubúin að leita leiðsagnar
þjóðarinnar ef vilji þingsins stendur
til þess að fara aftur í þessa vegferð.
Minn vilji stendur ekki til þess.“
Hér fer ekkert á milli mála.
Afstaða Viðreisnar
Eftir þessi orðaskipti lagði Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, for-
maður Viðreisnar, spurningar fyrir
forsætisráðherra um ráðagerðir rík-
isstjórnarinnar vegna Brexit.
Þorgerður Katrín sagði að að
sjálfsögðu ætti „að treysta þjóðinni
til að greiða atkvæði um samning en
ekki eitthvert óljóst rugl eins og við
sjáum í Bretlandi [með Brexit]. Ís-
lenska þjóðin á skilið að fá samning
um aðild að Evrópusambandinu og
við eigum að treysta henni til að
greiða atkvæði um slíkan samning“.
Þarna talar formaður Viðreisnar
eins og aðildarviðræður standi yfir
milli fulltrúa Íslands og ESB. Ís-
lendingar eigi „skilið“ að fá samning
– hvers vegna og frá hverjum? Það
er ekki undarlegt þótt forsætisráð-
herra hafi sagt strax eftir að þessi
orð Þorgerðar Katrínar féllu: „Ég
átta mig ekki á því hvað hv. þing-
maður er að fara.“
Ráðherrann taldi að sviðsmyndir
hefðu verið gerðar meðal annars
með hliðsjón af því að Bretar færu
úr ESB án samnings 29. mars nk.
Vandinn væri sá að enginn vissi enn
hvað Bretar ætluðu að gera.
Fiskað í gruggugu vatni
Formaður Viðreisnar fiskaði í
gruggugu vatni þegar hún lagði
spurningar um Brexit fyrir for-
sætisráðherra. Auðvitað veit Þor-
gerður Katrín að íslensk stjórnvöld
eru í jafnmikilli óvissu og aðrir um
hvað verður.
Miðvikudaginn 6. febrúar sagði
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
ESB, að í „helvíti“ ætti að vera
„sérstakur staður“ fyrir þá sem
„hvöttu til Brexit án þess að gera
svo mikið sem uppkast að áætlun
um örugga framkvæmd“ úrsagn-
arinnar.
Katrín Jakobsdóttir sagði að Þor-
gerður Katrín hlyti „að átta sig á
því að við erum hér í samskiptum
við ríki þar sem enn er töluverð
óvissa um hvernig Brexit verður
háttað. Augljóslega er íslenska rík-
isstjórnin ekki með neitt eitt plan
því að við vitum ekkert hver nið-
urstaðan verður í Bretlandi“.
Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna
um Brexit stóð breska stjórnmála-
og stjórnkerfið í svipuðum sporum
og íslenska kerfið sumarið 2009.
Prófessor við Háskóla Íslands taldi
að vísu að það réðist á 10 mánuðum
hvernig aðild Íslands að ESB yrði
háttað. Innan stjórnkerfisins lágu
hins vegar ekki fyrir neinar við-
ræðuáætlanir. Allt fór síðan í
handaskolum.
Að formaður Viðreisnar vilji
halda áfram aðildarferlinu eins og
ekkert hafi ískorist en saki ríkis-
stjórnina um ráðleysi vegna Brexit
staðfestir enn einu sinni óraunsæið
hjá ESB-aðildarsinnum.
Tveir kostir
Áður en Sigmundur Davíð birtir
þingsályktunartillögu sína og grein-
argerð með henni skal ekkert full-
yrt um hvað knýr á um flutning
hennar. Flest bendir til þröngra
flokkshagsmuna. Viðreisn stjórnast
af draumsýn. Samfylkingin gælir
við ESB-aðild. Aðrir flokkar eru
henni fráhverfir.
Sætti menn sig ekki við núver-
andi stöðu, aðildina að EES, eru að-
eins tveir kostir; að hverfa aftur til
fríverslunarsamninganna frá 1972
eða sækja um aðild að ESB.
Eftir Björn
Bjarnason » Ólíklegt er að efnt
verði til baráttu-
fundar 16. júlí 2019 þeg-
ar rétt tíu ár verða liðin
frá því að alþingi sam-
þykkti ESB-aðildar-
umsóknina.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Miðflokkurinn beinir athygli að ESB
Í vetrarsól Hlýlega klædd kona sólar sig á setbekk á mjallhvítum Austurvelli.
Eggert